Morgunblaðið - 19.08.2000, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 69
---------------------------"V.
FÓLK í FRÉTTUM
Hljómsveit
Geirmundar
Valtýssonar
í kvöld, menningarnótt
Veitingahúsið
Naustið
LEIKUR
Á morgun mætast KR og Fylkir á heimavelli vest-
urbæinganna. Liðin tvö eru í tveimur efstu sætum
Landssímadeildarinnar og gætu úrslitin því jafnvel
ráðist þar og þá. En hvað ætla stuðningsmenn lið-
anna að gera til þess að blása kjarki 1 sína menn?
„Djöflagengið“ úr Árbænum hefur slegið í gegn.
I hjarta
Arbæj arh verfisins
„VIÐ VIL JUM bikarinn í Árbæinn," sé að ná því að lokka allt að 10% Ár-
söng sigursveit Músíktilrauna þetta
árið, XXX Rotweilerhundar, um það
leytið sem fyrsta umferð Landssíma-
deildarinnar var að byrja. Og viti
menn, þeir gætu jafnvel fengið ósk
sína uppfyllta. Fylkir hefur nú slitið
barnsskónum og er að komast all-
hressilega á gelgjuskeiðið og lætin
eru slík að þau heyrast alla leið niður
í vesturbæ þar sem aldursforsetar
KR eru byrjaðir að ókyrrast.
Stuðningsmenn Fylkis hafa þann
háttinn á að hittast í hjarta Árbæjar-
hverfis.
„Stuðningsmannafélagið og Club
Orange ætla að hittast á Blásteini
klukkan þrjú,“ segir Pétur Stefáns-
son, hinn appelsínuguli talsmaður
stuðningsmannafélags Fylkis. „Þar
verður hitað upp með andlitsmáln-
ingu og öðru. Svo verður KR-ingum
hjálpað vegna bílastæðamála þeirra
með ókeypis rútuferðum þaðan á
kostnað Club Orange. En við byrjum
að keyra mannskapinn svona um
korter til tíu mínútur í fimm á völl-
inn. Við ætlum að vera með tvær rút-
ur í því að ferja liðið sem mætir.“
Club Orange er hópur fólks sem
sér meðal annars um kaffisöluna og
annað slíkt á leikjum liðsins en
stuðningsmannafélagið sjálft er í
raun nafnlaust.
Pétur segist halda að kjarni fé-
lagsins innihaldi um 300 manns þrátt
fyrir að það eigi enga skráða félaga-
tölu. í dag ályktar hann þó að félagið
innihaldi allt upp i 600 stuðnings-
menn. Hann segir einnig að Fylkir
bæinga á völlinn.
„Að sjálfsögðu eru allir velkomnir,
þetta er ekkert lokað fyrirtæki,"
segir Pétur.
Hópur háværra ásláttarpilta sér
til þess að hjartsláttur stuðnings-
manna sé í takt. Þessir piltar kalla
sig „Djöflagengið".
„Það eru allt ungir piltar sem hafa
verið viðloðnir við félagið lengi,“ seg-
ir Pétur. „Flestir þeirra hafa nú spil-
að alla yngri flokkana. Þetta byrjar
eins og með allt að með velgengninni
spretta upp svona fyrirbæri. Þetta
eru strákar sem hafa verið að gera
frábæra hluti á vellinum í sumar.“
Stuðningsmenn Fylkis eru því
búnir að reima skó sína gætilega og
ætla í hundruða tali að mæta askvað-
andi á völlinn. Veðurútlit er gott og
því ætti enginn að verða svikinn með
það að mæta á völlinn og styðja sína
menn. Áfram Fylkir!
ætla að gera (fyrir utan það að
vinna leikinn) er að endurvekja
þátt Sigurðs Péturs Harðarsonar,
„Landið og miðin“, sem var á dag-
skrá Rásar 2 forðum daga. Svartí^
hvítir vesturbæingar ættu því að
vakna snemma og kveikja á við-
tækjum sínum því útsending þátt-
arins hefst klukkan níu á sunnu-
dagsmorgun og lýkur um hádegið.
Eftir það verður að sjálfsögðu út-
varpað fram að leik og eitthvað
eftir hann. Höskuldur segir að ef
þetta gengur vel og úrslitin verða
KR í hag þá verði útvarpið með
fleiri útsendingar af þessu tagi.
„Það er eitt sem er mjög merki-
legt,“ segir Sigurður með lands-
þekktri útvarpsröddu sinni, „og
það er að á milli þrjú og fjögur umr -
daginn ætlar svo Hellen Magnea
Gunnarsdóttir að leika fótboltalög
úr ýmsum áttum. Þetta hefur
aldrei gerst í útvarpi hér á landi
áður.“
Aðspurður að því hvort þarna sé
um að ræða síðasta skiptið sem
Sigurður verður með þátt sinn
svarar hann:
„Nei, ætli við verðum ekki að
skoða eitthvað framhald af þessu.“
Á Rauða Ljóninu, sem er sam-
astaður allra gallharðra KR-inga,
byrjar upphitun kl. 14:00 þar sem í
boði verða andlitsmálning, tár,
bros og takkaskór. Áfram KR!
ARSINS
Morgunblaðið/Ásdís
Sigurður Pétur Harðarson (t.v.) tekur við sérmerktum búningi frá
Höskuldi Höskuldssyni og er því formlega tekinn í tölu KR-inga.
KR, landið og miðin
LJÓST er að leikurinn á morgun
er einn sá mikilvægasti fyrir bæði
liðin en þó kannski sérstaklega
fyrir liðsmenn KR úr vesturbæn-
um sem þurfa að steypa úthverfa-
piltunum úr Ái’bæjarhverfi af
toppi deildarinnar. Samstaða og
þolinmæði KR-manna hefur alltaf
verið með ólíkindum og var þeim
líka verðlaunuð biðin í fyrrasumar
þegar félagið vann tvöfaldan sigur.
Höskuldur Höskuldsson, vara-
maður KR-félagsins og útvarps-
stjóri KR-útvarpsins, segir að út-
varpið verði með sérstaklega langa
útsendingu á morgun í tilefni stór-
leiksins.
„KR-útvarpið hefur verið starf-
rækt í tvö ár og hefur verið með
útsendingar frá heimaleikjum og
útileikjum,“ segir Höskuldur. „Við
höfum verið með dagskrá svona
klukkutíma fyrir útileiki en allt að
þremur tímum fyrir heimaleiki.
Núna er þetta náttúrulega úrslita-
leikur Islandsmeistaramótsins og í
tilefni þess ætlum við að blása til
sóknar og byrja snemma. Útvarp
KR er með tíðnina FM 98,3 og er
með leyfi til útvarpsreksturs svo
við getum gert það sem okkur
langar til að gera.“
Það sem KR-ingar langar til og
KR og Fylkir mætast á KR-vellinum á morgun
^mb l.i is
EITTHVAO NÝTl
s kifan.is