Morgunblaðið - 21.09.2000, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Misfærsla gagna hjá
Hagstofunni
títflutning-
ur á óunn-
um físki
óbreyttur
ÚTFLUTNINGUR á óunnum fiski
fyrstu sjö mánuði ársins var um
19.600 tonn en ekki um 23.530 tonn
eins og fram kemur í gögnum Hag-
stofunnar og greint hefur verið frá.
Ástæða mistakanna er, að sögn
Björns Þ. Mássonar, fulltrúa í utan-
ríkisfærslum hjá Hagstofunni, mis-
færsla gagna hjá Hagstofunni þar
sem landanir á um 4.000 tonnum af
kolmunna í Færeyjum í júh' voru
skráðar í dálki með óunnum fiski en
ekki með fiski til bræðslu eins og rétt
er.
Verðmæti útflutningsins á tímabil-
inu frá janúar til júlí í ár var um þrír
milljarðar króna og um 2,856 millj-
arðar á sama tíma í fyira, en þá var
útflutningurinn rétt rúmlega 19.000
tonn. Aukningin er því óveruleg og
innan skekkjumarka.
íslenskir fiskverkendur hafa gagn-
rýnt útflutning á óunnum fiski og hef-
ur Logi Þormóðsson, stjómarfor-
maður Fiskmarkaðs Suðumesja,
m.a. sagt að allur óunninn fiskur eigi
að fara á fiskmarkað hérlendis. Haft
var eftir Árna M. Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra í Morgunblaðinu í
gær að ráðuneytið væri að skoða út-
flutning á óunnum fiski ofan í kjölirin
en í granninn ætti verðið að ráða. Við-
brögð hans miðuðust við 23% aukn-
ingu á útflutningi óunnins fisks en
hann segir að allt það sem hann hafi
sagt um málið standist, þrátt fyrir
fyrrnefnda misfærslu gagna, því eng-
ar breytingar hafi orðið á útflutnings-
mynstrinu. „Þetta er hlutur sem við
höfum verið að skoða og við höldum
því áfram,“ segir hann. „Þessi niður-
staða kallar því ekki eftir neinu nýju.“
Isferja á
Jökulsárlóni
JÖKULBROTIN á Jökulsárlóni á
Breiðamerkursandi geta tekið á sig
hinar íjölbreyttustu myndir í haust-
blíðunni. Hér mætti halda að ferja
hefði hafið siglingar á lóninu og lyft
stefninu svo bátar eða önnur farar-
tæki geti komið sér þar fyrir. Aðrir
gætu jafnvel haldið að hér væri
myndarlegur hvalur að galopna
ginið.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Helgarkvikmyndir Sjonvarpsins
Auglýsingahlé til athugunar
FORRÁÐAMENN Sjónvarpsins
eru með til skoðunar þau áform
markaðssviðs stofnunarinnar að
gera stutt auglýsingahlé á kvik-
myndum sem sýndar era um helgar.
Þorsteinn Þorsteinsson, forstöðu-
maður markaðssviðs RÚV, staðfesti
þetta í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði þessi áform, ásamt fleir-
um, stöðugt vera til skoðunar í tekju-
öflun stofnunarinnar. Útvarpslög
leyfðu auglýsingahlé af þessu tagi og
vísaði Þorsteinn m.a. til útsendinga á
Formúlu 1 kappakstri.
Þorsteinn sagði ákvörðun liggja
fyrir fljótlega í málinu en ef af yrði
þá yrði þetta gert til reynslu í októ-
ber. Hann sagði að um eitt 2ja mín-
útna hlé yrði að ræða á kvikmyndum
með meira en 90 mínútna sýningar-
tíma.
Forsvarsmenn Ágætis segja að dregið hafí úr sölu á grænmeti síðustu daga
Engin salmonella
fínnst í fyrstu sýnum
SALMONELLA fannst ekki í nokkr-
um sýnum úr jöklasalati frá Dole sem
heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur
haft til ræktunar á undanfömum
dögum en niðurstaðna úr rannsókn-
um á fleiri sýnum úr öðram jöklasal-
athöfðum frá Dole er að vænta fyrir
helgi. Guðrún Sigmundsdóttir smit-
sjúkdómalæknir hjá Sóttvamarlækni
segir í samtali við Morgunblaðið að
þrátt fyrir þetta liggi salatið undir
sterkum gran um að vera uppspretta
salmonellufaraldursins sem gengið
hefur yfir suðvesturhorn landsins
undanfama daga. Segir hún að far-
aldsfræðilegar rannsóknir, þ.e. kann-
anir á því hvar og hvað menn sem
sýktust borðuðu, bendi eindregið til
þess að uppruna sýkingarinnar sé að
finna í salatinu.
Á heimasíðu Landlæknisembætt-
isins í gær kom fram að 87 manns
hefðu greinst með salmonellusýkingu
síðustu vikuna og því spáð að enn
fleiri eigi eftir að gi-einast með sjúk-
dóminn á næstu dögum. Guðrún telur
þó að faraldurinn sé í rénun og bætir
því við að það gæti tengst því að
jöklasalatið sem hér um ræðir sé ekki
lengur fáanlegt á markaðnum.
Almar Hilmarsson framkvæmda-
stjóri Ágætis hf., sem flutti inn jökla-
salatið frá Dole í lok ágúst sl., segir að
fyrirtækið hafi orðið fyrir töluverðum
fjárhagsskaða vegna umfjöllunarinn-
ar um hugsanlega salmonellusýkingu
í salatinu frá Dole. Segir hann að hún
hafi ekki einungis dregið mjög úr sölu
á grænmeti og ávöxtum frá fyrirtæk-
inu Dole Fresh Vegetables Inc. held-
ur hafi hún einnig dregið úr sölu á
öðru innfluttu sem og innlendu græn-
meti. „Ég get ekki nefnt neinar tölur í
fljótu bragði en þetta era umtals-
verðar fjárhæðir," segir hann þegar
hann er beðinn um að meta það tap
sem hann telur að fyrirtækið hafa
orðið fyrir vegna þessa.
Hótanir um málshöfðun
■
Almar segir aðspurðui- að fyrir-
tækinu hafi borist hótanir um máls-
höfðun frá einstaka mönnum sem
hafi sýkst af salmonellu en telur þó
ólíklegt að af þeim verði. „En þetta
sýnir hve almenningur er fljótur að
dæma okkur,“ segir hann. Kveðst
hann miklu frekar gera ráð fyrir því
að heilbrigðisyfirvöldum verði stefnt
og bendir í því sambandi á að fleiri
fyrirtæki en Ágæti flytji inn vörur frá
Dole þótt umrædd salatsending hafi
einungis verið á ábyrgð Ágætis. „Við
ætlum að bíða eftir endanlegum nið-
urstöðum úr rannsóknum á sýnum úr
salatinu en í kjöllárið munum við
skoða allar þær leiðir sem okkur era
færar til að fá bætt það tjón sem við
höfum orðið fyrir í þessu máli.“
Undrast yfírlýsingar
heilbrigðisyfirvalda
Almar kveðst undrast þær yfirlýs-
ingar sem komið hafa frá heilbrigðis-
yfirvöldum í kjölfar niðurstaðna á
rannsóknum úr nokkrum sýnum úr
jöklasalatinu í gær. „Mér finnst skrít-
ið að menn geti sagt í sömu setningu
að salmonella hafi ekki fundist í salat-
inu en um leið að allt bendi til þess að
salatið sé uppspretta sahnonellusýk-
ingarinnar. Ég átta mig ekki á þess-
um málflutningi." Almar bendir á að
sýni til rannsókna hafi verið tekin úr
níu eða tíu salathöfðum og telur
hverfandi líkur á því að þau hafi öll
komið úr sömu kössunum. Hann
heldur því m.ö.o. fram að sýnin sem
um ræðir gefi góða mynd af sending-
unni sem kom til landsins í ágúst sl.
en þá hafi verið fluttir inn áttatíu
kassar af umræddu salati.
Eric Schwartz, talsmaður banda-
ríska fyrirtækisins Dole Fresh Veg-
etables Inc., ítrekaði í samtali við
Morgunblaðið í gær að fyrirtækinu
hefðu ekki borist neinar tilkynningar
um hugsanleg tengsl Dole salatsins
við salmonellusýkingu frá öðrum
löndum en íslandi. Salatið sem hér
um ræðir væri ræktað í Bandaríkjun-
um og segir Schwartz að það sé lítill
hluti af mjög stórri uppskera sem
næmi um það bil 2,4 milljónum salat-
höfða. „Við höfum ekki fengið neinar
kvartanir um hugsanlega salmonellu-
Geisladiskataska / Skipulagsmappa / Penni
Námsmannalinudebetkort / Bílprófsstyrkir
Námsmannalínureikningur / Netklúbbur
Framfærslulán / Lægriyfirdráttarvextir
Námsstyrkir / Námslokalán / Tölvukaupalán
ISICafsláttarkort / Heimilisbankinn
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur Imnki
námsmánhatínan
sýkingu frá öðram löndum en ís-
landi.“ Aðspurður segir hann að fyr-
irtækið sé heldur ekki að undirbúa
vöm gegn hugsanlegum skaðabóta-
kröfum á hendur sér vegna sýkingar-
innar á íslandi. „Við undirbúum ekki
slíka vörn nema öraggar niðurstöður
sýni að sýkinguna megi rekja til sal-
ats frá okkur,“ segir hann og telur
reyndar afar ólíklegt að salatið sé
uppspretta sýkingarinnar á Islandi.
Ábyrgðarleysi að gera ekkert
Þegar Guðrún Sigmundsdóttir
sóttvarnarlæknir er spurð um hugs-
anlegar skaðabótakröfur á hendur
embætti Sóttvarnarlæknis takist
ekki að rekja sýkinguna til salatsins,
segir hún að embættið telji sig hafa
haft lagalegan rétt á því að benda á
salatið sem hugsanlega orsök sýking-
arinnai-. „Við álítum að við séum i
fullum rétti til að gera það enda er
sterkur rökstuddur granur um að
salatið sé sýkt,“ segir hún og vísar til
faraldsfræðilegu rannsóknarinnar.
„Það hefði líka verið ábyrgðarhluti að
gera ekki neitt," bætir Guðrún við.
Rögnvaldur Ingólfsson, sviðstjóri
matvælasviðs Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, segir aðspurður að það
verði tekið til skoðunar um næstu
áramót hvort ástæða þyki til að fylgj-
ast betur með því hvort innflutt og
innlent grænmeti geti verið sýkt af
salmonellu. Hann segir að nú sé vel
íylgst með magni vamarefna í inn-
fluttu grænmeti en tekur fram að
rannsóknir á því hvort grænmeti sé
salmonellusýkt taki lengri tíma en
rannsóknir á varnarefnum. Þær
rannsóknir, sem snerast um salmon-
ellu, hefðu því ekki fyrirbyggjandi
áhrif vegna þess að grænmetið væri
iðulega komið í neyslu þegar niður-
staðan lægi fjTÍr. „En við munum
hins vegar skoða hvort ástæða sé til
að taka upp reglubundna sýnatöku
[vegna hugsanlegrar salmonellu-
sýkingar] á næsta ári.“