Morgunblaðið - 21.09.2000, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reykjavíkurborg kynnir átakið „Borg án einkabfls“
Ibúar hvattir
til að skilj a bíl-
inn eftir heima
BORGARBÚAR eru hvattir til
þess að skilja bfla sína eftir heima
á morgun og nýta sér almenn-
ingssamgöngur eða ferðast fót-
gangandi eða hjólandi. Víðsvegar
um Evrópu er fólk hvatt til þess
að gera hið sama, en allt er þetta
hluti af átakinu „Borg án einka-
bfls“, sem fram fer í 643 borgum
heimsálfunnar.
„Markmiðið með bfllausum degi
er fyrst og fremst að vekja fólk til
umhugsunar um áhrif umferðar á
umhverfið, heiisu fólks og efna-
hag þjóðfélagsins og einstakl-
ingsins," segir í fréttatilkynningu
frá borgaryfirvöldum. Hvatinn að
deginum er að sífelit fleiri
Evrópubúar hafa áhyggjur af
loftmengun, hávaða og umferðar-
öngþveiti í borgum. Samkvœmt
könnun sem framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins lét nýlega
gera höfðu 70% Evrópubúa meiri
áhyggjur af loftgæðum árið 1999
en árið 1994.
í fréttatilkynningunni kemur
fram að einn strætisvagn rúmar
jafnmargt, fólk og 60 einkabflar,
miðað við þá staðreynd að ein-
ungis er 1,1 einstaklingur í bfl á
annatíma í Reykjavík, en viðhald
á gatnakerfi Reykjavíkurborgar
kostar hátt í 300 milljónir króna á
ári. Þar kemur ennfremur fram
að rekstrarkostnaður einkabfls
nemur 617 þúsund krónum á ári
samkvæmt útreikningum FÍB.
Miðað er við nýja bifreið sem
kostar 1.350 þúsund krónur, veg-
ur 1.056 kg, eyðir níu iítrum á
hundraðið og er í 2. trygginga-
fiokki. Reiknað er með fimm eign-
arárum og 18.000 km akstri á ári.
Á næsta ári kemur til greina að
ganga skrefi lengra í þessu átaki
og loka hluta miðborgarinnar fyr-
ir umferð einkabfla. Það verður
þó aðeins gert ef samstaða næst
með hagsmunaðilum á svæðinu,
svo sem kaupmönnum og atvinnu-
rekendum.
Morgunblaðið/Kristinn
Borgarbúar eru hvattir til að skilja einkabflinn eftir heima á morgun og
nota t.d. almenningssamgöngur í staðinn.
Aðstoðarvegamálastjóri um vinnugögn í Herjólfsútboði
Ekkert sem bannar
afhendingu útboðsgagna
FORDÆMI eru fyrir því að úr-
skurðarnefnd um upplýsingamál
hafi fellt úrskurð þess efnis að Vega-
gerðinni beri að afhenda vinnugögn
er tengjast útboði. Stjórn Herjólfs
hf. hefur sem kunnugt er óskað eftir
Ný könnun meðal
VR-félaga
80% vilja
endur-
menntun
SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun
sem Félagsvísindastofiiun Háskóla
íslands gerði fyrir Verzlunarmanna-
félag Reykjavíkur, VR, hafa 8 af
hveijum 10 félagsmönnum VR áhuga
á að sækja endurmenntunamám-
skeið. Frá þessu er greint á vefsíðu
VR.
í könnuninni kemur jafnframt
fram að einn af hverjum þremur VR-
félögum segir að áhersla sé lögð á
endurmenntun í sínu starfi. Mestur
áhugi fyrir endurmenntun er meðal
félaga VR á aldrinum 26 til 45 ára.
Eftir því sem menntunarstig þátttak-
enda í könnuninni er hærra, því meiri
er áhugi á endurmenntun.
I könnuninni var einnig spurt um
hvaða námskeiði VR-félagar hefðu
mestan áhuga á, og var hægt að
merkja við fleiri en einn möguleika.
Þá kemur í ljós að langflestir vilja
komast á tölvunámskeið, eða 78%,
tæplega 50% hafa áhuga á fræðslu á
sviði stjómunar og viðskipta, 47%
vilja fara í tungumálanám og tæplega
42% hafa áhuga á fagtengdri fræðslu.
Á aðalfundi VR á síðasta ári var
stofnaður fræðslusjóður sem er ætlað
að veita félagsmönnum fjárhagsað-
stoð vegna endurmenntunar eða sí-
menntunar. Sjóðnum er einnig ætlað
að auka starfsmenntun og fer styrk-
veiting eftir stigaeign viðkomandi.
aðgangi að gögnum Vegagerðarinn-
ar sem stuðst var við í útreikningi
kostnaðaráætlunar í nýlegu útboði á
ferjusiglingum. Vegagerðin hefur
neitað munnlega að afhenda gögnin
en nú hefur stjóm félagsins sent
skriflega beiðni.
í samtali við Morgunblaðið segir
Jón Rögnvaldsson aðstoðarvega-
málastjóri að í raun sé ekkert sem
bannar Vegagerðinni að afhenda
gögnin. Venjan hafi bara verið önn-
ur.
í einum úrskurði nefndarinnar,
sem felldur var 4. febrúar 1998, var
Vegagerðinni gert að afhenda verk-
taka að hluta umbeðin gögn vegna
útboðs sem hann tók þátt í fyrir
snjómokstur á Holtavörðuheiði.
Vegagerðin bar m.a. fyrir sig 3. tölu-
lið 4. greinar upplýsingalaganna þar
KOLBRÚN Aðalsteinsdóttir, for-
svarsmaður Skóla Johns Casa-
blancas, segist hafa gert marg-
ítrekaðar tilraunir til að koma á
fundi með umboðsmanni barna
vegna fyrirspurna umboðsmanns-
ins um stöðu fyrirsætna. Skólinn
sendi þó engar fyrirsætur á sínum
vegum erlendis, en það geri hins
vegar umboðsskrifstofan Islenskar
fyrirsætur, Icelandic Models, sem
Kolbrún rekur.
„Það hefur ekkert staðið á því
að fara og ræða við umboðsmann
barna um þessi mál. Ef eftir því er
grennslast þá mun koma í Ijós að
ég reyndi hvað eftir annað að fá
viðtalstíma hjá þeim,“ sagði Kol-
brún en fram kom í Morgunblað-
inu í gær að Þórhildur Líndal, um-
boðsmaður barna, hefði sent Skóla
sem segir að réttur til aðgangs að
gögnum taki ekki til „vinnuskjala
sem stjórnvald hefur ritað til eigin
afnota.“ I þeim tölulið segir einnig
að þó skuli veita aðgang að vinnu-
skjölum ef þau hafa að geyma end-
anlega ákvörðun um afgreiðslu máls
eða upplýsingar sem ekki verður afl-
að annars staðar frá. I úrskurði sín-
um vísaði nefndin einmitt til þessa
ákvæðis og einnig til 1. málsgr. 9.
greinar upplýsingalaganna þar sem
segir að stjórnvöldum sé skylt, sé
þess óskað, að veita aðila sjálfum að-
gang að skjölum og öðrum gögnum
sem varða tiltekið mál ef þau hafa að
geyma upplýsingar um hann sjálfan.
Höfum haft þessa venju lengi
Vegagerðinni hafði síðdegis í gær
ekki borist erindi stjórnar Herjólfs
Johns Casablancas og Eskimó
models fyrirspurnir í kjölfar sýn-
ingar heimildarmyndarinnar Bak
við tjöldin í tískuheiminum, sem
var á dagskrá Sjónvarps í desem-
ber.
Spurði Þórhildur þar m.a. um
aldur þeirra stúlkna sem farið
hefðu utan til fyrirsætustarfa á
vegum fyrirtækjanna síðustu fimm
árin.
Mun hafa samband við
umboðsmann barna
Kolbrún sagði að Skóli Johns
Casablancas væri sjálfstyrkingar-
skóli barna og unglinga og hluti af
grunnskólakerfinu. Ekki væri um
það að ræða að skólinn sendi
stúlkur erlendis til fyrirsætu-
starfa. Umræddur sjónvarpsþáttur
hf. Það fékkst þó staðfest á skrif-
stofu Herjólfs að erindið væri komið
af stað í pósti. Af þeim sökum sagð-
ist Jón Rögnvaldsson aðstoðarvega-
málastjóri ekki geta tjáð sig um
beiðni Herjólfsmanna fyrr en hún
væri komin í hús.
Þegar Jón var spurður hvort eitt-
hvað bannaði Vegagerðinni í raun að
afhenda gögnin sagðist hann telja að
svo væri ekki. Hann sagðist ekki
vera sérfræðingur í upplýsingalög-
unum en var á því að þau bönnuðu
ekki afhendingu þessara gagna.
„En við erum að fjalla um tölur
sem fengnar eru héðan og þaðan,
sem við teljum að sumar hverjar séu
trúnaðarupplýsingar sökum við-
skiptalegs eðlis. Þannig að við höf-
um haft þessa venju mjög lengi, að
gefa þetta ekki upp,“ sagði Jón.
hefði fremur snúið að íslenskum
fyrirsætum, en það fyrirtæki væri
umboðsaðili fyrir Elite-umboðs-
skrifstofuna sem er sú stærsta
sinnar tegundar í heiminum.
Ef til vill hefði orðið einhver
misskilningur vegna þess að svo
vildi til að John Casablancas var
einmitt stofnandi Elite.
Aðspurð sagði Kolbrún þó
kannski ekki rétt að orða það
þannig að umboðsmaður barna
hefði einfaldlega verið að skrifa
röngum aðilum bréf í þessu sam-
bandi. ítrekaði Kolbrún að hún
hefði gert ítrekaðar tilraunir til að
ná fundi umboðsmanns barna og
sagði hún að í framhaldi þessarar
umfjöllunar nú myndi hún enn á
ný hafa samband við skrifstofu
umboðsmanns til að koma á fundi.
Forsvarsmaður Skóla Johns Casablancas
Gerði ítrekað tilraunir
til að koma á fundi
Trillan
komin af
strand-
stað
TRILLAN Siggi P., sem
strandaði á milli Selsstaða og
Sunnuholts í fyrrakvöld, er
komin upp á bryggju í Seyðis-
firði og bíður þar viðgerðar.
Guðjón Sigurðsson, formað-
ur björgunarsveitarinnar ís-
ólfs, sagði að vel hefði gengið að
draga bátinn af strandstað, en
það var Skotta NS, sex tonna
trilla, sem það gerði um klukk-
an 15.30 í gær. Guðjón sagði að
þegar báturinn strandaði hefði
komið gat á stefnið og að það
hefði þurft að þétta það áður en
báturinn hefði verið dreginn á
flot. Hann sagði að gatið hefði
verið þétt með vinnugöllum frá
SR-mjöli og sérstöku þéttiefni
og að það hefði bara gefist vel.
Að sögn Guðjóns er báturinn
nokkuð skemmdur en sjór
flæddi m.a. yfir vélina og raf-
kerfið. Hann sagði að ekki hefði
verið hægt að draga bátinn á
flot í fyrrakvöld þar sem að-
stæður þá hefðu verið slæmar
og kolniðamyrkur.
Ólæti á
skólaballi
LÖGREGLAN í Reykjavík
þurfti að hafa afskipti af ólát-
um unglinga fyrir utan Þjóð-
leikhúskjallarann í Reykjavík
um klukkan eitt í fyrrinótt.
Fimm ungmenni voru hand-
tekin og þrjár stúlkur voru
fluttar á slysadeild eftir átök
með minniháttar meiðsl.
Menntaskólinn í Hamrahlíð
stóð fyrir dansleik í húsinu og
komust færri að en vildu.
Að sögn lögreglu voru of
margir inni í húsinu og þeir
sem voru fyrir utan voru ekki
sáttir við að komast ekki inn.
Nokkrir unglingar gengu í
skrokk á lögreglumönnum sem
voru að reyna að stilla til friðar.
FéH af
mótorhjóli
og slasaðist
MAÐUR slasaðist þegar hann
féll af mótorhjóli rétt hjá
Helgafelli ofan við Kaldársel í
gær.
Tilkynnt var um slysið til
slökkviliðs höfuðborgarsvæðis-
ins síðdegis í gær og var fjalla-
jeppi slökkviliðsins sendur á
staðinn þar sem ekki er fært
fyrir sjúkrabíl á svæðið. Félagi
mannsins tilkynnti um slysið en
þeir voru tveir á ferð. Talið var
að maðurinn hefði fótbrotnað.
Vinnuslys í
Kópavogi
VINNUSLYS varð á bygging-
arsvæði verslunarmiðstöðvar
við Smáralind í gær. Verið var
að hífa upp steypustykki þegar
önnur klemman sem hélt stykk-
inu uppi losnaði frá og slengdist
í andlit starfsmanns á svæðinu.
Starfsmaðurinn var umsvifa-
laust fluttur á slysadeild. Hann
var bæði marinn og skorinn í
andliti en ekki var talið að
meiðsl hans væru af alvariegum
toga.