Morgunblaðið - 21.09.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 21.09.2000, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BMW-verk- smiðjurnar óska eftir samstarfí við Islendinga Flestir stærstu bílaframleiðendur í heimin- um hafa um árabil unnið að þróun bílvéla sem geta gengið fyrir vetni en reglan er sú að unnið hefur verið út frá þeirri hugmynd að nota vetnið til þess að framleiða rafmagn með samruna vetnis og súrefnis, svokallaða efnarafa sem síðan eru notaðir til þess að knýja bifreiðina. Nú hafa BMW-bílaverk- smiðjurnar kynnt nýjan vetnisbíl sem knúinn er vél sem sprengir vetni. BMW 750hL verður nær eins útlits og aðrar BMW-bifreiðar. í LIÐINNI viku var haldin mikil ráðstefna um nýtingu vetnis í Munchen í Þýskalandi og sótti hátt í einn tugur íslendinga ráðstefn- una, þar á meðal Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, og fulltrúar frá íslenskri nýorku sem vinna að vetnisverkefni með þýska bílaframleiðandanum DaimlerChrysler. Á ráðstefnunni kynntu BMW-verksmiðjurnar nýj- an vetnisbíl sem búinn er sprengi- hreyfli og er ljóst að BMW ætlar að fara eigin leiðir í framleiðslu á vetnisbílum og má telja víst að stefni í verulega samkeppni á miili þýsku bílarisanna tveggja, BMW og DaimlerChrysler, á þessu sviði. Sýna íslandi mikinn áhuga Að sögn Valgerðar Sverrisdótt- ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sýndu stjórnendur BMW því áhuga að starfa með íslendingum á sviði vetnisnýtingar og óskuðu einnig eftir að fá upplýsingar um orkumál á íslandi. Valgerður segir að BMW eigi, ásamt öðrum bílaframleiðend- um í Þýskalandi, sæti í nefnd sem skipuð sé af þýska samgönguráð- herrann um nýtingu orkulinda og að vinna þessarar nefndar sé einkar áhugaverð fyrir íslendinga. Valgerður átti fund með stjórn- endum BMW ytra um þessi mál og segir að ráðuneytið og Orkustofnun ætli nú að fara betur yfír málin. Ætlunin sé að leggja fram hug- myndir um hvernig þetta samstarfi gæti litið út frá sjónarhóli íslend- inga en sú vinna sé öll eftir en að henni lokinni megi reikna með að menn fundi aftur enda sé það ósk stjórnenda BMW. Valgerður segir að það sé þó Ijóst að ekki verði um neitt verk- efnasamstarf að ræða, að minnsta kosti ekki í bili. Aðspurð segir Val- gerður að viðræður við BMW þurfi ekki að hafa nokkur áhrif á sam- vinnu Islenskrar nýorku og DaimlerChrysler. BMW ætli sér greinilega að fara aðrar leiðir og einbeita sér að sprengihreyfli í stað efnarafals. Samvinna íslenskrar nýorku og DaimlerChrysler snúist um ákveðið verkefni sem þegar sé byrjað að vinna að. í byrjun þessa árs heimsótti ís- lensk sendinefnd ásamt iðnaðar- og viðskiptaráðherra DaimlerChrysler í Þýskalandi en tilgangur ferðar- innar var að fá DaimlerChrysler til samstarfs um tilraunaverkefni með íslenskri nýorku um að vetnis- strætisvagnar yrðu látnir aka til reynslu á leiðum Strætisvagna Reykjavíkur. Áður höfðu Daiml- erChrysler, Shell Hydrogen og Norsk Hydro og Vistorka, sem er eignarhaldsfélag íslenskra fjárfesta sem á 51% í íslenskri nýorku, und- irritað samning um að rannsaka möguleikana á að láta vetni koma í stað olíu á Islandi og skapa þannig fyrsta vetnissamfélagið í heiminum. Eftir heimsóknina til Þýskalands lá fyrir að DaimlerChrysler myndi setja allt í verkefnið, sem lýtur að þeirra hlut, þ.e. vagna, alla tækni og allt viðhald, þjónustu og búnað sem verkefninu fylgir. Stefnt var að því að frá og með haustinu 2002 muni strætisvagnar með vetnis- knúnum efnarafölum hefja reglu- bundinn akstur um götur Reykja- víkur og er þar einungis um fyrsta þátt verkefnisins að ræða. BMW syndir gegn straumnum Hin nýja vél, sem BMW kynnti á ráðstefnunni í Miinchen í síðustu viku, mun geta brennt vetni á mjög svipaðan hátt og venjulegar bílvél- ar brenna bensíni. Talsmenn BMW staðhæfa að þessi vetnisvél muni ekki valda nokkurri mengun, út um útblástursrörið muni eingöngu koma vatnsgufa. BMW telur sig geta sett BMW 750hL, sem gengur fyrir þessari vél, á markaðinn árið 2003 en hjá BMW hafa menn unnið að þróun slíkrar vélar í meira en tuttugu ár og varið til þess hátt í einum milljarði dala. Aðrir bíla- framleiðendur segja að það fylgi því fleiri kostir að nota vetnið til þess að framleiða rafmagn, hröðun bifreiðanna sé meiri við lægri hraða, viðhaldskostnaður sé minni auk þess sem nýting orkunnar sé allt að tvöfalt meiri og það skipti höfuðmáli þegar horft sé til fram- tíðarinnar. Samkeppni milli BMW og DaimlerChrysler Forráðamenn BMW telja hins vegar að almenningur muni ekki sætta sig við afllitlar bifreiðar sem ganga fyrir rafmagni og ná litlum hámarkshraða. BMW 750hL, sem er talinn munu kosta um 100.000 dali, er ekki ólíkur venjulegum lúx- usbílum frá BMW og hann getur náð um 225 kílómetra hraða eða 80 kílómetra meiri hraða en nýjasta vetnisbifreiðin frá DaimlerChrysl- er. Hann verður auk þess útibúinn tönkum fyrir vetni og bensín þann- ig að ökumaður getur skipt yfir á bensínið ef vetnið er að klárast. Sérfræðingar segja að BMW sé vissulega að taka verulega áhættu með því að fara eigin leiðir, það geti beinlínis verið hættulegt að sigla gegn straumnum og fjarlægj- ast þær gerðir sem iðnaðurinn í heild veðjar á. Aðrir benda á að BMW ætli að gera það sem fyrir- tækið hafi ævinlega gert vel, þ.e. að framleiða bíla með aflmiklar vélar. Efnarafallinn hreyfíll 21. aldarinnar Þorsteinn I. Sigfússon, stjórnar- formaður íslenskrar nýorku, segir að á ráðstefnunni í Munchen hafi menn tekið eftir því að BMW sé enn þá með svokallaða sprengi- hreyfla í bílum sínum. Það sé hins vegar vitað að nýtni sprengihreyfla sé mikiu minni en nýtni efnarafala. BMW hafi greinilega ákveðið að veðja á sprengihreyflana, að minnsta kosti um sinn. Þorsteinn segir að almennt sé þó talið að efnarafalinn sé raunveru- lega hreyfill 21. aldarinnar. Auk þess myndi sprengihreyfilinn einn- ig talsvert meira af svokölluðu nit- uroxíni eða noxefnum sem séu talin hættuleg og óæskileg. Aðspurður segir Þorsteinn að það standi ekki til að breyta þeim áætlunum sem Islensk nýorka er að vinna að í samvinnu við DaimlerChrysler og allt útlit sé fyrir að þær muni standast þótt skakka kunni örfáum mánuðum. Að sögn Þorsteins vakti það athygli manna að einn af að- stoðarforstjórum DaimlerChrysler hafi sýnt heimskort þar sem merktir voru þeir staðir þar sem hlutirnir væru raunverulega að gerast og var Reykjavík þar á með- al. Forstjóri DaimlerChrysler tók einnig fram að Reykjavík yrði áherslusvið DaimlerChrysler á þessu sviði og þar ætti að láta reyna á allt heildardæmið. Þor- steinn segir að sprengivél af því tagi sem BMW kynnti sé engan veginn ný af nálinni og að hans mati sé hún ekki framtíðarlausnin og þar skipti mestu að nýtni henn- ar sé minni. Sérfræðingar segja að eitt helsta vandamálið sem blasi við vegna notkunar á vetni til að knýja bfla sé sú staðreynd að framboð af því sé enn mjög lítið en eins og stendur sé aðeins ein stöð þar sem hægt sé að fá vetni í allri Evrópu. Þá er og talið að það geti tekið langan tíma eða allt frá fimm til tíu ár að þróa leiðir til þess að dreifa og geyma vetni í miklum mæli með öruggum hætti. Svar ríkislögreglustjóra vegna fyrirspurnar frá fréttastjóra Stöðvar 2-Bylgjunnar Ljósmyndari var í boði húsráðanda HARALDUR Johannessen ríkis- lögreglustjóri hefur sent Páli Magn- ússyni, fréttastjóra Stöðvar 2-Bylgj- unnar bréf vegna fyrh’spurna Páls í tengslum við opinbera heimsókn Li Pengs, forseta kínverska þjóðþings- ins. hingað til lands. I greinargerð Jóns H. Snorrason- ar saksóknara og Helga Magnúsar Gunnarssonar, löglærðs fulltrúa, sem unnin var að beiðni ríkislög- reglustjóra, er því m.a. svarað hvers vegna ljósmyndari Morgunblaðsins fékk að starfa óáreittur í Ráðherra- bústaðnum fyrir fund forsætisráð- herra og Li Pengs og einnig í Gyðu- felli 8, þar sem íslenskt alþýðu- heimili var sótt heim af kínversku gestunum. í bréfi Páls Magnússonar, sem sent var ríkislögreglustjóra 5. sept- ember sl., var í flestu óskað eftir skýringum við sömu spurningum og Árni Snævarr fréttamaður hafði sent ríkislögreglustjóra með bréfi dags. 5. september sl. Svör og grein- argerð við þeim spurningum voru birt í heild sinni í Morgunblaðinu í gær en Páll vakti í bréfi sínu jafn- framt athygli á því að í Gyðufelli hafi ijósmyndari Morgunblaðsins fengið að athafna sig að vild án nokkurra afskipta lögreglu og sama hafi gilt um Ráðherrabústaðinn, þar sem lögreglan hafi lagt einungis stein í götu Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins meðan Morgunblaðið og kínverskir fjölmiðlar hafi fengið að starfa al- gjörlega óáreittir, eins og það er orðað, og spurt hvort þetta sé í sam- ræmi við jafnræðisreglu stjórnsýsl- unnar. í svari ríkislögreglustjóra kemur m.a. fram að heimsókn Li Pengs til fjölskyldu að Gyðufelli 8 hafi verið að ósk hans um að fá að fara í einka- heimsókn inn á íslenskt alþýðuheim- ili. „Ljósmyndari Morgunblaðsins mun hafa verið staddur á heimili gestgjafanna í boði heimilisföðurins sem er starfsmaður Morgunblaðs- ins. Lögreglan hafði ekki afskipti af því hverjum heimilisfólk bauð inn á sitt heimili. Li Peng hafði auk þess í fylgdarliði sínu fulltrúa fjölmiðla frá Kína. Þessir kínversku fjölmiðla- menn voru skilgreindir af kínversk- um yfirvöldum sem hluti af sendi- nefndinni og fylgdu þeir Li Peng af þeirri ástæðu. Kínversku frétta- mennimir höfðu því sömu stöðu og aðrir í sendinefnd Li Peng,“ segir enn fremur. Myndatökumenn sjónvarps- stöðvanna mættu of seint í greinargerðinni er því einnig svarað hvers vegna myndatöku- mönnum Stöðvar 2 og Ríkissjón- varpsins var meinaður aðgangur að Ráðherrabústaðnum og kemur fram að Þorvarði Björgúlfssyni, mynda- tökumanni Stöðvar 2, hafi verið meinaður aðgangur þar sem hann kom ekki á staðinn fyrr en mynda- tökur voru afstaðnar. „Ríkissjónvarpinu var ekki frekar en Stöð 2 meinað að hafa mynda- tökumann viðstaddan í Ráðherra- bústaðnum að kvöldi 2. september sl. Samkvæmt upplýsingum frá yfir- manni öryggisgæslunnar átti það sama við myndatökumann Ríkis- sjónvarpsins og Stöðvar 2, hann mætti of seint.“ Um meinta mismunun frétta- manna segir svo í athugasemdum við einstök atriði fyrirspurnarinnar. ,Af greinargerðum lögreglum- annanna má sjá að mismunun frétta- manna ræðst ekki af ákvörðun lög- reglu. Ljósmyndari Morgunblaðsins var í boði húsráðanda og kínverskir fréttamenn hluti sendinefndar Li Peng sem naut réttar samkvæmt þjóðréttarlegum skuldbindingum ís- lenska ríkisins og voru á ábyrgð hinna kínversku gesta. Mismunun sú sem fyrirspurnin lýtur að helgast því af ákvæðum laga um friðhelgi heimilis og alþjóðalögum um réttar- stöðu sendierindreka. Það er því álit undirritaðra að ekki sé brotið með þessu gegn jafnræðisreglu stjórn- sýsluréttar enda ákvörðunin á hendi húsráðanda og gestsins."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.