Morgunblaðið - 21.09.2000, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Líflegt
á bygg-
ingamark-
aðnum
Gísli Már Gíslason stjórnarformaður Rannsóknastöðvarinnar við Mývatn
Kæra eina leiðin til að
koma ráðgjöf á framfæri
Morgunblaðið/Kristján
Framkvæmdir við byggingu verslunarhúsnæðis við Langholt, en þar mun Baugur opna Bónusverslun.
UMHVERFISRÁÐ Akureyrar út-
hlutaði 16 einbýlishúsalóðum á
síðasta fundi sínuni, þar af 13 f
Giljahverfi og tveimur á Eyrar-
landsholti. Fyrirtækið SKG verk-
takar ehf. fékk úthlutað 12 lóðum
undir einbýlishús í Valagili og
Vesturgili en öðrum lóðum var
úthlutað til einstaklinga.
Jóhannes Ottósson hjá bygg-
ingafulltrúa Akureyrarbæjar
sagði að framboð af einbýlis-
húsalóðum væri li'tið í' bænum en
eftirspurn nokkur. Töluvert væri
spurt um lóðir í Naustahverfi en
þar eru ekki hafnar bygginga-
framkvæmdir enn. Jóhannes
sagði að mestur áhugi væri fyrir
einbýlishúsalóðum á einni hæð
með garðinn til suðurs, eins og
hann orðaði það.
Nokkuð líflegt hefur verið á
byggingamarkaðnum á Akureyri
að undanfórnu og á Eyrar-
landsholti eru um 60 íbúðir í
byggingu, um 10/ Giljahverfi og
annað eins í miðbænum. Þá er
einnig vcrið að byggja óvenju
mikið af iðnaðar- og verslunar-
húsnæði í bænum.
GÍSLI Már Gíslason formaður
stjórnar Náttúrurannsóknastöðv-
arinnar við Mývatn segir að hlut-
verk stöðvarinnar sé að vera
stjórnvöldum til ráðgjafar um allt
það er varðar framkvæmd laga um
verndun Mývatns og Laxár, en
markmið þeirra laga sé að stuðla
að verndun Mývatns- og Laxár-
svæðisins. Það sé því alrangt hjá
sveitarstjórn að halda því fram að
stjórnin hafi farið út fyrir hlutverk
sitt með því að kæra úrskurð
skipulagsstjóra sem heimilaði í
sumar kísilgúrnám úr Syðri-flóa
Mývatns. I reynd sé kæruleiðin
eina leiðin til að koma á framfæri
ráðgjöf eftir að skipulagsstjóri
hafði kveðið upp úrskurð sinn.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
samþykkti á fundi sínum í liðinni
viku tillögu þar sem lýst er áhyggj-
um af stöðu Náttúrurannsókna-
stofnunarinnar við Mývatn í kjölfar
umræddrar kæra. Þar segir að
hlutverk stöðvarinnar sé að standa
fyrir rannsóknum á hinu friðlýsta
svæði, að sjá um framkvæmdir og
rekstur og vera stjórnvöldum til
ráðgjafar um framkvæmd laganna
um verndun Mývatns og Laxár. Að
mati sveitarstjórnar hafi stjórn
stöðvarinnar farið út fyrir hlutverk
sitt með kærunni og geti því ekki
sinnt því hlutverki sínu að vera
stjórnvöldum til ráðgjafar. Sveitar-
stjórn telur því brýna nauðsyn
bera til að núverandi stjórn verði
leyst frá störfum.
Stjórnin fór ekki
út fyrir hlutverk sitt
Fram kemur í bréfi Gísla til
sveitarstjóra Skútustaðahrepps
sem ritað er af þessu tilefni að
meirihluti stjórnar Rannsókna-
stöðvarinnar við Mývatn hafi falið
stjórnarformanni að kæra úrskurð
skipulagsstjóra_ á fundi sínum í
ágústmánuði. Á þeim fundi hafi
ekki komið fram önnur skoðun en
sú að stjórnsýslukæra væri eina
leiðin á lokaspretti mats á um-
hverfisáhrifum til að koma á fram-
færi ráðgjöf við umhverfisráð-
herra, þegar ljóst hafi verið að
rannsóknaniðurstöður höfðu verið
hundsaðar í úrskurði Skipulags-
stofnunar. Enginn fundarmanna
hafi á þessum stjórnarfundi lýst
þeirri skoðun sinni að stjórnin færi
út fyrir hlutverk sitt með sam-
þykki kærunnar. Hann minnir á að
oddviti Skútustaðahrepps sitji í
stjórn stöðvarinnar en hann hafi
ekki greitt atkvæði með efni
stjórnsýslukærunnar. Varamaður
hans, sem er sveitarstjóri, hafi set-
ið fundinn. Andstaða fulltrúa sveit-
arstjórnar við afgreiðslu tillögu
meirihluta stjórnarinnar hafi komið
fram í mótatkvæði og bókun, sem
ekki hafi snúist um hlutverk stjórn-
arinnar. Fulltrúinn hafi verið á
móti tillögu um stjórnsýslukæru en
ekki tekið fram að stjórnin hefði
ekki heimild til að kæra úrskurð-
inn.
Tölvu- og upplýsingatæknibraut
Háskólans á Akureyri
Tölvufyrirtæki af-
hentu 5 fartölvur
FIMM tölvufyrirtæki á Akureyri
afhentu nemendum á þriðja ári
tölvu- og upplýsingatæknibrautar
Háskólans á Akureyri fartölvur við
athöfn í húsakynnum háskólans í
liðinni viku. Háskólinn útskrifar
nemendur af brautinni í fjTsta
skipti næsta vor, en fimm nemend-
ur stunda nú nám við þessa braut.
Hvert íyrirtæki afhenti einum
nemanda fartölvu.
Fyrirtækin sem um ræðir eru
Hugur hf. Akureyri, Nett ehf.,
Skrín ehf., Tölvumyndir hf. og
Þekking upplýsingatækni hf. Um
er að ræða öflugar fartölvur sem
koma munu nemendum að miklu
gagni við námið og þá sérstaklega
þar sem unnin eru forritunarverk-
efni.
Sigtryggur Símonarson, einn
nemanna, sagði að stærsta verk-
efnið sem unnið væri að á haust-
hönn bæri heitið Ofurtölvan Akur-
eyri en það felst í því að smíða
forrit sem getur sameinað reiknis-
afla margra einkatölva. Sigtryggur
sagði námið á tölvu- og upplýsinga-
tæknibrautinni hagnýtt og það
uppfyllti mikla þörf á markaðnum
fyrir fólk með menntun af þessu
tagi. Sem dæmi nefndi hann að all-
ir fimm nemendur brautarinnar
hefðu þegar fengið störf í tengslum
við nám sitt þó svo að þeir yrðu
ekki útskrifaðir fyrr en næsta vor.
Mikilvægt fyrir
uppbyggingu á Akureyri
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, sagði af-
hendingu fartölvanna vera viður-
kenningu fyrirtækjanna á góðu
Morgunblaðið/Kristján
Rögnvaldur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri hjó Skrín
efh., og Ingibjörg Osp Stef-
ánsdóttir, einn nemanna á
tölvu- og upplýsingatækni-
braut, undirrita samning um
fartölvu.
starfi nemanna, sem vissulega
væru brautryðjendur að nýrri
þekkingu á Ákureyri. „Þetta er
líka mikilvæg viðurkenning fyrir
háskólann og það starf sem unnið
hefur verið við að byggja upp
tölvu- og upplýsingatæknibraut-
ina,“ sagði rektor og bætti við að
unnið væri að enn frekari upp-
byggingu á því sviði innan háskól-
ans.
„Það er erfitt verkefni því
gríðarlegur skortur er á sérfræð-
ingum til að kenna þessar greinar,
en með samstarfi við tölvufyrir-
tækin á Akureyri sem og önnur
veit ég að háskólanum mun takast
að efla þessa kennslu og þetta nám.
Það er að mínu viti mjög mikilvægt
fyrir uppbyggingu hér á Akureyri.
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri og félagsmálaráðherra
Samningur um rannsókn á
sameining'u sveitarfelaga
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra og Grétar Þór Ey-
þórsson, rannsóknastjóri Rannsóknastofnunar Háskólans á
Akureyri, hafa ritað undir samning þess efnis að Rann-
sóknastofnunin tekur að sér að gera skýrslu um samein-
ingar sveitarfélaga, áhrif þeirra og afleiðingar.
Grétar Þór sagði að skortur væri á gögnum um ýmis at-
riði og hefði það háð sameiningarumræðunni. Hafist verð-
ur handa við rannsóknina um næstu mánaðamót og ráð-
gert að henni verði lokið 1. desember á næsta ári. Alls
verða áhrif sameiningar og afleiðingar hennar skoðaðar á
sjö svæðum, Árborg, Borgarfjarðarsveit, Snæfellsbæ,
Vesturbyggð, Dalabyggð, Skagafirði og Fjarðarbyggð.
Skriður á sameiningarmálum
Rannsóknin beinist að fimm meginþáttum, lýðræði,
rekstri og fjármálum, þjónustu, stjómsýslu og búsetuþátt-
um. Rannsóknin beinist einnig að því að skoða þau mark-
mið sem sveitarfélögin sem stóðu að sameiningunum sjö
settu sér og hvort náðst hafi að uppfylla þau. Gerðar verða
kannanir meðal íbúanna, fulltrúa og embættismanna og
einnig verður að sögn Grétars leitað eftir ýmsum gögnum í
fórum sveitarfélaganna.
Páll Pétursson félagsmálaráðhen-a sagðist fagna því að
unnið yrði að þessu verkefni, það væri gagnlegt og í raun
nauðsynlegt skref í þróun sveitarstjórnarmála. Töluverð
þróun hefði orðið á síðustu árum og nokkur skriður á sam-
einingarmálum. Nefndi ráðherra að þegar hann hefði tekið
við félagsmálaráðuneytinu hefðu sveitarfélögin í landinu
verið 172 en væru nú 124 og allvíða væri verið að huga að
frekari sameiningu.
Taldi Páll að rannsókn sú sem nú er að fara af stað gæti
gagnast forsvarsmönnum þeirra sveitarfélaga sem nú væru
að velta fyrir sér sameiningu. Vafalaust kæmu einnig fram
í henni ýmsir annmarkar sem orðið hefðu við sameiningu
sveitarfélaganna og þá gætu menn í framtíðinni varast.
Páll sagði að forveri sinn í starfi hefði reynt að þrýsta
Morgunblaðið/Kristján
Grétar Þór Eyþórsson hjá Rannsóknastofnum Háskól-
ans á Akureyri og Páll Pétursson félagsmálaráðherra
skrifa undir samning um að rannsóknastofnunin geri
könnun um sameiningu sveitarfélaga, áhrif þeirra og
afleiðingar.
sveitarfélögum til sameiningar. „Fólk verður að finna út úr
því sjálft hvort það vill sameinast, það er ekki hægt að
knýja það til þess ef það vill það ekki sjálft,“ sagði ráð-
herra.