Morgunblaðið - 21.09.2000, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
AKUREYRI
Uppsagnir mjólkurfræðinga hjá MSKEA
Bjartsýni á lausn
innan tíðar
ÁGÚST Þorbjömsson fram-
kvæmdastjóri MEKEA og MSKÞ
er bjartsýnn á að viðunandi lausn
iinnist í deilu milli félagsins og
mjólkurfræðinga en allir mjólkur-
fræðingar hjá MSKEA sögðu upp
störfum um síðustu mánaðamót í
kjölfar boðaðra skipulagsbreyt-
inga. Breytingarnar eru til komnar
vegna sameiningar félaganna
tveggja og Grana, félags mjólkur-
framleiðenda á samlagssvæðinu.
Nokkrum millistjórnendum úr hópi
mjólkurfræðinga var sagt upp
vegna breytinganna í sumar og í
lok ágúst var einnig gripið til upp-
sagna, þannig að alls var níu manns
sagt upp vegna skipulagsbreytinga.
í kjölfarið sögðu allir mjólkurfræð-
ingar í samlaginu á Akureyri upp
störfum um síðustu mánaðamót.
„Við erum að vinna að lausn
málsins og ég á von á að niðurstaða
muni liggja fyrir fljótlega. Eg er
bjartsýnn á að viðunandi lausn
finnist,“ sagði Ágúst.
Geir Jónsson formaður Mjólkur-
fræðingafélagsins sagði engar
formlegar viðræður hafa farið fram
milli stjórnenda KEA og félagsins
en menn hefðu verið að þreifa á
málum innanhúss í rólegheitum.
Það gengi hins vegar á uppsagnar-
tímann, flestar uppsagnir tækju
gildi 1. desember næstkomandi og
því hlytu mál að fara að skýrast.
Ferdamálaráð Islands
lcelandic Tourist Board
ráðstofnai
*
í Stjórnsýsluhúsinu á Isafirði
27.0G28.SEPTEMBERNK.
Dagskrá
Miðvikudagur 27. september
kl. 09.30 Skráning og afhending gagna
kl. 11.00 Setning, Tómas Ingi Olrich formaður Ferðamálaráðs
kl. 11.30 Ávarp Halldórs Halldórssonar. bæjarstjóra isafjarðarbæjar
kl. 11.40 Ávarp samgönguráðherra. Hr. Sturla Böðvarsson
kt. 12.00 Hádegisverðarhlé
Pallborð
kl. 13.30
kl. 13.45
kl. 14.00
kl. 14.15
kl. 14.30
kl. 14.45
kl. 15.15
kl. 15.30
kl. 16.00
kl. 16.15
kl. 17.45
Tækifæri landsbyggðar í ferðaþjónustu.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Ftugfélags íslands
Áslaug Alfreðsdóttir. hótelstjóri Hótel (safirði
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri Húsavík
Auður Anna Ingólfsdóttir. hótelstjóri Hótel Héraði
Magnús Oddsson. ferðamálastjóri
Fyrirspumir
Kaffihlé
Afhending umhverfisverölauna FMR fyrir árið 2000
Hlutverk Reykjavíkurftugvallar í ferðaþjónustu á
landsbyggðinni. Þorgeir Pálsson. flugmátastjóri
Almennar umræður og afgreiðsla ályktanna
Ráðstefnuslit
kl. 20.00 Kvöldverður og skemmtun
-------------------------▼"
Fimmtudagur 28. september
kl. 10.30 Skoðunarferð í boði heimamanna
kl. 15.35 FlugtilRvk.
Ráðstefnustjórar:
Bima Lárusdóttir. forseti bæjarstjómar ísafjarðarbæjar.
Láms G. Valdimarsson. bæjarfulltrúi (safjarðarbæjar.
Ráðstefnugjald kr. 6.000,-
Innifalið í ráðstefnugjaldi em ráðstefnugögn og kaffiveitingar.
Skráning og nánari upplýsingar em veittar á skrifstofu
Ferðamálaráðs íslands. Akureyri. í síma 461 2915 eða
á netfanginu: upplysingar@icetourist.is
Skráning í gistingu erá Upplýsingamiðstöðinni á ísafirði
í síma 456 5121 eða á netfanginu: info@vestfirdir.is
- •- - - ■1
ÍSAFJORÐUR
Morgunblaðið/Kristján
Slökkviliðsmenn frá Akureyri aðstoöuöu við að loftræsta húsnæði Kjarnafæðis á Svalbarðseyri.
Ammon-
íaksleki
á Sval-
barðseyri
SLÖKKVILIÐI Akureyrar barst til-
kynning um ammoníaksleka í hús-
næði matvælafyrirtækisins Kjama-
fæðis hf. á Svalbarðseyri í gær-
morgun. Húsnæðið var rýmt í skyndi
og ekki urðu slys á fólki en hins veg-
ar var óvíst með skemmdir á mat-
vælum.
Þegar tilkynningin barst til
slökkviliðsins hafði starfsmanni tek-
ist að stöðva lekann en leitað var eftir
aðstoð slökkviliðsins við að loftræsta
húsið. Óhappið varð er lyftara var
ekið utan í ammoníaksrör með þeim
afleiðingum að það fór í sundur.
Mömmumorgnar í Glerárkirkju
Verkefnið um „Nýja
barnið“ kynnt
MÖMMUMORGNAR hófust að
nýju í Glerárkirkju eftir sumar-
hlé í síðustu viku þannig að önn-
ur samverustund vetrarins verð-
ur í dag, fimmtudaginn 21.
september. Samverustund for-
eldra með ung börn sín stendur
yfir frá kl. 10 til 12 og er öllum
velkomið að taka þátt í henni. Á
fyrstu stund haustsins var farið
yfir dagskrá vetrarins sem að
venju verður fjölbreytt en það
fyrirkomulag er haft á að í ann-
að hvert skipti kemur fyrirlesari
í heimsókn og fræðir gesti um
hin ýmsu mál er varða börn og
barnauppeldi. Hitt skiptið er
frjálst, þar gefst kostur á að
spjalla um alla heima og geima
og börnin leika sér saman. Boð-
ið er upp á kaffi og svala. Á
samverustundinni í dag kemur
Karólína Stefánsdóttir fé-
lagsráðgjafí í heimsókn og
kynnir verkefni sem unnið hefur
verið að á Heilsugæslustöðinni á
Akureyri og nefnist „Nýja barn-
ið“.
Mekka-tölvulausnir
taka við rekstri Hugar
NÝTT hlutafélag, Mekka-tölvu-
lausnir hefur tekið við rekstri
skrifstofu Hugar á Akureyri. Fé-
lagið er í eigu Hugar og EJS jafn-
framt því sem stefnt er að því að
starfsmenn Mekka-tölvulausna
verði hluthafar í fyrirtækinu og
mun það gerast á næstu mánuðum.
Alls starfa 15 manns hjá fyrirtæk-
inu en það hefur vaxið hratt á síð-
ustu mánuðum.
Reynir B. Eiríksson fram-
kvæmdastjóri Mekka-tölvulausna
sagði að með stofnun hins nýja fyr-
irtækis væri í raun verið að færa
út kvíarnar og skapa svigrúm til að
bæta við nýjum þjónustuþáttum.
Nýja félagið mun taka við þeim
þjónustuþáttum sem Hugur áður
sinnti en bjóða að auki nýja þjón-
ustu en markmiðið væri að veita
fyrirtækjum og stofnunum heildar-
lausnir á sviði tölvu- og upplýs-
ingakerfa.
„Við höldum áfram á þeirri
braut sem mörkuð var hjá Hugi og
byggjum þar á traustum grunni en
með því að þetta nyja fyrirtæki
varð til gefst fyrirtækjum og stofn-
unum kostur á að eiga viðskipti við
eitt félag varðandi öll sín upplýs-
ingamál og fá á einum og sama
Morgunblaðið/Kristján
Kristinn Svanbergsson, sölu- og markaðsstjóri, Reynir B. Eiríksson
framkvæmdastjóri og Gunnar Ingimundarsonk framkvæmdastjóri
Hugar, kynna nýtt hlutafélag, Mekka-tölvulausnir.
staðnum heildarlausnir á því sviði,“
sagði Reynir en starfsfólk félags-
ins sagði hann búa yfir mikilli
reynslu og þekkingu á þessu sviði
auk þess sem það hefði sterka bak-
hjarla í stærstu eigendum sínum,
Hugi og EJS. Náið samstarf verð-
ur við bæði þessi fyrirtæki og eyk-
ur það breiddina enn frekar. Sem
dæmi má nefna að unnið er að
Þarfir fyrirtækjanna
hafa breyst
Aukin ökuréttindi
Leigu-, vöru- og hópbifreiðar
Námskeiö hefst föstudaginn 29. sept. nk.
Upplýsingar og innritun
Hreióar Gíslason
s. 892 0228 / 462 1141
Kristinn Jónsson
s. 892 9166 / 462 2350
stóru forritunarverkefni í Noregi
um þessar mundir og er það að
hluta til unnið frá Akureyri.
„Við höfum trú á þeim tækifær-
um sem hér eru en það sem ýtti
enn frekar undir að við fórum út í
þetta er að þarfir fyrirtækja á sviði
upplýsingatæki hafa breyst mikið.
Áður sóttu fyrirtækin þjónustu
sína til margra en vilja nú fá þjón-
ustu sem mest frá einu og sama
fyrirtækinu. Það einfaldar hlutina
og einnig er ljóst hvar ábyrgðin
liggur," sagði Gunnar Ingimundar-
son framkvæmdastjóri Hugar.
Mekka-tölvulausnir þjóna fyrir-
tækjum á öllu Norðurland að sögn
Kristins Svanbergssonar sölu- og
markaðsstjóra en hann sagði í
raun engin landamæri á þessu
sviði þannig að félagið hefði einnig
viðskiptavini sem það sinnti á
Austurlandi.