Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 21
Fjörutíu milljdnir bréfa eru árlega flokkaðar sem auglýsingapóstur
Fáar kvartanir berast
þeim sem dreifa póstinum
EKKI er hægt að fá sérstaka miða
til að setja á útidyrahurðir hér á
landi með skilaboðum um að óum-
beðinn auglýsingapóstur sé af-
þakkaður. Slíka miða geta heimili
t.d. í Danmörku, Svíþjóð og Þýska-
landi nálgast.
Askell Jónsson, framkvæmda-
stjóri markaðs- og sölusviðs
Islandspósts, segir að ríkari hefð sé
fyrir auglýsingapósti eða fjölpósti
erlendis.
„Við höfum fengið tiltölulega fá-
ar kvartanir vegna óumbeðins
auglýsingapósts og kannski fyrst
og fremst þess vegna hefur lítið
verið gert í þessu hér á landi.
Við erum þó að skoða þessi mál
núna en höfum enn ekki komist að
neipni niðurstöðu ennþá.“
Askell segir að óumbeðinn
auglýsingapóstur sé _um 40 millj-
ónir bréfa á ári og að Islandspóstur
sé með innan við helminginn af því.
Um 4% afþakka
auglýsingapóst
„Flækjan er fyrst og fremst
vegna þess að menn eru ekki sam-
mála um hvað er auglýsingapóstur
og hvað ekki. Viðkomandi vill til
dæmis ekki fá vikulega auglýsinga-
bæklinga en gjarnan IKEA- bækl-
inginn, mörkin eru því óljós og ein-
staklingsbundin. Þar sem við erum
ekki einir á dreifingamarkaðnum
viljum við ekki vei’a einir í hlutverki
ritskoðunar. Lykilatriðið er að
’nelstu dreifingaraðilar svo sem Is-
landspóstur, Póstdreifing og Morg-
unblaðið séu sammála um hvernig
slíkar óskir skuli virtar."
Askell segir að kannanir sýni að
um 90% fólks lesi auglýsingapóst-
inn, reyndar mismunandi mikið.
„Skiptingin er einföld, 30% lesa
hann oft, 30% stundum, 30% sjald-
anog 10 % alls ekki.
í löndum þar sem fólk getur
fengið miða á hurðir og afþakkað
auglýsingapóst eins og t.d. í Dan-
mörku, Hollandi, Svíþjóð og Þýska-
landi eru það yfirleitt um 4% sem
notfæra sér það.“
18.500 manns hafa
skráð sig á bannlista
Hver sem er getur borið út bækl-
inga inn á hvert heimili enda er þá
Nýtt
Salöt og
kryddolíur
FRÓN ehf. hefur hafið sölu á nýj-
um vörum frá franska fyrirtækinu
St. Dalfour. Island er annað landið
í heiminum sem selur þessar vör-
ur.
Um er að ræða tvær tegundir af
salati; pasta og grænmeti annars
vegar og túnfisk
og pasta hins-
vegar. Auk þess
fjórar tegundir
af kryddolíum;
fyrir pasta,
grænmeti og
brauð, fyrir
nauta-, lamba-,
og kálfakjöt,
fyrir kjúklinga-, kalkúna-, og
svínakjöt og fyrir sjávarrétti.
Vörurnar eru allar í glerflösk-
um og í fréttatilkynningu segir að
líftími salatsins sé þrjú ár eða
tveir dagar eftir opnun í kæli og
h'ftími kryddoliunnar sé tvö ár eða
í ijóra mánuði eftir opnun í kæli.
Salatið er tilbúið til neyslu og
má borða við stofuhita, kælt eða
hitað.
Kryddolíuna á að setja í hráefn-
ið einni minútu áður en maturinn
er tilbúinn og í henni er enginn
viðbættur syk-
ur, salt né
þriðja kryddið
(MSG). Hrista
skal vel fyrir
notkun og gott
er að bæta við
salti og pipar
eftir þörfum.
ekki um neitt úrtak að ræða úr
þjóðskrá. Hægt er að skrá sig á sér-
stakan bannlista hjá Hagstofu ís-
lands en þá er ekki um allan óum-
beðinn póst að ræða, heldur virkar
bannlistinn þegar um úrtak sam-
kvæmt þjóðskrá er að ræða.
„Bannlistinn byggist á ákvæði í
lögum um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga og alls eru nú
rúmlega átján þúsund og fimm-
hundruð manns á bannlista hjá
Hagstofunni," segir Þyrí Baldurs-
dóttir, ritari hagstofustjóra.
„Fólk getur skráð sig með
þrennum hætti á bannlistann. Það
getur komið hingað á Hagstofuna
og fyllt út sérstakt eyðublað, þá
getur það hringt til okkar og/eða
haft samband við fyrirtæki sem
hafa leyfi okkar til að prenta út úr
þjóðskrá. Þau hafa fengið leyfi
tölvunefndar til að senda út dreifi-
póst og getur fólk því snúið sér til
þeirra með beiðni um að taka sig af
útsendingarlistum enda skal koma
fram á dreifipósti þeirra að um sé
að ræða úrtak úr þjóðskrá í vörslu
viðkomandi fyrirtækis.
Ef einstaklingur vill ekki fá slík-
an póst getur hann snúið sér til við-
komandi fyrirtækis og ber þá fyrir-
tækinu skylda til að koma þeim
upplýsingum áfram til Hagstofunn-
ar.“
Bannlistar Hagstofunnar virka
þegar þjóðskrá er notuð, til dæmis
þegar um útsendingar á happ-
drættismiðum er að ræða svo og
dreifípóst frá hinum ýmsu fé-
lagasamtökum, stofnunum, fyrir-
tækjum og einstaklingum sem vilja
koma upplýsingum sínum á
framfæri. Þá má geta þess að ef
aðilar vilja koma pósti til barna
undir átján ára aldri þá er almenna
reglan sú að stfla verði póstinn á
forsjármann barnanna, að sögn
Þyrí.
SPARAÐU ÞUSUNDIRWA EINU GOLFI
DÆMI: GÓLFFLÍSAR
Hásindrað postulín
stærð 30x30
var kr. 1995,-
NÚ kr. 995,-pr/m2
DÆMI: DREGLAR
70 cm 80 cm 90 cm
á breidd
FLISARESTAR allt að 12m2
NÚ 750,-pr/m2
DÆMI: VEGGFLÍSAR
Stærð 20x25
t.d. Aurora Rosa
Maia Azzuro
var kr. 1790,-
NÚ kr. 890,-pr/m2 DÆMI: POLIFACE
plastparket
teg. Deco
var kr. 1250,-pr/m2
990,-pr/m2
■21%
r|9JrP I
DÆMI: ARMSTR0NG
gólfdúkur
teg. GALLERIE 2m / 4m
var 1197 pr/m2
NÚ kr. 695.-pr/m2
-42%
DÆMI: FILTTEPPI
teg. FUN
4m á breidd
var kr. 395,-pr/m2
NÚ kr.290,-pr/m2
Takið málin “/fc m /O
með það flýtir
afgreiðslu!
DÆMI: M0TTUR
100% polypropoleme
Teg. RUBY
t.d. stærð 120x160 cm
var kr. 4935,-
NÚ kr. 3455,-
G6ð greiðslukjör!
Raðgreiðslur til allt að
36 mánaða
DÆMI:
B0EN parket
norsk gæði
teg. EikAkzent
15mm2stafa
l.flokkur
SÉRTILBOÐ
kr. 2650,-prm2
DÆMI: G0LFTEPPI
teg. California Dreams
var kr. 2790,-pr/m2
NÚ kr. 1814,-pr/m2
teg. Oslo
var kr. 1565,-pr/m2
NÚ kr. 1096,-pr/m2
tippŒlís*, teppaboðin
ALLT AÐ 70% AFSL.
0PNUNARTÍMI: 9-18 vírka daga
10-16 laugardaga
Suðurlandsbraut 26 s: 5681950