Morgunblaðið - 21.09.2000, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Mikil aukning
í sölu þjófa-
varna fyrir
heimili
Sífellt fleiri fá sér þjófavörn á heimili sitt
seg;ia talsmenn fyrirtækja sem annast
öryggisþjónustu fyrir heimili. Kannað var
verð hjá þremur slíkum fyrirtækjum.
SALA öryggiskerfa hefur aukist
gríðarlega undanfarið að sögn
Hannesar Guðmundssonar fram-
kvæmdastjóra Securitas. „Fyrir um
það bil fimm árum voru á bilinu eitt
til tvö hundruð heimili með öryggis-
kerfi, nú skipta þeir hundruðum sem
bætast í hópinn hjá okkur á hverju
ári.“ Hann segir að fólk hringi mikið
sjálft til íyrirtækja sem annast ör-
yggisþjónustu og óski eftir öryggis-
kerfi. „Væntanlega má rekja þessa
þróun til ástandsins í þjóðfélaginu.
Nánast daglega heyrir maður um
innbrot í blöðunum eða fréttum.
Fólk öðlast ákveðna öryggistilfinn-
ingu þegar komið er kerfí í húsið.“
Algengast í
grónum hverfum
Hann segir viðskiptavinina vera á
öllum aldri og af öllum stéttum en þó
séu öryggiskerfi algengari í einbýl-
is- og raðhúsum en til dæmis blokk-
um. „Það er sérstaklega í grónum
hverfum þar sem trén eru það há að
auðvelt er fyrir þjófa að athafna sig
án þess að til þeirra sjáist.“ Hann
segir að miðamir, sem á stendur að
öryggiskerfi sé í húsinu, fæli marga
frá og að frá upphafi hafi aðeins einu
sinni verið brotist inn í heimili þar
sem var öryggiskerfí frá fyrii-tæk-
inu.
Mikil vakning er að verða í örygg-
ismálum á heimilum að sögn Karls
Jónssonar framkvæmdastjóra
VARA, „Gerðar era sífellt meiii
kröfur til íyrirtækja og stofnana um
öryggisbúnað en á sama tíma eru
engar öi-yggiskröfur gerðar til
heimilanna þar sem fjölskyldan og
dýrmætar persónulegar eigur eru í
húfi.“
Securitas 1 Vari j Oryggismiðstöð
_________i___________________j_____Islands
Verð j Leiga kerfis 4.250 kr. á mánuði ••• KECTOlTtó Leiga kerfis 4.450 kr. á mánuði. Ef kerfi er keypt kostar það 60 þús. og síðan þjónustan §rjm 3.250 á Leiga kerfis 4.365 kr. á mánuði. Þráðlaust kerfi kostar5.142 kr. Tilboð: ef greitt er með Visa fást tveir mánuðir á ári ókeypis
Búnaður Tveir hreyfiskynjarar, einn reykskynjari, stjórnstöð, sírena, rafhlaða, hurðarofi. Tveir hreyfiskynjarar, einn reykskynjari, stjórnstöð, sírena, hurðarofi. Tveir hreyfiskynjarar, einn reykskynjari, stjórnstöð, sírena, rafhlaða.
Innifalið Stofnkostnaður, uppsetning, vöktun, útköll, árlegt eftirlit og viðhald tækja Stofnkostnaður, uppsetning, vöktun, útköll, viðhald tækja og eftirlit á tveggja ára fresti. Stofnkostnaður, uppsetning, vöktun, útköll, viðhald tækja og árlegt eftirlit.
Annað Hægt er að fá handslökkvitæki og eldvarnarteppi fyrir 300 kr. aukalega. Hægt er að tengja vatnsskynjara og gas- skynjara við kerfið sem kostaraukalega Hægt að velja um þráðlaus kerfi eða vímð W**<N
Sífellt fleiri fá sér þjófavöm til
að verjast óboðnum gestum.
Senda mann
strax á staðinn
„Mikið er um að fólk fái sér kerfi
eftir að það sjálft eða nágrannamir
hafa verið rændir," segir Máni Stef-
ánsson öiyggisráðgjafi hjá Öryggis-
miðstöð Islands. Hann segir ótrú-
legt að sjá hvemig þjófar geti
komist inn í hús. „Stundum hafa þeir
komist inn um svo örmjóa glugga að
manni dettur helst í hug að börn hafi
verið send inn og síðan látin opna
fyrir þjófunum.“ Hann segir sum
tiyggingafélög vera farin að lækka
iðgjöld af heimilistryggingum ef
heimilin em með öryggiskerfi en þó
misjafnlega mikið eða frá 15-35%.
Ef kerfið sendir frá sér boð um
óboðinn gest er maður sendur á
staðinn og er hann kominn innan
nokkurra mínútna til að athuga hvað
er á seyði, að sögn Mána.
LIÐ-AKTIN
Góð fæðubót fyrir
fólk sem
er með mikið álag
á liðum
Úheilsuhúsið
Skólavörðustlg, Kringlunni & Smáratorgi
tnilupa
Norski osturinn 210%
dýrari hér en í Svíþjóð
Morgunblaðið/Ásdís
Ekta geitaostur kostar 1.298 kr. kílóið hér en 718 kr. í Svíþjóð.
NORÐMENN borga í sumum til-
fellum meira fyrir norskar matvör-
ur en Svíar. Þetta kom fram í dag-
blaðinu VG fyrir nokkru. Ástæðan
er sögð sú að offramleiðsla Norð-
manna sé m.a. seld til Svíþjóðar þar
sem hún býðst neytendum á lægra
verði. Hærra verð á vörum í Noregi
má meðal annars rekja til þess að
þar er virðisaukaskattur á matvör-
ur 23% en 12% í Svíþjóð.
Á íslandi er virðisaukaskattur á
matvörur 14%.
I VG er tekið dæmi um verð á
nokkrum norskum ostum sem eru
ódýrari í Svíþjóð en í Noregi. Þegar
verðið á Guðbrandsdalsostinum er
borið saman við verð á slíkum osti
hér á landi kemur í ljós að þessi
norski ostur er 210% dýrari hér en í
Svíþjóð en kílóið kostar 1.796 krón-
ur hér á landi, 611 krónur í Noregi
og 580 krónur í Svíþjóð. Ekta geita-
oStur kostar 1.298 krónur kílóið
hérlendis og 718 krónur í Svíþjóð en
826 krónur í Noregi. Osturinn er
því 81% dýrari hér á landi en í Sví-
þjóð.
Verndartollar ein ástæðan
„Þennan mikla verðmun má með-
al annars rekja til verndartolla á
innfluttar landbúnaðarvörur," segir
Lárus Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Aðfanga, þegar hann er
spurður hvað skýri þennan mikla
verðmun á erlendum ostum.
„Samkvæmt GATT-samningnum
ber ríkisstjóminni skylda til að
auglýsa til umsóknar leyfi til inn-
flutnings á 54 tonnum af osti tvisvar
á ári á lægri tollum en ella,“ segir
Ámi Ingvarsson, innkaupastjóri
hjá Nýkaupi.
„Ef sótt er um meira kemur til
útboðs. Það er hæstbjóðandi sem
fær kvótann og auðvitað hefur það
áhrif á verð til neytenda. Meðalverð
á ostakvóta í síðasta útboði var
uml90 krónur kflóið,“ segir Árni.
Til era margir tollflokkar á inn-
fluttum osti hér á landi. Franski
Camembertosturinn er t.d í einum
flokki en brauðostur, guðbrands-
dalsostur og ekta geitostur í öðr-
um.
„Þau fyrirtæki sem eiga kvóta
borga 165 króna toll á hvert kfló í
flokknum sem Camembertosturinn
tilheyrir og að auki borga þau 190
krónur á kfló fyrir ostakvótann
sjálfan. Þá fellur niður 30% tollur á
kostnaðarverð vörunnar heimkom-
innar. Þennan 30% toll verða þeir
að borga sem ekki eiga kvóta svo og
500 króna fastan magntoll,“ segir
Láms.
Hinn hefðbundni brauðostur,
þ.ám. Guðbrandsdalsosturinn, em
í öðmm flokki. Sá sem á kvóta borg-
ar 107 krónur í magntoll, 190 krón-
ur lyrir kvótakílóið en 30% tollurinn
fellur niður. Þeir sem eiga ekki
kvóta þurfa að borga fastan '430
króna magntoll, ásamt 30% tolli á
kostnaðarverð vöm heimkominnar.
Sala á erlendum ostum hefur
dregist saman
Nýkaup fékk engan ostakvóta í
ár og því þarf fyrirtækið að greiða
meira fyrir ostana. „Ef við tökum
sem dæmi franska Camembertost-
inn sem er fluttur til landsins með
flugi þá er innkaupsverðið 908
krónur á kíló, síðan bætast við 270
krónur, sem er 30% tollurinn, og
loks 500 króna magntollur. Ostur-
inn er þá kominn upp í 1.678 krónur
kflóið þegar hann kemur að vöra-
húsi. Franski Camembertosturinn
er seldur á 2.196 krónur kílóið í
Nýkaupi í dag og þá eram við að
selja hann með 14% álagningu sem
skiptist á milli .Nýkaups og vöra-
hússins, “ segir Árni.
„Hér er um ofurtolla á innfluttum
osti að ræða, gengið spilar auðvitað
inn í þetta líka en hefur lítil áhrif
miðað við þessa háu tolla,“ segir
hann.
„Helsta baráttumálið er auðvitað
að fá tollana afnumda því þá myndi
verðið á innfluttum ostum lækka til
muna. Það að auglýsa ostkvóta og
bjóða í hann er ekkert annað en
hækkun á vöraverði til neytenda.
Innfluttir ostar era dýrir hér á landi
og þess má geta að við höfum
minnkað úrvalið hjá okkur töluvert.
Islenskar landbúnaðarvöiur eru
auðvitað mjög góðar og geta auð-
veldlega keppt við innfluttar," segir
Láras.