Morgunblaðið - 21.09.2000, Page 24
Frábært úrval
bæði í leðri og áklæði
24 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
C53h»sqöqn
Ármúla 8 -108 Reykjavlk
Sfmi 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
Morgunblaðið/Líney
Hjónin Jónas Jóhannsson og Þorbjörg Þorfínnsdóttir í brúnni á nýja skipinu.
Nýr bátur til Þórshafnar
Geir ÞH-150 siglir inn í heimahöfn á Þórshöfn. Morgunblaðið/Líney
Þórshöfn - Nýr bátur bættist í flot-
ann á Þórshöfn þegar Geir ÞH-150
kom til heimahafnar á laugardaginn.
Þetta er 117 tonna stálbátur,
smíðaður í Ósey í Hafnarfirði og tók
smíðin skamman tíma eða tæpt ár.
Báturinn er glæsilegur og vinnuað-
staða og aðbúnaður starfsmanna
frábær.
Að sögn Jónasar Jóhannssonar
útgerðarmanns er þessi nýi bátur sá
fímmti í röðinni sem ber Geirsnafnið.
Geirsútgerðin er gamalgróin hér á
Þórshöfn en fyrsti báturinn kom nýr
til Þórshafnar fyrir 40 árum; var
smíðaður í Hafnarfirði árið 1960.
Jóhann heitinn Jónasson, faðir
Jónasar, var stofnandi Geirsútgerð-
arinnar og hefur hún verið happasæl
og slysalaus frá upphafi en bátarnir
hafa ávallt borið Geirsnafnið.
Ibúum byggðarlagsins var boðið
að skoða bátinn og þiggja veitingar á
sunnudag og var fjölmenni um borð.
Séra Sveinbjörn Bjarnason blessaði
bátinn og óskaði eigendum gæfu og
gengis með útgerðina.
Eigendur meðtóku blómakörfur,
góðar gjafir og óskir um að útgerð
Geirs verði áfram farsæl sem fyrr.
Óuiminn fískur fari á íslenska markaði
„Þjónar almenn-
um hagsmunum“
A AÐALFUNDI Samtaka fisk-
vinnslustöðva án útgerðar í október
verður lögð áhersla á að stjórnvöld
beiti sér fyrir því að óunninn fiskur
fari allur á íslenska fiskmarkaði. „Ef
frjálsræði er það mikið að það skað-
ar þjóðhagslega hagsmuni, eins og
útflutningur á óunnum fiski gerir,
setja stjórnvöld einhverjar reglur til
að tryggja almenna hagsmuni, og
það er það sem við viljum,“ segir
Óskar Þ. Karlsson, formaður Sam-
taka fiskvinnslustöðva án útgerðar
og framkvæmdastjóri fiskvinnsl-
unnar ísfisks hf.
Óskar bendir á að hann tilheyri
þeim hópi fiskverkenda sem byggja
rekstur sinn á því að kaupa fisk á
fiskmörkuðum og áherslur hópsins
séu einfaldar. „Við viljum njóta að
minnsta kosti jafnræðis við útlend-
inga varðandi möguleika á að bjóða í
fisk sem er veiddur hér á miðunum,"
segir hann. „Þannig er staðan ekki í
dag. Fiskur er fluttur út óseldur í
stórum stíl og okkur svíður það.“
Samkeppni við unninn fisk
Að sögn Óskars tapast miklar
virðisaukatekjur vegna núverandi
fyrirkomulags. „Sala á fiskmörkuð-
unum heima er eina fyrirkomulagið
sem tryggir hámarksvirðisauka og
hámarksverð fyrir útgerðina. Því
þjónar það öllum að hafa þennan
hátt á og ekkert er þessu til fyrir-
stöðu. Við lítum að vísu öðruvísi á
það þegar togarar sigla með afla því
fyrir því er áratugahefð en útflutn-
ingur á óunnum fiski í gámum er til-
tölulega nýtilkominn. Hann byrjaði
af miklum krafti fyrir um 20 árum,
áður en fiskmarkaðirnir byrjuðu, og
hefur því miður haldið áfram í svo
miklum mæli að það skaðar útgerð-
ina í heild. Ég tel að ef farið væri of-
an í saumana á málinu og það rakið
upp í þætti kæmi í ljós að virðis-
aukatapið væri einn til tveir millj-
arðar króna eða jafnvel meira. I
þessu sambandi verður að hafa í
huga að útflutningur á þessum
óunna fiski er í samkeppni við fisk-
inn sem er fluttur út ferskur en unn-
inn í flökum og flakahlutum. Auk
þess mætir þessi unni fiskur undir-
boðum vegna fisks sem fluttur er út
óunninn. Mikill sérskorinn fiskur
fer til dreifingar í stórmarkaði í
Evrópu og það er mjög mikill virðis-
auki í þessari vinnu heima. Hins
vegar er verið að flaka og vinna
þennan óunna fisk meira og minna á
styrkjakerfi erlendis."
Gæði og áreiðanleiki
Óskar segir að þegar rætt sé um
hvernig ná megi hámarksárangri í
sambandi við verð og markaðsstöðu
íslenskra fiskvinnslufyrirtækja
þurfi að hafa tvennt í huga. í fyrsta
lagi að gæðin séu sem mest og þar
standi útflytjendur unnins fisks vel
að vígi með markvissum vinnu-
brögðum. I öðru lagi þjónustugæð-
in, áreiðanleikinn í því að útvega
fiskinn. „Þessi útflutningur á óunn-
um fiski í gámum er í þeim mæli að
hann truflar verulega þennan mikil-
væga þátt í sambandi við að útvega
fiskinn. Oft hefur komið upp sú
staða að fjöldi gáma af óunnum fiski
hefur farið út en á sama tíma hafa
fiskframleiðendur ekki getað staðið
við pantanir. Það er mjög slæm
staða og því spyrjum við stjórnvöld
hvers vegna ekki sé hægt að hafa
það fyrirkomulag sem gefur mögu-
leika á að láta á það reyna hverju
sinni hvort íslensk fyrirtæki vilja
bjóða betur í íslenskt hráefni en er-
lend fyrirtæki.“
Virðisaukinn á íslandi
Óskar segist ennfremur vona að
fyrirkomulaginu verði breytt, að all-
ur óunninn fiskur fari á markað hér-
lendis. „Það þjónar útgerðinni og
hagsmunum hennar best. Við viljum
að íslensk útgerð beri sem mest úr
býtum og hugsum vel til hennar en
við væntum þess líka að útgerðinni
sé umhugað um það að allur virðis-
auki eigi sér stað í landinu frekar en
erlendis, um leið og hún vill fá sem
hæst verð fyrir sinn fisk.“
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
I