Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Friedrich Wolf Theatre.
Ljósmynda-
sýning og
þýsk kvik-
mynd
LJÓSMYNDASÝNINGIN „Kvik-
myndahús í Austur-Þýskalandi"
verður opnuð í Goethe-Zentrum á
Lindargötu 46, í kvöld,
fimmtudagskvöld kl. 20.
Mai'kmið sýningarinnar er að
sýna heimildir í formi ljósmynda
um stöðu bíómenningar þeirrar
sem þróaðist í Þýska alþýðulýðveld-
inu og nú er senn að líða undir lok.
Myndirnar, sem teknar eru af
Margarete Freudenstadt, sýna
kvikmynda„hallir“ í Austur-Þýska-
landi þar sem varðveist hafa menj-
ar meira en fimm áratuga gamallar
kvikmyndasögu.
Margarete Freudenstadt fæddist
1956 og býr nú í Munchen. Frá ár-
inu 1989 hefur hún starfað sjálf-
stætt sem Ijósmyndari.
Sýningin stendur til 11. október
og svo aftur 1. nóvember til 15. des-
ember.
Kl. 20.30 verður þar síðan sýnd
sígild vesturþýsk kvikmynd,
„Himmel ohne Sterne" frá árinu
1955. Þar segir af ástum austur-
þýskrar iðnverkakonu og vestur-
þýsks landamæravarðar á árunum
1952-53.
Þótt myndin, sem hlaut Þýsku
kvikmyndaverðlaunin 1956, sé gerð
á tímum kalda stríðsins ber hún lít-
inn keim af pólítískum áróðri held-
ur er þar leitað mannúðar og
mennsku handan allrar hugmynda-
fræði.
Myndin er með enskum texta og
aðgangur er ókeypis.
QUELLE
Dragt
100% Polyester
- Stretch
Jakki fóðraður
Stærðir 36 til 50
3ja hluta dragt
65% Polyester
35% Viskose
Jakki og vesti fóðrað
Verðtilboð kr. 9.900
2ja hluta dragt
100% polyester - stretch
Jakki fóðraður
Stæróir 34 til 46
Verðtilboð kr. 9.900
Verðtilboð
kr. 9.900
3akki
100% PoLyester
Sidd 88 cm.
Stærðir 36 til 46
2ja hluta dragt
Jakki og pils
100% Polyester stretch
VerðtiLboð kr. 10.900
Jakki
100% PoLyester
Fóðraður
VerðtiLboð kr. 4.500
Verðtilboð kr.
3.990
QUELLE - VERSLUN
DALVEGUR 2 • KÓPAVOGUR • S 564 2000
Ljós í sinnið
Bækur geta gripið menn misjöfnum tökum.
Sumar hverfa okkur fljótt, en svo eru aðrar
sem aldrei gleymast. Árni Helgason segir
hér frá bók sem hann telur vegvísi til betra
og auðugra og farsælla mannlífs.
FYRIR nokkru eignaðist ég bók
sem mig langar til að minnast
nokkrum orðum. Eg tel að hún eigi
erindi til allra landsmanna. Bókin
heitir Lífsýn og er
eftir Gunnþór Guð-
mundsson fyrrum
bónda að Dæli í Víði-
dal í Vestur-Húna-
vatnssýslu, en þar bjó
hann góðu búi í 30 ár.
Um leið og ég eignað-
ist þessa bók og hafði
lesið hana, komst ég
að því að þetta var 4.
bókin sem þessi höf-
undur lét frá sér fara,
eftir að hann komst á
áttræðisaldurinn og
hætti búskap. Bókin
er full af lífsspeki og
hugleiðingum manns
sem hefír gegnum árin
numið af lífinu og
kynnst öllum þáttum samfélagsins.
Hún geymir bæði rímuð og órímuð
ljóð og allt eru þetta vegvísar til
betra og auðugra og farsælla lífs.
Höfundurinn er fundvís leið-
sögumaður ungra og eldri gegnum
veröldina og allt hennar vafstur
sem hún býður upp á og ég tel að
hvert spakmæli sem þar er að
fínna sé gullkorn, og er þess full-
viss að sá sem byrjar að lesa bók-
ina, en hún lætur ekki mikið yfír
sér, hættir ekki við lesturinn fyrr
en allt er lesið og það er undarleg-
ur maður sem ekki getur tileinkað
sér margt sem þar er að finna til
leiðbeiningar á lífsins leið. Bókin er
ekki mjög stór, eitthvað rúmar 100
blaðsíður og ritar sr. Kristján
Björnsson aðfaraorð. Ég náði mér
strax í aðra bókina hans Gunnþórs
sem ber nafnið: Óður til nýrrar
aldar og hún er ekkert síðri, en því
miður er fyrsta bókin ófáanleg þar
sem hún er uppseld. Það er merki-
legt að erfiðismaður í lok búskapar
fari út á þá braut, að gefa út og
semja slíkar bækur sem Gunnþór
hefír nú komið á prent, auk þess
sem hann hefir farið út á braut list-
málara og þar komið mörgum á
óvart með sinni náttúrugáfu og
virðist ætla að verða þar mjög
virkur eftir því sem þau málverk
hans hafa fengið lofsamlega viðtök-
ur. Já, það má segja að Gunnþóri
sé margt til lista lagt og landið er
með honum einum manni auðugra,
þeirra sem skapa bæði lestrar- og
hugðarefni handa fólkinu í landinu.
Mig langar til að taka dæmi úr
bókum hans til að sýna fólki hve
hugsanir Gunnþórs stefna. Til
dæmis ljóð sem hann nefnir Barn-
ið:
Barnið sem lítur spyrjandi
mót lífmu.
Gefðu því glóaldin
tungu þinnar
svo illgresi nái ekki
að vaxa í sporum þess
heldur ástliljur
og angan nýgræðings.
Ungur sveinn og meyja
mikið er lífið fagurt
í kringum okkur.
Jafnvel krunkið
í honum krumma
vekur bros.
Fiðrildi í blómahafinu
er meðal undranna.
Svanur svífur til heiðarvatnanna bláu
í ríki sumarsins.
Lömb, folöld
og annað ungviði
kann sér ekki læti
í vordagsins blóma.
Pannig skartar náttúran
auði sínum og fegurð.
Með börnunum er best
að njóta alls þessa.
Verum því sem börn.
Og gleðin stráir fræjum
lífsins
í frjóan jarðveg
og uppsker hamingju
hjá bömum Meistarans.
Þá eru þankabrotin
ekki síðri. T.d.
Traustið sem skín úr
augum barnsins ættum við að
rækta með okkur til æviloka, og
eins þetta: Við höfum lengi búið við
framfarir á andlegu og efnislegu
sviði, við gætum því vænst óvæntra
sigra á þessum sviðum um ókomna
framtíð. Og eins þetta: Þeir sem
leituðu athvarfs í eiturnautnum áð-
ur, finna nú slíkar hvatir víðsfjarri
og eins: Aðgerðarleysið er ef til vill
mesta áhættan.
Víðidalur
Sumarfagra sveitin mín
sæluríkið þinna barna.
Leikur blær við laufin þín
ljúft á meðan sólin skín.
Vetrarhörku veðrið dvín
vermir sólin breiður hjarna.
Sumarfagra sveitin mín
sæluríkið þinna barna.
Grundin slétt og grösug hlíð
glóir elfa í sumarflóði
hljómsveit þrasta heillar fríð
hörpu stillir söngva blíð.
Laufvindar á Ijúfri tíð
leika brot úr nýjum óði.
Grundin slétt og grösug hlíð
glóir elfa í sólarflóði.
Brúnir fjalla brosa við
blaka vængjum tignir svanir,
loftið fyllist ljúfum klið,
lækjahjali, fossanið.
Feðrasporin færðu á svið
frónskir sveinar þrautum vanir.
Brúnir fjalla o.s.frv.
Hátt við gnæfir himin blá
hvítur skalli jökulbungu.
Víðidals er vinleg brá
verndar niðja tjóni frá.
Æskubyggðum ég vil tjá
orð við hæfi lands á tungu.
Hátt við gnæfir o.s.frv.
Þetta eru aðeins smá sýnishorn
úr bókinni en þó skír og finnst mér
fara vel á að kynna þennan reynda
og hugsunarsnjalla íslenska bónda
og erfiðismann. Þá má geta þess að
tvær bækurnar eru gefnar út af
Hörpuútgáfunni á Akranesi, en
hinar af höfundi sjálfum.
Ég er viss um að þeir sem eign-
ast þessar bækur munu bæði lesa
þær og leita á þeirra mið ef þeir
þurfa að vitja góðra spakmæla og
þankabrota til að lýsa upp og örva
hugi annarra til hugleiðinga um
fegurra mannlíf.
Gunnþór
Guðmundsson