Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 35
LISTIR
Nýjar bækur
• Nokkrir íslandskrossar er eftir
Ólaf H. Torfason.
A krossmessu að hausti, 14. sept-
ember, kom út ritið Nokkrir Islands-
krossar í tengslum \nð grafíksýningu
Þorgerðar Sigurðardóttur í Hafn-
arborg í Hafnarfirði. I ritinu er
stuttlega bent á með ýmsum dæm-
um hvaða hlutverki krosstákn, róðu-
krossar og krosstré hafa gegnt í lífi
íslensku þjóðarinnar.
Rakið er hvernig krossinn varð
tákn kristninnar. Greint er frá heim-
ildum í íslenskum fornritum um
krossa landnámsmanna og trúboða,
um róðukrossinn sem særingatæki
og um krossa á víðavangi. Bent er á
staði þar sem krossmörk eru enn frá
fomu fari. Fjallað er um krossör-
nefni og birt kort af þeim.
Höfundur rökstyður að sumar
grjóthrúgur við gamlar alfaraleiðir,
„dysjar“ og beinakerlingar, hafí að
líkindum upprunalega verið stuðn-
ingsvirki vegkrossa á miðöldum, og
að álagablettir eigi e.t.v. margir líka
fortíð sem reitir krossa og líkneskja.
Greint er frá kirkjum sem voru
helgaðar krossinum í kaþólskum sið
og meðferð hans innan kirkjunnar,
en einnig fjallað um krossinn í þjóð-
lífinu, krossmessur, krossa í kveð-
skap og myndlist og táknmál kross-
ins. Loks er sagt frá krossinum í
samfélaginu á síðari tímum.
Ritið er 60 bls. með myndum og
kortum. Það er til sölu á sýningu
Þorgerðar Sigurðardóttur í Hafnar-
borg en hún er opin daglega kl. 12-
18, síðasti dagur mánudagurinn 25.
september.
Sjálfsvorkimn í plötubúð
y^M-2000
John Cusack og Jack Black á góðri stundu
í plötubúðinni í myndinni High Fidelity.
þá sérstaklega Jack Black
og Todd Louiso sem leika
hinn sjálfsörugga og kraft-
mikla Barry og hinn var-
Fimmtudagur
21. september
KVIKMYNDIR
S a m b í ó i n
HIGH FIDELITY ★★★
Leikstjórn: Steven Frears. Handrit:
D.V. De Vincentis eftir samnefndri
skáldsögu Nick Hornby. Aðal-
hlutverk: John Cusack, Iben Hjelje,
Todd Louiso, Jack Black, Lisa Bon-
et, Joan Cusack og Tim Robbins.
Touchstone Pictures 2000.
ÞESSI kvikmynd er byggð á
mjög vinsælli bók eftir breska höf-
undinn Nick Hornby, þann sama og
reit bókina sem myndin „Fever
Pitch“ var gerð eftir fyrir um þrem-
ur árum. Það eru John Cusack og
félagi hans D.V. De Vincentis sem
hafa skrifað handritið en þeir eru
einmitt framleiðendur myndarinn-
ar. Þeir hafa fengið breska leikstjór-
ann Steven Frears til að leikstýra
verkinu og það verður að segjast að
þeim tekst bara býsna vel upp.
John Cusack leikur Rob sem álít-
ur sjálfan sig algjört fórnarlamb í
ástamálum og virðist alltaf vera að
sýta þá seinustu sem hafnaði honum
í stað þess að njóta þeirrar sem
hann hefur. A daginn hangir hann í
plötubúðinni sinni ásamt þeim Dick
og Barry, en þeir eru allir popptón-
listarnirðir sem stytta sér stundir
með því að setja saman ýmsa „Topp
fímm“-lista laga úr ólíkum tónlistar-
stefnum og fyrir ólík tækifæri. Þeg-
ar kærastan Laura gefst upp á Rob
og flytur frá honum, finnst honum
viðeigandi að gera „Topp fimm“-
lista yfir erfiðustu sambandsslitin í
gegnum tíðina, og leiðir okkur
áhorfendur með sér á þeirri trega-
fullu minningaför.
Mér finnst John Cusack mjög
skemmtilegur leikari, sérstaklega
þegar hann leikur hálfmisheppnaða
náunga og hann smellpassar í hlut-
verk Robs. Hann er hér látinn tala
beint í myndavélina, sem er mjög
skemmtilegur og óvenjulegur frá-
sagnarmáti í kvikmyndum og John
tekst fullkomlega að halda athygli
manns allan tímann. Samleikarar
hans eru flestir framúrskarandi, og
færna og feimna Dick. Þeir
eru skemmtilegustu pers-
ónurnar og ég á erfitt með
að ímynda mér myndina án
þeh-ra. Kannski er danska
leikkonan Iben Hjelje (Mif-
unes sidste sang) síst leik-
aranna. En persóna hennar
er frekar húmorslaus og
það fellur ekki inn í þessa
mynd. Það má sjálfsagt
skrifa á leikstjórann.
En stundum fannst mér
heildarstíllinn ekki nógu
sterkur og þá helst í því
sem snýr að húmornum.
Tim Robbins leikur frekar
ýkta týpu, en hins vegar eru öll at-
riðin með honum mjög fyndin og
stinga svolítið í stúf við restina, og
manni þykir mjög ólíklegt að Laura
geti hrifist af þessum manni.
High Fidelity er engin stórmynd
sem býr yfir miklum boðskap, enda
var það varla ætlun aðstandend-
anna. Sagan er ekki einu sinni frum-
leg og stundum er söguþráðurinn
laus í reipunum. En persónurnar
allar eru bara svo lifandi og hún er
svo mannleg og þægileg á að horfa,
að manni finnst sagan geta verið
saga næsta manns. Kannski næsta
manns í næstu plötubúð.
Hildur Loftsdóttir
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR-
HÚS KL. 15
cafe9.net
ídag taka gestgjafar á móti fólki frá
kl. 15. Heimsækið cafe9.net í Hafn-
arhús eöa á heimasíðu.
www.cafe9.net
www.reykjavik2000.is - wap.olis.is
------------♦-*-«-------
Ingo sýnir
í Café 17
NÚ stendur yfir málverkasýning
Ingólfs Þórs Árnasonar, Ingo, í Café
17, Laugavegi 17. Ingo sýnir þar
þrjár myndir.
Sýningin stendur til 13. október.
Íúrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
BATMAN ER MÆTTUR
MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA
www.nordiccomic. com
Baleno Wagon er rúmgóöur og mjög
vel búinn Qölskyldubíll. Nú bjóðum við
enn veglegri Ijórhjóladrifinn bíl, Wagon
4x4 Limited á 1.725.000 kr.!
12.699,-
á mármöi
Dæmi um meöalafborgun miöaö viö 950.000 kr.
útborgun (t.d. bill tekinn upp í), í 84 mánuöi.
Auk þess er í
4x4 Wagon Limited:
> Leöurklætt stýri
i Leðurklæddur gírstangarhnúöur
i Viöaráferö á mælaboröi
> Álfelgur
i Geislaspilari
> Sílsalistar
> Þokuljós
> Samlitir speglar
> Fjarstýrð samlæsing
$ SUZUKI
/★
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson, Grænukinn 20, SUZUKI BILAR HF
simi 555 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 22 30. isafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Gröfinni 8, simi 421 12 00. Skeifunni 17. Simi 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Er kominn b'mi tíl að
kaupa nýjan og StðETTl ?
^cúsV-yldunnar?
BALENO WAGON 4x4 Limited
Staöalbúnaður í Baleno
Wagon er m.a.:
. ABS-bemlar
• Vökvastýri
. 2 ioftpúöar
• 16 ventla 96 hestafia vél
. Þakbogar
. Rafmagn i rúöum og spcgium
. Vindskeið
• Styrktarbitar i huröum
. Samlitir stuöarar