Morgunblaðið - 21.09.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 37
LISTIR
■
Kona með kross-
lagðar hendur
VERK listamannsins Pablo Picasso
eru vinsæl meðal listaverkaunnenda
og jafnan mikill áhugi á sölu þeirra.
Uppboðshús Christie’s í New York
er þessa dagana með verk Picassos
„Femme aux bras croises," sem út-
leggja má á íslensku sem Kona með
krosslagðar hendur, til sýnis.
„Femme aux bras croises“ er að
mati Christie’s manna merkasta
verkið úr röðum verka múdernista
og impressionista sem boðin verða
upp dagana 8.-9. nóvember. Búist er
við að verkið muni seljast fyrir um
25 milljónir dollara, eða um 2 millj-
arða íslenskra króna.
William
Heinesen
Nýtt tímarit
• Þriðja hefti Timarits Máls og
menningar 2000 er að mestu leyti
tileinkað minningu færeyska rit-
höfundarins
William Heine-
sen, (1900-1991),
en í ár eru
hundrað ár liðin
frá því hann
fæddist.
Þetta hefti
inniheldur ljóð
eftir Heinesen í
þýðingu Þor-
geirs Þorgeirs-
sonar, viðtal við hann sem var tekið
þegar hann varð áttræður, fjórar
greinar um hann og verk hans eftir
þau Þorgeir Þorgeirson, Soffíu
Auði Birgisdóttur, Oddvöru Johan-
sen og Malan Marnersdóttur, auk
ljóðs eftir Christian Matras og smá-
sögu eftir Gyrði Elíasson sem teng-
ist Heinesen.
Meðal annars efnis má nefna
grein Arna Bergmann um stjórn-
mál og bókmenntir, sem nefnist
„Ofbeldi kommúnista við borgara-
lega rithöfunda", hugleiðingu Pét-
urs Gunnarssonar um Reykjavík,
grein Önnu Heiðu Pálsdóttur um
það hvernig Harry Potter hefur
heillað heiminn undanfarin misseri,
þýðingu Gyrðis Elíassonar á ljóðum
eftir bandaríska ljóðskáldið John
Haines og krossgátu byggða á leik-
ritum Williams Shakespeare. Tíma-
rit Máls og menningar er 128 bls.,
unnið í Prentsmiðjunni Odda hf.
Verk á kápu er eftir William Heine-
sen. Róbert Guillemette hannaði
kápuna. Ritstjóri Tímarits Máls og
menningar er Friðrik Rafnsson,
Ingibjörg Haraldsdóttir er aðstoð-
arritstjóri, en ritnefnd skipa þau
Arni Bergmann, Kristján Árnason,
Pétur Gunnarsson og Soffía Auður
Birgisdóttir. Tímarit Máls og menn-
ingar kemur út ársfjórðungslega
Mara
LNBAN
Aðalstræti 9 • 551 5055
NÁTTHAGI GAR-DPLÖNTUSTÖ€)
Tílboð: Sitkagreni 50-70cm 500,- Aspir lOOcm
300,- Evrópulerki 80 - 100 cm 600,- Viðir 140,-
Fjölpottaplöntur 35-40 stk á 1500 - 1950,- Lerki,
Stafafura, Hvltgreni, Bergfura, Vföir, Ösp 'Salka Björns'.
„Senuþjófar": Hlynur, Loðkvistur, Gultoppur, Álmur, Bersarunni,
Broddgreni, Askur, Hvítgreni, Gulur bambus, Ryðelri, Svartelri,
Kjarrelri frá Kamtschatka, Klifurplöntur, Alparósir,, Gullklukkurunni
frá Hokkaidó, Japanskvistur 'ÓLI', Pallir, Einitegundir o.m.fl.
Uppl. s. 4834840. Heimasíða: www.natthagi.is
Er allt I lagi aö gróöursetja núna ? Já, fram I október I
Áttu I vandræöum með klaka Ijöröu fram á sumar 7
Notaðu haustiö til plöntunnar I og nógur er rakinn I
Opið virka daga OGIIELGAR frá 10.00 -19.00
Ofnæmisprófað.
100% ilmefnabust.
Nýr kaupauki. Núna.
Nýjasta gjöfin þín frú Clinique er hérna.
Gjöfin inniheldur Rinse-Off Eye Makeup Solvenf, Dramuticully Different
Moisturizing Lotion, City Stick SPF15 í Cream Stick, Smudgeside í Pillowtalk,
Different Lipstick i Sweet Honey og Cool Lustre Body Moisture.
Koupaukinn er þinn ón endurgjolds ef keyptor eru Clinque snyrtivörur fyrir
3.500 kr. eða meira. Takmarkað magn. Ein gjöf fyrir hvern viöskiptavin meðan
birgðir endast.
Clinique.
Ofnæmisprófað. 100% ilmefnalaust. www.clinique.com
Ráðgjafi verður i Hagkaup Kringlunni i dag, fimmtudag, föstudag og laugardag.
HAGKAUP
Kringlunni
Tilboðið gildir einnig i Hagkaupi Smáranum, Skeifunni og Akureyri.
íþróttir á Netinu
v^mbl.is