Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ í 50 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 * MINNINGAR SIGURJÓN , GUÐFINNSSON + Sigurjón Guð- finnsson fæddist að Árnesi í Árnes- hreppi í Stranda- sýslu 18. október 1958. Hann lést 8. september síðastlið- inn. Sigurjón var sonur hjónanna Guð- rúnar Ágústu Svein- bjömsdóttur, f. 12.9. 1934, og Guðfinns Ragnars Þórólfsson- ar, f. 4.7. 1926, d. 1.1. 1981. Þau hjón eignuðust sex börn. Systkini Sigurjóns eru: a) Þórólfur, f. 25.4. 1955, ókvæntur og barnlaus. b) Svein- dís, f. 1.6.1957, gift Hávarði Bene- diktssyni og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. c) Jóhanna, f. 2.4. 1960, gift Stefáni Sigurðssyni og eiga þau tvö börn. d) Margrét, f. 7.4. 1962, gift Bjarna Ingólfssyni- ,þau skildu en eiga tvö börn. e) Guðrún, f. 27.8. 1966, gift Jó- hanni Áskeli Gunn- arssyni og eiga þau fjögur börn. Sigurjón kvæntist 28. júní 1997 Sigríði Jónu Jóhannsdóttur, f. 7. júli 1960. Hún er dóttir hjónanna Eyju Sigríðar Viggósdótt- ur, f. 21. maí 1939, og Jóhanns Jóns Hafliða- sonar, f. 29. júní 1939. Sigurjón og Sigríður eignuðust þrjú börn. 1) Eyrún Þóra, f. 20.11. 1989. 2) Jóhann Finnur, f. 24.5. 1991. 3) Hafdís Jóna, f. 22.5.1997. Sigurjón stundaði nám við Barnaskólann að Finnbogastöð- um, Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði og síðan við Mennta- skólann á Akureyri og varð stúdent þaðan árið 1978. Á náms- árum sínum við menntaskólann stundaði hann ýmsa sumarvinnu, svo sem byggingarvinnu. Einnig fór hann nokkrar sjóferðir á tog- urura IJtgerðarfélags Akureyrar, bæði á sumrum og í fríum frá skóla, svo sem jóla- og páska- fríum. Að loknu námi við mennta- skólann vann hann í rúm tvö ár við fiskvinnslu í Bolungarvík en hóf síðan nám í tölvunarfræði við Háskóla íslands. Á námsárum sín- um í háskólanum, starfaði hann á sumrin hjá Reiknistofu bankanna, en með síðari hluta námsins vann hann hlutastarf þar. Að loknu há- skólanámi, árið 1986, hóf hann þar fullt starf og starfaði þar til dánardægurs. Hann tók þátt í ýmsum félagsstörfum. Hann var einn af stofnendum Keilufélags Garðabæjar og var í stjórn þar. Hann var Iíka í stjórn og nefndum hjá Keilusambandi íslands. Hann tók virkan þátt í foreldrastarfi Fylkis þar sem börnin æfa fót- bolta. Utför Sigurjóns fer fram frá Árbæjarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Nú er ég klæddur og kominn á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól, í guðsóttanum gefúu mér að ganga í dag, svo líki þér. (Ók. höf.) Vaki englarvöggu hjá, vami skaðanum kalda, breiði Jesús barnið á blessun þúsundfalda. (Ók. höf.) Láttu nú ljósið þitt. Loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesú mæti. (Ók. höf.) Vertu, Guð faðir, faðir minn, t í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Péturss.) Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur, elsku besti pabbi. Börnin þín, Eyrún Þóra, Jóhann Finnur og Hafdís Jóna. Elsku bróðir. Af hverju, af hverju þú? Föstudagskvöldið 8. september. Þórir bróðir hringir I mig og segir að Sigurjón bróðir sé dáinn. Hvern- ig gat það verið að Nóni væri dáinn? Hann var ekki nema 41 árs, allt of ' ungur til að deyja. Nóni hringdi í mig miðvikudags- kvöldið 6. september til að segja mér að þau fjölskyldan færu af stað norður á Strandir eftir hádegi á fimmtudag. Hvem hefði grunað að þetta væri í síðasta skipti sem ég talaði við Nóna. Oft spurði ég Nóna hvemig hann nennti að fara í leitir ár eftir ár. Svarið var alltaf, þetta er svo gaman. Nú hringi ég ekki oftar í Nóna til að fá ráðleggingar hjá honum, en það var svo gott að hringja í Nóna til að fá betri útskýringar á svo mörgu. Flesta sunnudaga hringdum við hvort í annað til að vita hvoru okkar hefði gengið betur í getraun- um. En það var alltaf jafn gaman að vita hvoru okkar hefði gengið betui-. Sumarið 1999 hittumst við systk- inin með fjölskyldum, ásamt mömmu eina helgi í Gilsfjarðar- brekku. Þetta var búið að vera til umræðu í eitt og hálft ár. Núna er ég svo fegin að það skyldi verða af því að koma svona öll saman. Þær eru svo margar minningarnar sem koma upp í hugann, sem ég mun geyma um ókomin ár. Elsku Sirrý og börn, og aðrir ætt- ingjar og vinir. Geymum minning- una um góðan dreng. Þín systir, Jóhanna. Sigurjón hitti ég fyrst árið 1988 stuttu eftir að hann og Sirrý kynnt- ust. Við nánari kynni kom í ljós að þar fór hæglátur og yfirvegaður maður sem aldrei taldi eftir sér að rétta þeim sem til hans leituðu hjálparhönd. Það var alveg sama hvort þurfti aðstoð við að taka á móti heyi, fara vinnuferð austur eða að gera eitthvað uppi Sumó hjá tengdó, alltaf var hægt að leita til hans. Alls staðar þar sem hann kom næi-ri einhverjum félagsskap þá var hann búinn að taka að sér eitthvert hlutverk sem varð að vinna en eng- inn annar hafði tíma til, þannig var hann í stjórn keilufélagsins, gjald- keri í húsfélögunum og sá um fjár- öflun í fótboltanum fyrir börnin. Frá því að ég kynntist Siguijóni var það eitt af merkjum haustsins að hann og og Sirrý fóru norður með börnin því hann var að fara leit- ir, en hann var fæddur og uppalinn norður í Árnesi í Trékyllisvík á Ströndum og hafði sterkar taugar til æskuslóðanna og lagði sig allan fram við að aðstoða þá sem þar búa eins og aðra. Fimmtudaginn 7. september sl. hélt fjölskyldan í Reykásnum norð- ur í leitir eins og önnur haust. Að morgni föstudags var haldið af stað til leita og var veðrið þokkalegt og menn vel búnir því af langri reynslu leitarmanna þá vita þeir að von get- ur verið á öllum veðrum á þessum árstíma. Því héldu þeir af stað glaðir í bragði og hlökkuðu til að fá að tak- ast á við það verkefni sem þeir höfðu leyst á hverju hausti frá því þeir höfðu aldur til. Þegar féð og menn voru komin niður í Ofeigsfjörð kom í ljós að einn mann vantaði. Strax var farið að leita að honum í slæmu veðri sem hafði skollið á. Eft- ir klukkustund fannst hann og var þá þegar kallað eftir aðstoð en því miður nægði það ekki til, kallið hans Sigurjóns var komið. En einhverra hluta vegna, sem enginn fær skilið, hafði Guð almáttugur valið að kalla til sín ungan mann í blóma lífsins. Við sem eftir sitjum spyrjum okk- ur hvers vegna, hvers vegna Hann sem öllu ræður ákveður að kveða burt fjölskylduföður sem eiginkona og þrjú ung börn hafa lagt allt sitt traust á. Elsku Sirrý mín, þér og bömun- um þínum, Eyrúnu, Jóhanni og Haf- dísi, votta ég mína dýpstu samúð og mun gera það sem ég get til að styðja ykkur og styrkja. Oðrum aðstandendum votta ég samúð mína. Arngrímur V. Angantýsson. Elsku Sigurjón, við söknum þín svo mikið og skiljum ekki af hverju þú kemur ekki aftur til okkar. Nú ert þú kominn til Guðs og búinn að hitta pabba þinn og ömmu. Við vitum að þú fylgist vel með Ey- rúnu, Jóhanni, Hafdísi og Sirrý og passar þau vel. Eg fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og Ijúfa engla geyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (Matthías Joch.) Elsku Sirrý, Eyrún, Jóhann og Hafdís, söknuðurinn er mikill og sár. Við munum alla tíð passa ykk- ur. í sameiningu geymum við góðan Sigurjón í hjörtum okkar. Arnar Davíð, Bjarki Freyr og Hlynur Helgi. Það setti að mér illan grun þegar ég sá í lítilli frétt í Morgunblaðinu á laugardagsmorgni að gangnamaður hefði látist við fjárleit í Ofeigsfirði. Ég fékk það staðfest skömmu síðar að grunurinn átti því miður við rök að styðjast. Þarna lést Sigurjón Guðfinnsson, vinnufélagi minn til tuttugu ára. Hann fór á hverju hausti þarna norður á æskustöðv- arnar að elta rollur í einu erfiðasta landslagi sem til er á Islandi til slíkra athafna. Þarna er lítið hægt að brúka hest og hjallana og fjöllin þurfti að sigra á tveimur jafnfljót- Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfflegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ** Við birtingu aftnælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. um. Þetta var nú nánast eina hreyf- ingin sem ég vissi til að Sigurjón stundaði reglulega, fyrir utan nátt- úralega Keiluna, sem hann ástund- aði af því kappi sem honum var eig- inlegt að beita á það sem hann á annað borð fékk áhuga fyrir. Og þá var nú ekki slegið slöku við, allar reglur voru 100% á hreinu og hann varð óumdeildur leiðtogi og aðal- sprauta á vinnustaðnum. Skipulagði mót og æfingar og hélt óaðfinnan- lega utan um alla tölfræði og skrán- ingu sem íþróttinni tengdust. Það var ekki síður á öðram svið- um, sem ekki heldur tengdust starf- inu beint, sem hann varð sjálfkrafa máttarstólpi og stoð og stytta okkar hinna þegar hann setti sig rækilega inn í málin og gaf sér tíma til að skoða þau rækilega ofan í kjölinn. Kom svo með tillögur að því sem betur mætti fara svo alls réttlætis væri gætt. Nægir þar að nefna líf- eyrissjóðsmál sem hafa verið ofar- lega á baugi upp á síðkastið. Þar réð Sigurjón okkur hinum heilt, sem ekki höfðum sömu gáfu og hann til að skilja hismið frá kjarnanum og sjá hlutina í réttu ljósi. I starfi sínu var hann slíkur mátt- arstólpi að skarð hans verður aldrei fyllt. Þessi náttúra hans, að geta með nákvæmnina að vopni sigrast á jafnt stærstu sem minnstu vanda- málum, skipaði honum ósjálfrátt á stall, sem átti virðingu allra sem til þekktu, en var ekki endilega endur- speglaður í vegtyllum og starfs- frama. Sigurjón hafði heldur ekki neinn sérstakan áhuga á slíku, en hin ríka réttlætiskennd sem honum var ásköpuð varð til þess að hann var framarlega í flokki í kjarabar- áttu og félagsmálastörfum fyrir okkur hina. Hér er einungis fátt eitt nefnt sem Sigurjón einn vissi og gat. Sigurjón átti ekki skilið að deyja svona ungur, hann var búinn að vinna svo mikið og leggja svo hart að sér til að búa sér og sínum betri kjör, en fékk ekki tækifæri til að njóta ávaxtanna af þessari miklu vinnu sinni. Þó veit ég að gleðin yfir fjölskyldunni og börnunum og ást hans á þeim gaf honum mikið, það kom alltaf glampi í augun og þegar fjölskyldan barst í tal. Við í RB söknum Sigurjóns óskaplega mikið og glettnislega augnatillitsins hans. Eg lít til baka á tæplega tuttugu ára samstarf og get ekki munað að okkur hafi orðið sundurorða eitt einasta skipti á þessum tíma. Það sem meira er, við vorum nánast undantekningalaust sammála um þau álitamál sem upp komu í tengslum við starfið. Konu hans og börnum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi veröldin eignast fleiri menn eins og hann. Kjartan Jóhannesson. Það var okkur samstarfsmönnum Sigurjóns Guðfinnssonar hjá Reiknistofu bankanna mikið áfall er við fréttum af hinu ótímabæra frá- falli hans. Sigurjón var fæddur og uppalinn á Ströndum og hafði fyrir venju að fara árlega í smala- mennsku á æskuslóðir sínar. Úr þessum ferðum kom Strandamaður- inn Sigurjón ætíð hress og endur- nærður. Hann var einmitt í slíkri ferð í Ófeigsfirði á Ströndum þegar hann lést. Þetta sýnir okkur áþreif- anlega hvað bilið er stutt milli lífs og dauða. Sigurjón vann með okkur í Reiknistofu bankanna allan sinn starfsaldur eða í tæp tuttugu ár. Hann starfaði með okkur meðan hann stundaði nám sitt í tölvunar- fræði við Háskóla íslands og síðan í fullu starfi eftir að námi lauk. Við samstarfsfólk í Reiknistof- unni höfum ekki aðeins misst frá- bæran starfsmann, heldur einnig góðan vin. Hann var okkur gott for- dæmi um dugnað og trúmennsku. Hann var maður sem aldrei fór í manngreinarálit þegar um var að ræða að veita vináttu eða miðla af reynslu sinni og kunnáttu. Sigurjón hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum. Þegar honum fannst ekki ganga nógu vel og fannst að bæta þyrfti um betur átti hann ekki í neinum erfiðleikum með að segja það hreinskilnislega, og benda ákveðinn á það sem betur mátti fara. Aldrei gafst hann upp og kom ætíð skoðunum sínum á framfæri. Sigurjón starfaði mikið að félags- málum starfsmanna Reiknistofunn- ar. Þau störf sem honum voru falin á þeim vettvangi vann hann af mik- illi samviskusemi. Við Reiknistofufólk höfum mikið stundað keiluíþróttina í gegnum ár- in og eigum við keppnislið sem tek- ur þátt í deildarkeppninni í keilu. Sigurjón stundaði ekki mikið íþrótt- ir á sínum yngri árum, en fyrir rúm- lega 10 áram kynntist hann keilu- íþróttinni sem átti frá þeim tíma hug hans allan. Á skömmum tíma náði Sigurjón mikilli leikni í þessari íþrótt og varð fljótlega fyrirliði okk- ar í keppnum. Vegna samviskusemi sinnar, færni og áhuga vai'ð Sigur- jón fljótt stjórnandi í öllu sem við kom keppnisliði okkar. Við félagar hans nutum góðs af, því eftir að Sig- urjón kom í hópinn þurftum við ekki að gera annað en að mæta á æfingar og keppa, allt annað sá Sigurjón um með miklum sóma. Þá vinnu taldi hann aldrei eftir sér. Sigurjón var formaður Keilufé- lags Garðabæjar er hann lést. Hann var í stjórn þess félags ft'á stofnun árið 1989, formaður mótanefndar Keilunefndar ÍSÍ árin 1990-1992 og sat í stjórn Keilusambands Islands frá stofnun þess árið 1992 til ársins 1994. Kciluíþróttin hefur misst einn sinn dyggasta stuðningsmann. Sigurjón var mikill fjölskyldu- maður. Hann sýndi fjölskyldu sinni mikla umhyggju og var unun að fylgjast með honum á sameiginleg- um skemmtunum og skemmtiferð- um á vegum Reiknistofunnar. Þar lagði hann sig allan fram um að litlu börnunum hans og Sirrýjar liði sem best. Allir sem vinna við hugbúnaðar- gerð vita að mikið vinnuálag hefur ætíð fylgt þessari starfsgrein. Vegna hæfni sinnar og kunnáttu á tölvukerfum Reiknistofunnar var Sigurjón oft kallaður til þegar mikið lá við og vinna þurfti utan venjulegs vinnutíma. Þar brást Sigurjón ekki og ber að þakka Sirrý og börnunum fyrir þá miklu þolinmæði sem fjöl- skyldan hefur oft þurft að sýna í gegnum árin. Við samstarfsfólk Sigurjóns hjá Reiknistofu bankanna sendum Sirrý, börnunum og öðrum aðstand- endum okkar einlægustu samúðar- kveðjur. Guðjón Steingrímsson. Kveðja frá Iþróttafélaginu Fylki Félagið okkar Fylkir hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarin ár. Okkur hefur verið hælt fyrir öflugt og gott unglingastarf í öllum flokk- um sem endurspeglast hefur í góð- um árangri. Lítill væri árangurinn ef ekki kæmi til frábært sjálfboða- liðsstarf foreldra sem til halds og trausts unglingaþjálfuram hafa tek- ið að sér ýmis trúnaðarstörf fyrir þá flokka sem börn þeirra era í. Þegar sú fregn barst okkur að Sigurjón Guðfinnsson hefði látist við smalamennsku uppi á fjöllum, ung- ur maður í blóma lífsins, góður stuðningsmaður sem hefur verið ein kjölfestan í yngriflokkastarfi félags- ins undanfarin ár varð öllum sem með honum hafa starfað mjög bragðið og hugurinn og samúðin öll hjá eiginkonu hans og börnum. Ég þekkti Sigurjón ekki sjálfur en vissi hver hann var og af hans verkum fyrir stúlkurnar í fótboltanum og það er ljóst að Sigurjón skilur eftir stórt skarð í okkar litla samfélagi. Fyrir hönd íþróttafélagsins Fylk- is þakka ég Sigurjóni hans góða og óeigingjarna starf í þágu félagsins. Ég votta Sigríði Jónu, eiginkonu hans, og börnum öllum okkar dýpstu samúð. Megi minningin um góðan Fylkismann lifa. Rúnar Geirmundsson, formaður Iþróttafélagsins Fylkis. Kæri vinur og félagi. Það er svo margt í lífinu sem ég ekki skil og fæ aldrei skilið en þann- ig á það líka að vera því mér er ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.