Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 57
UMRÆÐAN
Einnig getur reynst nauðsynlegt
að semja við lánardrottna ef skuldir
hlaðast upp vegna tekjumissis. Oft
hefur fólk ekki krafta til þess að
standa í slíku og þekkir auk þess
ekki leiðirnar.
Samhliða félagslegri ráðgjöf veit-
ir félagsráðgjafi tilfinningalegan
stuðning. Það gerist í viðtölum við
þann veika og aðstandendur hans.
Þar geta þeir sem vilja tjáð sig um
tilfinningar, óskir og áhyggjuefni og
þannig koma fram þarfir sem unnt
er að bregðast við á viðeigandi hátt.
Þetta á ekki síst við þegar um er að
ræða alvarleg veikindi. Þá er mikil-
vægt að tala saman um mismunandi
viðbrögð einstaklinga við veikin-
dunum og útskýra og vinna með
þau mismunandi birtingarform sem
kviði, sorg og áhyggjur geta haft
hjá hverjum og einum.
Það getur haft mikilvæga þýð-
ingu hvernig lífi fjölskyldan lifði áð-
ur en veikindin hófust, hver efna-
hagur þeirra og félagsleg staða var
og hver tengsl fjölskyldumeðlima
eru innbyrðis og utan heimilis.
Þessir þættir geta ráðið úrslitum
um það hvernig endurhæfing þessa
manns og fjölskyldu hans þróast
samhliða læknismeðferð. Einnig
getur þetta haft mikil áhrif á hvern-
ig þessari fjölskyldu gengur að tak-'
ast á við sorgina og byggja sig upp
á ný falli heimilisfaðirinn frá. Við
þessar aðstæður getur félagsráð-
gjafi notað fræðilega þekkingu sína
um samskipti, áföll, sorg, fjölskyld-
uvinnu og um bjargir í þjóðfélaginu
til þess að hjálpa til við að virkja þá
krafta sem finnast innan fjölskyld-
unnar og utan.
Á sjúkrahús koma manneskjur
sem oft eru að upplifa mestu erfið-
leika lífsins. Við þær aðstæður er
brýnt að hið faglega og mannlega
skarist þannig að heilbrigðisstarfs-
menn vinni saman af virðingu og í
samvinnu við þann veika og ástvini
hans. Þá er líklegra að sá styrkur
sem býr í hverjum og einum nýtist
á farsælan hátt. Þetta tilbúna dæmi
hér að ofan er ætlað til þess að
varpa ljósi á þau áhrif og breyting-
ar sem alvarleg veikindi geta haft í
för með sér. Þegar manneskja
greinist með krabbamein hefur það
ekki aðeins áhrif á þann sem fyrir
því verður heldur á alla í fjölskyld-
unni, hvern á sinn hátt hvernig sem
við reynum að hlífa hvert öðru.
Höfundur er fdlagsráðgjafi með
framhaldsmenntun ííjölskylduvinnu
ogmeðferð.
VARDE
Dönsku Varde viðarofnarnir
hafa hlotið sérstaka viður-
kenningu í Danmörku,
Svíþjóð og Þýskalandi fyrir
fullkomna brennslu og lág-
marksreykmengun. Smíðaðir
úr þykku stáli, tvöfalt byrði
og steypt hurð með barna-
öryggi. Gæðavara á góðu
verði - 34 gerðir fáanlegar.
1Htk Einar
JjLkm Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, « 562 2901
www.ef.is
Kyrrðar-
stundir
í Hall-
grímskirkju
Safnaðarstarf
NÚ eru hafnar að nýju kyrrðar-
stundir í Hallgrímskirkju og eru
þær hvern fimmtudag kl. 12-12.30.
Kyrrðarstundin hefst með orgel-
leik og síðan er stutt íhugun og
bænir. Að kyrrðarstundinni lokinni
er hægt að kaupa léttan málsverð í
safnaðarheimili kirkjunnar. Kyrrð-
arstundirnar eru öllum opnar.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17.
Háteigskirkja. Jesúbæn kl. 20.
Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með
handaryfirlagningu og smurningu.
Langholtskirkja. F oreldra- og
barnamorgnar kl. 10-12. Opið hús.
Svala djákni les fyrir eldri börnin.
Söngstund með Jóni Stefánssyni.
Endurminningahópur karla kl. 13-
14.30.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45-7.06. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12.00. Orgelleikur í upphafi
stundar og léttur málsverður á
kostnaðarverði í safnaðarheimilinu.
Samvera eldri borgara kl. 14.
Fyrsti fundur á nýju starfsári.
Prestshjónin Katrín Eyjólfsdóttir
og sr. Bragi Friðriksson, fyrrv.
prófastur, heimsækja og segja frá
lífi sínu og störfum. Þjónustuhópur
Laugarneskirkju annast samver-
una ásamt sóknarpresti og kirkju-
verði. Kaffiveitingar.
Neskirkja. Unglingaklúbbur Nes-
og Dómkirkju kl. 20 í kjallara
Neskirkju.
Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir
10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 17-18.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn föstudag kl. 10-12.
Digraneskirkja. Leikfimi IAK kl.
11.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11- 12 ára drengi kl. 17-18.
Grafarvogskirkja. Foreldra-
morgnar kl. 10-12. Dagskráin í
vetur er fjölbreytt. Boðið verður
upp á áhugaverða fyrirlestra og
skemmtilegar og fræðandi
samverustundir.
Hjallakirkja. Kii’kjuprakkarar,
starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30.
Seljakirkja. Fundir fyrir 9-12 ára
stráka kl. 17 í umsjá KFUM.
Ilafnarfjaröarkirkja. Opið hús fyr-
ir ung börn og foreldra þeirra kl.
10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi.
Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Von-
arhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9-
12 ára krakka kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
14.30 helgistund á Heilbrigðis-
stofnuninni, dagstofu 3. hæð.
Heimsóknargestir velkomnir. Kl.
17.30 TTT-kirkjustarfið fyrir 10-12
ára. Nú verður allt tekið með
trompi og Garðar Örn og Halldór
Ingi finna upp á einhverju
skemmtilegu.
Cartíse
o;
v>-
Úlpur, frakkar, dragtir o.fl.
Stærðir 36-52
Hamraborg 1
sími 554 6996
Garðarsbraut 15
Húsavík sími 464 2450
BARONIA
Glæsilegar yfirhafnir
Síðar kópur
Stuttkápur
Ullarjakkar
Ulpujakkar
iérvenlun með iilkitré og iilkiblóm Laugavegi 63, Vitaitígimegin iímí 551 2040
Síðustu dagar úUölunnar
15% - 50%
ft>
alltat í blcma lítsim
tnni- og útitré • cyprustré • fíkustré frá 80 tit 200 cm
• kúlutré • drekatré • pottablóm • hengiplöntur • burknar
• kaktusar • silkiblóm í vasa • btómapottar • blómaker
• fallegar glervörur • gjafavara frá Kanada
Lýsing í verslunum
Janet Turner
Fyrirlestur um lýsingu í verslunum
í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, í dag kl. 16.
Turner er einn helsti sérfræðingur í heiminum
ó þessu sviði og hefur aefið út þrjór bækur
um Týsingamönnun.
Lótið ykkur ekki vanta ó spennandi fyrirlestur.
Skróning í síma 520 4500.