Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 65

Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 65 4 4 BRIPS limsjón OiiOiiiimiliir l’áll Arnarson LESANDINN er í suður, sagnhafí í fjórum spöðum: Nofður * A65 ¥ í>82 ♦ AKG1032 + G Suður * KG732 » — * 54 * ÁD9432 I sögnum hefur austur sýnt langan hjartalit og útspil vesturs er hjarta- fjarki, líklega þriðja hæsta frá þrílit. Þú trompar fyrsta slaginn, en hver er svo áætlunin? Spilið er frá töfluleik Islands og Kína í þriðju umferð riðlakeppni OL í Maastricht. Þorlákur Jónsson var í suðursæt- inu, Matthías Þorvalds- son í norður, en AV voru Zhuang og Wang, eitt sterkasta par Kínverja. Þorlákur gaf sér góðan tíma og á meðan skegg- ræddu töfluskýrendur um bestu leiðina. Otrú- lega margt kemur til greina. Til dæmis væri hægt að spila upp á að stinga tvö lauf í borði og hjörtu heima og ná þann- ig 7-8 trompslögum í hús. Annar möguleiki er taka ÁK í tígli og trompa tígul, nú eða jafnvel svína í laufinu. Loks hafði Þorlákur gert upp hug sinn og spilaði þá tígli á gosann. Það var nokkuð sem eng- inn töflurýnir hafði stungið upp á: Noj-ður * A65 ¥ 1)82 * AKG1032 + G Vestur Austur + 10984 *D ¥ 974 ÁKG10653 ♦ D6 ♦ 987 + K865 + 107 Suður * KG732 ¥ — * 54 + ÁD9432 Þegar tígulgosinn hélt, kom næst smár spaði á drottningu og kóng. Þorlákur tók líka á spaðagosa og spilaði svo tíglum þar til vestur trompaði. Með spaðaás- inn í borði og tvo spaða- hunda heima, var Þor- lákur með fullt vald á trompinu og fékk 11 slagi. I lokaða slanum spil- uðu Kínverjar þrjú grönd (!) í norður gegn Sverri Ármannssyni og Aðalsteini Jörgensen. Drottningin þriðja í hjarta móti eyðu reynd- ist nægilega góð fyrir- staða í litnum og þegar tígullinn gaf sex slagi var spilið unnið með yfírslag. Einn IMPi til íslands. ÍDAG Árnaö heilla I7A og 50 ÁRA afmæli. í dag, fimmtudaginn 21. septem- f V/ ber verður sjötugur Jón Marinó Kristinsson, fyrrum bifreiðaeftirlitsmaður, Sólvallagötu 14, Keflavík. Af því til- efni taka hann og dóttir hans, Kamilla J. Williams, sem varð fimmtug 8. ágúst sL, á móti ættingjum og vinum í húsi Karla- kórs Keflavíkur, Vesturbraut 17, Keflavík, laugardaginn 23. september kl. 15-19. OA ÁRA afmæli. í dag, OU fimmtudaginn 21. september, verður áttræð Ólafia Guðrún Árnadóttir, Miðbraut 28, Selljarnar- nesi. Hún er að heiman í dag. ÁRA afmæli. í dag, fimmtudaginn 21. september, verður fimmtug Guðrún Toft Einarsdóttir, Starhólma 18, Kópavogi. Hún er að heiman í dag. I7A ÁRA afmæli. Á I V/ morgun, föstudaginn 22. september, verður sjö- tug Sigurbjörg Gísladóttir, Birkihvammi 12, Kópavogi. í tilefni af því bjóða hún og eiginmaður hennar, Þorkell Jónsson, byggingameistari, til afmælisfagnaðar 22. sept- ember kl. 20 í félagsheimili Gusts, Álalind 2, Kópavogi. Vonast þau til að vinir og vandamenn sjái sér fært að mæta. SKÁK Dnisjón llclgi Ass Grétarsson STAÐAN kom upp á „Ólympíuleikum hugans" sem haldnir voru í London fyrir stuttu. Hvítt hafði al- þjóðlegi meistarinn Simon Ansell (2377) gegn Andrew Bigg (2137). 18.h6! Rg6 18...gxh6 hefði leitt snögg- lega til máts eftir 19. Bd4+. 19.Bd4 Hf6 111 nauð- syn. 20.Hdel! c5 21.Hxe4 Bf5 21...cxd4 gekk ekki heldur upp sökum 22.He8+ Hf8 23.Hxf8+ Rxf8 24.hxg7# 22.He7! og svart- ur gafst upp. Skákþing Kópavogs hefst föstudaginn 22. sept- ember kl. 19:30 í Félags- heimili T.K. Hamraborg 5, þriðju hæð. Mótið er liður í Bikarkeppninni í skák 2000. Hvftur á leik. LJOÐABROT FEIGÐ Feigðin strýkur föla kinn, forlög koma og segja. Á þig hrópar himinninn, þú hlýtur brátt að deyja. Styttast tekur langa leiðin, leiðarenda bráðum náð. Þó er eftir hæsta heiðin, hún er grýtt og þyrnum stráð. Dagur er liðinn, niðdimm nótt, nú fer það að styttast. Kæri dauði komdu fljótt, hvar eigum við að hittast? Haraldur Hjálmarsson. STJÖRNUSPA eftir Franres Orake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og þeirra sem með þér starfa og veist hvað þarf til að laða fram það besta í hverjum og einum. Hrútur (21. mars -19. apríl) Nú verður ekki lengur hjá því komist að ræða málin. Hafðu hugfast að séu menn einlægir má síður búast við að allt fari í bál og brand. Naut (20. apríl - 20. maí) Erfíðleikarnir hafa hjálpað þér til að finna innri styrk og þú veist að þú getur allt sem þú ætlar þér. Láttu ekkert bifa trú þinni á sjálfum þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 'Kn Lífið er bæði flóð og fjara og nú mun eitthvað verða til að raska ró þinni. Mundu bara að taka einn dag í einu þar til þetta er gengið yfir. Krabbi (21. júní - 22. júlf) Andlegur styrkur þinn er mikill og þeir eru ófáir sem leita til þín eftir handleiðslu. Þér verður umbunað á þann hátt sem þér lætur best. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Mundu að enginn er fullkom- inn og þá ekki þú. Þótt þú vilj- ir öðrum vel máttu ekki ganga svo nærri þér að þú verðir viti þínu fjær. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) Gættu þess að ofhlaða þig ekki svo verkefnum að þú hafir ekki tíma til þess að hitta það fólk sem er þér ein- hvers virði þvi það gefur líf- inu lit. (23. sept. - 22. okt.) m Þú ætlar þér svo margt en kemur engu í verk. Raðaðu hlutunum í forgangsröð og einbeittu þér að einum hlut í einu og þá fara hjólin að snúast. Sporðdreki ™ (23. okt. - 21. nóv.) MK Hvort sem þér líkar það bet- ur eða verr ertu öðrum fyrir- mynd. Því fylgir heilmikil ábyrgð sem þú stendur fylli- lega undir ef þú kærir þig um.\ Bogmaður # ^ (22. nóv. - 21. des.) ifeS Það á ekki alltaf við að treysta á guð og lukkuna. Menn þurfa líka að halda að sér höndum til að fyrirbyggja að allt fari úr böndum. Steingeit (22. des. -19. janúar) Það gefur stundum á bátinn í nánum samböndum en séu þau einhvers virði skyldi leggja sig fram um að stýra fleyinu í höfn með lagni. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) GSS Þú ert svo önnum kafinn við að sjá heildarmyndina að þú gleymir kjamanum sem þó skiptir mestu máli. Hægðu aðeins á þér og byrjaðu upp á nýtt. Fiskar mt (19. feb. - 20. mars) >%■» Vertu ekki svo alvörugefinn að þú gleymir barninu í sjálf- um þér. Taktu þátt í glens og gamni þegar tækifæri gefast til þess. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BRIDS Vmsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Reykjavíkur Föstudaginn 15. september var fyrsta spilakvöld BR veturinn 2000- 2001. 32 spiluðu 13 umferðir, 2 spil á milli para, með Mitchell skipting- um. Meðalskor í lokin var 312 og efstu pör voru: NS Anna G. Nielsen - Guðlaugur Nielsen. 364 Soffía Guðm.d. - Stefanía Sigurbj.d. 359 Eyþór Haukss. - Helgi Samúelss. 353 Guðbjörn Þórðars. - Birkir Jónss. 346 AV Gísli Steingr.s. - Sveinn R. Þorvaldss. 388 Sigrún Pétursd. - Kristjana Steingr.d. 383 Aðalbj. Benediktss. - Jóhannes Guðm.s.383 Baldur Óskarss. - Erlingur Þorsteinss. 354 Að tvímenningnum loknum var spiluð Miðnætursveitakeppni. 7 sveitir spiluðu 3 umferðir eftir Monrad fyrirkomulagi. Til að gera langa sögu stutta þá vann sveit Gísla Steingrímssonar með fullu húsi stiga eða 75 stig. Með Gísla spiluðu: Sveinn R. Þorvaldsson, Guðlaugur Sveinsson og Erlendur Jónsson. Á föstudagskvöldum BR eru spil- aðir einskvölds tölvureiknaðir tví- menningar með forgefnum spilum. Spilaðir eru til skiptis Monrad Barómeter og Mitchell tvímenning- ar. Spilamennska hefst kl. 19:00 og að loknum tvímenningnum er boðið upp á 3 umferða Miðnætursveita- keppni þar sem umferðin kostar 100 krónur á spilara. Bridgefélag Reykjavíkur hefur ákveðið að spila- gjald í kvöldkeppnir hjá félaginu verði 700 krónur á spilara og gildir það um tvímenningskeppnir á föstudagskvöldum. Keppnisstjóri á föstudögum er Sigurbjörn Haraldsson. Hann tek- ur vel á móti öllum pörum sem og þeim spilurum sem koma stakir 1 leit að meðspilara. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Vetrarstarf félaganna hófst 18. september sl. Spilaður var eins kvölds tvímenningur. 20 pör mættu, meðalskor 216 stig. Besta skor í N/S Anna G. Nielsen - Guðlaugur Nielsen 274 Guðl. Sveinsson. - Kristófer Magnúss. 236 Sigfús Þórðars. - Stefán Garðarss. 235 BestaskoríA/V JónasElíass.-JónGuðmar Jónss. 277 AmínaGuðlaugsd.-SigrúnPétursd. 246 Leifur Kr. Jóhanness. - Már Hinrikss. 231 Mánudaginn 25. september nk. verður spilaður eins kvölds tvímenn- ingur. Rauðvín í verðlaun fyrir bestu skor í N/S og A/V. Skráning á spila- stað ef mætt er stundvíslega kl. 19.30. ,/Ifm œ 1 isþ a k kir Hjartans þakkir til allra, œttingja og vina, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heilla- óskum á 90 ára afmœli mínu 17. september. Guð blessi ykkur öll. Þóra Guðmundsdóttir, Skólabraut 19, Akranesi. Professionais Förðunarnámskeið á kvöldin í október og nóvember 4 saman í hóp. Verð kr. 2.500 pr. mann. Skráning stendur yfir í síma 511 6717 frá kl. 10—18. Vertu velkomin Snyrtivöruverslun Áslaugar Borg, snyrti- og förðunarfræðingur, Laugavegi 4. Til bókaútgefenda: BÓKATÍÐINDI 2000 Skilafrestur vegna kynningar og auglýsinga í Bókatíðindum 2000 er til 6. október nk. Ritinu verður sem fyrr dreift á öll heimili á íslandi. Allar upplýsingar á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda, Barónsstíg 5, sími 511 8020. Frestur tii að leggja fram bækur vegna íslensku bókmenntaverðlaunanna 2000 er til 30. október nk. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA t <

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.