Morgunblaðið - 21.09.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000 67
Aðsent
Þær Björk og Catherine Deneuve syngja saman annað lagið á Selma-
songs, „Cvalda".
Föst í
söngleik
Tónlist
Geisladiskur
SELMASONGS
Björk Guðmundsdóttir - Selma-
songs. Tónlist úr kvikmynd Lars
von Trier, Dancer in the Dark. Lög
ndmer 2 og 5 samin af Björk, Mark
Bell, Sjón og Lars von Trier. Lög
númer 3,4,6 og 7 samin af Björk,
Sjón og Lars von Trier. Útsett af
Björk og Mark Bell. Tekin upp í
Gróðurhúsinu, Reykjavík og Oster-
led, Kaupmannahöfn. Sjö lög,
lengd 32:12 mín.
NÝRRAR plötu frá Björk
Guðmundsdóttur er jafnan beðið
með mikilli eftirvæntingu enda hef-
ur hún varla stigið feilspor frá því
að Debut kom út 1993. Það má
segja að eftirvæntingin sé öðruvísi
nú en áður þar sem nýjasta afurð
hennar, Selmasongs, er jafnframt
kvikmyndatónlist við hina umdeildu
mynd Lars von Trier, Dancer in the
Dark, en þar leikur Björk, eins og
flestum er kunnugt, aðalhlutverkið.
Við gerð plötunnar hefur Björk
fengið til liðs við sig einvala lið, þ.
ám. nokkra sem hafa unnið með
henni áður, eins og Sjón , Mark Bell
og Guy Sigsworth en þessir þrír
komu allir við sögu á síðustu plötu
Bjarkar, Homogenic. Einnig eru
með henni þeir Valgeir Sigurðsson
(sem áður skipaði Birthmark og
Orange Empire), mixarinn Mark
„Spike“ Stent og Lars von Trier
sjálfur, en hann er höfundur iag-
anna ásamt Björk, Sjón og Mark
Bell. Auk þeirra á stjórnandinn
Vincent Mendoza mikinn þátt í að
gera plötuna að því töfraverki sem
hún er, en hann útsetur fyrir og
stjórnar sinfóníuhljómsveitinni sem
leikur stórt hlutverk á plötunni.
Yfirleitt er kvikmyndatónlist not-
uð sem bakgrunnur til að styðja við
framvindu sögunnar en í Dancer in
the Dark fléttast tónlistin meira inn
í hana. I raun ætti frekar að tala í
þessu tilviki um söngleikjatónlist
því aðalsögupersónan Selma, sem
Björk leikur, tekur lagið hér og þar
í myndinni.
Selma, sem þjáist af sjúkdómi
sem veldur biindu, er heilluð af
söngleikjatónlist sem hjálpar henni
að takast á við erfiðleikana sem við
henni blasa. í hljóðum sem hún
heyrir í umhverfi sínu finnur hún
uppsprettu laganna er vélrænn
takturinn breytist í tónlist. Flest
lög disksins byrja á þessum vél-
rænu iðnaðarhljóðum sem Mark
Bell hefur náð að fanga í skemmti-
lega takta.
Platan byrjar á forleik sem gefur
tóninn fyrir hin lögin á plötunni,
sérlega fallegt lag flutt af sinfón-
íuhljómsveitinni. Hljómsveitin er
áberandi á allri plötunni og gefur
lögunum dýpt og kvikmyndayfir-
bragð, sem er bara kostur. Björk
notaði strengjaoktett á síðustu
plötu sinni, en á Selmasongs eru
blásturshljóðfærin ekki síður áber-
andi. Tónninn breytist í öðru lagi
disksins, „Cvalda“ sem sungið er af
Björk og Catherine Deneuve, sam-
leikkonu hennar í myndinni. Lagið
er í anda stórsveitartónlistar gull-
aldarára Hollywood og er uppfullt
af áðurnefndum umhverfishljóða-
töktum og minnir lítið eitt á „It’s Oh
So Quiet“ af Post plötunni.
Hver sem það var sem fékk hug-
myndina að því að setja saman í
dúett snillingana tvo, Björk og hinn
magnaða söngvara Radiohead,
Thom Yorke á hrós skilið en í þriðja
lagi plötunnar, „I’ve Seen it All“,
syngja þau saman. Raddir þeirra
sem báðar eru sérstakar, verða
saman bæði jarðbundnari og lát-
lausari en áður og hafa sjaldan
hljómað eins vel. Lagið er yndislegt
og textinn svo einlægur og fallegur
og uppfuilur af einfaldri lífsspeki að
undirrituð kemst í hálfgerða geðs-
hræringu í hvert sinn sem það er
spilað. „You’ve never been to Niag-
ara Falls? / I have seen water, its
water, that’s all ... / The Eiffel
Tower, the Empire State? / My
pulse was as high on my very first
date!“ Og svo seinna: „I’ve seen
what I chose and I’ve seen what I
need / And that is enough, to want
more would be greed.“ Að öðrum
ólöstuðum þá stendur þetta lag upp
úr á plötunni.
„Scatterheart" kemur þar næst
og byrjar sem hálfgerð vögguvísa í
spiladós en fljótlega fara að læðast
inn í það teknótaktar Mark Bell
sem einnig voru áberandi á Homo-
genic. Á eftir kemur hið draum-
kennda „In the Musicals" sem er
uppfullt af töfrum. Sögupersónan
gieymir sorgum sínum og erfiðleik-
um með því að lifa sig inn í söng-
leiki, „Why do I love it so much? /
What kind of magic is this? / How
come I can’t help adore it? / It’s just
another musical".
Næstsíðasta lagið er „107 Steps"
en í því fer Björk ásamt leikkonunni
Siobhan Fallon með talnarunu.
Textinn er auðvitað sérlega einfald-
ur, einungis tölur, en lagið sjálft al-
deilis magnað og verður betra við
hverja hlustun.
Lokalag disksins er svo hið ang-
urværa „New World“. Lagið felur í
sér melódíuna úr forspilinu og lokar
þannig plötunni. Það er einmitt ein-
kenni á söngleikjatónlist, sama lag-
línan heyrist í gegnum öll lögin og
tengir þau þannig í eina heild. Ein-
ungis eru þessi sjö lög á plötunni
sem er rétt rúmur hálftími í spilun.
Það kemur þó ekki að sök þar sem
tíminn er vel nýttur.
Það er erfitt að bera Selmasongs
saman við fyrri diska Bjarkar, sér-
staklega þar sem tónlistin er samin
eftir ákveðnum skilyrðum kvik-
myndarinnar. Hún hefur yfir sér
þennan angurværa tón sem var t.d.
að finna í lögunum „Bachelorette"
„Útlitið á disknum er sérstakt og skemmtilegt, geisjan af Homogenic er
horfin en í stað hennar er mynd af Selmu/Björk í þúsund molum,“ segir
í umfjöllun um Selmasongs.
og „Jóga“ á Homogenic og söng-
leikjastemmninguna af Post.
Diskurinn er ópersónulegri fyrir
þær sakir að Björk er ekki að fjalla
um sitt eigið líf eins og hún hefur
gert á fyrri plötunum heldur líf *'
Selmu og hefur hún sagt að það hafi
verið ákveðið frelsi að fá að fjalla
um líf einhvers annars.
Rödd Bjarkar verður fallegri
með hverri plötu, og það er eitthvað
svo sérlega einlægt við hana á
Selmasongs. Hér hefur Björk tek-
ist, enn eina ferðina, að búa til lista-
verk, fullt af töfrum og áhrifum, en
um leið verk sem er aðgengilegt, og
þeir sem ekki hafa verið yfír sig
hrifnir af listamanninum áður ættu
að falla fyrir henni núna.
Allur flutningur er fyrsta flokks, ,
vel hefur tekist til við að blanda
saman klassískri spilamennsku sin-
fóníuhljómsveitarinnar og umhverf-
ishljóðatöktum í anda fúturista. Ut-
litið á disknum er sérstakt og
skemmtilegt, geisjan af Homogenic
er horfin en í stað hennar er mynd
af Selmu/Björk í þúsund molum.
Það eina sem hægt er að setja út
á þennan disk er að hinir snjöllu
textar fylgja ekki með á prenti. Að
öðru leyti er hér lýtalaus diskur
sem inniheldur fallegustu tónlist
sem undirrituð hefur heyrt í langan
tíma.
íris Stefánsdóttir
phs kr. 2.330 jakki kr. 3.430
VERO MODA
Laugavegi 97. Kringlunni