Morgunblaðið - 21.09.2000, Side 76
Síðan 1378
Leitið tilboða!
Trausti
íslenska
muruorurl
gH
il steinp
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Stoðtækiafyrirtæki fékk 39 milljóna króna styrk frá ESB
Aform um. skóverk-
smiðju í Olafsfírði
Hjúkrunarfræðingar
við Landspítala
Tíunda
hver staða
ómönnuð
UM EITT hundrað og fjörutíu
hjúkrunarfræðinga vantar til starfa
hjá Landspítala - háskólasjúkra-
húsi. Eru 12% af stöðum hjúkrun-
arfræðinga ómönnuð en stöðugildi
eru alls 960. Áttatíu sjúkraliða
vantar einnig til starfa og segir
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri spítalans, þennan skort held-
ur meiri en undanfarin ár.
Anna segir skortinn mestan á
geðdeildum sjúkrahússins. Þar sé
ástand víða mjög erfitt vegna þess
það vanti faglært fólk til starfa.
Sagði hún að yfirstjórn sjúkrahúss-
ins hefði fyrir vikið mjög leitt hug-
ann að því hvernig best mætti nýta
starfsfólkið og verður, að hennar
sögn, tekið á þeim málum í tengsl-
um við skipulagsbreytingar sem
taka gildi um næstu mánaðamót.
Aðspurð sagði Anna að skortur á
faglærðu starfsfólki kæmi ætíð upp
á haustin en þá væru ýmsar deildir
opnaðar aftur sem lokaðar hefðu
verið yfir sumartímann. Þegar
, j^eynt væri að koma starfseminni í
sama horf og um vorið kæmi skort-
urinn í ljós. Hann væri hins vegar
heldur meiri nú en fyrri ár og það
hefði vitaskuld áhrif á tilraunir til
að koma starfsemi deilda að fullu
af stað.
---------------
Dræm gæsa-
veiði í byrj-
un vertíðar
GÆSAVEIÐIN, sem hófst fyrir
réttum mánuði, hefur farið afar ró-
■**-lega af stað. Hlýindin hafa þar átt
mesta sök og gæsin haldið sig til
fjalla.
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags íslands, sagði við
Morgunblaðið að gæsaveiðin hefði
ekki byrjað jafn rólega undanfarin
tvö ár. Ottaðist Sigmar t.d. að ís-
lenska heiðagæsin myndi ekkert
koma niður, heldur halda sig áfram
á hálendinu og fljúga síðan beint
til Skotlands við fyrsta norðanhret,
veiðimönnum til sárrar gremju. Til
marks um hlýindin sagði Sigmar
að hann hefði nýlega verið á
hreindýraveiðum í 10 stiga hita í
800 metra hæð yfir sjávarmáli.
„Þó hefur harðnað á dalnum á
,-*íumum landsvæðum, einkum fyrir
austan, og fuglinn að koma niður í
tún. Það er því ekki öll von úti
ennþá,“ sagði Sigmar en leyfilegt
er að veiða gæs fram í mars á
næsta ári.
Orn syndir
til úrslita
í dag
ORN Arnarson
syndir í úrslitum
í 200 metra bak-
sundi á Ólympíu-
leikunum í Sydn-
ey klukkan 8.20
árdegis. Hann er
fyrsti íslenski
sundmaðurinn
sem kemst í úr-
slit á Ólympfuleikum.
Örn tvíbætti Islands- og Norður-
landametið á leið sinni í úrslita-
sundið en hann var með fjórða
besta tímann í undanúrslitunum í
gær. Örn syndir á sjöttu brautinni
og verður sundið sýnt í beinni út-
sendingu sjónvarpsins.
■ Það verður/B7
STOÐTÆKJAFYRIRTÆKIÐ
Stoðtækni-Gísli Ferdinandsson
ehf. áformar að setja upp skó-
verksmiðju í Ólafsfirði sem til að
byrja með gæti skapað þrjú ný
störf á staðnum. Að sögn Kolbeins
Gíslasonar, stoðtækjafræðings og
framkvæmdastjóra Stoðtækni, er
ætlunin að smíða bæklunarskó í
Ólafsfirði, og er það hluti af þróun-
arverkefni sem fyrirtækið fékk 39
milljóna króna styrk út á frá
Evrópusambandinu.
Kolbeinn sagði við Morgunblað-
ið að Stoðtækni væri í samstarfi
við stoðtækjafyrirtæki frá Þýska-
landi, Hollandi og Skotlandi vegna
þessa verkefnis. Áætlanir gera ráð
fyrir að verksmiðjan geti hafið
starfsemi næsta vor. Búið er að út-
vega húsnæði í fiskvinnsluhúsi,
sem áður var í eigu Sæunnar Ax-
els hf. í Ólafsfirði.
Kolbeinn sagði að ef verkefnið
gengi upp á næstu tveimur árum
gæti verksmiðjan skapað 15-20
störf. Hann sagði reksturinn
byggðan á vélum sem fyrirtækið
keypti á Skagaströnd þar sem
skóverksmiðjan Skref var áður
starfrækt. Breyta hefði þurft vél-
unum til að sinna þessari tilteknu
skóframleiðslu. Hjá Stoðtækni í
Reykjavík starfa um 15 manns.
Áformunum
fagnað
Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæjar-
stjóri í Ólafsfirði, sagðist í samtali
við Morgunblaðið fagna þessum
áformum Kolbeins og fyrirtækis
hans. Skóverksmiðjan renndi stoð-
um undir atvinnulífið á staðnum,
sem hefði mátt þola áföll á síðustu
misserum. Vonandi tækist vel til
með þetta verkefni, þannig að það
gæti skapað störf til frambúðar í
bæjarfélaginu.
Danskt
sement á
leið til
landsins
FYRIRTÆKIÐ Aalborg Portland
á íslandi hf., sem er félag í eigu
sementsframleiðandans Aalborg
Portland A/S í Danmörku. tekur
formlega í notkun nýja starfsstöð í
Helguvík á morgun og mun dreifa
þaðan sementi til steypustöðva og
byggingariðnaðar á íslandi. Fyrsta
farminum, u.þ.b. 4.000 tonnum af
sementi, verður landað í lok þess-
arar viku. Sementið sem aðallega
verður boðið upp á hér er markaðs-
sett undir nafninu Rapid sement.
Þegar umræða um einkavæðingu
og sölu Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi hófst fyrir nokkrum ár-
um sýndi Aalborg Portland A/S
kaupum á sementsverksmiðjunni
áhuga. Ekkert varð af kaupunum,
en í framhaldi af því ákváðu
forsvarsmenn fyrirtækisins að
stofna dótturfyrirtæki á íslandi og
hefja innflutning og dreifingu á
sementi beint frá Danmörku til
byggingariðnaðar á Islandi.
-------------------
Skólatösku
stolið í innbroti
BROTIST var inn í íbúð á Há-
vallagötu í fyrrinótt þar sem heimil-
ismenn sváfu.
Stolið var peningum og áfengi
ásamt myndavélum. Einnig hafði
þjófurinn á brott með sér skólatösku
12 ára gamallar stúlku.
Veisla Finnlandsforseta tók óvænta stefnu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lögreglan handtók tvo menn, grunaða um þjófnað, með því að aka bíl sínum í veg fyrir bíl þeirra.
V eislugestur
handsamaði þjóf
TVEIR menn voru handteknir við
Norræna húsið í gærkvöld á sama
tíma og Tarja Halonen, forseti
Finnlands, var með veislu í hús-
inu. Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar og fyrrverandi
ráðherra, gerði sér lítið fyrir og
hjálpaði lögreglunni við að góma
annan mannanna.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu voru mennirnir, sem
grunaðir eru um þjófnað í bygg-
ingum Háskóla íslands, að reyna
að stinga lögregluna af og óku bíl
sínum norður Sæmundargötu, en
vissu ekki að þar voru nokkrir lög-
reglubílar staddir við Norræna
húsið í tengslum við veisluna.
Lögreglan stöðvaði bíl mann-
anna með því að aka lögreglubíl í
veg fyrir hann. Mennirnir létu
ekki þar við sitja heldur reyndu að
flýja hlaupandi. Lögreglan náði
öðrum þeirra strax, en hinn hljóp í
áttina að Odda, þar sem Friðrik
Sophusson hafði lagt bíl sínum.
Friðrik, sem var á leið í veisluna
klæddur síðum frakka og með
hatt á höfði, hefti för mannsins
með því að hlaupa í veg fyrir hann.
Lögreglan handtók síðan mann-
inn. Voru báðir mennirnir færðir á
lögreglustöðina til yfirheyrslu.
BMW vill samstarf við ís-
lendinga um nýtingu vetnis
Á RÁÐSTEFNU í Múnchen í
Þýskalandi um nýtingu vetnis áttu
stjórnendur BMW-bílaverksmiðj-
anna frumkvæði að viðræðum um
hugsanlegt samstarf við íslend-
inga um nýtingu vetnis. Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, segir að stjórn-
endur BMW hafi sýnt því áhuga
að starfa með íslendingum, auk
þess sem þeir hafi óskað eftir að fá
upplýsingar um orkumái-á íslandi.
Valgerður segir að ráðuneytið
og Orkustofnun ætli að skoða
hugsanlegt samstarf betur og ætl-
unin sé að leggja fram hugmyndir
um hvernig slíkt samstarf gæti lit-
ið út af hálfu Islendinga, en sú
vinna sé enn öll eftir. Að henni
lokinni megi reikna með að menn
fundi aftur en málið sé enn á
frumstigi og viðræðurnar hafi eng-
in áhrif á samstarf íslenskrar
nýorku og þýska bílaframleið-
andans DaimlerChrysler.
Á sýningunni í Múnchen kynnti
BMW vetnisbíl sem sprengir vetni
og er ljóst að BMW ætlar að fara
aðrar leiðir í framleiðslu vetnisbíla
en flestir aðrir bílaframleiðendur.
■ BMWóska eftir/12