Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 255. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fulltrúar aðildarríkja Evrópuráðsins á hátíðarfundinum í Róm í gær í tilefni af afmæli Mannréttindasáttmálans. Fimmtíu ára afmæli Mannréttindasáttmálans fagnað Viðauki gegn misrétti Rdm. Morgunblaðið. RÁÐHERRAR frá rúmlega fjörutíu Evrópuríkjum fögnuðu því á hátíðar- fundi í Róm í gær að hálf öld var liðin frá því að fyrstu ríkin undirrituðu Mannréttindasáttmála Evrópu. Á fundi sem Lamberto Dini, utanríkis- ráðherra Ítalíu, stjórnaði samþykktu ráðherramir tvær ályktanir. Annars vegar ályktun um stofnanir og skipu- lag til vemdar mannréttindum í Evrópu og hins vegar samþykkt um virðingu fyrir mannréttindum sem lykilatriði stöðugleika og samstöðu. Að fundinum loknum var haldin sérstök athöfn þar sem byrjað var að undin-ita tólfta viðaukann við sátt- málann en í honum er lagt bann við að einstaklingum sé mismunað á t.d. grundvelli kynferðis, litarháttar, tungumáls, trúarbragða eða stjóm- málgskoðana. Fulltrúar 25 aðildar- ríkja Evrópuráðsins undirrituðu við- aukann í gær, þ. á m. Sólveig Pét- ursdóttir dómsmálaráðherra. Á blaðamannafundi sagði Walter Schwimmer, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, að mikið hefði áunn- ist í Róm. Lamberto Dini sagði að þótt Mannréttindasáttmálinn hefði skilað miklum árangri mættu þjóðir Evrópu ekki sofna á verðinum. Mannréttindi hefðu ekki verið tryggð að eilífu og því yrði stöðugt að tryggja að sáttmálinn væri virtur og ákvæðum hans framfylgt. Barátt- unni gegn dauðarefsingum væri þannig ekki endanlega lokið og ástæða væri til að hafa verulegar áhyggjur af kynþáttafordómum og útlendingahatri. Á vettvangi Evrópuráðsins hefur nokkuð verið rætt um þau áform Evrópusambandsins að samþykkja sérstaka réttindaskrá og ekki laust við að ýmsir hafi áhyggjur af því að slíkt gæti dregið úr vægi Mannrétt- indasáttmálans og jafnvel leitt til samkeppni á milli hans og Evrópu- dómstólsins. Piero Fassino, dómsmálaráðherra Ítalíu, sagði eitt merkasta framlag sáttmálans vera að hann hefði mótað samræmda löggjöf í Evrópu þar sem byggt væri á sömu grundvallarfor- sendum. Fassino sagði að réttinda- skrá Evrópusambandsins tæki mið af Mannréttindasáttmálanum og raunar væri hann og sú sameigin- lega, lagalega menning er hann hefði getið af sér, forsenda þess að sam- bandinu hefði tekist að ná saman um réttindaskrá er yrði hornsteinn að evrópskri stjómarskrá. FORSETAEFNI stóru flokkanna í Bandaríkjunum, þeir A1 Gore og George Bush, lögðu hart að sér á lokaspretti kosningabaráttunnar í gær en kosið verður á þriðjudag. Kannanir sýna sem fyrr lítinn mun á fylgi frambjóðendanna en Bush er þó ívið öflugri. Bush sakaði demókrata um að beita óþverrabrögðum en á fimmtu- dag var því Ijóstrað upp að hann hefði misst ökuleyfið fyrir 24 árum er hann var tekinn ölvaður undir stýri. Gore neitaði að tjá sig um málið, sagðist vilja tala um ,,pólitísk stefnu- mál“ í baráttunni. Oldungadeildar- þingmaðurinn og demókratinn Tom Harkin var ekki eins varkár. „Málið snýst ekki um akstur undir áhrifum heldur trúverðugleika," sagði hann. „Hefur hann leynt okkur einhverju öðru?“ spurði Harkin. Gore hélt í gær fundi í heimaríki sínu, Tennessee, en þar sýna kann- anir að hann stendur höllum fæti. Bill Clinton forseti ræddi hins vegar við kjósendur í heimaríki sínu, Ark- ansas. Bush var á ferðinni í Vestur- Virgíníu og þar áður í Michigan, ríki sem er talið geta ráðið úrslitum í kosningunum. „Við erum nú búin að koma Clinton forseta aftur til Ark- ansas og Gore varaforseta á ný til Tennessee sem bendir til þess að við séum á réttri braut,“ sagði Bush. Reuters A1 Gore, varaforseti og forsetaframbjéðandi bandarískra demókrata, kyssir eiginkonu sína, Tipper Gore, á kosningafundi í Missouri. Forsetakjörið í Bandaiíkjimum Hart baríst á lokaspretti Memphis. AP. Alþjóðlegir eftirlitsmenn fylgjast með þingkosningum í Aserbaídsjan í dag Stjórnarandstaðan sakar flokk Alíevs um ofsóknir Bakú. AFP, AP. ÞINGKOSNINGAR verða í Aserba- ídsjan í dag, sunnudag, öðru sinni eftir að landið varð sjálfstætt 1991 en það var áður sovétlýðveldi. Alls berjast 13 flokkar og samtök um þingsætin 124. Stjórnarandstaðan gagnrýnir harðlega stjórn hins 77 ára gamla Gaidars Alíevs forseta og menn hans fyrir ofsóknir og ólýð- ræðisleg vinnubrögð en forsetinn var leiðtogi kommúnistaflokksins gamla á sovétskeiðinu. Gert er ráð fyrir að sonur forset- ans, hinn 38 ára gamli Ilham Alíev, verði arftaki föðurins ef hinn síðar- nefndi félli frá. íbúar landsins, sem er auðugt af olíu, eru um átta millj- ónir, flestir múslimar. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður er í hópi þingmanna frá aðildarríkjum Öryggis: og sam- vinnustofnunar Evrópu, OSE, sem tekur þátt í eftirliti með kosningun- um. Hún sagði þingmennina hafa hitt leiðtoga nokkurra stjómarand- stöðuflokka þegar við komuna til höfuðborgarinnar Bakú á föstudag og hefðu þeir kvartað mjög undan ýmsum ólýðræðislegum vinnubrögð- um stjórnvalda. I gær, laugardag, hittu fulltrúarnir síðan Alíev forseta og sagði Ásta Ragnheiður að hann hefði litið vel út og verið glaður í bragði. „Hann lagði áherslu á að kosningamar væm afar mikilvægar fyrir Asera sem vildu eindregið fá aðild að Evrópuráðinu. Lýðræðið í landinu væri ungt og ekki fullkomið, vafalaust mætti margt finna að- finnsluvert. En stjórnvöld hefðu reynt að tryggja að kosningabarátt- an færi lýðræðislega fram.“ Hún er spurð hvort líklegt sé talið að svindlað verði í atkvæðatalningu. „Þetta segja menn að sé stóra spurningin. Erlendir fulltrúar frjálsra mannréttindasamtaka segja að öllum brögðum sé beitt. Þeir nefna að vissulega séu kjörkassar lokaðir með lás en lamirnar á köss- unum séu þannig gerðar að auðvelt sé að opna kassana með því að spenna þær upp og þá sé hægt að bæta atkvæðum í kassana eða fjar- lægja atkvæði meðan eftirlitsmenn sjá ekki til,“ sagði Ásta Ragnheiður. Landbúnaður og umhverfísmál , INDLAND Ifórmeð forseta ÞRIRSEMVORU AFOÞEKKTRI STÆRÐ Vfsindamenn NASA Varað við smástirni SMÁSTIRNI sem er um 70 metrar í þvermál gæti lent á jörðunni eftir 30 ár, að sögn vísindamanna hjá NASA, bandarísku geimvísinda- stofnuninni. Á fréttavef BBC kemur fram að líkur á árekstri eru taldar vera einn á móti 500. Árið 1908 féll smástirni sem var um 60 metrar að þvermáli til jarðar í afskekktu og nær óbyggðu héraði, Tunguska, í Norður-Rússlandi. Varð þá sprenging sem talin er hafa verið 600 sinnum öflugri en kjarn- orkusprengjan sem eyddi japönsku borginni Hiroshima árið 1945. Vísindamenn segja að lendi smástirnið á borg geti tugir millj- óna manna farist. Ekki er hægt að reikna nákvæmlega út braut smá- stirnisins fyrr en það er komið mun nær jörðu en samkvæmt síðustu mælingum er gert ráð fyrir að það fari fram hjá jörðu í um sex milljón kílómetra Qarlægð sem er um 15- föld vegalengdin milli jarðar og mánans. Rætt hefur verið um að beita eldflaugum til að granda smástirnum ef þörf krefji. MORGUNBLAÐID 5. NÓVEMBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.