Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK BRIDS Umsjóii KuómniMlur I'áll Arnarsun NÚ ER það vörnin. Þú ert í austur og þarft að tryggja það að makker geri enga vitleysu. Norður gefur; allir á hættu Norður * AK8 v K85 ♦ 107 * AKG95 Austur 4 73 VÁ107 ♦ Á62 4 D10643 Vestur Norður Austur Suður - llauf Pass 1 spaði Pass 2grönd Pass 31auf* Pass 3 tíglar *Pass 3spaðar Pass Pass 4spaðar Pass Pass Sagnir þarf að skýra. Norður sýnir 18-19 punkta með stökki sínu í tvö grönd og þriggja laufa svar suð- urs er gervisögn, sem get- ur þýtt eitt og annað, en biður makker um að segja þrjá tígla. Þegar suður segir næst þrjá spaða er hann að lýsa yflr fárveik- um spilum og vilja til að spila þrjá spaða og ekkert meira. Þetta er það sem Bandaríkjamenn kalla „Wolffs signoff". En norð- ur tekur ekkert mark á makker sínum eða Bobby Wolff og hækkar í geim. Makker spilar út tígul- kóng, á slaginn, og fylgir fast á eftir með drottning- unni. Taktu við. Makker er hugsandi vera. Hann reiknar út að suður geti ekki átt hjarta- ásinn og væri því vís með að skipta yfir í hjarta í þriðja slag ef hann fær tækifæri til, því lauílitur- inn er ógnandi í borði. En þú veist að laufið gefur sagnhafa ekkert aukalega og ættir að taka völdin af makker með því að yfir- drepa tíguldrottninguna og spila trompi. Bíða svo eftir því að sagnhafi spili hjartalitnum sjálfur: Norður N'orður 4 AK8 v K85 ♦ 107 ♦ ÁKG95 Vestur Austur 4 G6 4 73 v D962 v Á107 ♦ KDG54 ♦ Á62 * 84 4 D10643 Suður 4 D109542 v G43 ♦ 952 47 Eins og sést má vestur undir engum kringum- stæðum spila hjarta frá drottningunni, en það er ekki órökrétt vöm frá hans bæjardyrum séð. Þú verður því að hafa vit fyrir honum. Q A ÁRA afmæli. Á ÖU morgun, mánudag- inn 6. nóvember, verður átt- ræður Páil Þórir Ólafsson, Jökulgrunni 17, Reykjavík. Hann verður að heiman á af- mælisdaginn. RÚBÍNBRÚÐKAUP. í dag, sunnudaginn 5. nóvember, eiga 40 ára hjúskaparafmæli hjónin Norma Haraldsdótt- ir og Kristmundur Magnússon, Bæjargili 36, Garðabæ. SK\lv IJmsjón llelgi íss Grétarsson SAMHLIÐA mótinu, er lauk fyrir skömmu, sem Khalifman sigraði á með eftirminnilegum hætti í Hoogeveen í Hol- landi, var haldið opið mót með þátttöku margra sterkra stórmeistara. Þeirra á meðal var hinn sérstaki og snjalli rússneski stór- meistari Semen Dvoirys (2.562) en hann sigraði á mót- inu ásamt fyrrver- andi landa sínum Vladimir Epishin en hann teflir undir fána Þýskalands nú um stundir. Dvoir- ys hafði hvítt í stöðunni gegn hol- lenska alþjóðlega meistaranum Erst Sipke (2.373). 20. Hxe6! Hxe6 21. Bxd5 Hae8 Bisk- upinn var friðhelgur sök- um mátsins á g7. 22. Hel g6 23. Hxe6 og svartur gafst upp enda er fátt til varnar eftir 23. ...Hxe6 24. De5. Lokastaða mótsins varð þessi: 1.-2. Vladimir Epishin og Semen Dvoir- ys 6>/2 vinningar af 11 mögulegum. 3.-8. Sergei Tiviakov, John Van der Wiel, Andrei Kharitonov, Viktor Mikhalevski, Emst Sipke og Yge Visser 6 v. Hvítur á leik. LJOÐABROT SKILMALARNIR Ef þér ei ægir allra djöfla upphlaup að sjá og hverri tign að velli velt, sem veröldin á, og höggna sundur hveija stoð, sem himnana ber: þá skal ég syngja sönginn minn og sitja hjá þér. Og ef þú hatar herra þann, sem harðfjötrar þig og kúgar til að elska ekkert annað en sig, en kaupir hrós af hræddum þrælum, hvar sem hann fer: þá skal ég líka af heilum huga hata með þér. Porsteinn Erlingsson. Arnað heilla ORÐABÓKIN Athöfn -jarðarför - útför Ofangreind orð komu upp í huga mér þegar ég las í Mbl. frásögn af útför tveggja athafnamanna í Vestmannaeyjum sem fór fram 14. okt. sl. Þar sagði frá því, að kór Landa- kirkju „söng í báðum at- höfnum.“ Eins var sami einsöngvari „í báðum at- höfnum “ Loks var þess getið, að „báðar athafn- irnar“ hafi verið mjög fjölsóttar. Þess skal svo getið, að no. útför kom einu sinni fyrir í frásögn- inni en no. jarðaríor ekki. Ég hlýt að játa, að ég hnaut um þetta orðaval þó að það verði vissulega ekki talið rangt mál. Hins vegar hefði ég kosið hér önnur orð, þ.e. annað- hvort no. jarðarför eða út- för enda eru þau áreiðan- lega bæði miklu algengari og almennari í þessu sam- bandi en no. athöfn. En lítum á nafnorðið athöfn. Það er skýrt í orðabók- um sem starf eða iðja, sbr. athafnamaður en það orð kom einnig fyrir í frá- sögninni. Eins merkir það verknað og er tekið sem dæmi no. skírnarathöfn og eins er talað um hátíð- lega athöfn af einhverju tilefni. Þá er minningar- athöfn vel þekkt orð. Engu að síður var ástæð- ulaust að nota no. athöfn í ofangreindum sambönd- um og ekki sízt þegar fyr- ir eru í máli okkar miklu betri orð. Þá hefði mátt segja sem svo: Kórinn söng við báðar jarðarfar- irnar (eða útfarirnar) og sama gerði einsöngvar- inn. -J.A.J. STJÖRNUSPA cftir Franeés Hrakc SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú ert sjálfsöruggur og metnaðarfullur, en þarft að læra að verja tilfínningar þínar betur. Hrútur (21. mars -19. apríl) "r* Það myndi bjarga mörgu, ef þú gæfír þér tíma til þess að njóta návistar vina þinna. Mál munu skýrast og þú standa miklu sterkari eftir. Naut (20. apríl - 20. maí) Hafðu augun hjá þér; hlutirn- ir gerast svo hratt að þú get- ur misst af mörgum tækifær- um, ef þú ert ekki á tánum og grípur gæsina, þegar hún gefst. Tvíburar (21.maí-20.júní) AA Láttu þér ekki nægja að halda hlutunum í sömu skorð- um, vertu drífandi og komdu á breytingum, sem hrista upp í andrúmsloftinu og bæta af- köstin. Krabbi (21. júní-22. júlí) ^mfö Það er ástæðulaust að éta allt upp eftir öðrum, jafnvel þótt um sé að ræða aðila sem þér þykir vænt um eða þú berð virðingu fyrir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) M Glaðværðin er gott vopn þeg- ar öldurnar rísa hátt manna í millum. Það versta sem gæti hent þig væri að þú misstir stjórn á skapi þínu í atgangin- Meyja -jj (23. ágúst - 22. sept.) dOSL Það er sjálfsagður hlutur að aðstoða aðra ef þig langar til þess. En veldu þá viðfangs- efnin af kostgæfni, þannig að hjálp þín skili sér. Vog rrx (23. sept. - 22. okt.) Hugkvæmni þín er aðdáunar- verð og mun færa þér margan sigurinn. Gættu þess bara að ofmetnast ekki og leyfðu samstarfsmönnum þínum að njóta með þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Það hefur mikið að segja að samstarfsmenn séu samhent- ur hópur. Leggðu þitt af mörkum til þess og þá mun árangurinn ekki láta bíða eft- ir sér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Sinntu þrá þinni eftir einveru og friði sem mun færa þér hugarró og gera þig hæfari til að takast á við verkefni dags- ins og leysa þau. Steingeit (22. des. -19. janúar) áíÍP Þú hefur verið nokkuð á báð- um áttum varðandi ákveðna hluti í vinnunni, en nú falla öll vötn til Dýrafjarðar og lausn- in bíður á næsta leiti. Vatnsberi , _ (20. jan. -18. febr.) wKl Þú ert í miðjum umbrotatím- um og þarft að hafa þig allan við til þess að koma heill út úr breytingunum. En þá taka líka bjartari tímar við. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft að halda vel utan um sambönd þín við aðra svo að þau trosni ekki og þú standir uppi vinalaus fyrr en varir. Vináttan er tvístefna. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 51 Litaðu tílveruna ^’^fs/ór Heildsölubirgðir: Isflex s:588 4444 Litaðu tilveruna ^’^yfs/or Heildsölubirgðir: ísflex s:588 4444 Félag harmonikuunnenda heldur skemmtifund í Hreyfilshúsinu kl. 3 í dag. Meðal þeirra sem koma fram eru Svanur Bjarki Úlvarsson og Guðbjörg Einarsdóttir ásamt fleirum úr hæfileikakeppni félagsins. Fétag Allir eru velkomnir. Takið með ykkur gesti. harmonikuunnenda PELSAR PELSAR Gervipelsarnir sem beðið hefur verið eftir pantanir óskast sóttar Opið milli kl. 13 og 17 Mog A ^jieea ^m^tískuhú& Hverfisgötu 52, sími 562 5110 Glœsilegt úrval afsamkvœmiskjólum Fataleiga Garðabæjar, sími 565 6680. Opið virka daga frá kl. 10 til 18, laugardaga kl. 10 til 14. Ný sending Allir Jylgihlutir Nýskr. 6. 1998, 4400cc vél, 4 dyra, sjálfskiptur, dökkblár, ekinn 26.þ, innfluttur nýr af B&L, 18“ álfelgur, leður, topplúga, loftkæling, sími, ^ Xenon Ijós, 6 diska magasfn, Professional Bk BMW hljómkerfi, ABS, spólvöm, IslllÉiK. rafmaun f öllu o.m.fl. Verð 5.790. þ Grjóthólsi 1 Simi 575 1230/00 740ÍIII BMUI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.