Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Saraeining BGB-Snæfells og Samherja:
Skattalegt tap upp a’~
1,7 milljarðanýtist
*+-^°gmund-
Nei, nei, ekki þetta góði, skjóðuna, réttið mér skjóðuna strákar.
Mat á umhverfisáhrifum nýrrar hafnar á Djúpavogi
Fallist á höfn í Gleðivík
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
fallist á fyrirhugaða gerð hafnar í
Innri-Gleðivík á Djúpavogi. Telur
hún að framkvæmdin hafí jákvæð
áhrif á menn og samfélag á
Djúpavogi og að hún hafi ekki í
för með sér umtalsverð umhverf-
isáhrif.
Fyrirhugað er að gera nýja
höfn í Innri-Gleðivík á Djúpavogi.
Hún verður vestan megin víkur-
innar, undir svonefndum Háu-
klettum. Framkvæmdin skiptist í
tvo áfanga. Sá fyrri felst í bygg-
ingu 75 metra langs viðlegukants
og um 200 metra langrar vegfyll-
ingar með strandlengjunni frá
fiskimjölsverksmiðjunni. Mark-
miðið er að fá höfn á Djúpavogi
með betri innsiglingu, meira dýpi,
snúningsrými og löndunarrými en
er í núverandi höfn og gera stór-
um nótaveiðiskipum kleift að
landa beint í fiskimjölsverksmiðju.
Stefnt er að því að framkvæmdum
ljúki á næsta ári. Skipulagsstofn-
un hefur lokið athugun á mati á
umhverfisáhrifum hafnargerðar-
innar, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu stofnunarinnar,
og komist að þeirri niðurstöðu að
hún muni ekki hafa í för með sér
umtalsverð umhverfisáhrif.
JmuGEsnne
Auklnn sparnaður
SUMARDEKK
• Frábær í snjó og hálku
• Meiri stöðugleiki
• Miklu hljóðlátari
• Betri aksturseiginleikar
• Minni eldsneytiseyðsla
• Aukin þægindi og betri ending
• Góðalltárið
UMBOÐSAÐILI:
/ grafinu eru bornar saman þrjár gerðir dekkja frá
Bridgestone. Nagladekkin hafa vinningin i mikilli
hálku, en frammistaða þeirra að öðru leiti er
áberandi slök í sambanburði við Blizzak dekkin.
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.ls
Fótvernd forðar ýmsum meinum
Fæturnir
í fyrirrúmi
Margrét Jónsdóttir
GÆR var sérstakur
fótverndardagur og
voru fótaaðgerðafræð-
ingar með ýmsa fræðslu í
tilefni þess. Margrét Jóns-
dóttir er formaður Félags
íslenskra fótaaðgerðafræð-
inga, hún var spurð um
tilganginn með því að hafa
sérstakan fótvemdardag.
„Undanfarinn er sá að al-
þjóðasamtök fótaaðgerða-
fræðinga stefna að því að
halda alþjóðlegan fót-
vemdardag á næsta ári í
samvinnu við WHO, Heil-
brigðisstofnun Sameinuðu
þjóðanna. Félag íslenskra
fótaaðgerðafræðinga á að-
ild að þessum alþjóðasam-
tökum og þau hafa farið
þess á leit við aðildarfélög-
in víða um heim að gangast
fyrir sérstökum fótvemdardegi í
landi sínu.“
-Er þetta í fyrsta sinn sem
svona dagur erhaldinn?
„Já, þetta er í fyrsta sinn á ís-
landi. Tilgangnrinn er að vekja al-
menning og heilbrigðisstarfsfólk
til vitundar um mikilvægi eigin
fótaheilbrigðis og hvað fótaað-
gerðafræðingar geta gert til þess
að laga fótamein og koma í veg fyr-
ir þau. Slagorðið er: „Fætumir í
fyrirrúmi“.“
- Hver eru algengustu fóta-
meinin?
„Það eru inngrónar neglur, lík-
þorn, sigg, vörtur, sveppir."
- Hvernig hagið þið baráttunni
gegn þessum kvillum?
„Við notum ýmis áhöld og beit-
um líka hlífðarmeðferð til að geta
unnið varanlega á þessum kvillum.
Oft eru tærnar skakkar og þá þarf
að steypa silikonstoðhlífar til að
rétta úr eða draga úr álagi. Við
sérsmíðum stálspengur á inngrón-
ar neglur sem eru svipaðai- og
spengur sem eru notaðar til að
rétta tennur. Við geram innlegg
sem era ætluð til að rétta rang-
stöður sem hafa valdið miklu álagi
þannig að myndast hafa þrálát lík-
þom og þannig mætti telja.“
- Er mikil þróun í fótaaðgerða-
fræðum?
„Já, það er svo, við fylgjumst vel
með fyrir tilstilli FIP, sem er
skammstöfun á alþjóðasamtökum
fótaaðgerðafræðinga. Við fáum
hingað til lands sérfræðinga frá
þessum samtökum sem halda hér
fyrirlestra og námskeið. Á undan-
förnum ái-um er búið að bæta mik-
ið þekkingu okkar og meðferð á
fótameinum sykursjúkra.“
- Eru fætur íslendinga í góðu
eða slæmu standi?
„Ég hugsa að fætur íslendinga
séu almennt í verra standi en þeir
álíta sjálfir. Fólk ber
ekki næga virðingu
fyrir fótunum sínum.
Það er eins og fólk
haldi að það sé
náttúralögmál að hafa
auma fætur. Það er
beinlínis ótrúlegt
hvernig fólk getur leik-
ið fætur sínar í viðleitni
til þess að lækna kvilla. Islenskir
karlmenn era þó að verða meira
meðvitaðir um það að þeir eiga líka
erindi við fótaaðgerðafræðinga,
engu síður en konur. Þær era þó
ver leiknar yfirleitt vegna slæms
skófatnaðar."
- Hverermesti óvinur fótanna?
„Támjóir skór og tréklossar
hafa reynst skeinuhættir. Það var
mikil tíska um tíma að ganga á
tréklossum og álitið heilsusamlegt.
Svo er ekki, þeir valda óeðlilegri
hreyfingu fótarins, algengt er að
fólk misstígi sig í þeim og viðurinn
í klossunum getur valdið mikilli
siggmyndun. Bestu skómir eru
► Margrét Jónsdóttir fæddist á
Akranesi 1945. Hún lauk prófi
frá Kvennaskólanum í Reykjavík
1962, námi sem snyrtifræðingur í
London 1963, varð fótaaðgerða-
fræðingur 1972 og lauk prófi í
lyfjatækni 1977. Hún hefur starf-
að sem lyfjatæknir og fótaað-
gerðafræðingur sl. 22 ár og rek-
ur nú eigin fótaaðgerðastofu á
Seltjarnarnesi í félagi við dóttur
sína. Hún á sæti í stjórn FIP, al-
þjóðasamtaka fótaaðgerðafræð-
inga. Margrét er gift Guðjóni
Margeirssyni framkvæmdastjóra
og eiga þau fimm börn.
fótlaga skór sem falla eðlilega að
fætinum og era með gott tárými."
- Hafíð þið verið með fræðsluút-
gáfu?
„Við höfum gefið út bækling
sem heitir: „Fætur og sykursýki,“
í samvinnu við Samtök sykur-
sjúkra, einnig höfum við gefið út-
bæklingana „Hvað er fótaaðgerð?"
og „Fætur bamsins“.“
-Hefur fólk tækifæri til að
mennta sig vel í þessum fræðum
hér á íslandi?
„Eftir að fótaaðgerðafræði var
löggilt sem heilbrigðisstétt 1991
lagðist af allt nám í þessum fræð-
um hér og nýliðun hefur öll komið
erlendis frá. Það hefur nefnd starf-
að að því að undirbúa stofnun
námsbrautar í fótaaðgerðafræði
við Fjölbrautarskólann við Armúla
en beðið er eftir ákvörðun mennta-
málaráðherra um hvort og hvenær
þetta nám geti hafist. Við setjum
markið hátt í þessum undirbún-
ingi, við viljum að námið verði í
takt við þær námskröfur sem best-
ar gerast í Evrópu. Við lítum eink-
um til Finnlands og Hollands sem
fyrirmynda í þessum efnum.“
- Hvað eru margir
fótaaðgerðafræðingar
starfandi í landinu ?
„í félaginu eru 93 fé-
lagar en þeir era ekki
allir starfandi. Líklega
eru um sextíu manns
sem starfa við þetta víðs
vegar um landið, þó
langflestir á höfuðborg-
arsvæðinu.“
-Hvað getur fólk gert til að
halda góðri fótaheilsu?
„Ég álít að eftir tvitugt eigi fólk
að fara árlega og láta skoða á sér
fæturna hjá fótaaðgerðafræðingi
vegna þess að við komum oft auga
á ýmislegt sem er að fara úrskeiðis
og mætti laga á byrjunarstigi.
Þannig mætti koma í veg fyrir ým-
is fótamein sem þjá fólk. Sumir era
í miklu meiri hættu en aðrir með
fætur sína, einkum þeir sem era
sykursjúkir. Það má spara mikið
fé með því að fylgjast vel með fót-
um sykursjúkra, það getur komið í
veg fyrir aflimanir síðar meir.
Fólk á að fara
árlega og láta
skoða á sér
fæturna hjá
fótaaðgerða-
fræðingi