Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ -4 Fólk; ferðalangur á Indlandi opnar varla auga án þess að sjá fólk, nema kannski inni á eigin hótelherbergi. Milljarður manna býr á Indlandi og fólki fjölgar ört. Gríðarlegar and- stæður einkenna landið; þar eru margir sem vita ekki aura sinna tal en vel á þriðja hundrað milljónir manna á hins vegar nánast ekkert, að sögn. En slíkt er auðvitað afstætt og viðmið mismunandi. Fólkið þekk- ir ekkert annað, var gjarnan haft á orði þegar Morgunblaðið spurði um ástandið í landinu og aðstæður hinna fátæku; Indland er bara svona. Gífurlegur fjöldi býr á gangstétt- um borganna, á umferðareyjum eða annars staðar þar sem rými er til að leggjast. Fjöldi götubama gengur um betl- andi í Delhi og geta þau orðið af- skaplega ágeng, ef gestirnir spyma ekki við fótum strax, reka þau burt. Taki útlendingur upp peningaseðil og gefí einum er öruggt að hann fær ekki frið á næstunni. Betlararnir em fljótir að miða hann út og gefa ekki eftir fyrr en í fulla hnefana. Sölumenn em einnig afskaplega ágengir, og er ekki djúpt í árinni tekið með því að orða það þannig. Opinberri heimsókn Ólafs Ragn- ars Grímssonar, forseta íslands, til Indlands lauk fyrir helgina. For- setinn og fylgdarlið hans hélt til í Delhi og Bombay (Mumbai), auk þess sem komið var við í hofinu Taj Mahal í grennd borgarinnar Agra, þekktasta húsi landsins og einu því fegursta í heimi. Ólafur Ragnar, aðstoðarmenn hans og aðrir í fylgdarliði áttu fundi með ýmsum ráðamönnum Indlands en almenningur varð einnig mikið var við íslensku sendinefndina. Eins og venja er til, þegar um opinberar heimsóknir er að ræða, fær bílalest viðkomandi algjöran forgang þegar farið er á milli staða. Lögreglumenn em á hverju strái, stöðva umferð á öllum gatnamótum og heimamenn verða að gjöra svo vel að bíða. Og fólk virtist ekki kippa sér upp við það. Það hafði nógan tíma. Umstangið við komu þjóðhöfð- ingja til Indlands er bersýnilega mikið; einn starfsmanna indverska „kerfisins" sagði Morgunblaðinu að fimmtán þúsund manns hefðu starf- að við komu forseta íslands til Delhi, og annað eins í Bombay, þar með taldir starfsmenn utanríkis- ráðuneytis og lögreglumenn en þeir síðamefndu vom á hverju strái hvar sem komið var. Gott dæmi um hversu mikil áhrif koma svo háttsettra gesta hafði á daglegt líf var að á meðan íslenski hópurinn skoðaði Taj Mahal hofið var því lokað fyrir öðram gestum. Talið var að nokkur þúsund manns hefðu beðið fyrir utan á meðan, og athyglisvert var að sjá að um leið og síðasta farartækið í bílalest for- setans hvarf á braut tók múgurinn á rás í átt að þessu stórkostlega mannvirki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.