Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 23
h
MORGUNB LAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 23
~
Morgunblaöið/RAX
Taj Mahal hofið í grennd borgarinnar Agra er talin ein allra fegursta bygging heims.
Á stærstu myndinni eru þau Ólafur Ragnar Grímsson og Dorritt Moussaieff, heit-
kona hans, fyrir framan hofió. Venjulega er múgur og margmenni á þessum magn-
aða stað, en svæðinu var lokað fyrir öðrum en íslendingunum, meðan þeir skoðuðu
staðinn. Mikil öryggisgæsla var á meðan bíialest forsetans fór hjá, hvar sem var;
götum borga jafnt sem vegum sveita var lokað á meðan. Safnaðist fólk yfirleitt sam-
an í stórum hópum, en undantekningar voru á því, eins og sjá á myndunum hér til
hliðar. En fólk virtist oft forvitið og fylgdist gaumgæfilegu með hinum útlendu gest-
um. Efst til vinstri er sölumaður, en sú stétt manna er fjölmenn í þessu næst fjöl-
mennasta ríki veraldarinnar. Allt milli himins og jarðar er á boðstólum en þessi prúð-
búni fulltrúi þeirra seldi glæsilegar dúkkur, einmitt í grennd við Taj Mahal. Á
myndlnni hér að ofan er svo ein fjölmargra barnungra betlarastúlkna í Deihi.