Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR „Knattúran" Mark Viduka búinn að reima á sig skotskóna hjá Leeds United Reuters Tveggja manna maki? Mark Viduka glímir við leikmenn Everton, Steve Watson og Scot Gemmill. mmmmmmmmBmmmmammmaMmmmmmmammM Vinur í vanda EINN af bestu vinum Marks Viduka leikur einnig i ensku úrvalsdeildinni, Mark Bosnich markvörður hjá Manchester United. Þeir eru ekki aðeins nafnar og samlandar heldur er Bosnich einnig af króatísku bergi brotinn. „Ég kynntist Mark Bosnich þegar ég var við nám í íþróttastofnuninni í Canberra. Hann var þá á mála hjá Aston Villa og heimsótti okkur ungmennin annað veifíð. Við bundumst strax böndum enda stríðið í Króatíu í algleymingi, þar sem við báðir áttum ættingja. Það var erfíð- ur tími,“ segir Viduka. Eftir misjaftia leiki á liðinni leiktíð hefur Bosnich þurft að verma varamannabekkinn hjá meisturunum í haust - er ekki lengur í náðinni hjá Sir Alex Ferguson. Viduka hefur samúð með vini si'num og dregur enga dul á að hann kysi fremur að sjá glampa á glottið á honum en stífbónaðan skaliann á Fabien Barthcz í haust- sólinni á Old Trafford. „Ég kenni í brjósti um Mark. Það er erfítt að vera ekki í náðinni. Hann kvartar hins vegar ekki. Það er ekki hans stíll. Hann er bjartsýnn að eðlisfari og á ugglaust eftir að vinna sig út úr þessum vandræðum." Og getuna vantar ekki, að mati Vidukas. „Mark er frábær markvörður og hefur staðið sig með sóma með landsliðinu og Aston Villa. Hann er mjög fylginn sér - ekki týpan sem lognast út af við mótlæti. Það mun ekki breyt- ast.“ Viduka skilur líka vel að Bosnich sé tregur að yfírgefa Manchester United. „Allir þekkja Unit- ed. Hvar sem er í heiminum. Meira að segja í Ástralíu, þar sem þjóðin er heltekin af krikkett og ruðningi, hafa menn mikinn áhuga á enskri knattspymu. Einkum Manchester United og Leeds. Það nennir ekki nokkur maður á ástr- alska deildarleiki en íjöldinn ailur fylgist með ensku knattspymunni í sjónvarpi." Ijóðrænni reisn ÞAÐ rigndi á réttláta á Valley Parade í Bradford síðastliðinn sunnu- dag - hundum og köttum, líkt og menn segja þar um slóðir, ef ekki fleiri ferfætlingum. Eins og Bretar kippi sér upp við það á haustin? Einum manni var þó órótt, Dave O’Leary, knattspyrnustjóra gest- anna, Leeds United. Það duldist engum þar sem hann húkti á hlið- arlínunni, hundvotur með handklæði á höfði. Lái honum hver sem vill, lið hans var undir og leikar langt komnir. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst og í því að stigunum var að skola burt reis ástralski miðherjinn, Mark Viduka, eins og Fönix úr öskunni og koll- spyrnti knettinum í netið, 1:1. Deginum var borgið. Það var við hæfí að Viduka gerðist bjargvætturinn Lauf- ey á þessum vota forleiksdegi að vetri. Hann var OrriPáll keyptur fyrir sex Ormarssort milljónir sterlings- skrifar punda frá Celtie í Glasgow í sumar til að ríða baggamuninn - breyta efnilegu liði í gott. Það gerist ef til vill ekki á einni nóttu en Leeds er sannarlega ekki iakara lið með þennan stæðilega Ástrala innan- borðs. Viduka hefur heldur ekki í hyggju að mæna sér í gaupnir í vetur. „Ég er ekki kominn til Leeds til að drepa tímann. Við eig- um verðugt verkefni fyrir höndum - að vinna enska meistaratitilinn. Hér dugar ekkert hálfkák. Ég hef fylgst með liðinu vaxa og dafna undir stjórn Dave O’Learys og á síðustu tveimur árum hefur það á köflum leikið frábæra knatt- spyrnu. Batnar og batnar. Það kæmi mér á óvart ef við verðum ekki besta liðið í úrvalsdeildinni í vetur.“ Ekki nóg með það. „Ég fékk til- boð frá nokkrum félögum í sumar, mörg hver æði girnileg, en Leeds heillaði mig langmest. Félagið er svo spennandi að ég hefði ekki einu sinni hikað þótt tilboð þess hefði verið lakast. O’Leary var frá- bær leikmaður og hefur þegar gert ótrúlega hluti á stuttum knatt- spyrnustjóraferli. Sigur er hans eðli og sama má segja um leik- mennina. Þetta er hópur sigurveg- ara.“ Maðurinn talar enga tæpi- tungu. Pabbinn f hópnum Og hinn 25 ára gamli framherji efast ekki um að tíminn sé á bandi Leeds United. „Leikmennirnir eru hver öðrum yngri. Sjálfur er ég vanur að safna saman tuðrum eftir skotæfingar og ganga í önnur skít- verk þar sem ég hef iðulega verið barnið í hópnum. Nú hefur gripið mig föðurtilfinning.“ Ekki spillir þátttaka Leeds í Meistaradeildinni heldur fyrir. „Mig hefur dreymt um að leika í Meistaradeildinni allar götur frá því ég kom til Evrópu. Ég sá Ajax leggja AC Milan í úrslitaleiknum 1995 og það var ógleymanleg upp- lifun. Það yrði yndislegt að leika einhvern tíma til úrslita í keppn- inni.“ Það gerist ef til vill ekki í vor en hið unga lið Leeds hefur eigi að síður látið hraustlega til sín taka í firnasterkum riðli. Og er í góðri aðstöðu til að komast áfram. Næg- ir jafntefii í lokaleiknum gegn AC Milan í Mflanó í næstu viku. Myndi þá skilja spænska stórveld- ið Barcelona eftir. Geta Vidukas er augljós. Hann er sterklega vaxinn, flinkur og með gott auga fyrir spili. Og markið? Það þekkir hann frá stúk- unni. Gerir mörk með „ljóðrænni reisn“, líkt og sparkskýrandi nokk- ur komst að orði. Það er helst að hraðinn sé hans veika hlið. Viduka skilur menn ekki eftir í reyk- mekki. Stórt skarð var hoggið í raðir Leeds er Jimmy Floyd Hasselb- aink stökk frá borði vorið 1999 og þótt Michael Bridges stæði sig vonum framar á liðinni leiktíð, gerði 21 mark, var alltaf ljóst að Leeds vantaði stálpaða markavél til að geta velgt stórliðunum undir uggum. „Mark er maðurinn sem okkur vantaði," segir Dave O’Le- ary. „Hann skoraði fullt af mörk- um í Skotlandi og haldi hann upp- teknum hætti í úrvalsdeildinni hefur milljónunum sex verið vitur- lega varið. Vonandi tekst honum að leika afrek Michaels Bridges eftir og skora á þriðja tug marka á sínum fyrsta vetri.“ O’Leary hikaði heldur ekki við að afhenda Viduka treyjuna hans Jimmys - númer níu. „Ég gerði mér enga grein fyrir því að Leeds hefði leikið heilt tímabil án níunn- ar,“ segir Viduka. „í ljósi hefðar- innar er það sálræn upplyfting fyrir framherja að klæðast níunni. Það verður ekki létt verk að feta í fótspor Jimmys en ég mun gera mitt besta í baráttunni um gullskó- inn.“ Trúnaðarvinurinn talar ekki En hefur hann sett sér tak- mark? Tuttugu mörk? Þrjátíu? „Já, það hef ég gert. Hundurinn minn er þó sá eini sem ég hef trúað fyrir tölunni." Spurningunni verður því ekki svarað nema menn geri Dagfinn dýralækni út af örkinni - eða þá Davíð Oddsson! Vart verður sagt að Viduka hafi fengið fljúgandi start hjá Leeds. Hann virkaði þungur og þreklítill í fyrstu leikjunum og komst ekki á blað fyrr en í kjöldrættinum á Besiktas í Meistaradeildinni í end- aðan september. „Þetta var ein lengsta markaþurrð sem ég hef upplifað," segir Viduka, „og mér létti verulega við fyrsta markið. Það er alltaf erfiðast að skora það.“ Og kappinn hefur verið sem úr fjötrum leystur, gert fimm stykki síðan. Raunar hefur Viduka verið mun sprækari eftir að hann sneri aftur frá Sydney í síðasta mánuði, þar sem hann tók þátt í knattspyrnu- móti Ólympíuleikanna með „Knatt- úrunum“ svonefndu. Enda þótt sú för væri ekki til frægðar. „Við töp- uðum öllum leikjunum þremur. Eigi að síður tókst mér að hrista af mér meiðsli sem voru að hrella mig í haust og koma mér í betri leikæfingu. Á því hefur Leeds hagnast. Það er heldur ekki á hverjum degi að maður fær að taka þátt í ólympíuleikum í heima- borg sinni.“ Óhætt er að segja að O’Leary hafi varpað öndinni léttar þegar kaupin á Viduka voru í höfn - langri leit var lokið. „Leit okkar að framherja var bæði löng og lýj- andi, þar sem peningar voru hin miðlæga stærð. Það er mikill léttir að hafa loksins tryggt sér rétta manninn á viðunandi verði. Þegar maður sér ýmsa nafnkunna fram- heija verðlagða á 12-15 milljónir punda, fáránlegar upphæðir, er ekki amalegt að hafa tryggt sér Mark Viduka fyrir sex.“ Enginn skyldi þó telja hænsn sín fyrr en í kofa er komið og þótt samningar tækjust snemma milli Leeds og Celtic stóð málið í bresk- um atvinnumálayfirvöldum þar sem leikmaðurinn kemur frá landi utan Evrópusambandsins. At- vinnuleyfl flytjast ekki milli félaga og af því Viduka hafði ekki leikið landsleik fyrir Ástralíu í tvö ár var brugðið á naflaskoðun. Peter Ridsdale, stjórnarformaður Leeds, kveðst aldrei hafa lent í öðru eins og um tíma leit út fyrir að kaupin gengju til baka. Allt fór þó vel að lokum. Af króatísku foreldri Viduka fæddist 9. október 1975 í Melbourne í Ástralíu. Hann hóf feril sinn hjá heimaliðinu, Melb- ourne Rnights, áður en hann gekk til liðs við Croatia Zagreb, en kappinn er einmitt af króatísku foreldri. Celtic keypti hann síðan á 3,5 milljónir sterlingspunda í des- ember 1998. Bið varð á því að miðherjinn klæddist búningi Celtic, meðal annars vegna þyngsla í lund, en þegar Viduka var loks dreginn á flot gekk hann vasklega fram í Skotlandi - var valinn leikmaður ársins á síðustu leiktíð. Gerði þá 27 mörk fyrir Celtic. En kappanum var ekki til set- unnar boðið - deildin var of slök. „Kjarni málsins er sá að Mark taldi sig ekki geta haldið áfram að þróa leik sinn hjá Celtic. Honum leið vel í Skotlandi og þykir vænt um fólkið þar en deildin er eiiifald- lega ekki nógu sterk. Kenny Dalglish fór á sínum tíma frá Celt- ic til Liverpool og Mark fetar nú í fótspor hans - í því augnamiði að eflast sem leikmaður," segir um- boðsmaður Viduka, Bernie Mand- ic. Að áliti umboðsmannsins er þetta vandi skosku félaganna í hnotskurn. „Góðir leikmenn vilja spreyta sig gegn þeim bestu. Fyrir vikið eru þeir knúnir til að halda frá Skotlandi. Celtic hefur margt með sér, ríka hefð og frábæra um- gjörð, en deildin er svo veik að Mark sér ekki að félagið eigi möguleika á að laða til sín leik- menn í hæsta gæðaflokki. Þess vegna fór hann.“ O’Leary rennir stoðum undir þetta. „Fyrst þegar fundum okkar Marks bar saman sagði ég honum beint út að mér þætti hann latur á velli. Hann hló bara að mér og svaraði því til að hann hefði aðeins þurft að beita sér 70% í Skotlandi - og samt gert öll þessi mörk. Hann bætti þó við að hann hefði ekkert á móti því að leggja hart að sér. Hjá Leeds verður honum að ósk sinni!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.