Morgunblaðið - 05.11.2000, Page 2
I SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TF-SIF lenti með sjómanninn við Landspítalann-Háskólasjúkrahús í Fossvogi skömmu fyrir kl. 12.
TF-SIF sótti fótbrotinn sjómann
Ræktunarstarfsemi í nautgriparækt
hefur skilað góðum árangri
Aukið hlut-
fall mjólkur-
próteins
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, sótti slasaðan sjómann um 30
mflur suður af Ingólfshöfða í gær.
Hann hafði hlotið slsfcmt opið bein-
brot á fæti, rétt fyrir ofan ökkla.
Sjómaðurinn, sem er um tvítugt, er
skipverji á dragnótarskipinu Jóni á
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnai-, fjallaði í ræðu
sinni á fyrsta flokksstjórnarfundi
Samfylkingarinnar í gær, um innra
skipulag flokksins og þá vinnu sem í
gangi er við mótun nýrrar stefnu
Samfylkingarinnar.
Össur sagði að Samíylkingin liti á
sig sem höfuðandstæðing Sjálfstæð-
isflokksins og engum dyldist að
Sjálfstæðisflokkurinn væri sama
sinnis. „Sjálfstæðisflokkurinn þarf
ekki að ráðast á Vinstri hreyfinguna
- grænt framboð af þeirri einfóldu
ástæðu að hún ógnar honum ekki.
Samfylkingin er hinn eðlilegi val-
kostur þeirra, sem vilja öfgalaus og
nútímaleg viðhorf, sem hafna öfgum
nýfrjálshyggjunnar jafnt sem gamal-
dags einangrunarstefnu," sagði
hann.
„Það tekur tíma að byggja upp
trúverðugan flokk með trausta
stefnu. Fólk úr hreyfingunum sem
að okkur standa spannar breitt litróf
og við þurfum öflugt starf og öfluga
stefnu til að ná því að verða sam-
nefnari fyrir þann breiða hóp jafnað-
armanna. Með elju og áræðni mun-
um við á næstu mánuðum og
Hofi ÁR-62. Landhelgisgæslan fékk
beiðni um sjúkraflug rétt fyrir
klukkan níu í gaumorgun. TF-SIF
var komin að skipinu rúmlega
klukkustund síðar. Þyrlan var kom-
in að Landspítala - háskólasjúkra-
húsi í Fossvogi rétt fyrir kl. 12 en
misserum koma á framfæri stefnu-
málum okkar,“ sagði Össur.
Össur fór yfir ýmis stefnumál í
ræðu sinni og sagði að byggðastefna
framtíðarinnar þyrfti að byggjast á
hún þurfti að gera stuttan stans í
Vestmannaeyjum til að taka elds-
neyti.
Samkvæmt upplýsingum frá
slysadeild Landspítalans í Fossvogi
eru áverkar sjómannsins alvarlegir.
Hann fór í skurðaðgerð í gær.
nýju tækninni, fjarskiptunum, Net-
inu, upplýsingabyltingunni og nýja
hagkerfinu. „Tímabundnar skatta-
ívilnanir til einkafyrirtækja sem
flytja nettengd störf út á land,
HAUSTVINNSLA á kynbótamati
fyrir naut fædd árið 1994 bendir til
þess að mjólk úr kúm sem undan
þeim eru komnar hafi afar hátt
hlutfall mjólkurpróteins.
Jón Viðar Jónmundsson, ráðu-
nautur hjá Bændasamtökum Is-
lands, segir í grein sem birtist á
vef samtakanna að samkvæmt upp-
lýsingum sem liggja fyrir um dæt-
ur þessara nauta sé augljóst að
„fram er að koma stór hópur gripa
sem hvað afurðareiginleikum við-
kemur stendur miklu framar því
sem við höfum áður haft“. Upp-
lýsingar úr haustvinnslu bendi til
þess að þessi naut muni fá kyn-
bótamat fyrir afurðasemi á bilinu
115-130.
menntastyrkir, öflug og ódýr fjar-
kennsla og símenntun fullorðinna í
krafti Netsins, ásamt jöfnum að-
gangi allra að dreifikerfinu án tillits
til búsetu, eru því burðarásar í þeirri
byggðastefnu sem við höfum mótað,“
sagði hann.
Eins konar umhverfismat
á Evrópusambandinu
Össur fjallaði einnig um Evrópu-
mál og sagði það ekki stefnu Sam-
fylkingarinnar að Island eigi að
ganga í Evrópusambandið við núver-
andi aðstæður en sú staða gæti kom-
ið upp að íslendingar yrðu að gera
upp við sig hvort þjóðin ætti að sækja
um aðild, eða ekki. Innan Samfylk-
ingarinnar hefði völdum hópi fólks
verið falið að kanna hvaða áhrif það
myndi hafa á tiltekna þætti samfé-
lagsins ef landið yrði hluti ESB, og
hvaða markmiðum hópurinn teldi að
utanríkisþjónustan þyrfti að ná til að
slíkt kæmi yfir höfuð til greina.
„Það má segja að með þessu sé
Samfylkingin að gera eins konar um-
hverfismat á Evrópusambandinu út
frá íslenskum hagsmunum," sagði
Össur.
anna, s.s. byggingu, liggur ekki
fyrir i'yri' en eftir áramót. Jón Við-
ar segir að þrátt fyrir að endanleg-
ir dómar muni leiða til þess að ein-
hver nautanna verði ekki lengur í
notkun sé ljóst að hér séu að koma
fram ótrúlega margir öflugir kyn-
bótagripir. „Rétt er að vekja at-
hygli á því að þetta er fyrsti hópur
nauta sem valinn er á grundvelli
nýs mats á afurðasemi kúnna, þar
sem tekið er tillit til mjólkurprót-
eins í stað mjólkurmagns áður. Um
leið eru foreldrar þeirra fyrsti hóp-
urinn sem valinn er á grunni þess
kynbótamats sem þá var tekið í
notkun," segir Jón. Hann telur
greinilegt að með þessum breyt-
ingum hafi náðst að breyta veru-
lega próteinhlutfalli mjólkur eins
og að var stefnt. Af þeim sökum sé
veruleg ástæða til að taka þessi
naut strax til notkunar í ræktunar-
starfinu.
Gunnar Guðmundsson, forstöðu-
maður ráðgjafarsviðs Bændasam-
taka íslands, segir þessar niður-
stöður afar ánægjulegar. „Þarna er
ræktunarstarfið í rauninni að skila
verðmætum árangri. Arangri sem
leiðir til þess að þeir bændur sem
nota þessi naut og ala upp kvígur
undan þessum nautum, þeir fá inn í
stofn sinn kýr sem skila hærra
próteini í mjólk sem skilar þeim
auknum tekjum,“ segir Gunnar.
Aukið próteinmagn í mjólk gerir
þeim sem framleiðir vörur úr
mjólkinni ennfremur auðveldara að
vinna afurðir úr mjólkinni, sérstak-
lega osta. Gunnar bendir á að
neysluvenjur fólks hafi breyst með
þeim hætti að fólk vilji frekar prót-
einríkar vörur en síður fituríkar.
-------FM----------
Harður árekst-
ur á Selfossi
TVEIR fólksbílar skullu saman á
Austurvegi á Selfossi um kl. 22:30 í
fyrrakvöld. Areksturinn var harður
en að sögn lögreglunnar á Selfossi
fór betur en á horfðist. Enginn slas-
aðist í ái'ekstrinum en annar bíllinn
er talinn ónýtur og hinn er mikið
skemmdur.
Töluverður erill var hjá lög-
reglunni á Selfossi í fyrrinótt. Tveir
voru teknh' íyrir ölvun við akstur og
tíu fyrir of hraðan akstur en sá sem
keyrði greiðast mældist á 127 kíló-
metra hraða á Hellisheiði.
Dómur um aðra eiginleika naut-
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, á flokksstjórnarfundi
Sjálfstæðisflokkur er höfuð-
andstæðingur Samfylkingar
Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins
Össur Skarphéðinsson flytur ræðu sína á fundi Samfylkingarinnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Samkeppnisráð
hafnar kröfum Tals
Gróðursett
í Kvenna-
brekku
HÓPUR kvenna frá Bandalagi
reykvískra kvenna gróðursetti í
vikunni tré í brekkunni við gatna-
mót Miklubrautar og Sogavegar.
„Við ákváðum að tileinka þessa
brekku starfi Bandalags reyk-
vískra kvenna og heitir hún núna
Kvennabrekka," segir Jóhann
Pálsson, garðyrkjustjóri Reykja-
víkurborgar. „Á þessum stað var
áður trjálundur sem Bandalag
reykvískra kvenna hafði gróður-
sett og hugsað um, en þeim var
úthlutað þarna smásvæði árið
1985. Þær hugsuðu vel um þenn-
an stað og þetta var orðinn hinn
fallegasti lundur þegar þær svo
afhentu borginni hann árið 1995.“
Jóhann segir að þegar fram-
kvæmdir við mislæg gatnamót
hafi verið hafnar á þessum stað,
hafi trén verið flutt í burtu, en sá
hluti þeirra sem mögulegt var að
nýta aftur var gróðursettur
þarna fyrr í sumar.
SAMKEPPNISRÁÐ hefur úrskurð-
að, að sölutilboð Landssímans á
GSM-símum, svokölluð léttkaup, hafi
ekki skaðleg áhrif á samkeppni og
þar með hafnað kröfum Tals um að
banna sölutilboðið.
í léttkaupum felst að viðskiptavin-
um Landssímans gefst kostur á að
greiða útborgun í GSM-síma og eftir-
stöðvamar með jöfnum afborgunum
sem bætt er við símareikning þeirra
en áskrifendur hjá öðrum símafyrir-
tækjum fái sendan reikning mánað-
arlega að viðlögðum innheimtukostn-
aði.
Tal krafðist þess að Landssíman-
um yrði bannað að bjóða umrædd
léttkaup. Kvörtun Tals byggðLst á því
að Landssíminn niðurgreiddi vexti og
kostnað íyrir viðskiptavini sína með
léttkaupstilboðunum. Viðskiptavin-
um annarra fyrirtækja væri ekki
neitað um viðskipti en þeir þyrftu að
greiða 250 til 350 krónur á mánuði í
innheimtukostnað. Skilmálar við-
skiptavina Landssímans væru því
hagstæðari en viðskiptavina annaira.
I niðurstöðu samkeppnisráðs segir
að framlegð sé af sölu umræddra
síma og að tekið sé tillit til vaxta-
kostnaðar. Kvörtun Tals þess efnis að
um niðurgreiðslur sé að ræða eigi því
ekki við rök að styðjast. Einnig segir í
niðurstöðunni að samkvæmt umsögn
Landssímans sé 220 króna viðbótar-
kostnaður til viðskiptamanna við að
senda sérstakan reilming vegna létt-
kaupa. Fellst samkeppnisráð á að
kostnaður við að skrifa út og senda
reikning fari nærri þessari upphæð.