Morgunblaðið - 05.11.2000, Side 29

Morgunblaðið - 05.11.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 29 Eldri kona. Kopareskimói með húðflúr í andliti. leitni samfélaga til að lifa af á norð- urslóðum. Hann kenndi Vestur- landabúum að þeir yrðu að virða náttúruna, en ekki síst að virða þá þekkingu sem heimamenn hafa afl- að sér um hana í gegnum árþúsund- ir. Þessi boðskapur og lífsviðhorf gerði hann einstakan meðal heimskautakönnuða sem ekki höfðu allir sama skilning á mikilvægi þessa. Vilhjálmur benti einnig á að það fólk sem hann dvaldist svo lengi meðal og lærði að virða og skilja, væri hamingjusamt þrátt fyrir tak- mörkuð veraldleg gæði. Lykillinn að þessu væri nægjusemi og takmarkaðar þarfir. Þessi skilaboð eiga ekki síst við í samtíma vest- rænna neysluþjóðfélaga þar sem bæði óhamingja og umhverfisógn stafa að verulegu leyti af ofneyslu vegna ótakmarkaðra þarfa sem seint verða uppfylltar. I fyrirlestr- um sínum notaði Vilhjálmur samfé- lag og lífsviðhorf inúíta sem spegil fyrir bandaríska áheyrendur að sjá eigið samfélag í og þannig kom hann einatt á framfæri skarpri þjóðfélagsádeilu, en efldi einnig skilning fólks á eigin samfélagi. Það er sannarlega verðugt verkefni að taka upp þennan þráð og hvetja þannig almenning til íhugunar um líf sitt og samband neysluhátta, of- nýtingar náttúruauðlinda, umhverf- iseyðingar og forgangsröðun þarfa. Vilhjálmur Stefánsson var boð- beri þess að norðurslóðir þyrftu ekki að vera lítt búsældarlegt jaðar- svæði ef fólk sem þangað kæmi kynnti sér mannvistfræði frum- byggja og tileinkaði sér fordóma- laust þá miklu reynslu sem aðlögun samfélaga að hörðu umhverfi í ár- þúsundir leiðir af sér. Sjálfbær þró- un snýst einmitt um að læra af reynslunni og horfa síðan til fram- tíðar, um mótun haldbærrar stefnu sem færir okkur ábyrg gildi og Maður með byrðar. hegðun í veganesti fyrir núlifandi og komandi kynslóðir. Norðurslóðir á mannöld Við getum nýtt hugtakið mannöld (á ensku anthropocene) til að lýsa þeim miklu breytingum í umhverfi og veðrakerfum sem við erum vitni að. Það er svo komið að við menn- irnir erum orðnir örlagavaldar fyrir vistkerfi og loftslag á jörðu. Þetta er alveg ný staða í sögu mannkyns. Á norðlægum slóðum eru þessar breytingar enn meiri og koma fyrr fram en víðast hver annars staðar í heiminum. Þessar hröðu breytingar munu gera enn meiri kröfu til að- lögunarhæfni samfélaga í norður- vegi, en jafnframt að alþjóðleg sam- vinna aukist þannig að norð- urslóðabúar öðlist, með tilstilli samtaka, stofnana og samninga, styrkari rödd gagnvart umheimin- um þannig að eftir verði tekið. Þarna er hlutverk ríkisstjórna mik- ið, ekki síst þeirra sem eiga aðild að Norðurskautsráðinu, en það eru Norðurlöndin, Kanada, Bandaríkin og Rússland. Eftir lok kalda stríðs- Vilhjálmur í Kanadíska norður- skautsleiðangrinum árið 1914. ins hefur þáttur alþjóðlegra sam- taka af ýmsu tagi einnig aukist, enda svigrúm til þess þegar hinar hörðu leikreglur hernaðarvaldsins voru settar til hliðar og færi gafst að hafa áhrif með umræðum og lýð- ræðislegum samskiptum. Slík sam- skipti verði sífellt mikilvægari. Eitt dæmið um þessa þróun er hið nýja Rannsóknarþing norðursins (Northern Research Forum), sem mun leiða saman fólk frá öllu norð- urskautssvæðinu til skrafs og ráða- gerða varðandi sameiginleg hags- munamál og viðfangsefni á norður- slóðum nútímans. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti hug- myndina að stofnun þessara alþjóð- legu samtaka en fyrsta ráðstefna þeirra stendur einmitt nú dagana 4.-6. nóvember á Akureyri og er sýningin um Heimsskautslöndin unaðslegu hluti af dagskrá ráð- stefnunnar. Það á vel við að tengja sýninguna þinginu því Vilhjálmur var oft kallaður Mr Arctic, eða Herra Norðurslóð, meðal annars vegna þess hve mikil og góð sam- skipti hann átti við vísindamenn og aðra um gjörvallt norðurskauts- svæðið, jafnvel á tímum kald? stríðsins þegar erfitt var um vik. Margt hefur verið skrifað um Vil hjálm Stefánsson en það er viðeig andi að ljúka þessu spjalli með því að vitna í kvæði Stephans G. Steph- anssonar sem hann orti um Vil- hjálm og birtist í ljóðasafninu And- vökur: Til Vilhjálms Stefánssonar Víkkað hefur þú, Vilhjálmur, veröld manna, þú hefur hrímtröll hamið. Norður-noma næturgestur ogvættavetrarríkis. I frændsemd við firnindi og fjarlægð ertu - ert mögur morgunlands ogíætt við yzta norðurs sex mánaða sólskin. Helmlldir: Woodward, Kesler E. 1998. Persuasive images: photographs of Viihjalmur Stef- ansson in the Stefansson Collection on polar exploration at Dartmouth College. f Imaging the Arctic, ritstjórar J.C.H. King og H. Lidchi. Seattie: University of Washington Press. Höfundur er mannfræðingur og for- stöðumaður Stofnunar Villyálms Stefánssonar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.