Morgunblaðið - 05.11.2000, Síða 49

Morgunblaðið - 05.11.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ Garnal- kunnar rang- færslur Frá Sigurpáli Oskarssyni: 24. þ. mánaðar, okt. 2000, birtist í Morgunblaðinu grein þar sem grein- arhöfundur er að fetta fingur út í skráningu fólks í trúfélög í þjóð- skránni. Út af íyrir sig fremur létt- vægt og lítilfjörlegt atriði en tölfræð- in til þess gerð að hafa yfirlit yfir hlutina og sjá til þess að menn séu ekki greindir í röng félög. Það væri því varla gerandi að hafa orð á þessu, ef ekki væri á lúmskan hátt verið að ýja að því í upphafi greinarinnar, að Þjóðkirkjan hafi einhvem sérstakan hag af þessu umfram annan félags- skap af þessu tagi. Þjóðskráin tilfær- ir líka og á sama hátt þá, sem eru ásatrúar, svo og þá sem eru utan trú- félaga en þeir eru ekki nefndir í pistlinum. Þannig gengur þetta yfir alla landsmenn jafnt sem tölfræði- legt hagræði. Hvort hægt sé að framkvæma þetta öðruvísi skal ósagt látið, sem skiptir heldur ekki máli enda ekki það sem verið er að slægjasteftir. Svo virðist sem þarna sé verið að búa sér til nöldursefni og finna sér ástæðu til að agnúast út í Þjóðkirkj- una og nöldursefnið er hinar gama- lkunnu rangfærslur, þess efnis að rikið haldi Þjóðkirkjunni uppi fjár- hagslega. Þar er ríkið eingöngu að greiða arð eða fjármagnstekjur af eignum kirkjunnar, sem hún á inni hjá ríkinu og ríkið yfirtók áður fyrr á árunum. Allt kemur þetta fram í grein, sem sr. Hjálmar Jónsson birti í Morgun- blaðinu í haust, 17. sept., og ætti því ekki að vera greinarhöfundi ókunn- ugt, ef hann vill sjá og heyra og ann- arleg sjónarmið væm ekki í fyrir- rúmi. Það er gamalreynt áróðursbragð að klifa oft og mörgum sinnum á sömu rangfærslunni í von um að illa upplýstar sálir fari að trúa fleiprinu, þegar nógu oft er japlað á sömu tuggunni. Þetta gerir prófessor Pét- ur Pétursson að umtalsefni í Morg- unblaðinu 20. júlí þ. árs, er hann seg- ir: „Ég hef áður bent á það í grein í Morgunblaðinu, að tölur úr könnun- um, sem sýna, að þjóðin vilji losa sig við Þjóðkirkjuna, em rangar. Engu síður hafa ábyrgir aðilar klifað á talnafölsunum í þessu sambandi og gera enn. Það er engu líkara en að þeir sem hér um ræðir vilji viðhalda vanþekkingu sinni og fordómum..." Ekki þarf að orðlengja þetta frek- ar, svo augljóst er hvað hér er á seyði. Þá em önnur atriði greinar- innar á líkum eða svipuðum nótum. SIGURPÁLL ÓSKARSSON, Starengi 18, Reykjavík. Vantar þig nýtt og betra ba& fyrir jólin? Nú er lag, því vi& bjó&um allt að 25% afslátt af öllum geröum. Þaö munar um minna Neftoi^ i ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR Vönduð og falleg barnaföt fyrir jólin Verðdæmi: Vesti, buxur og skyrta kr. 2.500. Falleg gjafavara á heildsöluverði — Allt á einum stað. Nýja markaðstorgið, Opið alla daga fiá kl. 12.00-18.30. Suðurlandsbraut 8. Bingó - Andespil Félagið Dannebrog heldur sitt árlega matarbingó í dag, sunnudaginn 5. nóvember, kl. 20.30 í Borgar- túni 22. Húsið opnað kl. 20.00. Stjórnin. KÆRU VIÐSKIPTAVINIR HEF HAFIÐ STÖRF AFTUR Á HÁRHÖNNUN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6 B SÍMI5513130 dJMST - FJOLA HERMANNS ] Markviss tölvunámskeið NTV skólarnir í Hafnarfirði og Kópavogi bjóða upp á tvö hagnýt og markviss tölvunámskeið fyrir byrjendur. 90 kennslustundir: - Grunnatriði í upplýsingatækni *- Windows 98 stýrikerfið - Word ritvinnsla - Excel töflureiknir ► Access gagnagrunnur ► PowerPoint (gerð kynningarefnis) - Internetið (vefurinn og tölvupóstur) 72 kennslustundir: *- Almennt um tölvur og Windows 98 - Word ritvinnsla •- Excel töflureiknir •- Internetið (vefurinn og tölvupóstur) Boðið er upp á bæði morgun- og kvöldnámskeið. Næstu námskeið hefjast i byrjun nóvember. Upplýsingar og innritun í símum 544 4500 og 555 4980 nttf tölvu_ & SIikV viðskiptaskólinn ^-------------------------------------- Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfiröi - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981 HKÖasmára 9- 200 Kópavogi - Sími: 544 4500 - Fax: 544 4501 Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 49 -----------------------------'í GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS Gæðavikan 2000 Skiptir starfsumhverfi máli?\ Líkami og sál Miðvikudaginn 8. nóvember Hótel Loftleiðum. kl. 08:00 -12:00 Fundarstjóri: Ágústa Johnson framkvæmdastjóri, Hreyfing heilsurækt. Dagskrá: 8:00 Innskráning. 8:30 Quality Assurance in European Occupational Health Services. Prof. Peter Westerholm, National Institution for Working Life í Svíþjóð. 9:30 Heilsuvernd á vinnustað. Kristinn Tómasson yfirlæknir, Vinnueftirlit ríkisins. 9:50 Kaffihlé 10:10 Góðir vinnustaðir - Félagslegir og sálrænir vinnuverndarþættir. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfræðingur, Vinnueftirlit ríkisins. 10:30 Góðir vinnustaðir - Líkamlegir áhættuþættir á vinnustað. Þórunn Sveinsdóttir þróunar- og gæðastjóri, Vinnueftirlit ríkisins. 10:50 Mannauður -Mikilvægasta auðlindin. Lára Jóhannsdóttir gæðastjóri, Sjóvá-Almennar. 11:10 Rannsókn á líðan starfsmanna á sjúkrahúsi. Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Landspítaii háskólasjúkrahús. 11:30 "Sér á kinn saðningin" - Vægi góðrar næringar. Anna Elísabet Ólafsdóttir matvæla- og næringarfræðingur, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. 11:50 Samantekt og lokaorð. 12:00 Ráðstefnuslit. Heimiii og vinnustaður Fimmtudaginn 9. nóvember Ýmir, skógarhlfð 20. kl. 13.00 -17.00 Fundarstjóri: Sigurður Svavarsson framkvæmdastjóri, Edda - miðlun og útgáfa. Dagskrá: 13:00 Innskráning. 13:30 Aukin lífsgæði með sveigjanleika? Rannsókn Gallup. Linda Rut Benediktsdóttir og Tómas Bjarnason, Fyrirtækja- og starfsmannarannsóknir Gallup. 14:00 Sveigjanlegir vinnustaðir Erna Arnardóttir. starfsmannastjóri, Hugur. 14:30 Þekkingarbókhald hjá Landsvirkjun. Ragnhildur Vigfúsdóttir deildarstjóri starfsþróunardeildar, Landsvirkjun. 14:50 Kaffihlé. 15:10 Breytt vinnuumhverfi menntastofnana. Runólfur Ágústsson lektor, Viðskiptaháskólinn Bifröst. 15:30 Úr virðulegri skrifstofu í opið vinnusvæði. Jón Þórisson framkvæmdastjóri viðskiptabanka, íslandsbankiFBA. 15:50 Fjarvinna og áhrif hennar á lífsgæði. Sæmundur Þorsteinsson forstöðumaður rannsóknardeildar, Landsiminn. 16:20 Pallborðsumræður. 16:50 Ráðstefnuslit. 17:00 -19:00 Útnefning heiðursfélaga GSFÍ. í framhaldi verður boðið upp á léttar veitingar. Nánari upplýsingar og skráning: Sími: 533 5666 Símbréf: 533 4566 Netfang: gsfi@gsfi.is www.gsfi.is. e Landsvirkjun ÍSLANDSBANKIFBA VERÓLD EHF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.