Morgunblaðið - 05.11.2000, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 05.11.2000, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUh HBR2000 DAGBOK MORGUNB LAÐIÐ Reykjavíkurhöfn: Lag- arfoss kemur í dag. Chilreu fer í dag. Hafnarfjarðarhöfri: Lagarfoss kemur á Aflagrandi 40. A morg- un kl. 8 bað, kl. 8.45 leikfimi, kl. 9 vinnust- ofa, kl. 10 boccia, kl. 13 vinnustofa, kl. 14 félags- vist, kl. 15 kaffi. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 pennasaumur og harðangur, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30 félagsvist, kl. 13 opin smíðastofan, kl. 16 myndlist, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opn- ar. Bólstaðarhlið 43. Á morgun kl. 9-16 handa- vinna, kl. 9-12 búta- saumur, kl. 10 sam- verustund, kl. 13 bútasaumur. Félag eldri borgara i Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað- gerð og myndlist, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 13 handa- vinna og föndur, kl. 13.30 enska framhald. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Á morgun kl. 9.45 leikfimi, kl. 10 fótaaðgerðastofan opin, kl. 13 spilað (bridge). Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavikurvegi 50. í dag er „markaðsdagur“ kl. 13-16. Vöfflur og súkkulaði. Púttæfing í Bæjarútgerðinni í fyrramálið kl. 10-12. Tréútskurður í Flens- borg kl. 13. Félagsvist kl. 13:30, Reykjavíkurvegi. Félagstarf aldraðra, Garðabæ. Vetrarfagn- aður verður í Garðaholti 9. nóvember kl. 20 í boði Lionsklúbbsins Eikar. Rútuferðir frá Álftanesi og Kirkjulundi kl. 19.30. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Haustbas- ar og kaffisala í dag frá kl. 13-17. Félag eldri borgara í Reykjavik, Ásgarði, Glæsibæ. Sunnudagur: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur í kvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla kl. 19, framhald og kl. 20.30, byrjendur. Gerðuberg. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, m.a. fjölbreytt handavinna og kennt að orkera, 9.25 sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, spila- salur opinn frá hádegi, kl. 14 kóræfing- danskennsla fellur nið- ur. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Mat- ir kl. 10 sömu da;,. Fótaaðgerðastof- im iip;M frá kl. 10. Áveg- uin ; . idsdeildar FEBK : i i borgarar : ,, rmdagaog fii- : Uiga. Skráning .: 1). Spil hefjast oridvislenga kl. 13. á mánud. kl. 9 ■ i 0, vefnaður kl. 9. tljúhakki, Fannborg8. Á u; igun verður > indavinnustofan opin, ii:;ú! inandi á staðnum ;. : 9-17, kl. 9.30 .. kl. 13.30 og 15 ■ii.iku, kl. 13.30lomber og skák. ílraunbær 105. Á morg- un kl. 9 postulínsmálun og perlusaumur og kortagerð, kl. 10.30 bænastund, kl. 13 hár- greiðsla, kl. 14 sögu- sfu' 'jgspjall. llvassaleiti 56-58. Á morgun kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, keramik, tau- og silkimálun og klippimyndir, kl. 10 boccia, kl. 13 spilað. Hæðargarður 31. Á morgun kl. 9-16.30 opin vinnustofa, handavinna og íondur, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 14 félags- vist. Norðurbrún 1. Á morg- un, bókasafnið opið frá kl. 12-15, kl. 10 ganga, fótaaðgerðastofan opin frá kl. 9. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13 kóræfing. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 13 handmennt kl. 13. leik- fimi, kl. 13 spilað. Háteigskirkja. Á morg- un morgunstund með Þórdísi kl. 10-12. Geng- ið inn Viðeyjarmegin. Kvenfélag Kópavogs. Vinnukvöld vegna bas- ars mánudag kl. 20, í Hamraborg 10. Kirkjustarf aldraðra Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudögum frá kl. 11 leikfimi, helgi- stund og fleira. Húnvetningafélagið í Reykjavík verður með sinn árlega kirkju- og kaffisöludag í dag. KI. 14 verður messa í Kópavogskirkju, prest- ur sr. Ægir Fr. Sigur- geirsson, stólræðu flyt- ur Stefán M. Gunnars- son, organisti Árni Arinbjarnar, meðhjálp- ari Eyjólfur R. Eyjólfs- son sem jafnframt flyt- ur upphafsbæn. Ritningalestur: Hall- grímur Guðjónsson og Guðmundur Helgi Finn- bogason, söngur: Jó- hanna Linnet og Ragn- heiður Linnet, Húna- kórinn syngur undir stjórn Kjartans Ólafs- sonar. Frá 14.30-16.30 verður kaffisala í Húna- búð, Skeifunni 11. Þar verður kynnt gæða- handverk í Húnaþingi. Kvennadeild Barð- strendingafélagsins verður með basar og kaffisölu í dag 5. nóvem- ber í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Húsið op'i- að kl. 14. Félag íslenskra nítdd- ara. Opið hús í nudd- skóla Islands, Asjiarfelli 12, mánud. 6. nóv. kl. 20. Kristbjörg E. Kristmundsdóttir, náíl - úrulæknir og jógakenn- ari, fjallar um íslerisku blómadropana. Kvenfélagið Heimaey. Fundur verður mánud. 6. nóv. kl. 20.30 í Skála Hótel Sögu, snyrtivöru- kynning frá Miranda og fleira. Sjá nánar í bréfi. Kvenfélag Háteigs- sóknar. Félagslundur verður þriðjud. 7. nóv. kl. 20 í safnaðarheimil- inu. Kvenfélagi Seljasókn- ar. Bingófundur þriðj- ud. 7. nóvember kl. 20. Seljur, kór kvenfélags- ins, sér um fundinn. Bingó kaffihlaðborð. Kvenfélag Óháða safn- aðarins. Félagsfundur verður haldinn þriðjud. 7. nóv. kl. 20.30 í Kirkjubæ. Hana-nú, Kópavogi. Fundur hjá gleðiboltum og grínurum Hana-nú í Gullsmára þriðjud. 7. nóv. kl. 20. Gestur kvöldsins dr. Ólína Þor- varðardóttir þjóð- fræðingur. Síðustu for- vöð eru að skrá sig á námskeiðið ,Að hlusta á tónlist“. Upplýsingar í Gjábakka 554-3400 og Gullsmára 564-5260. . Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60 mánudaginn 6. nóv. kl. 20.30. Jónas Þórisson sér um fundarefni. Allir karlmenn velkomnir. Kvenfélagið Fjallkon- urnar. Fundur verður þriðjud 7. nóv. kl. 20.30 í Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Tísku- sýning og kynning á snyrtivörum. Félag breiðfiskra kvenna. Fundur verður mánud. 6. nóv. Tísku- sýning. Kvenfélag Garðabæjar. N óvemberfundurinn verður í Garðakaffi þriðjud. 7. nóv. kl. 20. Itc deildin íris Hafnar- firði, heldur fund mánud. 6. nóv. kl. 20 í Strandbergi, Hafnar- fjarðarkirkju. Kvenfélag Laugar- nessóknar, fundur í safnaðarheimi kirkjunnar á morgun, mánudag, kl. 20. Kvenfélag Lágafells- sóknar, fundur verður- mánud. 6. nóv. kl. 19.30 í Hlégarði. Kynning á tískufatnaði. Konur sem eru nýfluttar til bæjar- ins eru sérstaklega vel- komnar. Tilkynna þarf þátttöku í s. 566-7835. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, Hátúni 12. Brids á morgun kl. 19. I dag er sunnudagur 5. nóvember, 310. dagur ársins 2000. Orð dagsins: Og þá munuð þér vera mín þjóð, og ég mun vera yðar Guð. (Jer. 30,22.) Skipin udögum, panta MORGUNBLAÐID, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 668 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITST.J@MB L.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innaníands. 1 lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Landspítalinn Stæði fatlaðra við Land- spítalann ÉG er móðir fatlaðs og langveiks barns og get ekki lengur orða bundist vegna bílastæðismála fatlaðra. Ég þarf oft að sækja læknis- þjónustu á Landspítalann fyrir barnið mitt. Eins og allir vita sem þurfa á þjón- ustu Landspítalans að halda, getur verið mjög erf- itt að fá bílastæði á lóð spítalans. Að vísu eru stæði fyrir fatlaða bæði fyrir framan aðalinngang og innganginn Barónsstígs- megin, en þau eru oftast upptekin og þar er bílum ófatlaðra oft lagt. Ég sá fyrir nokkrum dögum fyr- irtækisbíl lagt í stæði fatl- aðra Barónsstígsmegin og út úr bílnum hljóp maður á besta aldri. Daginn eftir lagði annar maður á besta aldri bíl sínum í þessi stæði og var bíllinn enn í stæðinu þegar ég yfirgaf staðinn og voru þá nokkrir klukkutím- ar hðnir. Það hefur kannski verið starfsmaður sem lagði þarna? Fólk virðist ekki gera sér grein fyi'ir hvers vegna og fyrir hvern þessi stæði eru. Ég hef oft lent í vandræðum vegna þessa, hef þurft að leggja bílnum við innganginn, því engii, stæði hafa verið laus, fara með barnið inn, fá ein- hvern til að líta eftir því á meðan ég hef hlaupið aftur út til að fjarlægja bílinn og leggja honum einhvers staðar langt frá inngangi. Hlaupa síðan aftur inn og taka við barninu. Siðan þarf að endurtaka þetta þegar faiið er heim því barnið getur ekki gengið langar vegalengdir niður á bíla- stæðin og það er orðið of þungt til að ég geti borið það. Ég veit fullvel að bíla- stæði spítalans eru engan veginn nógu mörg fyrir alla þá sem sækja þurfa þjón- ustu á spítalann. En ég vil benda fólki á að íhuga vel hvað það er að gera þegar það leggur í stæði fatlaðra þri það getur skapað vand- ræði fyrir aðra sem þurfa á þessum stæðum að halda. Móðir. Um óreglu og óráðsíu aldraðra og öryrkja FYRRVERANDI verka- kona skrifar í Velvakanda grein 31. október sl. sem ber yfirskriftina „Dósa- söfnun og góðærið". Þetta er góð grein sem ber að þakka fyrir. En hvernig getur þingmaðurinn Pétur Blöndal aðhæft, að aldraðir og öryrkjar séu óreglufólk og óráðsíufólk í fjármálum. Því held ég að það sé hægt að fullyrða að svo sé ekki hjá öllum, því að eins og í þjóðfélaginu er þetta mjög einstaklingsbundið, sem betur fer. Mér finnst fram- koma þingmannsins í garð aldraðra og öryrkja honum sjálfum til vansa. Það er mikið búið að skrifa um kjör þeirra sem eru verst settir í þjóðfélaginu, en það virðist vera alveg sama, augu ráðamanna opnast ekki. Þeir eru nefnilega of uppteknir af því að deila út eigum ríkisins til fáiTa út- valdra, meira að segja sam- eign allra landsmanna, auð- lindinni, bæði á sjó og í landi. En þeir aðeins ranka við sér þegar íylgi stjómar- flokkanna þokast niður á við í skoðanakönnun Dag- blaðsins og Gallup. Þeir þurfa ekki að vera hissa þó svo að það væri veruleik- inn, eins og þeir eru búnir að spila út þeim spilum sem þeir höfðu á hendi. En eitt er víst að það er vitlaust gefið. Gunnar G. Bjartmarss. Tapað/fundid Sjal tapaðist Svart sjal týndist fyrir utan íþróttahöllina á Akureyri hinn 27. okt. sl. Finnandi er beðinn að hringja í síma 867-0586 eða 462-1947. Guzzi armband týndist MJÖG veglegt Guzzi gull- armband tapaðist laugar- daginn 28.okt. sl. Gæti hafa verið í Bessastaðakirkju, þaðan í rútu upp í Skíða- skálann Hveradölum. Arm- bandið hefur mikið tilfinn- ingagildi fyrir eigandann. Skilvís finnandi er beðinn að hafa samband í síma 554-2885 og eftir kl.19 virka daga. Krossgáta LÁRÉTT: LÓÐRÉTT: 1 augljös, 8 gyðja, 9 hörk- ufrosts, 10 greinir, 11 gafl, 13 hinn, 15 háðs- glósur, 18 sjá eftir, 21 hunda- vaðsháttur, 22 nauts, 23 viðurkennir, 24 fer illum orðum um 2 fiskinn, 3 starfsgreinin, 4 tileinka, 5 önug, 6 ör- uggur, 7 hæðir, 12 for- æði, 14 spil, 15 pest, 16 sjóðir mat, 17 hávaði, 18 fugl, 19 gladdi, 20 ræktuð lönd. LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 sýnir, 4 kappa, 7 iðrun, 8 ryldð, 9 gap, 11 ilin, 13 kinn, 14 eflir, 15 punt, 17 álka, 20 aða, 22 angan, 23 gáski, 24 klifa, 25 asnan. Lóðrétt: 1 seiði, 2 nærri, 3 röng, 4 karp, 5 pakki, 6 auð- an, 10 aflið, 12 net, 13 krá, 15 pjakk, 16 negri, 18 losun, 19 arinn, 20 Anna, 21 agna. Víkverji skrifar... OSKÖP hefur Víkverja þótt um- ræðan um útboð Vegagerðar- innar á rekstri ferjunnar Herjólfs á dögunum öfugsnúin. Einhvern veg- inn hafa aðalatriði málsins orðið að aukaatriðum og aukaatriði að aðal- atriðum og ef marka má viðbrögð margra Vestmannaeyinga við þessu máli hefur þjóðin í þessu landi orðið fyrir miklu áfalli sem langan tíma getur tekið að jafna sig á. En í hverju fólst áfallið? - Jú, stjórnvöldum samgöngumála hér á landi varð það á að bjóða út ferju- reksturinn milli lands og Eyja, en hingað til hafði sá rekstur verið í höndum Herjólfs hf. Til að bæta síð- an gráu ofan á svart tóku yfirvöld samgöngumála svo lægsta tilboðinu sem barst og spöruðu við það skatt- greiðendum í landinu eitthvað um 130 milljónir króna á ári. Það er skiljanlegt að mönnum þyki þessi framkoma stjórnvalda ólíðandi! xxx VIÐBRÖGÐ margi-a Vest- mannaeyinga vegna málsins hafa verið næsta ofsafengin, rétt eins og þeir hafi allan tímann átt von á að a) reksturinn yrði ekki boð- inn út og b) að lægsta tilboðinu yrði ekki tekið. Virðist engu skipta þótt lög og reglur geri ráð fyrir að hvort tveggja sé gert og samgönguráð- herra hafi þess vegna aðeins verið að sinna skyldum sínum með emb- ættisfærslum sínum í þessu máli. Að gæta almannahagsmuna en ekki sérhagsmuna. Sérlega kostulegt hefur Víkverja þótt að sjá formann samgöngunefndar Aiþingis beita sér í þessu máli, en honum sýnist bersýnilega ekki ástæða til útboða af þessu tagi í samgöngumálum þjóðarinnar og þaðan af síður sýnist honum ástæða til að taka bestu til- boðunum sem bjóðast. Það virðist nefnilega ekki sama hverjir standa á bak við tilboðin. XXX SANNLEIKA sagt finnst Vík- verja að nú sé tími kominn til að menn taki á þessu málum af skyn- semi og raunsæi og láti tilfinninga- semina lönd og leið. Samskip hf., skipafélag sem haft hefur nokkra starfsemi í Eyjum um skeið og veitt fólki þar vinnu, mun nú koma að rekstri ferjunnar milli lands og Eyja og vitaskuld er keppikefli þess fyrirtækis að haga rekstrinum vel og í sátt og samlyndi við bæjarbúa - tryggustu viðskiptavini sína. En á Islandi nútímans hlýtur að vera úr- eltur hugsunarháttur að aðgreina landslýð í „heimamenn" og „að- komumenn“ og draga menn síðan í dilka eftir hvorum hópnum þeir til- heyra. Hér á landi sem og annars staðar hlýtur einfaldlega hæfni að koma fyrst og fremst til álita. xxx AÐ verður spennandi að fylgj- ast með þróun efnahagsmála á næstunni, en fjármálafyrirtæki hafa mörg hver spáð aukinni verð- bólgu í ritum sínum að undanförnu. Víkverji minnist þess að vísitala neysluverðs hafi hækkað mjög verulega milli mánaðanna septem- ber og október, eða um 1,1%, og því munu vísast margir bíða spenntir yfir næsta útreikningi sem verður 10. þessa mánaðar, eða í næstu viku. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og án húsnæðis um 3,1%. Und- anfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,7%, sem jafngildir 2,8% verðbólgu á ári. Það er því að mörgu að hyggja fyrir þá sem eru að velta fyrir sér stórum fjármála- ákvörðunum þessi dægrin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.