Morgunblaðið - 21.11.2000, Side 10

Morgunblaðið - 21.11.2000, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ný lög um fæðingar- og foreldraorlof koma til framkvæmda um áramdtin Breytingin mun kosta ríkissjóð 3 milljarða á ári NÝ lög um fæðingar- og foreldraor- lof, sem tóku gildi í sumar, koma til framkvæmda um áramótin. Á blaða- mannafundi um nýju lögin, sem haldinn var í gær, sagði Páll Péturs- son félagsmálaráðherra að um væri að ræða stórt skref í átt að jafnrétti bæði milli kynjanna og á vinnumark- aðnum sjálfum, þar sem nú væri engin munur á rétti fólks eftir því hvar það ynni. Hann sagði að kostn- aður ríkissjóðs vegna breytinganna væri um 3 milljarðar á ári, en sú tala miðast við árið 2003 þegar breyting- amar verða allar komnar til fram- kvæmda. „Karlar hafa samkvæmt þessu meiri rétt heldur en að við vitum til að þeir haíi annars staðar í heimin- um,“ sagði Páll. „I samanburði við Norðurlöndin þá hafa konurnar meiri rétt þar, en karlarnir hafa ekki jafn rúman rétt þar og þeir hafa hér.“ Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, var sammála Páli og sagði að um gríðar- lega stórt stökk væri að ræða. Markmið laganna er að tryggja bami samvistir bæði við föður og móður og er þeim ætlað að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Lögin taka til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðing- ar- og foreldraorlofs og eiga þau við um foreldra sem em starfsmenn eða sjálfstætt starfandi. Lögin taka einnig til réttinda foreldra utan vinnumarkaðar og í námi til fæðing- arstyrks. Rétturinn til fæðingar- og for- eldraorlofs á við hvort sem um er að ræða fæðingu bams, ættleiðingu eða töku bams í varanlegt fóstur. Lengt fæðingarorlof við Qölburafæðingar Samkvæmt lögunum eiga foreldr- ar sjálfstæðan rétt til þriggja mán- aða hvort um sig og er sá réttur ekki framseljanlegur milli foreldra. Til viðbótar eiga foreldrar sameiginleg- an rétt til þriggja mánaða og þeim rétti geta þeir hagrætt milli sín að eigin vild. Þegar um er að ræða fjöl- burafæðingar eiga foreldrar rétt á lengingu fæðingarorlofs um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt, en réttur til fæðingarorlofs fellur niður er bam nær 18 mánaða aldri. Páll sagði að samkvæmt lögunum ykist sjálfstæður réttur föður til fæð- ingarorlofs, þannig að 1. janúar 2001, yrði hann einn mánuður, tveir mán- uðir frá og með 1. janúar 2002 og þrír mánuðir frá og með 1. janúar 2003. Hann sagði að feður öðluðusthins vegar strax um næstu áramót hinn sameiginlega rétt til fæðingarorlofs. Átta vikum áður en foreldri ætlar í fæðingarorlof þarf það að tilkynna vinnuveitanda sínum um fyrirhugaða tilhögun þess. Geti vinnuveitandi ekki fallist á óskir starfsmanns skal hann að höfðu samráði við starfs- mann leggja til aðra tilhögun innan viku frá móttökudagsetningu til- kynningar. Sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag þarf foreldrið að sækja um greiðslur til Tryggingastofnunar ríksins, þannig að ef foreldri á að eignast barn nú í byrjun janúar þarf það að sækja um greiðslur til Trygg- ingastofnunar, sem fyrst, því nú em um sex vikur til áramóta. 80% af meðaltali heildarlauna Páll sagði að foreldri á vinnumark- aði sem færi með forsjá barns síns ætti rétt á fæðingarorlofi. Forsjár- laust foreldri ætti rétt á fæðingar- orlofi lægi fyrir samþykki þess for- eldris sem færi með forsjá barnsins um umgengni í fæðingarorlofi. Hann sagði að foreldri ætti ekki rétt ef t.d. móðir kysi að feðra ekki bamið, ef foreldrið sem færi með forsjá neitaði forsjárlausa foreldrinu um rétt að fæðingarorlofi og ef foreldrið væri í útlöndum. Foreldrar sem hafa verið samfellt í sex mánuði á vinnumarkaði í a.m.k. 25% starfi fyrir upphafsdag fæðing- arorlofs eiga rétt á 80% af meðaltali heildarlauna. Tryggð er áframhald- andi uppsöfnun tiltekinna réttinda meða fæðingarorlofí stendur. For- eldri greiðir áfram í lífeyrissjóð og greiðir fæðingarorlofssjóður lög- bundið framlag á móti. Fæðingar- orlofssjóður, sem er í vörslu Trygg- ingastofnunar ríkisins, annast greiðslur til foreldra, en sjóðurinn er fjármagnaður með tryggingagjaldi. Fæðingarorlof reiknast einnig til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum s.s. rétti til orlofstöku og lengingar orlofs samkvæmt kjara- samningum, mat á rétti til starfsald- urshækkana, veikindaréttar, upp- sagnarfrests og réttar til atvinnu- leysisbóta. Foreldrar utan vinnumarkaðar, í minna en 25% starfi eða í fullu námi, eiga sjálfstæðan rétt til fæðingar- styrks í allt að þrjá mánuði hvort um sig, en sá réttur er ekki framseljan- legur milli foreldra. Til viðbótar eiga foreldrar sameiginlegan rétt á fæð- ingarstyrk í þijá mánuði og þeim rétti eiga foreldrar kost á að hagræða milli sín. Páll sagði að réttur foreldris á vinnumarkaði væri háður því að það legði niður launuð störf á meðan, þ.e. foreldri getur ekki unnið annars staðar á meðan það er í fæðingar- orlofi. 13 vikna foreldraorlof Á fundinum í gær vakti Páll einnig athygli á svokölluðu foreldraorlofi. Foreldri á rétt á foreldraorlofi í allt að 13 vikur, en um er að ræða launa- laust oriof. Heimilt er að taka for- eldraorlof allt frá fæðingu bams og til 8 ára aldurs. Rétturinn, sem nær einnig til forsjárlausra foreldra er, ólíkt fæðingarorlofinu, ekki framselj- anlegur milli foreldra. Starfsmaður sem hyggst nýta sér rétt til foreldra- orlofs skal tilkynna það vinnuveit- anda eins fljótt og kostur er eða í síð- asta lagi sex vikum fyrir fyrirhugaðan upphafsdag foreldraor- lofs. Vinnuveitandi á rétt á að fresta or- lofi í allt að sex mánuði geti hann ekki fallist á óskir starfsmanns um tilhög- un þess. Frestun er hins vegar ein- göngu heimil þegar fyrir hendi eru Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson Burt með tjöruna TJARAN er fylgifiskur nagladekkjanna og sem slík ör- Tjöruleysir er því rnikið þarfaþing áður en þvegið er og uggt merki þess að vetur er genginn í garð þótt snjór- ekki er ónýtt að geta þvegið utandyra eins og viðrað inn láti bíða eftir sér, að minnsta kosti sunnanlands. hefur undanfarið. Morgunblaðið/Kristinn Markmið nýrra laga um fæðingar- og foreldraorlof er að tryggja barni samvistir bæði við föður og móður. Frá vinstri: Karl Steinar Guðnason, for- stjóri Tryggingastofnunar ríkisins, og Páll Pétursson félagsmálaráðherra. sérstakar aðstæður í rekstri viðkom- andi fyrirtækis eða stofnunar. Óheimilt er að fresta foreldraorlofi sem er í beinu framhaldi af fæðing- arorlofi eða af barn veikist svo nær- vera foreldris er nauðsynleg. Það er s.s. heimilt að taka fæðingar- og for- eldraorlof í einu lagi og einnig má skipta því niður á fleiri en eitt tíma- bil, sem og taka það samhliða minnk- uðu starfshlutfalli. Sveigjanleikinn er háður samkomulagi við vinnuveit- anda. Óheimilt að segja starfsmanni upp Samkvæmt lögunum er ráðninga- sambandi vinnuveitenda og starfs- manns viðhaldið á orlofstímanum og starfsmanni því tryggður réttur til að hverfa aftur að starfi sínu að loknu fæðingar- eða foreldraorlofi. Sé þess ekki kostur skal hann eiga rétt á sambærilegu starfi hjá vinnu- veitanda í samræmi við ráðninga- samning. Þá er samkvæmt lögunum óheimilt að segja starfsmanni upp störfum vegna þess að hann hefur tilkynnt um að fara í fæðingar- eða foreldraorlof. Einnig er óheimilt að segja starfsmanni upp sem er í fæð- ingar- eða foreldraorlofi. Hægt er að nálgast það umsókn- areyðublað sem skila á til Trygg- ingastofnunar á heimasíðu stofnun- arinnar (http://www.tr.is) og það eyðublað sem skila á til vinnuveit- anda má nálgast á heimasíðu Sam- taka atvinnulífsins (http://www.- sa.is). Andlát KRISTÍN PETREA S VEIN SDÓTTIR KRISTÍN Petrea Sveinsdóttir, sem var elst íslendinga, lést í Reykjavík á laugardag- inn, rúmlega 106 ára að aldri. Kristín var fædd í Skáleyjum á Breiða- firði 24. ágúst 1894 og voru foreldrar hennar Sveinn Pétursson og Pálína Tómasdóttir. Kristín giftist Berg- sveini Finnssyni árið 1920 og hófu þau bú- skap í Gufudal í Barða- strandarsýslu, þar sem þau bjuggu til ársins 1952 er Berg- sveinn lést. Kristín og Bergsveinn eignuðust átta börn og eru sjö þeirra á lííí, en alls á Kristín yfir 120 afkomendur. Nokkrum árum eft- ir andlát Bergsveins fluttist Kristín til dóttur sinnar í Reykjavík. Þar vann hún lengst af hjá fisk- verkuninni Júpíter og Mars eða þar til hún var komin fast að átt- ræðu. Síðustu árin bjó Kristín á Hrafnistu í Reykjavík. Hún var vel em og hafði fótavist þar til undir það síðasta. Kristin verður jarðsett í Gufudal á laugardaginn kemur, 25. nóvem- ber, klukkan 14. KATLA PÁLSDÓTTIR KATLA Pálsdóttir lést síðastliðinn laugardag, 18. nóvember, á hjúkr- unarheimilinu Eir Reykjavík, 85 ára að aldri. Katla fæddist í Reykjavík 17. desem- ber 1914 og var dóttir hjónanna Guðrúnar Indriðadóttur, sem var þjóðkunn leikkona, og Páls Steingrímssonar, ritstjóra Vísis um langt árabil. Afi Kötlu í móðurætt var Indriði Einarsson, rithöfund- ur. Katla gifist 29. júní 1939 Herði Bjarnasyni, arkitekt og fyrrum húsameistara ríkisins. Hörður Bjarnason lést 2. september 1990, en meðal verka hans má nefna Skál- holtsdómkirkju og Kópavogskirkju. Þar að auki lauk hann við hönnun Hallgrímskirkju að innan eftir fráfall Guð- jóns Samúelssonar, arkitekts kirkjunnar. Katla hafði mikinn áhuga á öllu menning- arlífi Reykjavíkur. Skipaði Þjóðleikhúsið stóran sess í lífi henn- ar, enda var Indriði afi hennar frumkvöðull að þeirri hugmynd að þjóðin eignaðist þjóð- leikhús. Um langt ára- bil missti Katla ekki af einu einasta leikverki sem sýnt var á fjölum Þjóðleikhússins. Katla og Hörður eignuðust tvö börn, Áslaugu G. Harðardóttur, sem er gift Jóni Hákoni Magnússyni, framkvæmdastjóra KOM ehf., og Hörð H. Bjarnason, sendiherra í Stokkhólmi, sem er kvæntur Áróru Sigurgeirsdóttur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.