Morgunblaðið - 21.11.2000, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 21.11.2000, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 67 Stjórnmála- fræðing-ar funda FÉLAG stjórnmálafræðinga held- ur félagsfund í húsnæði Reykjavík- urAkademíunnar á Hringbraut 121, miðvikudaginn 22. nóvember kl. 21. Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, sem nýlega lauk doktorsprófi í stjórn- málahagfræði frá Washington Uni- versity í St. Louis í Bandaríkjun- um, verður gestur fundarins og mun hún kynna doktorsverkefni sitt sem fjallaði um fiskveiðideilur Islands og Noregs og um þá samn- inga sem ísland hefur gert við Noreg og önnur ríki sl. tvo áratugi um veiðar á deilistofnum. Niðurstöður sýndu að innan- landsstjórnmál skipta verulegu máli á gang samningaviðræðna og að hagsmunasamtök á Islandi hafa enn sterk ítök í stjórnkerfinu og þ.a.I. á samningaferlið en dregið hefur úr mætti hagsmunasamtaka í Noregi. Þetta hefur haft þau áhrif að þeir fiskveiðisamningar sem Is- land hefur gert hafa verið hag- stæðir, segir í fréttatilkynningu. Áslaug lauk prófi í blaða- mennsku og stjórnmálafræði frá Háskólanum í Missouri árið 1990, hún hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu en gegnir nú rannsóknarstöðu við Harvard-há- skóla í Bandaríkjunum. Léttar veitingar verða á boðstól- um. Fræðslu- fundur um uppgræðslu VILHJÁLMUR Lúðvíksson fram- kvæmdastjóri Rannsóknarráðs ís- lands flytur þriðjudaginn 21. nóvem- ber kl. 20 erindi í Norræna húsinu er hann nefnir „Að breyta landi“. Vilhjálmur er kunnur áhugamað- ur um skóg- og trjárækt svo og garð- rækt. Hann hefur ásamt fjöldskyldu sinni ræktað upp landsvæði í ná- grenni Reykjavíkur. Vilhjálmur mun í máli og myndum segja frá reynslu sinni af ræktun ýmissa trjátegunda við erfið skilyrði. Fræðslufundurinn er öllum opinn og er aðgangseyrir 300 krónur. Gagnrýna stjórnvöld vegna kenn- araverkfalls EFTIRFARANDI ályktun var sam- þykkt í stjórn Kjördæmisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík á fundi sem haldinn var 16. nóvember sl.: „í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks hefur í síauknum mæli komið í ljós sú stefna að skólakerfið skuli svelt til hlýðni við einkavæðingarstefnuna. Svo- nefndum einkaskólum hefur verið hyglað með ríkisframlagi sem þeir fá auk skólagjalda og hafa því svigrúm til að skapa þeim sem þegar búa við betri kjör enn betri skilyrði við nám og störf en almenningur í landinu nýtur. Hugmyndir menntamálaráð- herra um ríkisstyrktan „hraðbraut- arskóla" er nýjasta varðan á þessari leið. Stjórn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík lýsir fullri ábyrgð á ríkjandi ófremdar- ástandi á hendur ríkisstjórnarinnar og krefst þess að gengið verði tafar- laust til raunhæfra samninga við kennara þannig að almennri mennt- un í landinu verði sköpuð skilyrði til að efla þann mannauð sem nauðsyn- legur er framtíð þjóðarinnar." Kvöldvaka hjá Ferðafé- lagi Islands FERÐAFÉLAG íslands efnir til kvöldvöku í F.í.-salnum miðviku- dagskvöldið 22. nóvember kl. 20:30. Þar fjallar Jón Viðar Sig- urðsson um Grænland í máli og myndum. Jón Viðar hefur ferðast um Grænland gangandi að sumri og vetri og myndirnar, sem hann ætl- ar að sýna á miðvikudaginn, voru teknar á árunum 1994-1999 á ferð- um hans vítt og breitt um Græn- land. Þær eru úr gönguferðum í byggð og óbyggðum að sumarlagi og á gönguskíðum að vetrarlagi. Allir eru velkomnir á kvöldvökur Ferðafélags íslands, aðgangseyrir er 500 krónur og kaffiveitingar eru í hléi. Funda- ferð • • Ossurar og Mar- grétar ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar- innar og Margrét Frí- mannsdóttir, varafor- maður, kynna leið Samfylkingarinnar í fundaferð dagana 20,- 25. nóvember. Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum: Þriðjudaginn 21. nóvem- ber Sal Sveinafélagsins, Tjarna- götu 7, Reykjanesbæ kl. 20, mið- vikudaginn 22. nóvember, Deiglunni Akureyri kl. 20, fimmtudaginn 23. nóvember Hót- el Selfossi, Norðursal, kl. 20, og laugardaginn 25. nóvember Korn- hlöðuloftinu Reykjavík, kl. 12. Allir eru velkomnir á fundina. Össur og Margrét heimsækja vinnustaði og stofnanir á ofan- töldum stöðum. Mót lands- vinafélaga' haldið ANNAÐ mót landsvinafélaga verður haldið á morgun, miðvikudag. Þar munu eftirfarandi félög kynna stefnu sína og starfsemi: Tælenska félagið, Víetnamska-íslenska félagið, Filippínska-íslenska félagið, Vin- áttufélag íslendinga og Pólverja, fé- lagið Island-Palestína, Indlands- vinafélagið og Vináttufélag íslands og Kanada. Ennfremur mun Kristniboðssam- bandið kynna starfsemi sína í Kenýa. Að lokum mun Upplýsinga- og menningarmiðstöð nýbúa í Reykja- vík kynna starfsemi sína, segir í fréttatilkynningu. Mótið er haldið á vegum Vináttu- félags íslands og Kanada í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102, kl. 19. Opinn fundur og aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Málþing um sérfræðiþekk- ingu í hjúkrunarstarfínu MÁLÞING verður haldið á veg- um Rannsóknarstofnunar í hjúkr- unarfræði í samstarfi við Heilsu- gæsluna í Reykjavík, Landspítala - háskólasjúkrahús og Hollvina- félag hjúkrunarfræðideildar Há- skóla Islands. Haldið á Grand Hótel fimmtudaginn 23. nóvem- ber kl. 13-17. Dagskráin hefst á erindi dr. Guðrúnar Kristjánsdóttur, dós- ents við Háskóla íslands: Hvað er sérfræðiþekking. Að þvi loknu verða flutt erindin: Hvað er sér- fræðiþekking? Dr. Hrafn Óli Sig- urðsson, hjúkrunarframkvæmd- astjóri Landspítala-Fossvogi. Sérþekking í hjúkrun á íslandi Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, klín- ískur sérfræðingur og Hrund Sch. Thorsteinsson, hjúkrunar- framkvæmdastjóri Landspítala - Hringbraut. Veggjalaus þekking- arnotkun. Margrét Magnúsdóttir, fræðslustjóri hjúkninarsviðs Heilsugæslunnar í Reykjavík. Sérfræðiviðurkenning í hjúkrun: Stefna hjúkrunarráðs Dr. Herdís Sveinsdóttir, dósent, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. Þörfin fyrir sérfræðiþekk- ingu í heimahjúkrun. María Kristinsdóttir, deildarstjóri í heimahjúkrun á Heilsugæslustöð- inni Efra Breiðholti. Að starfa sem klínískur sérfræðingur Sig- ríður Sía Jónsdóttir, yfirljósmóð- ir Heilsuverndarstöð Reykjavík- ur. Nýtist sérfræðiþekking sjúklingum? Lovísa Baldursdótt- ir, klínískur sérfræðingur, Land- spítala - Hringbraut Á eftir kaffihléi flytur Þóra Árnadóttir, hjúkrunardeildar- stjóri gigtardeild, Landspítala - Hringbraut erindi um Þróun sér- þekkingar á eigin spýtur og Ey- rún Jónsdóttir, umsjónarhjúkr- unarfræðingur, neyðarmóttöku vegna nauðgunar, Landspítala- Fossvogi flytur erindið: Þróun sérþekkingar í hjúkrun í gegnum aðrar fræðigreinar. Að því loknu verða pallborðs- umræður: Þörf fyrir sérfræði- þekkingu í framtíðinni Stjórn- andi: Helga Jónsdóttir, dósent Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar- forstjóri Landspítala - háskóla- sjúkrahúsi, Anna Birna Jensdótt- ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri Landspítala - Túngötu, Eydís Sveinbjarnardóttir, sviðstjóri hjúkrunar Landspítala - Kleppi, Marga Thome, deildarforseti hjúkrunarfræðideildar, Ragn- heiður Haraldsdóttir, skrifstofu- stjóri heilbrigðisráðuneytinu og Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrunar- forstjóri Heilsugæslunni í Reykjavík. Fundarstjóri er Vilborg Ing- ólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðing- ur hjá Landlæknisembættinu og formaður Hollvinafélags hjúkrun- arfræðideildar Háskóla íslands. Þátttaka skráist á skrifstofu Hjúkrunarfræðideildar, í tölvu- pósti ingainga@hi.is. Hámarks- fjöldi er 120 manns. Ráðstefnu- gjald er 1.000 kr. SABAL rir blöðruhálskirtilinn ABAL Sabal inniheldur fjögur virk efni sem eru góö fyrir blööruhálskirtilinn: þykkni úr freyspálma, þykkni úr graskersfræsolíu, náttljósarolíu og þykkni úr blómafrjókornum. Sabal fyrir menn eftir miðjan aldnr náttúrulega Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi MECALUX Fullkomið kerfi með heildarlausn fyrif lagerrymið , UMBOÐS- OG HEILDVERSL UN | Sfeaa»Bar t AUBBREKKU 1 200 KÓPAVOGI SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335 | www.straumur.is |
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.