Morgunblaðið - 21.11.2000, Side 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 35
Að eiga sér stund í
fallegum og nátt-
úrulegum söng
TONLIST
L a n g h o 11 s k i r k j a
BARNAKÓRS-
TÓNLEIKAR
Gradualekór Langholtskirkju,
Graduale Nobilis og Skólakór
Kársness fluttu íslenska dagskrá á
vegum Tónskáldafélags íslands.
Stjórnendur: Þórunn Björnsdóttir
og Jón Stefánsson Undirleikarar:
Lára Bryndís Eggertsdóttir og
Marteinn H. Friðriksson. Föstu-
daginn 17. nóvember.
TÓNSKÁLDAFÉLAG íslands, í
samvinnu við Reykjavík - menning-
arborg Evrópu árið 2000, stóð fyrir
tónleikum þar sem tekin voru til
flutnings íslensk tónverk, samin fyr-
ir barnakóra, er spanna tímann frá
seinni hluta til loka síðustu aldar.
Barnakórar gegna stóru hlutverki í
menningaruppeldi unga fólksins og á
því sviði hafa íslenskir tónlistarmenn
náð ótrúlegum árangri á sl. þrjátíu
árum og auk þess hafa íslensk tón-
skáld lagt þessu starfi til mörg og
góð viðfangsefni.
Tónleikarnir hófust með söng
Gradualekórs Langholtskirkju, und-
ir stjórn Jóns Stefánssonar, á sér-
lega fallega gerðum og sönglega ein-
földum þremur sálmum eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, við texta
eftir Kristján Val Ingólfsson, undir
fyrirsögninni Sálmar um lífið og ljós-
ið. Fyrir utan þýðleika verkanna
liggja þau á þægilegu hljómsviði
barnaraddanna og syngjast því sér-
lega vel.
Jólalagið hennar Jórunnar Viðar
og Stefáns frá Hvítadal er yndisleg
tónsmíð og var einstaklega fallega
flutt og þar kom einnig til þýður
flautuleikur Vigdísar Sigurðardótt-
ur. Hundraðasti Davíðssálmur var
viðfangsefni Tryggva M. Baldvins-
sonar í glæsilegu og stóru tónverki
fyrir barnakór og orgel og var flutn-
ingur þessa verks frábærlega mótað-
ur af kór og orgelleikaranum Láru
Bryndísi Eggertsdóttur.
Skólakór Kársness, undir stjórn
Þórunnar Bjömsdóttur og við undir-
leik Marteins H. Friðrikssonar,
flutti eins konar samantekt kórlaga,
alls 16 lög, er spannaði tímann frá
Grýlukvæði Jóns Þórarinssonar,
sem fyrir fjörutíu árum þótti allt of
nútímalegt fyrir börn en er nú orðið
klassík, til laga sem unga fólkið í
skólakórnum hefur samið: Tímamót,
eftir Harald V. Sveinbjörnsson, Lof-
söngur eftir Þóru Marteinsdóttur og
síðasta lagið Sköpun, fæðing, skírn
og prýði, þar sem Helgi Guðmunds-
son tónsmíðanemi valdi sér fimmta
erindið úr Lilju Eysteins munks til
að tónklæða. Þessi lög voru öll fal-
Iega mótuð, sum gædd töluverðri
dulúð og mjög vel flutt.
Graduale Nobili er nýstofnaður
kór, skipaður söngfólki á aldrinum
17-23 ára, er var í Gradualekórnum.
Graduale Nobili er frábærlega góður
kór og söng hann nýjustu tónverkin,
eftir Mist Þorkelsdóttur, Hildigunni
Rúnarsdóttur, Hróðmar Inga Sigur-
björnsson og Jón Nordal, allt tölu-
vert erfið verk, sem kórinn söng af
mikilli prýði, bæði hvað varðar radd-
gæði og tónstöðulegt öryggi.
Tónleikunum lauk með samsöng
allra kóranna, fyrst með Te Deum
eftir Þorkel Sigurbjörnsson, þá
Jónasarlögunum eftir Atla Heimi
Sveinsson og síðast söngdönsum í
gerð undirritaðs. Söngur kóranna
var í einu orði sagt glæsilegur og
sérstaklega var athyglisvert hversu
Jónasarlögin eftir Atla voru vel
sungin og hvað þau voru elskulega
túlkuð af unga söngfólkinu. Það var
mikil reisn yfir þessum tónleikum og
þarna er unnið merkilegt grasrótar-
starf í menningaruppeldi unga fólks-
ins er hefur þýðingu langt út fyrir
þau mörk, sem einir tónleikar eru, og
á eftir að skila þjóðinni menningar-
menntuðu fólki til að takast á við
maskíneraða framtíð komandi tölvu-
aldar, þar sem nauðsynlegt getur
verið til mannbjargar að eiga sér
óvélvædda stund í fallegum og nátt-
úrulegum söng.
Jón Ásgeirsson
Oeirðir
í Ziirich
SKÚLPTÚRINN í forgrunni
myndarinnar nefnist „Riot,“
eða Óeirðir, og er eftir banda-
ríska listamanninn Duane Han-
son.
Óeirðir eru hluti sýningarinn-
ar „Hyper Mental" sem stendur
yfír í Art House safninu Ziirich
í Sviss þessa dagana, en verkin
á sýningunni segir sýningar-
stjórinn Bice Curiger vera
myndgervingu þess rökræna og
drökræna hugarástands sem
fólk upplifi í líflnu.
Ný geislaplata
• ÚT er komin geislaplata
með tónlist eftir Gusgus, Bix
og Daníel Agúst úr dansverk-
inu Diaghilev: Goðsagnirnar
eftir Jochen Ulrich sem Is-
lenski dansflokkurinn hefur
sýnt að undanförnu.
í fréttatilkynningu segir:
„Evrópska danstímaritið Ballet
Tanz International kallaði
verkið „veislu fyrir augað“ en
sýningin vakti meðal annars
athygli fyrir nýstárlega með-
ferð á tónlist Gusgus, Bix og
Daníels Ágústs. Höfundur
verksins, Jochen Ulrich, fékk
til liðs við sig þá félaga en not-
ast auk þess við verk eftir tón-
skáld eins og Henryk Górecki,
Giya Kancheli. Lögin á plöt-
unni eru ýmist ný eða endur-
hljóðblönduð fyrir sýninguna
og Daníel Ágúst Haraldsson
flytur flest þeirra á sviðinu.
Síðasta sýning á Diaghilev:
Goðsagnirnar á Islandi verður
nk. sunnudag, 26. nóvember á
stóra sviði Borgarleikhússins."
Þeir sem bóka ferðina frá
mánudegi til fimmtudags fyrir
20. janúar, geta tryggt sér
8.000 kr. afslátt á mann.
fýúr þá béM fýúr 20. jantiar
notnum, borgin er einstok og a engan smn lika í hvropu. Borgin var stærsta || j
og ríkasta borg Evrópu á 14. og 15. öld, menningarhjarta Evrópu, og hún er Vv /
ótrúlegur minnisvarði um stórkostlega byggingarlist og menningu. Hér -
frumflutti Mozart Don Giovanni óperuna, hér hélt Beethoven reglulega
tónleika, hér sátu Kafka og Einstein við skriftir og Mahler við tónsmíðar. Tékkar hafa notað
timann vel undanfarin ár og til borgarinnar streyma nú yfir 7 milljónir ferðamanna á hverju
ári enda er hún tvímælalaust ein fegursta borg heimsins. Hradcany kastalinn gnæfir yfir
borgina, hið gamla stjómarsetur konunga allt
ffá níundu öld og nú aðsetur forsetaskrifstofu
Havels. Gamla bæjartorgið, tunglklukkan,
Karlsbrúin, Wenceslas torgið, allt em þetta
ógleymanlegir borgarhlutar. Heimsferðir bjóða
nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari
ótrúlegu borg. í boði em góð 3ja og 4ra stjömu
hótel og spennandi kynnisferðir um kastalann
og gamla bæinn þar sem þú kynnist ótrúlega
heillandi mannlífi á milli þess sem þú eltir
óendanlega rangala gamla bæjarins með
íslenskum fararstjómm Heimsferða.
Heimsferðir
Flugoghötel. Skattar kr. 2.820, ekki innifaldi
Flug fimmtudaga og
mánudagaí
mars og apríl
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is