Morgunblaðið - 21.11.2000, Page 15

Morgunblaðið - 21.11.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ___________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Skipulagsnefnd hafnar umfiöllun um tillögu um viðbyggingar við Lækjarskóla Hafnarfjörður Vill ekki fá kynningu höfundar á tillögunni SKIPULAGS- og umferðar- nefnd Hafnarfjarðar hefur samþykkt að vinna ekki frek- ar á grunni tillögu bæjarfull- trúa Samfylkingarinnar um viðbyggingar við Lækjar- skóla til að koma á einsetn- ingu skólans. Nefndin hafnaði því að fá höfund tillagnanna á fund sinn til að kynna þær. Bæjarráðsfulltrúar Samfylk- ingarinnar lögðu fram harð- orða bókun vegna afgreiðsl- unnar á síðasta fundi bæjarráðs og Lúðvík Geirs- son, bæjarfulltrúi, segist búast við talsverðum umræð- um um málið á bæjarstjórnar- fundi í dag. Hart hefur verið deilt í Hafnarfirði undanfarna mán- uði um áform memhluta bæj- arstjórnar um byggingu nýs skóla í grennd við Hörðuvelli, sem kæmi í stað Lækjarskóla, sem enn er tvísetinn, og ætti einnig að greiða fyrir einsetn- ingarmálum í Setbergshverfi. Þúsundir bæjarbúa hafa skrifað á undirskriftalista til að mótmæla áformunum en foreldrafélög Lækjarskóla hafa lýst stuðningi við þau. Bæjarfulltrúar Samfylkingar- innar kynntu í síðasta mánuði hugmyndir, sem Friðrik Frið- riksson, arkitekt hefur hann- að fyrir Samfylkinguna, og gera ráð fyrir nýbyggingum og endurbótum á núverandi skólasvæði við Lækinn. Jafn- framt vill Samfylkingin að byggður verði skóli fyrir yngsta stig grunnskólans í Setbergshverfi til að leysa úr tímabundinni þörf fyrir skóla- rými í því hverfi. Bæjarráð fól skipulags- og umferðarnefnd bæjarins, leikskóla- og gnmnskóla- nefnd og bygginganefndum menntastofnana að fjalla um hugmyndirnar og var málið afgreitt frá skipulags- og um- ferðarnefnd á fundi sl. þriðju- dag. I fundargerð nefndai"innar kemur fram að fulltrúar Sam- fylkingarinnar í nefndinni hafi gert að tillögu sinni að Friðrik Friðrikssyni yrði boðið á fund nefndarinnar og annarra ráð- gjafanefnda til að kynna til- löguna. Þegar meirihluti nefndarinnar felldi þá tillögu með 3 atkvæðum gegn tveim- ur lét minnihlutinn bóka að óábyrgt sé af hálfu nefndar- innar að hafna frekari út- færslu þegar ljóst sé að tillagan fullnægi öllum skil- yrðum og sé ódýrari, fljótlegri í framkvæmd og hagkvæmari en áform um uppbyggingu á Hörðuvöllum en 40% atkvæð- isbærra kjósenda í Hafnar- firði hafi hafnað þeim áform- um. Ekki fýsilegur kostur Þessari bókun svaraði meirihlutinn með tillögu, sem var samþykkt með þremur at- kvæðum gegn tveimur um að nefndin telji tillöguna ekki fýsilegan kost sem lausn á einsetningu Lækjarskóla og leggi til að ekki verði frekar unnið á grunni hennar. Þessi afgreiðsla skipulags- og umferðarnefndar kom tii umfjöilunai' í bæjarráði á fimmtudag og þar lögðu full- trúar Samfylkingarinnar fram bókun þar sem segir að það lýsi hvorki lýðræðislegum né faglegum vinnubrögðum skipulagsnefndar að koma í veg fyrir að höfundar tillögu að stækkun og endurnýjun Lækjarskóla fái tækifæri til að kynna hana fyrir skipu- lagsyfirvöldum bæjarins. Sleggjudómar og pólitísk þröngsýni til vansa „Vinnubrögð sem ein- kennast af sleggjudómum og pólitískri þröngsýni eru síst til þess fallin að vekja traust á starfi og stefnu meirihluta bæjarstjórnar í skipulags- nefnd,“ segir í bókuninni., Af- staða meirihluta Sjálfstæðis- ílokks og Framsóknarflokks í þessu máli er viðkomandi til vansa og sýna með skýrum hætti að meðal ráðamanna meirihlutans er hvorki vilji né áhugi á því að skoða aðra möguleika við einsetningu Lækjarskóla en þá tillögu sem þúsundir bæjarbúa hafi þegar lýst fullri andstöðu við.“ Lúðvík Geirsson, bæjarfull- tníi Samfylkingarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekki væri lagt upp með litla hraðahindrun í skipulags- nefnd að þrír sérfræðingar væru ekki fengnir á fund til að kynna tillögur sínar og af- greiðslan sýni að meirihlutinn hyggist loka á umræðu um aðra kosti og leiðir í málum Lækjarskóla og Hörðuvalla. „Ég tel að skipulagsnefndin hafi hlaupið á sig,“ sagði Lúð- vík og sagði að málið yrði tek- ið upp á bæjarstjórnarfundi í dag og mætti búast við tals- verðum umræðum um það þar. Fyrst sveit- arfélaga með rafræn- ar umsóknir Garðabær GARÐABÆR hefur í sam- starfi við Form.is sett upp raf- ræn eyðublöð á heimasíðu sinni. Þar má sækja um leik- skólapláss, byggingarlóðir, húsaleigubætur og fleira. Garðabær er fyrstur sveitar- félaga til að bjóða þessa þjón- ustu þótt fleiri hafi gert samn- inga við Form.is, en sagt var frá samningi Hafnarfjarðar- bæjar við fyrirtækið í Morg- unblaðinu fyrir skömmu. Þeir Garðbæingar, sem hafa aðgang að nettengdri tölvu, þurfa að skrá sig fyrir heimasvæði hjá form.is og geta eftir það nálgast eyðu- blöðin á forsíðu Garðabæjar- vefjarins, gardabaer.is, og jafnframt fengið leiðbeiningar um hvernig hægt er að nota þjónustuna og síðan sent bænum erindi sín og umsókn- ir hvar og hvenær sem er og fengið rafræn svör send á heimasvæðið. A heimasíðu bæjarins kemur fram að ör- yggi samskiptanna sé það sama og þegar þjónusta banka og sparisjóða á Netinu er nýtt. Annir á dekkjaverk- stæðum Vesturbær MARGIR bfleigendur reyna að halda í sumarið eins og kostur er og draga í lengstu lög að skipta yfir á vetrar- dekk. Nú verður vetrarlegra um að litast með hverjum deginum og þvf er víða ör- tröð á dekkjaverkstæðum eins og myndin af plani hjól- barðaverkstæðisins við Ægi- síðu ber með sér. > Akvörðun borgarinnar um afnám forkaupsréttar félagslegra eignaríbúða Hundruð geta þegar selt íbúðir á markaði Reykjavík AKVÖRÐUN borgarstjórnar Reykjavíkur um að falla frá forkaupsrétti á félagslegum íbúðum þegar liðinn er sá tími sem kaupskylda hvílir á borginni hefur í for með sér að nokkur hundruð eigendur slíkra íbúða geta strax selt þær á frjálsum markaði. Nokkuð misjafnt er þó hvort fólk þarf að hafa átt íbúð sína í 10 eða 15 ár til að mega selja á frjálsum markaði. Þar ræður hvort íbúð er keypt fyrir eða eftir 1. júní 1990, þeir sem keyptu fyrir þann tíma þurfa að bíða í 15 ár en þeir sem eignuðust íbúðir sín- ar eftir að kaupskyldan var stytt í 10 ár með gildistöku laga hinn 1. júní 1990 geta selt íbúðir sínar á almennum markaði þegar 10 ár eru liðin frá gerð kaupsamnings. Að sögn Arnalds Bjarna- sonar, framkvæmdastjóra Húsnæðisskrifstofu Reykja- víkur, getur réttarstaða íbúðaeigenda í kerfinu verið með þrennum hætti eftir samþykkt borgarstjórnar, allt eftir því hvaða lög voru í gildi á þeim tíma þegar geng- ið var frá samningum um kaup núverandi eigenda á íbúðum sínum. Gagnvart þeim sem keyptu félagslegar eignaríbúðir á tímabilinu frá 1980 til 1. júní 1990 gildir að borgin hefur kaupskyldu í 15 ár. Það þýðii' að eignir, sem seldar eru á bilinu 20. nóvember 1985 til og með 31. maí 1990 eru enn háðar kaupskyldu og verða það uns 15 ár eru liðin frá undirritun kaupsamnings. Hinn júní 1990 tóku hins veg- ar gildi ný lög og samkvæmt þeim eru félagslegar eignar- íbúðir, sem seldar eru eftir þann tíma, aðeins háðar kaupskyldu sveitarfélaga í 10 ár. í þriðja lagi á það hins veg- ar við um allar félagslegar eignaríbúðir að ef þær eru seldar nauðungarsölu hefur sveitarfélagið kaupskyldu í 15 ár. Lagaumhverfið ræður „Þetta er lagaumhverfið, það er gildistaka laganna sem ræður því hvort kaupskyldan er 10 eða 15 ár,“ sagði Arn- aldur og kvaðst telja að breytingin, sem gerð var með lögunum frá 1. júní 1990 hefði verið gerð að frumkvæði sveitarfélaganna. I tillögunni, sem borgar- stjórn Reykjavíkur sam- þykkti, er jafnframt kveðið á um að ákvörðun um að falla frá forkaupsrétti eigi einnig við um eldri íbúðir, t.d. þær sem byggðar voni á vegum Byggingafélags verkamanna og síðar teknar inn í félags- lega íbúðakerfið. Fyrstu áhrif á nauðung- aruppboði í dag Arnaldur sagði aðspurður að húsnæðisskrifstofa borg- arinnar biði nú formlegrar staðfestingar borgarstjóra á samþykkt borgarstjórnar en hins vegar mun reyna á sam- þykktina strax í dag þegar fé- lagsleg eignaríbúð, sem hefur verið í eigu sama eiganda lengur en í 15 ár, verður seld á nauðungaruppboði. Fyrir ákvörðun borgarstjórnar hefði verið mætt fyrir hönd húsnæðisskrifstofunnar við uppboðið og íbúðin keypt á grundvelli forkaupsréttar, þótt kaupskylda væri ekki fyrir hendi. Arnaldur sagði hins vegar að nú mundi borg- in ekki hafa afskipti af upp- boðinu vegna hinnar nýju samþykktar. Arnaldur sagði að fram- kvæmd þess þegar eigendur félagslegra eignaríbúða, sem eru lausar undan kaupskyldu, selja íbúðir sínar á frjálsum markaði yrði þannig að leita þyrfti til húsnæðisskrifstof- unnar í hverju tilfelli og hafa kaupsamning sinn meðferðis. Áður þyrfti að vera búið að greiða upp öll þau lán úr op- inberum íbúðalánasjóðum sem á eigninni hvíldu. Ef svo væri gæfi húsnæðisskrifstof- an út yfirlýsingu um að borg- in hygðist ekki beita for- kaupsrétti. Þeirri yfirlýsingu þyrfti svo að þinglýsa hjá sýslumanni. „Þegar yfirlýs- ingin er komin í veðmálabæk- ur og búið að aflétta þinglýs- ingu hinna opinberu lána er hægt að ráðstafa eigninni á þann veg sem eigandinn ósk- ar,“ sagði Arnaldur og sagð- ist telja að menn ættu að geta náð kaupsamningum um eignirnar á almennum mark- aði þótt nýjum lánum yrði ekki þinglýst á eignirnar fyrr en hin eldri væru uppgreidd. Arnaldur sagði að nú væru 393 félagslegar eignaríbúðir hér utan forkaupsréttar en 2.754 íbúðir, sem hafa verið í innan við 15 ár í eigu núver- andi eigenda. 344 þeirra hafa verið í eigu núverandi eig- enda í 10-15 ár og einhverjar úr þeim hópi eru enn háðar ákvæðum um 15 ára kaup- skyldu en aðrar ekki. Fram hefur komið hjá Helga Hjörvar, formanni fé- lagsmálaráðs borgarinnar, að kaupskylda borgarinnar á fé- Iagslegum íbúðum stuðlar að fjölgun leiguíbúða á vegum borgarinnar þvi að þær íbúðir sem þannig eru innleystar verða gjarnan gerðar að fé- lagslegum leiguíbúðum. Arnaldur sagðist telja að ákvörðun borgarstjómar nú mundi breyta litlu um aðgang borgarinnar að nýjum félags- legum íbúðum. Á síðasta ári hefði borgin einungis innleyst sjö íbúðir sem verið höfðu í eigu eigenda sinna í 16-25 ár, innlausnin hefði fyrst og fremst tekið til íbúða innan kaupskyldunnar. Félagsbú- staðir hefðu einkum sóst eftir mikið veðsettum íbúðum til að kaupa sem leiguíbúðir því þannig nýttist fjármagn fyr- irtækisins og heimild til 90% veðsetningar betur. Það fjár- magn nýttist miklu verr á íbúðum sem eru að verulegu leyti uppgreiddar. Frá upphafi síðasta árs til og með 1. október sl. inn- leysti Reykjavíkurborg 245 félagslegar eignaríbúðir, þar af vom 54 tengdar biðlista eftir íbúðum á skilmálum eldra kerfis en við gildistöku nýrra húsnæðislaga árið 1998 vom enn margir handhafar úthlutana í eldra húsnæðis- kerfi á biðlista. Þeir hafa gengið fyrir við endurráðstöf- un innlausnaríbúða, að sögn Amalds. 99 íbúðanna sem eftir stóðu fóra til sölu á al- mennum markaði, 77 íbúðum var ráðstafað til Félagsbú- staða hf. sem félagslegum leiguíbúðum. Þar af hafði ver- ið gengið frá sölu 74 íbúða fyrir 441,3 m.kr. 15 íbúðir vora seldar kaupréttarhöfum í kaupleigukerfi. Samkvæmt upplýsingum Ai-nalds hafði verið gengið frá sölu 96 íbúðanna 99, sem seldar voru á frjálsum mark- aði, hjá fasteignasölu. Inn- lausnarverð þeirra hafði sam- tals numið 698,7 m.kr og 26,7 m.kr. hafði verið varið til end- urbóta, greiðslu fasteigna- gjalda, sölulauna og fleira. Söluverð eignanna á frjálsum markaði var 801,9 m.kr. og mismunurinn, sem rann til varasjóðs viðbótarlána, af þessum 96 íbúðum því um 76,5 m.kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.