Morgunblaðið - 21.11.2000, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐiÐ
Mikið hnútukast milli demókrata og repriblikana um helgina
Mörg atkvæði hermanna
óg’ild vegna formgalla
Washingf,on. AP, AFP.
Reuters
Repúblikaninn Marc Racicot, ríkisstjóri í Montana og náinn vinur
George Bush, á fréttamannafundi á laugardag. Hann gagnrýndi harka-
lega framkvæmd handtalningar atkvæða í nokkrum sýslum í Flórída.
Arabískar
konur
vilja auk-
in áhrif
EIGINKONUR ýmissa leið-
toga í arabaríkjunum luku í gær
fundi sínum í Kaíró með því að
hvetja til, að réttindi arabískra
kvenna yrðu aukin og þeim gert
auðveldara að taka þátt í opin-
beru lífi. Sagði í ályktuninni, að
engar raunverulegar framfarir
yrðu í arabaríkjunum nema með
þátttöku kvenna. Suzanne Mub-
arak, eiginkona Hosni Mubar-
aks, forseta Egyptalands, boð-
aði til fundarins en auk hennar
sátu hann eiginkonur níu ann-
arra arabaleiðtoga fyrir utan
aðra fulltrúa.
Gamlar hefðir og fordómar
eru konum fjötur um fót í mörg-
um arabaríkjum. Sem dæmi má
nefna, að í Sádi-Arabíu verða
konur að vera huldar frá hvirfli
til ilja á almannafæri og þær
mega ekki aka bfl. I Kúveit hafa
þær hvorki kosningarétt né
lqörgengi.
Charles
Ruff látinn
CHARLES Ruff, fyrrverandi
ráðgjafi Hvíta hússins, lést á
sunnudag 61 árs að aldri. Varði
hann Bill Clinton Bandaríkja-
forseta í málaferlunum vegna
Lewinsky-málsins og fékk hann
sýknaðan í öldungadeildinni.
Sagt er, að Ruff hafi látist af
völdum einhvers slyss á heimili
sínu en ekki var skýrt nánar frá
því.
Clinton minntist Ruffs mjög
hlýlega í gær en hann var fimmti
ráðgjafi Clintons á fjórum árum.
Að undanfomu hefur hann verið
A1 Gore varaforseta til aðstoðar
í þeim deilum, sem staðið hafa
um atkvæðatölur í Flórída.
CDU kýs
Meyer
KRISTILEGIR demókratar í
Þýskalandi samþykktu í gær
skipan Laurenz Meyers sem
nýs fram-
kvæmda-
stjóra flokks-
ins á fundi í
Stuttgart.
Tekur hann
við embætti
af Ruprecht
Polenz, sem
sagði af sér
eftir aðeins
sex mánaða
starf. Angela Merkel, formaður
flokksins, var óánægð með
frammistöðu Polenz, en hún
hefur sagzt binda vonir við að
Meyer geri stjómarand-
stöðumálflutning CDU hvass-
ari.
Estrada
fyrir rétt
ÖLDUNGADEILD Filipps-
eyjaþings hóf í gær réttarhöld
yfir Joseph Estrada, forseta
landsins, en hann er sakaður um
margvíslega spillingu. Skömmu
áður hafði forseti deildarinnar
úr flokki Estrada gengið til liðs
við stjómarandstöðuna. Eftir
sem áður er óvíst hvort meiri-
hluti er fyrir því í deildinni að
svipta Estrada embætti. Sjálfur
hefur Estrada sagt að hann
muni hh'ta niðurstöðu réttar-
haldanna.
LOGMENN stóm flokkanna tveggja
í Bandaríkjunum, demókrata og
repúblikana, héldu um helgina áfram
að deila harkalega um túlkun á laga-
bókstafnum meðan beðið var úr-
skurðar hæstaréttar Flórída um lög-
mæti handtalningar í nokkrum
sýslum. En jafnframt var skipst á
ásökunum um óheiðarleg vinnubrögð
og einkum vom repúblikanar ósáttir
við að í handtalningunni væri ákveðið
að taka gilda kjörseðla þar sem kjós-
andi hefði markað með pennaoddi í
reit fyrir frambjóðanda en ekki nógu
fast til að þar til gerður flipi í reitnum
losnaði. Talningavélar hlaupa yfir
slíka atkvæðaseðla, flipinn þarf að
hafa losnað frá seðlinum til að þær
skrái seðilinn.
Lögmenn Bush fúllyrtu á sunnu-
dag að lokafrestur fyrir talningu at-
kvæðaseðla væri löngu útmnninn í
Flórída og vitnuðu í lög til sönnunar
máli sínu. Talsmenn Gore varaforseta
sögðu á hinn bóginn að vegna ýmissa
mistaka við framkvæmd kosninganna
7. nóvember og fyrstu talningu ættu
sumar af sýslunum 67 rétt á að fá
lengri frest. Vitnuðu þeir í lagaá-
kvæði þar sem áherslan er á að tryggt
sé að vilji kjósanda komi fram. Einnig
fullyrða þeir að ákvæði um að grípa
mætti til handtalningar sé mikilvæg-
ur hluti kosningalöggjafarinnar í
Flórída og hafa bent á að hún sé
stundum notuð í kosningum í Texas
þar sem Bush er ríkisstjóri.
Repúblikanar gagnrýndu harka-
lega handtalninguna. Sögðu þeir að
mun meiri hætta væri á hvers kyns
mistökum en við véltalningu og gagn-
rýndu einnig að reglum sem talninga-
fólki bæri að fara eftir þegar vafaat-
kvæði kæmu í ljós væm mismunandi
eftir talningastöðum. Reglunum hefði
einnig verið breytt eftir að talningin
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
segir eðlilegt að báðir aðilar reyni
eftir megni berjast til þrautar þegar
munurinn á atkvæðatölum sé jafn lít-
ill og raunin er í forsetakosningun-
um. Kom þetta fram í viðtali CNN-
sjónvarpsstöðvarinnar við forsetann
á sunnudag en hann var þá staddur í
Hanoi, höfuðborg Víetnams.
Forsetinn sagði óréttmætt að
gagnrýna deiluaðila fyrir að reyna að
tína til öflugustu röksemdir sem þeir
fyndu.
„Hér er ekki um að ræða kreppu í
stjórnkerfi Bandaríkjanna, þessu
máli mun ljúka. Því mun ljúka nógu
snemma til þess að nýr forseti mun
hafa nægan tíma til að taka við. Til er
lausn á öllum þessum deilum og mál-
in eru öll til meðhöndlunar í réttar-
kerfinu. Og eins og ég sagði þá virð-
ist mér að þau fái vandaða umfjöllun.
Niðurstöðumar hafa verið á báða
vegu og við munum sjá hvað setur.“
Fréttamaðurinn benti á að sum
málin gætu endað á þingi sem yrði að
kveða upp úrskurð. Hann spurði
hvort ekki væri hætta á að næsti for-
seti myndi eiga erfitt uppdráttar í
embætti eftir svo illvígar deilur.
Clinton svaraði því til að hann hefði
sjálfur þurft að glíma við meirihluta
repúblikana á þingi en samt náð
mörgum mikilvægum málum í gegn
um þingið. Tekist hefði að útrýma
fjárlagahallanum og ná samstöðu um
hófst. Demókratar andmæla þeim
rökum andstæðinga sinn að handtaln-
ing sé ekki laus við villur fremur en
véltalning. Varaforsetaefni demókr-
ata, Joe Lieberman, sagðist á sunnu-
dag telja að repúblikanar væru reiðu-
búnir að gera allt sem þeir gætu til að
stöðva handtalninguna „vegna þess
að þeir eru aðeins hærri og óttast að
þeir verði það ekki að lokinni endur-
talningunni".
Segja stefnu demókrata
að „fresta öllu“
Öldungadeildarþingmaðurinn og
demókratinn Bob Graham sagði í gær
að handtelja bæri öll atkvæðin í Flór-
ída til að almenningur gæti verið viss
um að niðurstaðan væri í samræmi
við vflja kjósenda.
að lækka skuldir
þróunarríkja.
Forsetinn rifj-
aði upp að á 19.
öldinni hefði
Thomas Jeffer-
son ekki fengið
meirihluta kjör-
manna og for-
setakjörið því
þingsins. Jefferson hefði komið út úr
þeirri eldraun sem öflugra samein-
ingartákn en eUa.
„Ég held því að ástæðulaust sé
fyrir okkur að örvænta og vera með
allar þessar hrakspár... Auðvitað eru
talsmenn flokkanna öðru hverju
býsna hvassyrtir í garð andstæð-
ingsins en búast mátti við því. 100
milljónir manna kusu og munurinn í
Flórída er öðru hvorum megin við
1000 atkvæði.
Allir ættu því að slaka á og láta
máUð hafa sinn gang. En gerum ekki
fyrirfram ráð fyrir því að niðurstað-
an verði slæm fyrir Bandaríkin, án
tillits tfl þess hvor vinni. Hún gæti
orðið ágæt vegna þess að það gæti
orðið þörf lexía fyrir þjóðina að átta
sig á því að nýir tímar eru runnir
upp, enginn hefur einkaleyfi á sann-
leikanum, öll erum við að reyna að
átta okkur á framtíðinni,“ sagði for-
setinn.
Embættismaður í ljölmennustu
sýslunni, Miami-Dade, sagði að hand-
talningin gæti dregist fram í desem-
ber. Sagði þá einn af lögmönnum
repúblikana að stefna demókrata
væri „fresta öUu“ en talsmaður demó-
krata mótmælti því eindregið.
„Ég tel að þegar þjóðin fái að vita
hvemig aUt er í pottinn búið muni hún
spyrja sjálfa sig hvað sé eiginlega að
gerast,“ sagði Marc Racicot,
repúblikani og ríkisstjóri í Mont-
ana. Hann gaf í skyn að kjörseðlum
hefðu týnst, þeir verið flokkaðir rang-
lega og eyðUagðir af dauðþreyttum
embættismönnum eUegar talninga-
fólki sem styddi Gore. Racicot gaf
einnig í skyn að sums staðar hefðu
menn límt á ný pappírsflipa yfir gatið
á kjörseðU sem ella hefði verið taUnn
ÚTDRÆTTIR úr „Dagbók Helmuts
Kolils 1998-2000“ byijuðu að birt-
astíþýzkavikublaðinu Weltam
Sonntag um hclgina og dagblaðinu
Die Welt í gær. Þar sakar kanzlar-
inn fyrrverandi eftirmenn sína í
leiðtogasæti Kristilegra demókrata
(CDU), þau Wolfgang Schauble og
Angelu Merkel, um að hafa staðið
að samsæri um að bola sér út úr
stjómmálum.
„Já, égfærði 2,1 milljón marka
(andvirði um 80 mUljóna króna) tU
CDU framhjá hinu opinbera bók-
haldi og braut þar með gegn lögun-
um um starfsemi stjómmálaflokka.
Ég harma þessi mistök og mér þyk-
ir mjög leitt að hafa með þessu vald-
ið fiokki mínum pólitiskum skaða,“
lýsir Kohl yfír í bréfi til lesenda
atkvæði Bush. Chris Lehane, tals-
maður Gore, svaraði með því segja að
Bush hefði tekið upp stefnu „eitil-
harðrar og ósvífinnar flokkapólitíkur
í stöðu þar sem lögin ættu að vera
leiðarljósið“.
Þúsundir kjörseðla bárust frá
Flórídabúum búsettum erlendis og er
vitað að margir þeirra eru hermenn.
Sums staðar var fjölmörgum slíkum
póstatkvæðum vísað frá, þau talin
ógild. Var ástæðan oftast að ekki væri
póststimpill á umslaginu. Bob Dole,
íyrrverandi forsetaefni repúblikana,
kom fram í fréttaþætti CNN-sjón-
varpsstöðvarinnar á sunnudag og
gagnrýndi ákaft að hermenn fengju
ekki að taka þátt í forsetakjörinu á
grundvelli slíkra lagatúlkana. Hann
benti á að ekki færu menn á pósthúsið
til að fá stimpil ef þeir væru staddir á
herskipi úti á rúmsjó. Repúblikanar
hafa yfirleitt haft meira fylgi meðal
hermanna en demókratar. Þess má
geta að um 1.400 utankjörstaðaat-
kvæði voru úrskurðuð ógild, mörg
vegna skorts á póststimpli.
Deilan um hermannaatkvæðin varð
ekki einfaldari þegar demókratar
fullyrtu að Katherine Harris, innan-
ríkisráðherra Flórída og repúblikani,
hefði sjálf á sínum tíma gefið
fyrirmæli um að taka einvörðungu
gfld atkvæði sem væru í umslagi með
póststimpli. Harris er aðstoðarkosn-
ingastjóri Bush og hafa demókratar
sakað hana um að gæta ekki hlutleys-
is í embætti sínu. Hinn þekkti lög-
fræðingur Alan Dershowits hefur
tekið að sér að gæta réttar kjósenda í
Palm Beach-sýslu er telja sig hafa
ruglast í ríminu vegna illa hannaðs
kjörseðils og kosið í ógáti hægri-
manninn Pat Buchanan. Dershowits
hefur farið hörðum orðum um Harris
og kallað hana „þrjót“.
Welt am Sonntag. En þetta er eina
dæmið um sektarviðurkenningu og
sjálfsásökun sem finna má í skrifum
hans. Á fyrstu síðum dagbókarinnar
útfærir híinn nánar kenningar sínar
um samsæri þýzkra fjölmiðla, póli-
tískra andstæðinga - en þó ekki sízt
fyrrverandi samheija sinna
Scháuble og Merkel - um að eyði-
leggja pólitískan orðstír sinn.
Aréttar Kohl fyrri yfirlýsingar
sínar um að hann hafi aldrei þegið
mútur; það hafi aldrei gerzt að hann
hafi látið fjárframlög til flokksins
hafa áhrif á ncina ákvörðun sem
hann tók í 16 ára kanzlaratíð sinni.
Á aukaflokksþingi CDU í Stutt-
gart í gær gagnrýndi Merkel Kohl
fyrir að halda, að hann hafi liðið
mest fyrir leynireikningahneykslið.
Laurenz
Meyer
Clinton í viðtali við CNN
Astæðulaust
að örvænta
Reuters
Helmut Kohl ásamt Angelu Merkel á hátíðarfundi CDU fyrr í haust er
minnst var sameiningarinnar fyrir 10 árum.
Helmut Kohl
svarar fyrir sig