Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 270. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Handtalning vafaatkvæða stöðvuð í Miami-Dade vegna tímaskorts Bush lætur reyna á deilur fyrir hæstarétti landsins Washington. AP, AFP. ÞRIGGJA manna kjörstjóm í Mi- ami-Dade-sýslu í Flórída ákvað í gær að binda enda á handtalningu atkvæða í forseta- kosningunum þar eð ekki myndi takast að ljúka henni fyrir tilsett- an frest sem hæstiréttur Flór- ída hafði ákveðið, kl. tíu á sunnu- dagskvöld að ís- lenskum tíma eða í síðasta lagi 14 á mánudag. Demó- kratar og repúblikanar hafa höfðað fjölda dómsmála til að reyna að knýja fram sjónarmið sín og að sögn AP-fréttastofunnar í gærkvöldi ætl- ar George W. Bush að láta reyna á kröfu repúblikana um bann við handtalningu í Flórída fyrir hæsta- rétti Bandaríkjanna. Demókratar eru í meirihluta í kjörstjórninni í Miami-Dade og ákvörðun hennar síðdegis í gær að íslenskum tíma var mikið áfall fyrir A1 Gore varaforseta. Hann hafði gert sér vonir um að endurtalning í þrem sýslum og þá einkum hinni fjöl- mennu Miami-Dade myndi bæta stöðu hans og tryggja honum fleiri atkvæði en Bush og þannig alla kjör- menn Flórída, 25 talsins. Dick Cheney, varaforsetaefni Bush, fékk í gær vægt hjartaáfall og var lagður inn á sjúkrahús en Bush fullyrti á blaðamannafundi að Chen- ey væri ekki alvarlega sjúkur. Demókratar áfrýjuðu strax í gær ákvörðun kjörstjórnarinnar í Miami- Dade og munu reyna að fá dómara- úrskurð um að talning hefjist á ný. Um 654.000 manns greiddu atkvæði í Miami-Dade en kjörstjómin ákvað að láta aðeins telja vafaatkvæði sem voru um 10.000. Síðdegis í gær komst hún síðan að þeirri niðurstöðu að ekki ynnist tími til að ljúka verk- inu. Standi sú ákvörðun merkir hún að áður birtar, staðfestar tölur verði látnar gilda. Meirihluti Bush í Flór- ída var fyrir handtalninguna í þrem- ur af 67 sýslum sambandsríkisins um 930 atkvæði. Erfitt að úrskurða um vafaatkvæði Repúblikanar vilja að nokkur hundruð utankjörstaðaatkvæði, sem flest munu hafa komið frá herstöðv- um erlendis, verði úrskurðuð gild en þeim hafði áður verið vísað frá vegna þess að ekki var staðfest með póst- stimpli hvenær þau voru send af stað. Afstaða demókrata í málinu er enn óljós. Vegna deilnanna um hvernig meta skuli vafaatkvæði er geysilega taf- samt að telja slík atkvæði. Skoða þarf vandlega hvern seðil og meta hvort kjósandinn hafi raunverulega merkt með óyggjandi hætti við ákveðinn frambjóðanda. Segja fréttaskýrendur ljóst að ákaflega erfitt sé að setja skýrar reglur um þetta mat. En Jorge Labarga, dómari í Palm Beach, ákvað í gær að tefja skyldi gilda atkvæðaseðla þar sem kjósandi hefði sett greinilega merki í reit við frambjóðanda jafnvel þótt flipi, sem ætlast er til að losni frá umræddum reit á seðlinum, hafi ekki losnað. Tal- ið er að mörg hundruð seðlar hafi verið úrskurðaðir ógildir í sýslunni við fyrstu talningu af þessum sökum. Dómaramir sjö í hæstarétti Flór- ída voru flestir skipaðir er demókratar réðu þar ríkjum. Þeir gáfu ekki fyrirmæli um hvernig meta skyldi vafaatkvæði en bentu á dóma- fordæmi þar sem segði að atkvæði skyldi talið gilt ef hægt væri að ganga úr skugga um ætlun kjósanda með viðunandi vissu. Bush sagði að dómaramir hefðu endurskrifað lög Flórída og breytt reglunum eftir að forsetakjörinu var lokið. Þeir hefðu „rænt“ myndug- leikanum frá embættismönnum kjörstjórna í ríkinu. ■ Handtalning atkvæða/27 Kúariðu vart á Spáni Madríd. AFP. SPÆNSKA landbúnaðarráðuneytið greindi frá því í gær að kúariðu hefði orðið vart í landinu. Við rannsókn á 132 nautgripum í Xunta-héraði í Gal- isíu fundust tvær smitaðar kýr. Spánverjar bættust nýlega í hóp með ítölum, Grikkjum og Portúgöl- um og bönnuðu innflutning á naut- gripum og nautakjöti frá Frakk- landi, þar sem 109 dýr hafa greinst með kúariðu það sem af er þessu ári. Mjög hefur dregið úr sölu á nauta- kjöti í Frakklandi og annars staðar í Evrópu, eftir að uppvíst varð í síð- asta mánuði að nokkurt magn af sýktu kjöti hefði ratað í hillur franskra stórmarkaða. Greint var frá sex nýjum tilfellum í Frakklandi í gær. Fimm smituð dýr fundust í vesturhluta landsins og eitt dýr í Aveyron-héraði í Suður-Frakklandi. Landbúnaðarráðherrar Evrópu- sambandsríkja hafa samþykkt nýjar reglur um eftirlit með kúariðu, sem ganga í gildi um áramótin, en spænskir bændur tóku í gær undir kröfu Frakka um að reglurnar verði hertar enn frekar. Frakkar og spænsku bændurnir krefjast þess að tekin verði sýni úr öllum dýrum sem náð hafa 30 mánaða aldri. Fangaflótti í Taílandi HÓPUR glæpamanna braust í gær út úr fangelsi í Samut Sakom í Taí- landi, skammt frá höfuðborginni Bangkok. Tóku þeir fangelsissljór- ann og nokkra verði í gislingu og flýðu síðan í pallbíl að landamærun- um að Búrma en leiðtoginn, Maung Win, er sagður ættaður þaðan. Ut- varpsstöð ræddi við Maung Win í farsíma og heyrðust gíslarnir hrópa og biðja um að ekki yrði reynt að stöðva fangana með valdi. Á myndinni beinir fangi byssu að gfsl sem var látinn aka bflnum. Reuters George W. Bush Hadera, Parí, JerúsaJem. AFP, AP. Tveir létust og nærri 40 slösuðust í bflsprengingu í ísrael Palestínumenn óttast grimmi- legar hefndir Ceausescu-arfur Föt gefín öldruðum Cliý- AFP. ÝMSAR persónulegar eigur úr búi Ceauseseu-hjónanna, sem tekin voru af lífi í Rúmeníu á jóladag 1989, hafa verið boðnar upp, þ.á m. gjafir frá erlendum leiðtogum. Er eitt uppboðið í gangi á Netinu sem stendur. Enginn vildi sumt af fatnaði hjónanna og var hann nýlega gefinn fólki á elliheimili. Um er að ræða 13 innisloppa einræðis- herrans, eitt bindi, 14 pör af stuttbuxum og 19 skópör, einn- ig náttföt. Gamla fólkið fékk auk þess níu kjóla, fimm dragt- ir, tvo brjóstahaldara, tvær kápur og 16 pör af inniskóm El- enu Ceausescu. TVEIR biðu bana og um 40 slösuð- ust þegar öflug bflsprengja sprakk nálægt strætisvagni í bænum Had- era í Norður-ísrael í gær. Ehud Bar- ak, forsætisráðherra ísraels, lýsti strax yfir, að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, bæri ábyrgð á hryðjuverkinu en hann og palest- ínska heimastjómin vísa því á bug. Sagði talsmaður heimastjórnarinn- ar, að Israelar ætluðu sér augljós- lega að nota ódæðið sem afsökun fyr- ir enn grimmilegri árásum á Pal- estínumenn. Að minnsta kosti tveir menn létu lífið í sprengingunni sem varð á miklum annatíma og 37 slösuðust, þar af nokkrir alvai’lega. Ekki er vit- að hvort um var að ræða sjálfs- morðsárás en vitni segja, að spreng- ingin hafi verið svo öflug, að nálægur strætisvagn hafi þeyst inn í næstu verslun. Barak sagði, að Arafat og heima- stjórnin bæru ábyrgð á hermdar- verkinu vegna þess, að hún hefði lát- ið lausa marga hryðjuverkamenn úr Hamas- og Jihad-hreyfingunni. „Þetta var villimannleg árás á sak- lausa borgara," sagði hann. Nabil Abu Rudeina, talsmaður Arafats, sagði í gær, að ásakanir Baraks væru út í hött en ljóst væri, að hann hygðist nota hryðjuverkið sem átyllu fyrir enn ofsafengnari árásum á Palestínumenn. Síðustu átta vikumar hafa um 260 manns fallið í átökum ísraela og Pal- estínumanna, langflestir Palestinu- menn. Sjö manns féllu í gær, ísrael- arnir tveir í Hadera og fimm Palestínumenn. Átök ísraela og Palestínumanna em farin að valda miklum áhyggjum á alþjóðavettvangi enda magnast þau dag frá degi. Hubert Vedrine, utanríkisráð- herra Frakklands, sagði í gær, að hætta væri á, að úti væri um friðar- ferhð og Madeleine Albright, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddi í gær við Arafat í síma. Var hann þá staddur í Kaíró þai- sem hann átti viðræður við Hosni Mubarak, for- seta Egyptalands. Boðaður var fundur í gær í öiygg- isráði Sameinuðu þjóðanna til að ræða ástandið í Miðausturlöndum en Arababandalagið hafði hvatt til, að hann yrði haldinn. MORGUNBLAÐIÐ 23. NÓVEMBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.