Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000 CHCíAJHHUOJÍOM MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fujimori vikið úr embætti Paniagua skipaður forseti Perú Lima, Tókýó. Reuters, AFP. Tíu ár frá afsögn ,járnfrúarinnar“ Thatcher gagn- rýnir áform um „Evrópuher“ London. AP. VALENTIN Paniagua, forseti þings Perú, var skipaður forseti landsins í gær eftir að þingið samþykkti að svipta Alberto Fuj- imori forsetaembættinu á þeirra forsendu að hann væri „siðferði- lega vanhæfur" til að gegna því. Þingið hafnaði afsagnarbeiðni Fujimoris og sam- þykkti að vfkja honum frá með 62 atkvæðum gegn níu. Níu þingmenn sátu hjá. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Perú sem forseta lands- ins er vikið frá vegna „siðferði- legs vanhæfis" og samþykkt þingsins þýðir að Fujimori getur aldrei gegnt opinberu embætti aftur. Brottvikningin var samþykkt eft- ir heitar umræður á þinginu í tólf klukkustundir. 29 stuðningsmenn Fujimoris gengu af fundinum til að mdtmæla at- kvæðagreiðslunni. Þingmenn færðu þau rök fyrir brottvikningunni að Fujimori væri viðriðinn spillingu og hefði aðstoðað fyrrverandi bandamann sinn, Vladimiro Montesinos, við að komast hjá handtöku. Heimild- armenn í dómskerfínu sögðu að hugsanlega yrði hafín rannsókn á þætti Fujimoris í spillingarmálum Montesinos. Þingið kom aftur saman í gær til að skipa Paniagua í for- setaembættið eftir að tveir vara- forsetar sögðu af sér, en þeir hefðu annars átt að taka við emb- ættinu. Paniagua er 64 ára stjórnlaga- SPÁNVERJAR minntust þess í gær að 25 ár eru liðin frá því að Jóhann Karl Spánarkonungur var krýndur en morð á fyrrverandi heilbrigðisráð- herra varpaði skugga á krýn- ingarafmælið. Aðskilnaðar- hreyfingu Baska, ETÁ, var kennt um morðið. Ernest Lluch, heilbrigðisráð- herra fyrstu stjórnar Sósíalista- flokksins á árunum 1982-86, var skotinn til bana í bílageymslu í Barcelona laust fyrir klukkan níu í fyrrakvöld að íslenskum tíma. Hann fékk tvö skot í höfuðið og lík hans fannst einni og hálfri klukku- stund síðar. Nokkrum mínútum eftir morðið sprakk sprengja í bíl nálægt heim- fræðingur og var kjörinn þing- forseti á föstudag eftir að stjórnarandstaðan náði meiri- hluta á þinginu. Hann haslaði sér völl í stjórnmálum fyrir 37 árum og hefur tvisvar gegnt ráðherra- embættum. Hann þykir hófsamur stjórnmálamaður og nýtur virðing- ar meðal stjórn- arsinna jafnt sem stjórnarandstæð- inga. Hann fær það hlutverk að stjórna landinu til 28. júlí á næsta ári þegar næsti forseti, sem verður kjör- inn 8. aprfl, tek- ur við völdunum. Fujimori fer í felur Fujimori var á hóteli í miðborg Tókýó þegar hann sendi af- sagnarbeiðnina og fregnir hermdu að hann hefði farið í felur í gær. Jap- anskir fjölmiðlar sögðu að hann hefði farið af hótelinu og dveldi hjá óþekktum vini sínum. Vegabréfsáritun Fujimoris gildir til 3. maí á næsta ári. Heimildarmaður í japönsku stjórninni sagði að hún hefði áhyggjur af því að Ienda í deilum við stjórnvöld í Perú ef Fujimori óskaði eftir hæli í Japan til að komast hjá saksókn. Annar emb- ættismaður í stjórninni sagði að hún myndi ef til vill ekki eiga annars úrkosti en að heimila hon- um að dvelja í landinu til fram- búðar á þeirri forsendu að „hermdarverkamenn" kyi'uu að reyna að ráða hann af dögum í Perú. ili ráðherrans fyrrverandi. Lög- reglan telur að tilræðismennirnir hafi notað bílinn og sprengt hann til að eyða sönnunargögnum. Sjón- arvottar sögðust hafa séð tvo menn stíga út úr bílnum fyrir sprenginguna. Þing Spánar kom saman í gær til að minnast þess að 25 ár eru liðin frá því Jóhann Karl varð þjóðhöfðingi landsins, tveimur dögum eftir andlát Franciscos Francos einræðisherra. Konungur- inn nýtur mikillar virðingar meðal Spánverja fyrir að koma á lýðræði í landinu. 21. fórnarlamb ETA á árinu Aðskilnaðarhreyfing Baska var stofnuð á valdatíma Francos og hóf vopnaða baráttu fyrir sjálf- stæðu ríki á Norður-Spáni og suð- vesturhluta Frakklands árið 1968. Hreyfingin hélt hermdarverkunum áfram þótt héruð Baska fengju TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Margaret Thatcher, ,járnfrúin“ fyrrverandi, deildu í gær í fjölmiðlum um áform brezkra stjórnvalda um þátttöku í sameiginlegum hersveitum Evr- ópusambandsins (ESB), sem fyrir- hugað er að koma á fót. „Mér lízt betur á NÁTO og ég kýs frekar hið sterka bandalag milli Bret- lands, Evrópu og Ameríku," tjáði lafði Thatcher blaða- mönnum, en réttur áratugur var liðinn í gær frá afsögn hennar úr forsætis- ráðherraembættinu. Blair svaraði orð- um lafðinnar á blaðamannafundi með því að segja að „tími væri kominn til að brezk stjórnmál segðu skilið við Margaret Thatcher- tímann.“ „Við lifum á nýj- um tímum. Skyn- samleg, nútímaleg afstaða til [samrunaþróunarinnar í] Evrópu er það sem við þurfum mest á að halda núna,“ sagði Blair. ESB-ríkin 15 hafa ákveðið að koma á laggirnar yfir 60.000 manna hraðsveitum, sem á að vera hægt að beita innan 60 daga hvar sem er í allt að 4.000 km fjarlægð frá miðri álfunni og það á að vera hægt að halda þeim á vettvangi í að minnsta kosti ár. Sveitunum verður fyrst og fremst ætlað að grípa inn í á óróasvæðum, þar sem í óefni stefnir; hindra átök og stunda friðargæzlu. Áformin ganga út á að ESB geti sent hermenn í verkefni af þessu tagi óháð því hvort Atlantshafs- víðtæk sjálfstjórnarréttindi eftir að lýðræði var komið á. Talið er að hreyfíngin hafi orðið 800 manns að bana frá 1968. Lluch var ekki í fylgd lífvarðar og talið er að hann sé 21. fórnar- lamb ETA á árinu. Hreyfingin hef- ur ekki orðið jafnmörgum að bana á einu ári frá 1992 þegar 26 biðu bana í hermdarverkum hennar. Lluch var 63 ára og síðustu árin var hann hagfræðiprófessor við Barcelona-háskóla. Hann skrifaði bandalagið - eða forysturíki þess, Bandaríkin - kærir sig um að gera það. Þó eiga ESB-sveitirnar að geta nýtt sér búnað og hernaðar- kerfi NATO að nokkru leyti, gerizt þess þörf. ESB-sveitunum er ekki ætlað að gegna neinu eiginlegu landvarnahlut- verki; það verð- ur áfram meg- inhlutverk NATO. Slagur á síð- um Sun Brezka æsi- fréttablaðið The Sun sló í gær- morgun upp viðhorfum þeirra Thatcher og Blairs til þessa máls. Haft var eftir Thatcher, að þátttaka Breta í ESB-sveitunum væri glapræði. „Öryggi okkar er stefnt í hættu í þágu pólitísks hé- góma,“ hefur Sun eftir Thatcher. Yfirlýsing frá Blair er birt á sömu síðu. Þar segir hann að brezk stjórnvöld muni í hverju tilviki taka ákvörðun um hvort brezkir hermenn taka þátt í aðgerðum á vegum ÉSB þar sem til greina þykir koma að beita hraðsveitun- um. Að sögn forsætisráðherrans hafa sum dagblöðin í Bretlandi sýnt „grófan óheiðarleika“ í um- fjöllun um þetta mál. „Sumt fólk virðist halda að kalda stríðið sé enn í algleymingi,“ skrifar Blair. „Það sem verra er, það eru jafnvel sumir sem tjá sig munnlega og á prenti eins og heimsstyrjöldin síðari standi enn yfir.“ einnig greinar í dagblöð og hafði gagnrýnt basknesku aðskilnaðar- hreyfinguna. Lluch var handtekinn nokkrum sinnum á valdatíma Francos og átti veigamikinn þátt í því að koma á sjúkratryggingum fyrir alla þeg- ar Sósíalistaflokkurinn var við völd. Lluch verður jarðsettur í dag og skipulagðir hafa verið fjöldafundir víða um landið til að mótmæla blóðsúthellingunum. Spreng- ing í Kosovo ÖFLUG sprengja sprakk í borginni Pristina í gærmorg- un, við hús sem notað er af er- indrekum Júgóslavíustjórnar í Kosovo-héraði. Einn starfs- maður skrifstofunnar beið bana í sprengingunni og annar slasaðist alvarlega. Sjö manns voru í húsinu þegar sprengjan sprakk, þar á meðal æðsti fulltrúi Júgóslav- íustjórnar í Kosovo. Ekki var ljóst hverjir stóðu að baki til- ræðinu, en haft var eftir Carlo Cabigiosu, yfirmanni friðar- gæslusveita NATO í héraðinu, að greinilegt væri að vanir menn hefðu verið að verki. Níu morð á sólarhring NÍU morð voru framin í iðnað- arborginni Togliatti í miðhluta Rússlands á þriðjudag. Að undanförnu hefur glæpum fjölgað verulega í borginni, sem er nefnd eftir ítölskum kommúnistaleiðtoga og er helst þekkt fyrir bílafram- leiðslu. Þrír aðkomumenn frá Síb- eru, sem komið höfðu til Togli- atti til að kaupa bifreiðar og varahluti, fundust látnir á hót- elherbergi sínu á þriðjudags- morgun, með skotsár á höfði. Tveir menn frá Kazakstan, sem einnig höfðu komið til að kaupa bíla og höfðu mikið fé meðferðis, fundust auk þess myrtir á hóteli í nágrenninu. Þá réðu vopnaðir glæpamenn tveimur konum og einum karli bana, eftir að þeir höfðu ráðist inn í íbúð þeirra í öðrum borg- arhluta. Loks var sjötti að- komumaðurinn sem ætlaði að festakaup á bifreið myrtur um kvöldjð, í skógi nálægt verksmiðjum Avto Vaz-fyrir- tækisins, sem framleiðir Lada- bifreiðar. Þess má geta að einn af markaðsstjórum fyrirtækis- ins var myrtur í síðasta mán- uði. Risaeðlutönn á Borgund- arhólmi STEINGERÐ tönn úr risaeðlu fannst nýlega á dönsku eyj- unni Borgundarhólmi, að því er dagblaðið Berlingske Tid- ende skýrði frá í gær. Er þetta í fyrsta skipti sem leifar af risaeðlu finnast í Danmörku. Niels Bonde, sérfræðingur við Jarðfræðistofnun Kaup- mannahafnarháskóla, sem rannsakað hefur tönnina, telur að hún sé úr snareðlu eða kló- eðlu, sem hafi verið uppi fyrir 120-130 milljónum ára. Talið er að þessar eðlutegundir hafi verið allt að 2 metrar að lengd og vegið um 80 kíló. Hópur at- vinnulausra manna, sem tóku þátt í uppgreftri á vegum danska ríkisins, fann stein- gervinginn nálægt bænum Robbedale, sunnan við höfuð- stað Borgundarhólms, Ronne. Bótaþegarnir voru á sérstöku námskeiði sem miðar að því að auðvelda þeim að komast inn á vinnumarkaðinn á ný. Á miðlífsöld, fyrir 66-245 milljón- um ára, var Borgundarhólmur eini hluti þess lands sem nú til- heyrir Danmörku sem ekki var undir vatni. 25 ár liðin frá krýningu Spánarkonungs Morð ETA skyggir á krýn- ingarafmælið Barcelona. Reuters, AFP, AP. Jóhann Karl Spánarkonungur með Þingorðuna sem Spánarþing veitti honutn í gær. Næst honum er Sofia drottning, þá Felipe krónprins og Elena prinsessa. Margaret Thatcher, fyrr- verandi forsætisráðherra Bretlands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.