Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 47
 ti MINNINGAR og vona að minningin um Einar verði ljós sem lýsir okkur á dimmum dög- um. Jón Gunnar. Kveðja frá Knattspymufélagi Reykjavíkur Árið 1999 verður lengi í minnum haft hjá öllum KR-ingum og Vestur- bæingum. Eftir 31 árs bið tókst meistaraflokki KR í knattspymu karla loksins að vinna sigur á íslandsmótinu. Einn þeirra er þar lögðu hönd á plóginn var Einai- Öm Birgisson, sem nú hefur svo íyrirvaralaust verið hrifinn á brott úr þessum heimi. Einar Öm gekk til liðs við KR síðla árs 1998, er hann kom heim frá Nor- egi þar sem hann hafði um eins árs skeið leikið með norska fyrstu deild- ar liðinu Lyn frá Ósló. Einar Öm féll strax vel inn í leik- mannahóp KR og ávann sér vinsæld- ir og virðingu félaga sinna. Hann var mjög hæíileikaríkur íþróttamaður. Einkum lágu allar boltaíþróttir vel fyrir honum. Sem unglingur skaraði hann fram úr í handknattleik, körfuknattleik og knattspymu og óhætt er að fullyrða að það hefði verið sama hvaða grein hann hefði lagt fyrir sig, hann hefði alls staðai' komist í fremstu röð. Hann valdi knattspymuna sem að- algrein og varð afreksmaður í íþrótt sinni, sem tvímælalaust reis hæst er hann ásamt félögum sínum í KR hrósaði sigri á íslandsmótinu og bik- arkeppni KSÍ sumarið 1999. Einar Öm var þó ekki einungis frábær íþóttamaður, heldur var hann einnig drengur góður, hvers manns hugljúfi og glaður á góðri stund og það er þannig sem minningin um hann mun geymast í hugum vina hans í Vesturbænum. Að leiðarlokum þakka KR-ingar Einari Emi fyrir samverana og er hann kvaddur með virðingu og sökn- uði. Sárastur er þó söknuður hans nán- ustu, foreldra, systkina og unnustu og era þeim og öðrum ástvinum sendar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Einars Amar Birgissonar. Guðmundur Pétursson. Elsku Einar. Með miklu þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig sem samferðamann í lífinu, langar okkur að kveðja þig með þess- um brotum úr Ijóði Tómasar Guð- mundssonar: Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína, sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt þjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. Enn meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu efdr þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðm.) Hvíldu í friði, elsku vinur. Elsku Gulla, Alla, Birgir, Gúddý, Krissi, Biddi, Ragnheiður og böm, guð styrki ykkur í þessari miklu sorg. Carola, Jón Viðar, Andrea Ida, Amar og Þorsteinn Hængur. Elsku Einar minn. Hvemig á maður að geta trúað að þetta gæti hent mann eins og þig? Ekki hefði mig órað fyrir því, að þetta væri í hinsta sinn sem ég sæi þig í þessari jarðvist, við opnun búð- arinnar fyrir tveimur vikum. Á þessari sorgarstund og síðustu daga hef ég hugsað til baka og upp koma ótal minningar. Öll vitum við að þú varst hár og myndarlegur maður og hvers manns yndi. Þú starfaðir með mér í Módel 79 í mörg ár og þar hófst vinskapur okkar. Að fá þig í heimsókn, á skrifstofuna eða heim, vora alltaf gleðistundir. Það var svo mikil gleði í kringum þig og hvað ég gat hlegið og bullað með þér. Árið 1996 var ákveðið að þú færir fyrir hönd íslands í keppnina Herra Skandinavía, sem haldin var í Finn- landi. Þar stóðst þú þig með mikilli prýði, varst sjálfum þér og landi til sóma. Kæri vinur, mér þótti ofboðslega vænt um þig. Takk fyrir að fá að kynnast þér og þinni fjölskyldu. Takk fyrir allar gleðistundimar, þær verða aldrei frá mér teknar. Eg vildi að það væra fleiri þér líkir. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hef- ur. Kæra fjölskylda og Gulla mín. Sendi mínar innilegustu samúðar- kveðjin-. Megi góður Guð styðja ykk- ur og styrkja. Megi minning um góð- an dreng leiða okkm- í gegnum sorgina. Vér reynum harm að hylja og þjarta cjjúpstæð tár, en það er þungt að skiíja aðþúsértorðinnnár. Þú gekkst frá okkur glaður með góðleiks bros um kinn og hugur bar þig hraður þú hraustur æskumaður, enþáísíðastasinn. Enlokaðereileiðum það ljómar bak við ský, á morgunhimni heiðum rís heilög sól á ný. Þærinnstuvonirölum aðeftirhinstablund vér duft úr jarðar dölum í drottins himnasölum þáeigumendurfund. (J.B.P.) Þin vinkona Jóna Lár. Við erum harmi slegnir. Sorg- mæddir og reiðir. Einar hefur verið tekinn frá okkur og það verður erfitt að lifa með því. Það var ekki kominn tími til að kveðja. Eftir standa óteljandi minningar um tveggja áratuga vináttu. Undan- fama daga höfum við skoðað myndfr í huganum allt frá því við kynntumst í Fossvoginum. Við sjáum árin þegar við voram litlir strákar, hjóluðum og spiluðum fótbolta og körfu, horfðum á vídeí og voram úti þótt það væri kominn háttatími. Árin þegar við voram enn litlir strákar en héldum að við væram eitthvað annað og fóram í partí án þess að vita tíl hvers þau væra. Arin í Víkingi. Árin í Réttó. Áramótin hjá Áma Ola þar sem Ein- ar var alltaf með nýja hárgreiðslu. Við munum rúntinn um bæinn. Lífið um helgar, þegar Einar kjaftaði okk- ur inn á skemmtistaðina. Við sjáum hann neita að sofa í tjaldi, neita að taka lyftu og hringja oft á dag í mömmu sína. Við sjáum Einar hlæj- andi að okkur og okkur hlæjandi að Einari og með honum í tuttugu ár eða svo. Stundimar án Einars vora aldrei eins og stundfrnar með honum. Hann breytti andrúmsloftinu með nærvera sinni. Jákvæður og léttur. Skemmti- lega stríðinn og næstum brögðóttur. Spilaði stundum með okkur þangað til við gátum ekki annað en grátið úr hlátri. En Einari stóð ekki á sama. Hann var óvenjulega tilfinningan- æmur, sem gerði hann að einstökum vini. Bæði gaf og þáði. Hið stóra skarð, sem Einar sldlur eftir í vina- hópnum, munum við reyna að fylla af minningum um hann og allt sem við gerðum saman. Það kemur samt ekkert í staðinn. Við vildum ekki kveðja Einar svona snemma. Við drakkum hans skál á Kaffi List fyrir þremur vikum, fögn- uðum með honum nýjum áfanga og ræddum framtíðina. En nú, svo stuttu síðar, kveðjum við með mikl- um söknuði. Við geram það í nafni vináttubanda, sem era bundin með rembihnút og svo fast að þau munu aldrei slitna. Einar verður alltaf með okkur. Gullu, Aldísi og Birgi, Gúddí og Bidda og öllum sem eiga um sárt að binda vottum við dýpstu samúð okk- ar og biðjum að þau fái styrk af minn- ingunum um þennan einstaka dreng. Æskuvinimir úr Fossvoginum. Elsku Einar Örn minn. Takk fyrir allar góðu stundimar og minningam- ar sem þú gafst mér. Við voram um þriggja ára gamlir þegar við kynntumst. Við áttum það sammerkt í upphafi að vera skildir út undan af eldri bræðram okkar. Það varð því úr að við hófum að leika okk- ur saman. Nú um það bil 25 árum síð- ar er komið að lokum þessa leiks okk- ar. Það væri hægt að skrifa heila bók um allt það sem við brölluðum saman frá því í bamæsku hvort sem það var með Fossvogsvinahópnum, í starfi eða í íþróttum. Það sem tengdi okkur sterkum böndum var að í livert skipti sem við hittumst þá gleymdum við áhyggjum hversdagslífsins og nutum líðandi stundar. Alltaf varstu fróð- leiksfús og hafðir mikinn áhuga á því sem á daga manns hafði drifið. Við nutum vinskapar hvor annars og oft nægði okkur bara að vera nálægt hvor öðram. Stundum var þögnin ein okkar talmál. Þú varst einstakm- vin- ur. Við ólumst upp í sama hverfi, gengum í sömu skólana og æfðum báðir með hverfisfélaginu í hand- bolta, fótbolta og borðtennis. Þú varst náttúrabam í íþróttum. Þú hafðir náðargáfu þegar íþróttir vora annars vegar og áttir ekki langt að sækja þessa hæfileika. Þú varst mik- ill keppnismaður. Innan vallar hlífð- um við ekki hvor öðram og var keppnisskapið kannski fullmikið en við höfðum samt alltaf jafn gaman af, þrátt fyrir að aðrir viðstaddir ættu stundum fótum sínum fjör að launa. Alltaf héldum við vinskapinn. Skyndilega ertu farinn frá mér þegar við áttum svo margt eftir ógert. Það er einmanalegt án þín þegar öll ævin er framundan og við rétt nýbúnir að finna okkur þann vettvang sem við vildum byggja framtíðina á. Hjartahlýja, léttleiki, brosmildi, tilfinninganæmi og traust vora þínir bestu kostir. Ekki get ég látið það óg- ert að geta þess hve yndislega fjöl- skyldu þú átt. Alltaf studdi hún þig. Gladdist þegar vel gekk og stóð við bakið á þér ef á móti blés. Fjölskyld- an veitti þér öryggi og hlýju. Vinimir nutu þessarar hlýju í hvívetna og aldrei var kvatt án þess að fá bros eða kveðjukoss frá mömmu þinni. Það var stoltur vinur, sem kom í opnunarhóf nýju búðarinnar fyrir þremur vikum. Þar stóðuð þið Gulla þín, umvafin fjölskyldu þinni og vin- um. Ég man ég faðmaði þig og sagði þér hve stoltur ég væri af þér. Þetta var okkar síðasta stund saman. Þú brostir því þú hafðir fundið fjölina í lífinu og varst hamingjusamur. Þú hafðir allt til að bera til að njóta gæfu í framtíðinni. Nú hefur þú verið tek- inn í burtu í blóma lífsins - þegar lífið brosti við ykkur Gullu. Sú von að eiga eftir að hitta þig aftur slær eilítið á mikinn söknuð og trega. Elsku Gulla, Aldís, Birgir, Gúddí, Biddi og aðrir ástvinir. Ég votta ykk- ur mína dýpstu samúð og megi minn- ing um góðan dreng ylja okkur um hjartarætur um ókomna tíð. Þinn vinur, Þór. Undanfarna daga hafa minning- amar hellst yfir, minningar um strák sem tókst á snilldarlegan hátt að skemmta sér og öðram við ólíkleg- ustu tækifæri. I mínum huga ertu alltaf bara strákur því þannig kynnt- ist ég þér og ég er ennþá bara stelpa. Ég man húmorinn svo vel og man ekki þær stundir sem við ekki hlóg- um saman þegar við hittumst. Ein- hvem veginn tókst þér alltaf að gera létt grín að mér eða sjálfum þér og ég gekk glöð í burtu. Ég man góðar stundir í Dalalandinu og Hulduland- inu þar sem súkkulaðikökur vora bakaðar, pítsur búnar til og brauð borðað með roastbeef og sérstökum lauk frá matvöraversluninni í Gríms- bæ, sem við fengum pakkaðan inn í pappír. Ég man líka forvitnilegar umræður sem pabbi þinn og mamma vora dregin inn í við ýmis tækifæri.— Þú varst stundum krúttlega klaufsk- ur á þeim tíma þegar við voram að kynnast því þú áttir það til að detta á ögurstundu, annaðhvort í hálku eða um stóla og steina sem virtust ætla sér að fella þig. Man hvemig þér tókst að fá leigubílstjóra, afgreiðslu- dömur og litla krakka til að spjalla við þig um hina og þessa hluti, á með- an þú brostir út í annað. Ég hugsa til baka og á tæra minningu um þig. Þótt samskipti okkar hafi ekki verið mikil síðustu árin vora tilviljana- kenndir endurfundir okkar alltaf ein- lægir og ánægjulegir. Ég er því svo fegin að hafa séð þig, heyrt í þér og fengið að smella kossi á kinn þína stuttu áður en þú varst tekinn burt. Ég man spékoppana þína og vona að aðrir fái að njóta þess augnakonfekts þar sem þú nú ert. Einar Öm mótaðist og lifði innan um hlýja og góða fjölskyldu og ég veit að nú vemdar hann þá sem hon- um era kærastir eins og hann ávallt gerði. Elsku Aldís, Birgir og fjölskylda, hugur minn er hjá ykkur í sorginni og söknuðinum og sendi ég ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sá sem vill losna við alla sorg og söknuð yrði að kaupa það því dýra verði að elska ekkert í heiminum. v (Sigurður Nordal) Margrét Stefánsdóttir. Það er ekki alltaf magnið sem skiptir máli, heldur gæðin. Þannig var vinskap okkar háttað. Það var einhvem veginn frá fyrstu kynnum þessi dýpt og einlægni gagnvart okkur Soffíu og því sem við voram að gera sem gerði það að verkum að þú áttir alltaf sérstakan stað í okkar huga, þrátt fyrir að oft liði langt á milli þess seiii við hittumst. Síðan þegar ég kynntist foreldram þínum áttaði ég mig á því að þessi eiginleiki var ekki langsóttur. Þótt ekki væri beinlínis innangengt á milli heimila okkar í Dalalandinu vorað þið aldrei langt undan og það var mjög notalegt að vita af ykkur þama uppi. Það var svo dæmigert fyrir ykkur öll, að þegar við Soffía eignuðumst okkar fyrsta bam og giftum okkur síðar, að einhveijar alfallegustu kveðjumar skyldu koma úr Dala- landinu í bæði skiptin. SJÁSÍÐU 48 Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afinælis- og ininningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (5691115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skfrnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. + Okkar ástkæra, INGIGERÐUR EYJÓLFSDÓTTIR, Skúlagötu 40a, Reykjavík, sem lést aðfaranótt miðvikudagsins 15. nóv- ember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Georg Jón Jónsson, Sigríður Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Elfa Kristín Jónsdóttir og fjölskyldur þeirra. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF BJARNADÓTTIR, Garðvangi, Garði, áður til heimilis á Vallarbraut 2, Njarðvík, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 14.00. Valgerður Helgadóttir, Helga Helgadóttir, Rafn Skarphéðinsson, Bjami Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar og tengdafaðir, VALGARÐUR ÞORKELSSON, sem andaðist föstudaginn 17. nóvember, verður jarðsunginn trá kirkju Óháða safnaðar- ins, Háteigsvegi 56, föstudaginn 24. nóvem- ber, kl. 15.00. Sigurður H. Valgarðsson, Óskar H. Valgarðsson, Kolbrún Karlsdóttir, Anna S. Valgarðsdóttir, Theódór ingólfsson, Valgarður Valgarðsson, Þórunn Siemsen, Fanney Valgarðsdóttir, Ólafur Óskarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.