Morgunblaðið - 23.11.2000, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar gerir ráð fyrir að skuldir aukist
Auknar fram-
kvæmdir og bætt
þjónusta kalla á
meiri útgjöld
SKULDIR bæjarsjóðs Akureyrar
aukast samkvæmt fjárhagsáætlun
fyrir næsta ár sem samþykkt hefur
verið í bæjarstjórn Akureyrar.
Gert er ráð fyrir að í lok næsta árs,
2001 verði nettóskuldir bæjarsjóðs
1.320 milljónir króna eða um 86
þúsund krónur á íbúa, en endur-
skoðuð áætlun fyrir yfirstandandi
ár gerir ráð fyrir að nettóskuldir
bæjarsjóðs nemi 891 milljón króna
eða 59 þúsund krónum á íbúa í lok
þessa árs.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri sagði vissulega um nokkra
aukningu skulda að ræða, en ráð
hefði verið gert fyrir því í málefna-
samningi Sjálfstæðisflokks og Ak-
ureyrarlista í tengslum við mark-
mið um auknar framkvæmdir og
bætta þjónustu við íbúa sveitarfé-
lagsins. „Þrátt fyrir aukningu
skulda er fjárhagsstæða Akureyr-
arbæjar áfram mjög sterk og langt
innan þeirra marka sem talað er
um sem skuldaþol sveitarfélaga,"
sagði Kristján Þór.
Hann nefndi að fjárhagslegt
svigrúm bæjarsjóðs til fjárfestinga
væri á bilinu 350 til 400 milljónir
króna á ári, en ljóst að ætíð biðu
brýn og fjárfrek verkefni úrlausn-
ar. Gert er ráð fyrir að Fram-
kvæmdasjóður Akureyrarbæjar
leggi bæjarsjóði til um 300 milljón-
ir króna á næsta ári vegna ýmissa
verkefna sem brýnt er að til fram-
kvæmda komi.
Framkvæmdir við grunn-
skóla upp á 1,5 milljarð á
fimm árum
Kristján Þór sagði uppbyggingu
grunnskólanna eitt af höfuðvið-
Úr fjárhagsumræðu Akureyrarbæjar
Allar fjárhæðir eru í þús. kr. á meðalverðlsagi 2000. VJsV 1996-1999 er skv. ársreikningi Fræðslumál 1996 1997 1998 1999 Áætlun 2000 Áætlun 2001
Fiöldi nemenda 2.396 2.392 2.413 2.409 2.442 2.468
Rekstrarútqiöld 469.083 760.957 902.343 960.824 928.586 933.615
Fjárfestingar 160.590 239.480 209.830 220.214 154.675 446.000
Heildarkostn. á nemanda 196 318 374 399 380 378
Fiárfesting á nemanda 67 100 87 91 63 181
Fiöldi rýma í árslok 545 615 586 603 668 756
Fjöldi barna 808 805 811 820 866 951
Rekstrarútgiöld 187.998 207.238 232.136 248.511 227.974 260.274
Fiárfestingar 12.574 25.424 10.897 16.468 103.176 55.000
HeildarrekstrarkostnVrvmi 345 337 396 412 341 344
mcimmyciimcii
Rekstrarútgiöld 100.852 117.535 145.769 124.938 133.118 133.600
Fiárfestingar 19.394 12.292 9.475 19.418 57.285 83.000
Iþróttamál
i&ssswssaaösst
Rekstrarútgiöld 129.992 132.097 148.972 164.908 164.496 165.295
Fiárfestingar 43.058 92.517 111.482 298.213 174.945 150.000
fangsefnum bæjarstjórnar, en á því
sviði hafi verið og bíði verkefni til
úrlausnar. Gengju áform um fram-
kvæmdir næsta árs eftir léti nærri
að um 1,5 milljörðum króna hefði
verið varið til framkvæmda við
grunnskóla bæjarins á árunum
1996 til 2001. Þá mætti gera ráð
fyrir að eftir standi framkvæmdir
sem kosta munu verulegar fjár-
hæðir sem til falla á næstu fjórum
til fímm árum. Astæður þessa
væru m.a. ákvæði um einsetningu
grunnskóla, en ekki síður ákvörðun
bæjarstjórnar um nýja hverfa-
skiptingu grunnskóla bæjarins.
Þá sagði bæjarstjóri að töluverð
aukin þörf hefði verið fyrir leik-
skólapláss og verulegir fjármunir
verið lagðir til þeirra mála á síð-
ustu tveimur árum og áfram haldið
á sömu braut. Loks benti Kristján
Þór á að verulegum fjármunum
hefði verið varið til menningarmála
og íþrótta- og tómstundamála á
vegum bæjarfélagsins.
Hann sagði þessa fjóra mála-
flokka, grunnskóla, leikskóla,
menningarmál og íþrótta- og
tómstundamál leggja grunninn að
sóknarstefnu bæjarins og framtíð-
arsýn manna hlyti að taka nokkurt
mið af því hvernig ástatt væri inn-
an þeirra. „Innan bæjarstjórnar
Akureyrar er ríkur vilji til þess að
halda úti öflugri starfsemi á þess-
um sviðum og bera fjárveitingar
bæjarsjóðs þess órækt vitni,“ sagði
Kristján Þór.
Zontaklúbburinn
Bærinn
stiki
„Nonna-
slóð“
ZONTAKLÚBBUR Akureyr-
ar sendi nýlega erindi til bæjar-
ráðs þar sem vakin er athygli á
gönguleið, svonefndri „Nonna-
slóð“, en hún liggur frá Nonna-
húsi, upp í kirkjugarð, niður
Búðargil og suður Aðalstræti,
að Nonnahúsi. Fer klúbburinn í
erindi sínu fram á við bæjaryf-
irvöld að leiðin verði merkt með
stikum og einnig er óskað eftir
því að lagður verði göngustígur
frá Nonnasteini að Höfðakap-
ellu.
Bæjarráð vísaði erindinu til
umhverfísráðs sem fól um-
hverfisdeild að gera tillögu að
nánari útfærslu og kostnaðar-
áætlun og að því búnu að senda
málið til framkvæmdaráðs.
Oddur Helgi Halldórsson,
Lista fólksins, spurðist fyrir um
það á fundi bæjarstjórnar hver
ætti að greiða þessa fram-
kvæmd. Vilborg Gunnarsdóttir
formaður umhverfisráðs sagði
að gert væri ráð fyrir að Akur-
eyrarbær legði út fyrir kostnaði
við hönnun á umræddum stíg.
Litli fískimað-
urinn verður
við Torfunef
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur
samþykkt að setja styttu af Litla
fiskimanninum niður austan við
skemmtibátahöfn við Torfunef.
Stytta sem er gjöf til Akureyrarbæj-
ar frá vinabænum Álasundi í tilefni
af 100 ára kaupstaðarafmæli bæjar-
ins árið 1962 var tekin niður af sínum
upprunalega stað, sunnan Búnaðar-
bankans, vegna framkvæmda við
Túngötu. Nefnd sem skoðaði nýja
staðsetningu fyrir styttuna lagði til
að hún yrði sett upp við skemmti-
bátahöfnina og hefur það nú verið
samþykkt.
* * *
Lífeyrissjóður Norðuriands
Aukaársfundur
Lífeyrissjóðs Norðurlands
verður haldinn íVarmahlíð í Skagafirði
föstudaginn í. desember 2000
og hefst kl. 16:30
Dagskrá:
1 Samrunasamningurlsj. Norðurlands
og Lsj. verkalýðsfél. á Norðurlandi vestra
2 Samrunasamningur Lsj. Norðurlands
og Lífeyrissjóðs KEA
3 Samþykktir fyrir sameinaðan sjóð
4 Umboð til ársfundar sameinaðs sjóðs
árið 2001 til að afgreiða ársreikning
Lífeyrissjóðs Norðurtands f. árið 2000
5 önnur mál
Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum
og eru þeir hvattir til að mæta.
I i(t- f\Noídurlnnrl^ • *>l<ip#gólu u\ • uíhi Aiun
'Síinjt húi) MiOt'J * í (íá: /liiú * NHÍUHíf ÍfUii*ifyllUlt