Morgunblaðið - 23.11.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000 37
Nýjar bækur
• ÚTerkomin
bókin Þjóðsögur
Jóns Móla Árna-
sonarlll.
I kynningu seg-
ir ma.: í þriðja
bindinu heldur
þjóðsagnaþulur-
inn áfram sögum
sínum. Hann rifj-
ar upp minningar
afdugmiklum
síldveiðisjómönnum og öðrum minna
dugandi, ferðast um Austfirði
bemskunnar, minnist brautryðjenda
í konfektgerð á Seyðisfírði og bróð-
urins sem étinn var í erfidrykkjunni
á Vopnafirði. Silungurinn í Sundhöll-
inni, hommavamarbuxumar góðu og
blábeijabiskupinn á kosningaferða-
lagi kommúnista - allt er þetta skil-
merkilega fært í letur, að ótöldum
ógleymanlegum minningabrotum úr
þeirri Reykjavík sem nú er horfin og
kemur aldrei aftur.
Það er sama hvað Jón Múli gerir
að söguefni sínu. Hann kann þá dýr-
mætu list að gæða frásögnina leiftr-
andi húmor og hjartahlýju. í Þjóð-
sögum hans fer saman mannþekking
og ósvikin lífsnautn sem ekkert fær
hamið.“
Utgefandi er Mál og menning.
Bókin er302 bls., unnin í Prentsmiðj-
unni Odda hf. Kápuna hannaði Guð-
jón Ketiisson. Verð: 4.290 krónur.
• ÚT er komin söguleg skáldsaga
eftir Hjört Marteinsson sem ber heit-
ið AM 00. Handritið hlaut nýlega
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar.
I fréttatilkynningu segir m.a.:
,AM 00 fjallar um hinn unga Jón Ól-
afsson frá Gmnnavik, skrifara Árna
Magnússonar handritasafnara, Áma
sjálfan og konu hans Mettu. Veturinn
1728 hefur eldsvoði tortímt stómm
hluta Kaupmannahafnar. Mitt í eyði-
leggingunni stendur Ami í rústunum
af lífi sínu og ákveður að halda brott.
Metta felur Jóni að hafa uppi á Áma
og fá hann til að snúa aftur til fyrra
lífs. Skrifarinn hrekst á milli staða og
manna í leit að herra sínum og verð-
ur smám saman nokkrn nær um
hvem mann Ami hefur að geyma.
AM 00 er margslungin, söguleg
skáldsaga sem fjallar um skáldskap-
inn, fræðimennskuna, ástina, lífið og
dauðann. Hér er skyggnst inn í
horfna veröld fortíðar og lesendur
sjá sögufrægar persónur í nýju ljósi.
Hjörtur Marteinsson er fæddur í
Reykjavík árið 1957. Hann hefur áð-
ur gefið út tvær Ijóðabækur auk þess
sem hann hefur lagt stund á mynd-
list.“
Utgefandi er JPV forlag. Bókin er
432 bls., unnin íPrentsmiðjunni
Odda hf. Kápumynd gerði Guðrún
Lind Jónsdóttir en Skaparinn sá um
uppsetningu.
Leiðbeinandi verð: 4.480 krónur.
• ÚT er komin
Matreiðslubók
Latabæjar eftir
Magnús Sehev-
ing og Ragnar
Ómarsson.
í fréttatil-
kynningu segir:
„Bókin inniheld-
ur 50 matar-
uppskriftir og
hefur það að
markmiði að kynna leyndardóma
matreiðslulistarinnar fyrir yngstu
kynslóðinni, jafnframt því sem
gefin eru góð ráð varðandi hollt
fæði og heilbrigt líferni. Bókin er
ríkulega myndskreytt ljósmyndum
Gríms Bjarnasonar, þar sem fyr-
irsæturnar eru hinir góðkunnu
íbúar Latabæjar í formi líflegra
leikbrúða Guðmundar Þórs Kára-
sonar og Stefáns Jörgens Ágústs-
sonar.
Latabæ og íbúa hans þarf vart
að kynna fyrir landsmönnum.
Þessi hugarsmíð Magnúsar Schev-
ings hefur, á undanförnum árum,
margsannað gildi sitt sem
skemmti- og fræðsluefni fyrir
börn, hvort sem það er í formi
leikrita, bóka, geisladiska, mynd-
banda eða spila. Þó að Matreiðslu-
. bók Latabæjar sé fyrst og fremst
Magnús
Scheving
Jón Múli
Ámason
ætluð yngstu kokkum þjóðarinnar
er hvergi slakað á gæðakröfunum;
Ragnar Ómarsson, sem samdi all-
ar uppskriftir bókarinnar, er róm-
aður fyrir leikni sína í að gæla við
bragðlauka innlendra sem er-
lendra sælkera. Ragnar vann titil-
inn Matreiðslumaður ársins 1999,
er meðlimur í landsliði matreiðslu-
manna og hefur undanfarin tvö ár
starfað sem yfirmatreiðslumaður á
Hótel Holti í Reykjavík."
Matreiðslubók Latabæjar fæst í
öllum verslunum Hagkaups og
kostar 989 krónur.
• ÚT er komin skáldsagan Dóttir
Gæfunnar eftir Isabel Allende.
I fréttatilkynningu segir: „Eftir
langa bið hefur Isabel Allende á ný
skrifað stóra og viðburðaríka skáld-
sögu þar sem sagnagleði hennar,
samúð með persónum, glettni og
fjör njóta sín.
Einn góðan veðurdag liggur
reifabam á tröppunum hjá Somm-
ers-systkinunum, siðavöndum Eng-
lendingum sem búsettir eru í Chile.
Þau gefa barninu nafnið Elísa og
hjá þeim vex stúlkan úr grasi. Hún
lærir kvenlegar listir og hennar
virðist bíða friðsæl framtíð þegar
ástin birtist í líki hins fátæka og
stolta Joaquíns. Leikurinn berst síð-
an til Kalifomíu þar sem ævintýri
og hættur bíða við hvert fótmál.
Baksvið Dóttur Gæfunnar er gull-
æðið í Bandaríkjunum þegar banda-
ríska þjóðin varð til úr öllu því fjöl-
breytilega safni fólks úr öllum
heiminum sem tók sig upp og freist-
aði gæfunnar í landi tækifæranna.
Kolbrún Sveinsdóttir þýddi.
Isabel Allende er einn vinsælasti
höfundur heims og hún hefur náð
miklum vinsældum hérlendis, m.a.
fyrir bækurnar Hús andanna og
Pála.“
Utgefandi er Mál og menning.
Bókin er 316 bls., unnin í Prent-
smiðjunni Odd h.f. Kápumynd er
eftir Marciu Lieberman. Verð: 4.290
krónur.
• ÚT er komin bókin Eva og
Adam - Kvöl og piha ájólunum
eftir Máns Gahrton og Johan Un-
enge og er í þýðingu Andrésar
Indriðasonar.
í fréttatilkynningu segir: „Þetta
er fimmta bókin sem Æskan ehf.
gefur út um unglingana Evu og
Adam. Þessi saga fjallar m.a. um
það þegar Adam fær að fara með
afar skrautlegri fjölskyldu Evu í
fjallakofa við skíðasvæði og úr verð-
ur ferðalag sem aldrei gleymist.
Sjónvarpsþættir um Evu og
Adam voru kjörnir bestu norrænu
barna- og unglingaþættimir 1999
og í Svíþjóð var ein bókanna í
flokknum valin besta efnið fyrir
unga lestrarhesta."
Útgefandi er Æskan ehf. Bókin
er 137 bls., prentuð og bundin í
Prentsmiðjunni Odda hf. Verð:
1.890 krónur.
• ÚTerkomið
hið sígilda ævin-
týri Búkolla eftir
Kristin G. Jó-
hannsson mynd-
listarmann.
Búkolla er 32
síður og hver
opna prýdd
vatnslitamyndum
höfundarins.
Útgefandi er
Bókaútgáfan Hólar. Bókin er prent-
uð í Prentsmiðjunni Odda. Leiðbein-
andi verð: 1.680 krónur.
• ÚT er komin spennusagan
Háskaflug eftir metsöluhöfundinn
Jack Higgins.
I bókarkynningu segir: Háska-
flug er sannkölluð flughetjusaga
með öllum þeim ógnum og skelfing-
araugnablikum, sem herflugmenn
einir upplifa. Höfundurinn, Jack
Higgins, þekkir flug og aðstæður
herflugmanna af eigin reynslu.
Bókin segir frá Bandarísku tví-
burabræðunum Harry og Max
Kelso sem voru aðskildir í æsku.
Þeir voru um tvítugsaldur í byrjun
síðustu heimsstyrjaldar og báðir
flugmenn, Max í flugher Þjóðverja
og Harry í flugher Breta. Þar
lenda þeir bræður í flugorrustum í
návígi. Annar fær það verkefni að
myrða Eisenhower, hinn að drepa
Hitler. Hvorugur gat séð fyrir þær
djöfullegu aðstæður sem biðu
þeirra um það bil sem innrás herja
Bandamanna í Normandí vofði yfir.
Þeir atburðir urðu kveikjan að sví-
virðilegu ráðabruggi og háskaleg-
um fyrirætlunum sem virtu engin
siðalögmál."
Útgefandi er Hörpuútgáfan á
Akranesi. Bókin er 216 bls. Þýðing:
Gissur Ó. Erlingsson. Prentvinnsla:
Oddi hf. Leiðbeinandi verð: 2.790
krónur.
• ÚT er komin barnabókin Illa
byrjar það eftir dularfullan mann að
nafni Lemony Snicket með mynd-
skreytingum eftir Brett Helquist.
í fréttatilkynningu segir: „í Ula
byijar það segir frá Baudelaire-
systkinunum sem eiga ekki sjö dag-
ana sæla eftir að foreldrar þeirra
farast í stórbruna. Varla nokkurn
einasta sælan dag - ef út í það er far-
ið. Þeim er komið fyrir hjá fjarskyld-
um frænda sem girnist einungis auð-
æfi þeirra en þau eru sem betur fer
vel varin - og þó? Saga Baudelaire-
munaðarleysingjanna er því hrika-
lega sorgleg og þó að hún hafi alls
staðar verið mjög vinsæl skal bent á
að hún hentar alls ekki þeim sem
hneigjast að skemmtisögum sem
enda vel.“
Snorri Hergill Kristjánsson
þýddi.
Útefandi er Mál og menning. Bók-
in erprentuð íPrentsmiðjunni
Steinholti og er leiðbeinandi verð
1.890 krónur.
Kristinn G.
Jóhannsson
Fágun -
fagmennska
Stór humar,
túnfiskur, lúða, skötuselur,
hörpuskel, rækjur
og taðreyktur lax
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686.
• ÚTerkomin
bókin Jólalögin í
léttum út-
setningum fyrir
pi'anó eftir Jón
Þorarinsson.
í fréttatilkynn-
ingu segir: „I
þessari bók eru
þrjátíu ljóð og lög
sem öll eru tengd
jólunum og hug-
blæ þeirra. Þeirra á meðal eru jóla-
sálmamir alkunnu sem hljómað hafa
um ár og aldir á hátíð Ijóssins. í bók-
inni eru einnig gamlir jólasöngvar
rifjaðir upp og færðir í nýjan búning.
Að auki eru í henni nokkrir sígildir
jólasöngvar annarra landa, sumir áð-
ur lítt kunnir hér á landi.
Jón Þórarinsson hefur valið lögin
og samið léttar útsetningar sem
henta jafnt nemum í píanóleik og
reyndari píanóleikurum."
Útgefandi erMál ogmenning.
Bókin er56 bls., prentuð í Steindórs-
prenti Gutenberg ehf. Kápuna gerðu
Jóhann Torfason ogÁmundi Sigurðs-
son. Leiðbeinandi verð: 2.490 krónur.
• ÚT er komin bókin Minningar úr
Menntaskólanum á Akureyri þar
sem fyrrum nemendur MA lýsa vist
sinni í skólanum.
í fréttatilkynningu segir: „Þetta
eru persónulegar endurminningar 45
einstaklinga. Sá elsti úskrifaðist frá
MA1929 en sá yngsti árið 2000. Ritn-
efnd skipuðu þeir Pétur Halldórsson,
Kristján Kristjánsson og Jón Hjalta-
son. Minningar úr Menntaskólanum
á Akureyri er gefin út í samvinnu við
skólayfirvöld en tilefnið er 120 ára af-
mæli skólans nú í haust.“
Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar.
Bókin erprentuðí Prentsmiðjunni
Odda oger 540 bls. Leiðbeinandi
verð: 6.230 krónur.
Galdur
skáldsaga
ÞAU mistök
urðu í umfjöll-
un um bók Vil-
borgar Davíðs-
dóttur, Galdur
skáldsaga, að
verkið var sagt
unglingabók.
Hið rétta er að
bókin er samin
Vilborg með fullorðna
Dav.ðsdottir lesendur í huga
þótt áður hafi höfundur sent frá
sér vinsælar unglingabækur.
Biðst Morgunblaðið velvirðing-
ar á þessum mistökum.
ÚLPUDAGAR
50—80% iæ®a verð
á merkjavöru og tískufatnaði
Verödæmi áður nú
Everlast ÚlpUT J&9QQ- 1.900
Fila Úlpur -?t9ee- 3.900
Kookai úlpur -D^ocr 3.900
Everlast dúnúlpur ^seer 3.900
Matinique úlpur iGroeo 7.900
Diesel peysur J&99Q 2.900
Levis buxur J&99Q 3.500
Roobins vetrarskór 40:900 3.900
Obvious jakkaföt 39:960 9.500
studio dragtir 44-400 6.600
OUTLET 10
+++merki fyrir minna+++
Faxafeni 10, s. 533 1710
Opið:
Mánudaga - fimtudaga 11.00-18.00
Föstudaga 11.00-19.00 Laugardaga 11.00-17.00