Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000 6^.
FÓLK í FRÉTTUM
Filmundur forsýnir breska gamanmynd
Gróðavænleg garðyrkja
NÚ ER Filmundur frændi kom-
inn í sinn hefðbundna gír á ný eft-
ir nokkur óhefðbundin framhjá-
hlaup vegna virðingarvotts við
hryllinginn og hið ástkæra yl-
hýra.
Nú er komið að forsýningu á
glænýrri breskri gamanmynd,
Saving Grace. Myndin hefur
hvarvetna hlotið lofsamlega dóma
og nú þegar hlotið viðurkenningar
í formi verðlauna eður tilnefn-
inga. Það er hin margverðlaunaða
stórleikkona Brenda Blethyn sem
fer með aðalhlutverkið í myndinni
og leikur ekkju sem situr í
skuldasúpu eftir bruðl eigin-
mannsins heitins sem hún hafði
ekki hugmynd um. Hún verður
því að redda fjárhagsstöðunni og
það með hraði en vandinn er sá að
það eina sem hún kann tengist
Brenda Blethyn og Craig
Ferguson reyna framleiðslu-
afurð sína.
garðyrkjustörfunum. Þannig vill
til að aðstoðarmaður hennar, leik-
inn af Craig Ferguson sem einnig
á hlut í handritinu, er sér-
fræðingur í ræktun hinnar eftir-
sóttu en ólöglegu marijúana
plöntu. Þau taka því höndum sam-
an og hefja stórfellda framleiðslu
með dyggri aðstoð bæjarbúa sem
bjóðast fúsir til þess að reyna
framleiðsluna ef þannig stendur
á. En ræktun sem þessi stríðir
enn sem komið er gegn landslög-
um og reynist þrautin þyngri að
halda henni leyndri fyrir laganna
vörðum. Leikstjóri þessarar
hressilegu gamanmyndar, sem
gjarnan hefur verið líkt við hina
vinsælu Waking Ned, er Nigel
Cole. Þetta er frumraun Cole í
gerð kvikmyndar í fullri lengd en
hann á að baki farsælan feril sem
leikstjóri gamanþátta fyrir sjón-
varp.
Eins og áður segir hefur Saving
Grace hvarvetna hlotið blíðar við-
tökur. Hún hlaut áhorfendaverð-
launin á Sundance-hátíðinni fyrr á
árinu og hefur gengið hvað best
breskra mynda í Bandaríkjunum
það sem af er árs. Filmundur er
stoltur af því að vera fyrstur til að
bjóða félagsmönnum sínum og
öðrum velunnurum upp á mynd-
ina, áður en hún fer á almenning-
ar sýningar, og það tvisvar sinn-
um; í kvöld kl. 22.30 og á
mánudaginn á sama tíma.
MYNPBÖNP
Draugahús
Húsið hennar Kristínu
(Christina’s House)
H r o 11 v e k j a
'h
Leiksljóri: Gavin Wilding. Handrit:
Gavin Wilding. Aðalhlutverk: Katy
Brodsky, Brendan Fehr, Allison
Lange, John Savage. (93 mín.)
Bandaríkin. Myndform, 1999.
Myndin er bönnuð innan 16 ára.
HROLLVEKJAN er sá geiri
kvikmyndanna sem fólk hefur
minnstar væntingar til og er Hús
Kristínu gott dæmi af hverju. Mynd-
in notast við ailar þær klisjur sem
hrollvekjan hefur upp á að bjóða og
ætti hver sá sem
hefur séð a.m.k.
eina slíka mynd um
ævina að vita ná-
kvæmlega hvað
mun gerast í mynd-
inni. Leikurinn er
vægast sagt hræði-
legur og eru sumir
leikarar svo slæmir
að það ætti að vera
viðvörunarmerki á umbúðum mynda
sem þeir koma fram í. Það gætu
sumir séð einhverja skondna fleti á
myndinni og er möguleiki að hún
verði fræg fyrir að vera ein af verstu
myndum kvikmyndasögunnar. Eg
fyrir mitt leyti vona ekki.
Ottó Geir Borg
Kynníng verður u
nærfatatískunni frá
Triumph i Hrísaluncii
Akureyri í dag, frá ki.
13" 18 ogá morgun,
föstudag, í
Heimahorninu
Stykkishólmi frá
id. 13-17
HEIMABIO
MYNDVARPI
DAVIS heimabíómyndvarpi er
stafrænn skjávarpi sem varpar
upp myndum frá DVD spilurum,
töívum oa myndbandstækjum
á vegg eða sýningartjald.
Myndbreidd 0,8-5,Om.
Sala og útleiga á sýningarbúnaði.
www,
.davis.
no
DLP CineVision
;«»íís'isssii- -frábær: myndgæbi
Laugavegi 178, sími 570 757A
Nú fæst ný útgáfa af þessum vinsæla síma,
með endurbættu valmyndakerfi sem birtir
fleiri línur af valmöguleikum og er mun
þægilegra í notkun.
ÞETTA ER HÁTÆKNISÍMI SEM Á SÉR ENGA LÍKA.
WAP
MOTOROLA TIMEPORT
Tri Band 900/1800/1900
fyrir Evrópu, Bandaríkin og Asíu
Þyngd100 g
5 línuraf texta á skjá
Innbyggð dagbók fyrir allt að 1000 atriði
Innbyggður símsvari og upptökutæki
Raddstýring
Titrari
Reiknivél og gjaldeyrisreiknir
Innrautt tengi
3 leikir
LÉTTKAUPSÚTBORGUN:
20.980 kr.*
Heildarverð 32.980 kr.
Staðgreiðsluverð 31.331 kr.
O
Auk 1.000 kr.á mánuði ítólfmánuði