Morgunblaðið - 23.11.2000, Blaðsíða 72
/2 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ika Steen
inudsen
Niels Olsen Sids
EDDIE MURPHY er KLUMPARNIR
a m xy.s
!f okus
I r r
ynd kL 5.45, 8 og 10
SAVINGGRACE
Sýnd kl.1CL3b.
SýnflkU^ISjd
kl.8.
Sýnd kl. 8 og 10. B.M4
Hagatorgi
www.haskolabio.is
simi 530 1919
# *
r .*.....i
HÁSKÓLABÍÓ
HASKOLABIO
mhíbheibie
tm
mm
idiMffly MMrtlfci MiaúMi mméMii wmaMi .mumkiin .swrillM
RENEE CHRIS M0RGAN GREG
ZELLWEGER ROCK FREEMAN KINNEAR
EDDIE MURPHY er KLUMPARNIR
WV
aTis
§f 6 k u s
★ ★★ ÓJ Stöð 2
■f*r ym~f
og þarf hjálp strax!
Frábær gamanmynd með Renée Zellweger
úr Jerry Maguire, Morgan Freeman og Chris Rock
iii iorr
Hún er að elta draum... þeir eru að elta hana
Sýnd kl. 3.30, 5.45,8 og 10.20. B. i. 16. Vit nr. 161
Klúklli
Sýnd kl. 4 og 6. Bl.
tðli. Vitnr. 144
Sýnd kl. 4 og 6. ensku
tal. Vitnr. 154.
Sýndkj.8<»10.15
W 8 °9 10'15 B Í ’6 VÍt nr'160
Kaupið miða í gegnum VITÍð. Nánari upplýsingar á vit.is
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 165
BRUCE WíLUS
wna
og 10.05. Vitnr. 159.
Aðdáendur Backstreet Boys fleygja sér í veg fyrir þá
Reuters
Þad getur verið þrautinni þyngra að vera svona frægur.
Hamslausir
aðdáendur?
BACKSTREET Boys eru um þessar
mundir á hundrað klukkustunda
maraþon-tónleikaferð þar sem kom-
ið verður við í Tókýó, Sydney,
Höfðaborg, Ríó og New York.
Meðlimum hljómsveitarinnar varð
hinsvegar ekki um sel þegar æstir
aðdáendur hófu að fleygja sér í veg
fyrir rútu þeirra á leið frá flugvellin-
um í Ríó.
„Þetta var brjálæði, það hefði
mátt halda að forsetinn væri mætt-
ur, ekki Backstreet Boys,“ sagði
Howie Dorough, einn hljómsveitar-
meðlima, aðspurður um atburðinn.
Piltamir eru í öngum sínum og
óttast að aðdáendur þeirra slasist af
þessu hamsleysi. Til dæmis slösuð-
ust 10 manns þegar fólk þyrptist að
rútu þeirra við Narita-flugvöllinn í
Tókýó. Bandið er með tónleikaferð-
inni að kynna nýjustu plötu sína og
ferðast um sex heimsálfur; ver 55
tímum í flugi og 45 tímum á jörðu
niðri. Platan ber nafnið Black and
Blue sem gæti útlagst Blár og mar-
inn á íslensku, en hætt er við að
margir aðdáendur Backstreet Boys
séu einmitt bláir og marðir um þess-
ar mundir.
Bítlaplatan 1 söluhæst á Bretlandi
————
stmá* ■ ■
■ ,
Bítlaæðið heldur áfram
ÞÓTT Bítlarnir hafí ekki starfað í
þrjátíu ár hafa vinsældir þeirra lít-
ið dalað. Á mánudag var tilkynnt á
Bretlandi að á þessu ári hefði eng-
in plata selst meira á cinni viku en
safnplata Bítlanna 1. Þar með hafa
þeir John, Paul, Ringo og George
skotið ref fyrir rass böndum á borð
við U2, Westlife og Kryddpíurnar
og söngvurum á borð við Robbie
Williams og Madonnu.
Platan seldist í 319.000 eintökum
en helsti keppinauturinn, Islands-
vinurinn Robbie, seldi 313.000 ein-
tök. Sykurpoppsböndin máttu sín
litils og seldist t.d. Westlife-platan
Coast to Coast í „aðeins" um 60.000
eintökum.
Ekki er að furða vinsældir plöt-
unnar, enda inniheldur hún 27 sí-
gilda slagara sem allir hafa verið í
fyrsta sæti vinsældalista. Er þar að
fínna lög á borð við „A Hard Day’s
Night“, „Come Together“ og
„Penny Lane“ og spannar platan
feril Bítlanna frá 1962 alveg til
1970.
„Það kemur ekki á óvart að þessi
plata skuli vera í fyrsta sæti,“ sagði
talsmaður Tower Records. „Hljóm-
sveitirnar sem höfða sérstaklega
til unglinga fleygja hver annarri
tiltölulega fljótt úr toppsætunum...
þær virðast ekki hafa það sem þarf
til að tóra lengi á listunum, en Bitl-
arnir halda alltaf vinsældum."
MYNPBOND
Hvunn-
dags hetjan
Erin
Erin Brockovich
Erin Brockovich
Drama
★★★
Leikstjóri: Steven Soderbergh.
Handrit: Susanne Grant. Aðal-
hlutverk: Julia Roberts, Albert
Finney. 131 mín. Bandarfkin 2000.
Skífan. Öllum leyfð.
LÖNGUM hafa leikkonur í
Hollywood kvartað sáran undan
því að engin bitastæð hlutverk séu
mmmmmmmmmmi í boði fyrir þær.
Að í borg kvik-
myndanna ráði
karlpeningurinn
ferðinni og geri
myndir sem höfði
til sín og kyn-
bræðra sinna en
sinni hinu kyninu
sjaldnast nema
þegar gróðavon er
í augnsýn og sú vonin snúist jafnan
á einn eða annan hátt um kynlíf og
niðrandi meðferð á konum. Erin
Brockovich hlýtur því að vera þess-
um konum mikið gleðiefni - á fleiri
en einn hátt. í fyrsta lagi er titil-
persónan sjálfstæð og kröftug ein-
stæð móðir sem býður karlaveldinu
birginn og yfirbugar. í öðru lagi er
persóna þessi byggð á raunveru-
legri persónu, Erin Brockovich,
konu sem í raun og veru vann ofan-
nefnt afrek. I þriðja lagi vinnur ein
kvenstjarnan í Hollywood; Julia
Roberts, mikinn leiksigur. I fjórða
lagi var það karlmaður og einn
fremsti leikstjórinn í Hollywood
sem tefldi svo djarft að gera slíka
„vandamálamynd". I fimmta lagi
sló hún svo um munaði í gegn og
halaði svo mikið inn í kassann að
hún getur ekki annað en haft áhrif
á stjóranna í Hollywood og áhersl-
ur þeirra. í sjötta lagi var Roberts
úrskurðuð voldugasta kvikmynda-
stjarnan í bransanum í kjölfar vin-
sælda myndarinnar, sannið þið til -
kona.
Og það verður ekki annað sagt
en að myndin hefur átt alla sína
velgengni skilda. Hún er einfald-
lega góð og vönduð mynd - gerð af
vitsmunum og virðingu. Sérstaka
rós í hnappagatið hlýtur svo Soder-
bergh fyrir að sýna að það er hægt
að gera mynd um slíkt efni án þess
að hrasa og detta ofan í síki væmn-
innar og sökkva.
Skarhéðinn Guðmundsson