Skírnir - 01.01.1829, Side 22
22
klerka þar framvegis. þó raunu þad ýkjur
einar, er seinustu fréttir herma, ad Spánar stjórn
ætli opinbcrt ad taka múlstad Michaels í Port-
lígal, en hitt er vissara ad Spanskir hafa út-
gjörd fyri Stafni til eyjarinnar Kúbu, og þadan
til Mexikós, hvar óeirdir hafa brotizt út í opin-
bera styrjöld, hugsa Spanskir sér lil hreifíngs,
ad geta brotid þar land undir sig á ný, er þeir
ílla viduna missir eigna sinna í Vesturhálfu, og
jafnan leita lags ad ná þeim aptr.
Portúgal. Eins og um er getid í ársfrétt-
uuum frá Portúgal í fyrra, var hagr ríkisins í
byrjun tímabils þessa mjög tvísýnn; , hjá vinum
nýa stjórnarformsins hreifdi sér nokkurskonar
kvídbogi, og svo var sem hugr segdi þeim, ad
mikid óvedr drægi upp yfir höfdi þeirra. Ad
visu hafdi Michael eptir lánga útivist tekid land
1 Portúgal, og litlu sídar.á dýrdligri samkomu
svarid ad stydja hina nýu ríkisskipun, og stjórna
henni samkvæmt, sýndist því Portúgals lukku-
sól ad svo komnu ad skxua úr hádegisstad, en
hér vard scm optar, ad skúr kom eptir skin.
Varla varMichael seztur ad völdum, er adgjörd-
ir hans berliga Iýstu þvl, ad hönum hafdi
þegar fyrnzt særi sitt, var þad fyrst til merkis
þarum, ad í hatis litvalda rádaneyti áttu þeir
einir sæti, er kunnir voru ad því ad unna
gamalli hjátrú og klerkaveldi, en hata nýbreytni
alla og umbót í rikisskipun. Lék þar og grunr
á, ad ekkjudrottníngin rédi meiru enn vel mátti,
og í íyrstu var tilætlad, en nú bar fleira til