Skírnir - 01.07.1891, Side 21
Heilsufar og mannalát.
21
diktsdóttir, hann lærði undir skóla hjá séra Jóni Konráðssyni að Mælifelli
og fór í Bessastaðaskóla 1826, útskrifaðist þaðan 1831 og sigldi samsum-
ars til háskólans og tók þar 1. og 2. lærdómspróf með 1. einkunn, las
fyrst lögfræði, en hvarf bráðum frá því námi og tók að leggja stund á
norræna málfræði, varð aðstoðarmaður við safn Árna Magnússonar 1839,
fékk veiting fyrir kennaraembætti við latinuskólann í Rvik 1846, en fór
þangað aldrei, varð aukakennari í norðurlandamálum við háskólann 1848
og reglulegur háskólakennari 1862, en lausn frá embætti fékk hann 1886.
Hann var konungkjörinn fulltrúi íslendinga á frumlagaþingi Dana 1848
—49, og 1868 gerði Uppsalaháskóli liann að heiðursdoktor. Hann var einn
af stofnendum Fjölnis og réð mestu um stefnu þess rits, að þvi er snerti
umbætur móðurmálsins. Hann gaf út nokkrar fornsögur íslenzkar, „Frum-
parta ísl. tungu“, „Sýnisbók ísl. tungu“; danska orðbók með ísl. þýðingum
gaf hann út 1861 og auk þess hefir hann samið margar ritgerðir til skýringar
á ísl. tungu, einkum kvæðum fornskáldanna, er allar lýsa djúpsærri glögg-
skygni og miklum lærdómi. Skömmu fyrir dauða sinn arfleiddi hanu sjóð Árna
Magnússonar að öllum eigum sínum (um 18,000 kr.) og skal verja vöxtunum
til útgáfu ísl. fornrita. Hann kvæntist 1865 Karen Sofie Pedersen (d. 1877).
Jóhann Knútur Benediktsson, prestur á Kálfafellsstað, andaðist 16.
jan. (f. 7. apr. 1822). Hann var sonur séra Benedikts Magnússonar á
Mosfelli í Mosfellssveit (d. 1843), útskrifaðist úr Bessastaðaskóla 1846,
vígðist 1849 til Þykkvabæjarklausturs, fékk Mosfell í Mosfellssveit 1862,
Meðallandsþing 1866, Einholt í Hornafirði 1869 og Kálfafellsstað 1874;
lausn frá prestskap fékk hann 1887. Kona hans var Ragnheiður Sveins-
dóttir prests Benediktssonar á Þykkvabæjarklaustri (d. 1849).
Bergur Jónsson, prestur í Vallanesi, andaðist 7. maí. Hann var fædd-
ur að Hofi í Álptafirði 4. apríl 1826. Foreldrar hans voru séra Jón Bergs-
son og Rósa Brynjólfsdóttir, er síðar giptist séra Bjarna Sveinssyni á
Stafafelli. Hann kom í Bessastaðaskóla 1843 og útskrifaðist úr Reykja-
víkurskóla 1849, úr prestaskólanum 1861 og fékk Bjarnanes 29. okt. 1862
og vigðist þangað 8. maí 1863, fékk Ás í Fellum 1874 og Vallanes 1878.
Hann var prófastur í Austurskaptafellssýslu frá 1861 og talinn merkis-
presfur í ýmsum greinum.
Pétur Pétursson, biskup, andaðist í Reykjavik 16. maí. Hann var
fæddur á Miklabæ i Blönduhlið 3. okt. 1803. Foreldrar hans voru Pétur
prófastur, er lengst bjó á Víðivöllum, Pétursson, Björnssonar, prests að
Tjöm á Vatnsnesi, og Þóra Brynjólfsdóttir, Halldórssonar biskups Bryn-