Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.07.1891, Side 30

Skírnir - 01.07.1891, Side 30
30 Evrðpa 1891 ir þá, sem yrðu særðir i einum bardaga. Hinar nýju byssur mundu sópa hinum voldugu herjum eins og heyi. Þegar ófriðurinn væri á enda háður, kæmu svo i ljós afleiðingar hans, sultur og seyra og hallæri og banvæn- ar drepsóttir, sem ekki yrðu hót betri, heldur skæðari og voðalegri en sjálfur svartidauði. En Billroth var eins og rödd í eyðimörku. Stjórnendurnir lofuðu reyndar friði eins og vant er. En menn héldu áfram að smíða morðvopn, að venja herlið við víg og hernað. Þýzkur herforingi, Lessczynski að] nafni, ritaði um ófriðarhorfur í timaritið „Deutsche Revue“ og sagði, að ófriður mundi ekki verða í Evrópu fyrr en 1894, því þá fyrst yrðu Bússar búnir að vopna her sinn nýjum vopn- um. En þó haldið sé lífinu í friðnum með forsjálni og aðhjúkrun, með dúðum og umbúðum, þá er hann samt dauðveikur. Frakkland reynir, þegar er færi gefst á því, að taka Elsass og Lothringen frá Þýzkalandi. Rúss- land reynir, þegar gott færi gefst á því, að breyta til suðaustan til í Evrópu. Enn þá bíða þeir Frakkar og Rússar og vilja sæta lægi. Friðurinn tórir, en hvað lengi? Nýársdag 1891 lofuðu allir stjórnendur friði, en hálfum mánuði síðar sást, að enn lifði í ófriðarglæðunum. Rússastjórn lét umboðsmann Þjóð- verja í Sofia, höfuðborg Búlgaríu1, afhenda Búlgaríustjórn bréf; kvartaði hún í því yflr, að Búlgaría væri orðin athvarf og hæli rússneskra níhilista og sakamanna; væri þeim þar tekið tveim höndum jafnvel af Stjórninni, og sumir settir í embætti. Lýsti Rússastjórn yfir óánægju sinni, en lítið um svör frá Búlgörum; þeir vísuðu til Tyrkjans í Miklagarði, en hann dró alt á langinn. Skömmu síðar varð mönnum hverft við, er Orispi, sem var talinn ein af aðalstoðum þrenningarsambandsins, var steypt úr völdum. Ítalíuþing var óánægt með fjárhagsstjórn hans og líkaði illa, að hann hafði á þingi lastað þá menn, sem leystu ítaliu úr dróma. Kvað hann þá hafa sleikt sig upp við stórveldin. Var Crispi þá velt úr völdum og aðalsmaðurinn Di Rudini tók við stjórn. Héldu þá Frakkar, að þrenningarsambandið væri út.i með þeim Bismarck og Crispi, en þeim varð engin kápan úr þvi klæðinu. Rudini lýsti yfir á þingi 14. febrúar, að stjórnin mundi halda sama ríghaldi í sambandið við Þýzkaland og Austurríki og Crispi hefði gert. Jafnframt þvi mundi hún leitast við að ryðja úr brautu öllum þeim rógi og áburði, sem hefði komizt upp milli Ítalíu og Frakklands og eiga 1) Rússar hafa engan umboðsmann par, pvi stjórnin er ólögmæt i þeirra augum. Omboðsmaður Þjóðverja annast málefni þeirra.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.