Skírnir - 01.07.1891, Blaðsíða 37
Evröpa 1891. 37
kveldið, er „Lohengrin11 var leikinn, og 500 næsta skiptið. Sljákkaði pá í
þeim.
Líka gekk það staflaust á Frakklandi, að Dagmar, dóttir Kristjáns
níunda, hefði snúið harðstjóranum, manni sínum, Alexauder þriðja, fengið
hann til að hrjóta odd af oflæti sínu og taka saman við franska þjóðveld-
veldið. Paul Dérouléde, sem er hinn helzti þjóðverjahatari meðal Frakka,
tók þetta fram í ræðu í París, og endaði hann með því að hrópa: „lifi
Dagmar“. Telja Frakkar Dani vísa sem bandamenn sína og Kússa í hin-
um næsta ófriði.
Gervais var hafður í hávegum. Ung og fríð og flugrík stúlka gipt-
ist honum, sem er maður hniginn á efra aldur, enda var för hans orðin
hin frægasta. Þótti mönnum sem Ásaþór væri kominn úr AuBturvegi.
Var nú orðið bert og augljóst öllum heima, að Frakkland var ekki lengur
einangrað og að Þýzkaland réð ekki lengur lögum og lofum á meginlandi
Evrópu. Nú hittist svo á, að 4. september 1891 var hið franska þjóðveldi
21 árs gamalt. Er það lögaldur karlmanna á Frakklandi og má því kalla
þjóðveldið komið til vits og ára. Engin stjórn hefir verið jafnlengi við
lýði á Frakklandi, síðan 1789. Sá Rússakeisari, að langt var að bíða þess,
að þjóðveldið kollvarpaðist, og braut því odd af oflæti sínu.
Skjótt bar á því, að Rússar höfðu meiriumsvif og létu meira til sín
taka en áður. Tyrkjasoldán tök stórvezírstign af Kiamil pasja, vin Eng-
lendinga, og skipaði mann, sem er enginn vinur þeirra, í staðinn. Hann
leyfði Rússum, að skip úr sjálfboðaflota þeirra mættu fara um sundin við
Miklagarð. Svo kallast stórskip, sem brúka má til herflutninga, og sem
voru gerð út af ýmsum hæjum á Rússlandi af sjálfsdáðum 1878. Þótti
Englendingum sem þettaværi brot á Berlínarsamningnum 1878, og urðu
töluverðar hréfaskriftir milli stjörna í Evrópu.
Rússar juku eins og þeir hafa gert undanfarin ár her sinn við landa-
mærin vestur og suður. Hermálaráðgjafi þeirra hefir róið öllum árum að
því um langa stund, að hver vopnfær maður væri til taks og allt í sem bezt-
um ófriðarstellingum vorið 1892. Halda þeir, að Gladstone komist til valda á
Englandi það ár, en hann hallast meir að Rússum og Frökkum en að
þrenningarsambandinu. „Daily News“, blað hans, vorkenndi Rússum, að
þeir vildu eiga útleið úr Svartahafi, sem er að kalla rússneskt. En hlöð
apturhaldsmanna ógnuðu Tyrkjanum og létu Rússa vita, að þó þeir tækju
Miklagarð, þá mundu þeir skjótlega verða að hrökklast þaðan undan þrenn-
ingarsambandinu, og annað þar fram eptir götunum. Þjóðverjar sinntu