Skírnir - 01.07.1891, Síða 49
Kanada.
49
lög, en enginn dómur hefur dæmt um það. Ðufíerin lávarður1, sem var
langt um meiri stjórnvitringur og jarl en þér eruð, fór ekki að ráði sinu
eins og þér hafið gert, þegar Kyrrahafsjárnbrautarhneykslið kom fyrir, sem
þó var miklu verra en hneyksli það, sem hér er um að gera. Vinir yðar
í stjórninni töldu sér þá ekki skylt að víkja úr völdum, fyr en kjósend-
urnir höfðu kveðið upp sitt álit. Hinir seku ráðgjafar voru þá undir-
tyllur og álægjur yðar. Bkki bannaði siðgæðið, sem þér haldið svo hátt á
lopti nú, yður þá að styðja og styrkja svikarana af öllum mætti. Aldrei
munnð þér fá Kanadabúa til að trúa, að þér hafið breytt svona af aga og
umönnun við siðgæðið. Hvötin hjá yður er önnur, nfl. viðleitni að hjálpa
vinum yðar til að komast að ábatasömum kaupum og sölum. Það er allt
og sumt. Leyfið mér að minna yður á, að yður er bezt sem fyrst að láta
herra Abbot (forstöðumann apturhaldsráðaneytisins), húsbónda yðar, borga
launin fyrir svik yðar við þjóðina. Jeg mun innan skamms ganga fyrir
dómpall þjóðarinuar og taka við því umboði úr hennar sterku hönd, sem
skipar mig aptur í þann sess í landi voru, sem þér hafið vikið mér úr.
Mun jeg þá, samkvæmt landslögum vorum, reka yður burt úr jarlshöllinni,
svo framarlega sem þér sitjið þar þá enn og hafið ekki þegar af hendi
drottningar þegið þau laun, sem þér eigið skilið “.
Svo mörg voru þessi orð. En bréfið er vottur um, hvað Englending-
ar leyfa sér, og hvernig þeir hugsa sér sambandið milli Englands og ný-
lendna þess. Getum vér íslendingar séð, hvað gott er og hvað illt er í
því, og lært af því, þó ekki sé vert að læra af því að þiggja mútur, eins
og Mercier mun hafa gjört.
Mannalát. Jules Grévy andaðist 9. september. Hann var fæddur 1807
austantil á Frakklandi við Jurafjöllin. Hann var að lesa lög i París, þeg-
ar júlíbyltingin (1830) varð þar, og barðist með hreysti á bæjargötunum
gegn stjórninni. Síðan varð hann málaflutningsmaður og varði marga
þjóðveldissinna á árunum 1830—48. Eptir febrúarbyltinguna komst hann
á þing. Kom hann þar meðal annars með uppástungu um, að þingið ætti
að geta vikið úr völdum þjóðveldisforseta, sem það grunaði um græzku.
Sá hann sem var, að Napóleon forseti var úlfur í sauðarklæðum, og hefði
Grévy haft sitt fram, hefði hann aldrei orðið keisari, en það varð nú ekki.
Þegar Napóleon tók taumana á Prakklandi, dró Grévy sig í hlé, þangað
til 1868, að hann var valinn á þing. Var hann sárbeittur mótstöðumaður
1) Hann & vií hinn fræga íslamisfara, lnillandskonung og Kanadajarl.
Skfrnir 1891. 4