Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.07.1891, Síða 87

Skírnir - 01.07.1891, Síða 87
Danskar bókmenntir. 87 haust, þreyju án marks og miðs, þreyju eptir lífinu, þreyju eptir draumum, þreyju vegua þráans sjálfs, þreyju eptir öllu, sem maður ekki á, þreyju eptir öllu, sem maður ekki getur átt, þreyju eptir því, sem sjálft lífið á ekki, þreyju eptir sól i kafaldi, eptir þrumuveðri i dúnalogni, þreyju eptir morgundeginum og gærdeginum, þreyju i dauðanum og eptir dauðann. Móðir Niels Lyhne dreymir i hugskoti sínu, eins og flestar danskar stúlkur, hulinsdrauma. Henni finnst hún sjálf vera „eins og jurt, sem á heima í heitu löndunum, en er sprottin upp í óblíðu landi og veslast upp; í sól og veðurblíðu hefði hún vaxið i háalopt með glitrandi blómadýrð. Það hélt hún væri eðli sitt, hélt hún mundi verða þannig, ef hún væri gróðursett i réttri mold, og hana dreymdi þúsund drauma um þessi sól- hjörtu héruð og sárþreyði að fá sig að sjá, eins og hún ætti að sér". En dýrðarskrúðið dettur af öllum þessum lífsins hnossum, sem hún þreyir, þegar hún hefur öðlazt, þau. Degar hún ferðast öldruð og sjúk til suður- landa, þá þreyir hún þau, eins og þrá hennar geti loks hallað sér út af eins og fugl í hreiðri. En hugur hennar hafði enn sem fyrr skrýtt það, sem hún bjóst við, með svo björtum litum, að það, sem hún sá, var ekki samboðið því. Hún fer þreyjandi frá stað til staðar, leitandi að blett, er hún geti þekkt aptur, blett tir draumaheimi sínum, en hún finnur hann hvergi. „Það bar henni allt fyrir augu, en það hreif og hrærði hana ekki svo sterklega og innilega, eins og- hún hélt að það mundi gera. Hún hafði búizt við öllu öðru og hún hafði búizt við sjálfri sér allt öðruvísi. 1 draumum og ljóðum hafði það ætíð verið eins og fyrir handan hafið; þoku- blæja fjarlægðarinnar hafði breitt sig yfir hinn iðandi urmul af smámun- um og skapað stóra heild, — og margt býr í þokunni. Þögn fjarlægðar- inuar hafði sveipað það hátíðarsvip, og þessi fegurð var auðfundin. En nú, þegar þetta var i námunda við hana með hinum mörgu röddum lífsins og hver smáinunur stóð sér og fegurðin var í ótal brotum, þá gat hún ekki áttað sig á því, ekki skipað því sæti fyrir handað hafið, og nærri sér tók htin að játa, að henni fannst hún vera fátæk innan um allan þenna auð, sem gekk úr greipum henni“. Þetta var hinn síðasti draumur hennar, sem hjaðnaði. Svo þreyr hún hið eina, sem dauðveikur maður á eptir að þrá, landið fyrir handan gröfina. Blóð þessarar konu rennur í æðum Niels Lyhne. Þó berst annað afl við hennar afl í sál Niels Lyhnes. Faðir hans er búralegur bóndi með gott verksvit, en samt er danskt blóð í honum, því hann situr opt stundum saman á moldarvegg og horfir út yfir ekrur sinar, Alla æsku sína iifir Niels ineð móður sinni í álfasöguheimi eins, og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.