Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1900, Page 35

Skírnir - 01.01.1900, Page 35
SínaveldiB-þáttur. 35 erfitt lengi, því aö Sinverjar fyrirlitu alla útlendinga og vildu engin mök við þá hafa, og það var fyrst á 19. öld að Norðurálfuþjóðir fóru að ná verulegri fótfestu í Sínavoldi. Sínverjar hafa bannað að flytja nópíum“ til landsins, af því að alþýða manna þar í landi mannspillír aér á ópíums- nautn viðlíka og Evrópumenn gera á nautn áfengra drykkja. Eu Bretar óhlýðnuðust banni þeseu og Iaumuðu miklu af ópíum inn í landið og seldu á laun. Þegar Sínverjar ætluðu að gera upptækt ópíutnið, leiddi þetta til ófriðar (1839), og stóð sá ófriður yfir nokkur ár (þangað til 1842). Urðu þá Sínverjar að beiðast friðar, gera verzlunarsamninga við Breta, Iáta af hendi við þá eyna Hongkong og leyfa þeim verzlun í ýmsum sjóborgum. í herkostnað urðu þeir að borga Bretum 21 mil. dollara. Tveim árum síðar urðu Sinverjar að gera áþekka samninga við Bandaríkjamenn og Erakka og urðu þeir auk þess að heita Frökkkum, að kaþólsk trú skyldi hafa frelsi og vernd hvervetna í ríkinu. Árið 1850 urðu keisaraskifti, og komst þá með inum nýja keisara til valda sá flokkurinn, er mesta óheit hafði á útlendingum og sporna vildi við öllum viðskiftum við þá. Skömmu síðar varð mikil uppreist víðs vegar um ríkið, og hefir sú uppreist verið kend við Taipingeða „fríðarherrann“. Þe8si uppreist stóð mörg ár og náðu uppreistarmenn undir sig miklum hluta lands. Þetta notuðu aðrar þjóðir sér. Búsar höfðu í kyrþey náð undir sig öllum landeignum Sínverja suður að Amúr-fijóti og reistu víg- girðingar hvervetna um landið. Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn háðu stríð við Sínverja, og leikslokin urðu, að Sinverjar máttu til að opna 9 hafnir nýjar fyrir verzlun við útíendinga, leyfa kristna trú í landinu, Ieyfa verzlunarmönnum að sigla um Jangtsekiang-fljót og útlendum ferðamönn- um að ferðast um landið, hvar sem þeir vilja. Árið 1860 höfðu Bretar og Frakkar neytt Sinverjakeisara til að leyfa sendiherrum að setjast að í Peking; 1861 dó keisarinn í Je-ho, en þangað hafði hann flúið, þegar Norðurálfumenn ruddust inn í Peking, og hafði hann ekki fiutst aftur til höfuðborgarinnar, því að hún var í hans augum saurguð eftir að h)ir „útlendu djöfiar“ höfðu setst þar að. í Sínlandi eru engin lög um ríkis- erfðir, en hver keisari ákveður sjálfur, hver af ættmönnum hans skuli við stjórn taka eftir hann; en þeirri ákvörðun er leyndri haldið, svo að eng- inn fær að vita, meðan keisarinn lifir, hver rikiserfinginn er. Keisarinn, sem dó, Sín-fung, var kvæntur maður, en þeim hjónum hafði eigi orðið barna auðið; en keisarinn hafði átt son fram hjá, og var sá nú 6 ára Hann hafði hann arfloitt að ríkinu eftir sig. Móðir sveinsins, Kung prinz
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.