Skírnir - 01.04.1914, Side 7
Nokkur orð um þjóðtrú og þjóðsiði Islendinga. 119
síður merkilegir og þýðingarmiklir en þjóðtrúin og hindur-
vitnin; enda hafa útlendir vísindamenn safnað þeim mjög
vandlega hver hjá sinni þjóð. Þeir eru engu síður spegill
hugsunarháttarins en hitt. Og oft eru bæði svo nátengd
og vafin saman, að hvorugt verður skoðað til fulls nema
skoðað sé í nánu sambandi hvað við annað. Sumt af
þjóðsiðum og venjum er eldgamalt og á rót sína að rekja
framan úr hinni svörtustu fornöld og römmustu heiðni, og
sumt má jafnvel rekja austur í Asíu — fyrir þá sem hafa
tæki til að rekja svo langt. Sumir siðir og hættir byggj-
ast á svo fornri trú, að það er fyrir löngu horflð úr minni og
meðvitund manna, en þeir hafa haldist við samt, og hafa
þá stundum á síðari tímum skapast nýjar ástæður til þeirra.
Þannig hafa margir siðir haldist frá fornöld til vorra daga
eða alt fram undir vora daga, og eru þá færðar aðrar
ástæður fyrir þeim en áður var. Hefir kirkjan oft átt
sinn þátt í því að breyta þeim ástæðum.
Sumt af þjóðsiðunum heflr aftur komið upp á síðari
öldum, og er sumt af þeim líklega ekki tiltölulega gamalt.
Hugsandi sérvitringar hafa komið ýmsu á, eftir því sem
þeim hefir þótt við eiga, að vera skyldi eða ekki skyldi,
og aðrir síðan tekið það eftir þeim. En þetta er stórum
minni hluti gagnvart hinu, sem eg tók áðan fram, enda
víst sumt af því alls ekki íslenzkt að uppruna. Eg skal
taka til dæmis ýmisleg smátöfrabrögð og sumt af lækn-
ingakáki alþýðu, enda þótt margt af því sé áreiðanlega
innlent.
Þeir, sem hafa safnað til þjóðhátta- og þjóðtrúar-lýs-
inga meðal þjóðanna, hafa tekið misjafnlega margt til
greina. En hvað sem um það má segja, hvað taka skal
og hvað ekki, þá er eitt víst, að það virðist réttast að
taka sem flest til greina af því, sem trú og hugsunarháttur
þjóðarinnar birtist í. Fjöldi orða og talshátta í málinu
byggist einmitt á þessum siðum og trú, og er það svæði
mér vitanlega gersamlega órannsakað enn. Mörg smáfeld
atvik og viðbrigði i daglegu lífi, sem fæstir taka eftir,
eiga oft sínar ástæður, sem annað hvort eru gleymdar og