Skírnir - 01.04.1914, Síða 12
124
Nokkur orð um þjóðtrú og þjóðsiði Islendinga.
Davíðsson ritað mikla bók og merka, og hefi eg því farið
mjög lauslega yíir þann kaíla. En ýmislegt var það, sem
til skemtana var talið, og má þar til telja gestakomur
alment og gistingar, og svo útreiðarnar um helgar á sumr-
in með öllu því umstangi, er þeim var samfara. Þar er
og lýst reiðtýgjum, reiðfötum o. fi. er heyrði til drykkju-
útreiðanna. Þá koma orlofsferðirnar og orlofsgjafirnar á
haustin. Svo er hnýtt aftan við lægsta stiginu af ferða-
lögunum: flakkinu og förumannalýðnum, sem var áður
þjóðarmein, en nú er orðin »en saga blott«. Þennan kafla
væri annars réttara að kalla »ferðalög og flakk«.
13. Trúar- og hugsunarlífið. Það hefir orðið allmikið
mál og þó stutt yfir farið, og mundi þar þó enn miklu
mega við bæta. Þar er fyrst lýst að nokkru þjóðarein-
kennum eftir landshlutum, eftir því sem föng voru til.
Síðan er lýst alþýðumentun eftir landshlutum, eftir því
sem föng voru til. Síðan er lýst alþýðumentun og fróð-
um mönnum meðal alþýðu, kirkjutrú manna og kirkju-
rækni, kirkjusiðum og venjuin við kirkjuferðir, siðferði og
siðgæði. Síðan eru teknar fram katólskar menjar, sem
lengi loddu við með alþýðu manna; þá eru og teknar
frani hinar heiðnu menjar, sem jafnvel enn lifa i trú,
manna, og kemui' þar til greina. bæði álfatrúin, galdra-
trúin, trú á náttúruhluti og náttúrufyrirbrigði o. m. fl.
Síðan eru teknar fram liugmyndir almennings og þjóð-
trúarinnar um annað líf, og vefst þar eitt og annað sam-
an, sem er ærið ósamkynja, svo sem kirkjutrúin og ram-
heiðin draugatrú, eins og hún er arfgengin leugst framan
úr öldum; áhrif þessarar trúar á dánarsiði og framkomu
manna. Síðast í þeim kafla er svo tekin fram ýmis konar
hjátrú, sem hefir haft meiri og minm áhrif á hætti manna
og framkomu í lifi þeirra.
Margt annað kernur til greina en það sem hér er
tekið fram, því að þetta er að eins stutt yfirlit efnisins;
en það ætti að nægja til þess að sýna í sem féestum orð-
um að efnið er margvíslegt og margt er tekið fram í þessu
safni. Heimildir mínar eru margvíslegar eins og vænta