Skírnir - 01.04.1914, Qupperneq 62
174
Pereatið 1850.
í félagið. »Rektor leitaðist þá við með mjúkum orðum að1
fá þá 7 til að fylgja loflegu eftirdæmi Stefáns. Steingrím-
ur hafði orð fyrir þeim, og kvaðst vona að rektor mundí
ekki ætla sér að fá þá til að breyta gegn sannfæringu
sinni. Rektor kvaðst ekki hafa orðið var við mikla sann-
færingu hjá þeim, því sumir þeirra hefðu haft sannfær-
ingaskifti svo að segja daglega, og lagði hann innilega
að þeim að ganga i félagið aftur. En er það reyndist
árangurslaust, lét hann þá vita samkvæmt skoðun biskupsr
að þeir piltar, sem einu sinni hefðu óneyddir í félagið
gengið, yrðu skyldaðir til að vera í því, og halda bind-
indisheit sitt. En þegar þeir heyrðu það, neituðu þeir
með frekju að hlýða þessari skipun, og þar á meðal Stefán
Pétursson, og gengu síðan út«. Kl. 9 um kveldið áttu
svo allir kennarar fund með piltum, mættu þeir þar allir
nema einn, sem var sjúkur1). A þeim fundi hafði Bjarni
Sigvaldason2) orð fyrir piltum og lýsti þvi yfir, að úr því
að kennarar skólans ætluðu sér að neyða þá 7 til að
ganga í félagið, þá segðu þeir sig allir úr því. Arnljótur
Olafsson tilfærði nánar ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun
pilta, og tjáðu þeir sig allir þeim samdóma, nema Jón
Þorleifsson3); hann einn stóð upp og lýsti þvi yfir, að
hann gengi ekki úr félaginu. Rektor skoraði þá á pilta
að mynda nýtt félag, og lagði fram lög fyrir félagið svo-
hljóðandi4):
Bindindislög
Reykjavíkur lærða skóla.
1. grein.
Sérhver skólapiltur skal með öllu halda sér frá öllum
áfengum drykkjum. Einungis má hann bergja á því víni,
sem prestur útdeilir honum í altarissakramenti.
2. grein.
Verði nokkur skólapiltur brotlegur móti þeirri bind-
‘) Jóhannes Halldórsson cand. theol. harnak. á Akureyri f 1904
a) Síðast prestur að Stað i Steingrímsfirði f 1883
3) prestur a Olafsvöllum f 1860.
4) Eftir frumritinu með hendi rektors.