Skírnir - 01.04.1914, Síða 92
204
Dómur Dr. V. G. um „Hrannir11.
embætti, því at hón skal 1/sa allan heim ok verma«, segir »Koti'
ungsskuggsjá.
Skálar viða styrkan stað
steinum varðir byggja;
sálarhliði allmjög að
anddyr garðsins liggja.
Steinum varðir skálar byggja viðastyrkan stað. Anddyr garðs-
ins liggja allmjög að sálarhliði. Eg veit ekki hvað þarf sk/ringar
við af þessu. Að segja að steinum varðir skálar byggi staðinn finst
mér jafnljóst og ef sagt væri að staðurinn væri gerður af skálum^
með grjótveggjum:
Yztu steinum flæðar frá
fleinköst þyshá gjalla.
Fyrstu beinum sveitir sjá
særða »risa« falla.
Þarf að sk/ra það að skáldið notar hór »bein« fyrir »beinörv-
ar« og að hvítu mennirnir eru »risar« í augum Skræliugjanna!
Léttan, þéttan byrðing beins
bygðu þjóðir alda.
Slóttan, skvettinn otur eins
útbjó flóðið kalda.
Urn þessa vísu segir Dr. Y. G.: »Manni liggur við að taka
undir með Jóni sál. Þorlákssyni og hrópa: Hver skilur heimsku-
þvætting þinn? Þú ekki sjálfur, leiruxinn«. Mikils þvkir honum
við þurfa og þó er vísan svo auðskilin, að broslegt er að sk/ra hana:
Alda þjóðir (þ. e. margar kynslóðir) bygðu lóttan þéttan byrðing
beins (þ. e. húðkeipurinn). Eins útbjó flóðið kalda (þ. e. hafið)'
slóttan skvettinn otur. Húðkeipurinn var með öðrum orðum eins
vel gerður frá mannanna höndum og oturinn frá náttúrunnar.
Græna landsins firna fjöll
Fróni skína norðar,
mæna handan alhvít öll
austan Vínlands storðar.
Ur þessari fallegu vísu vill Dr. V. G. gera höfuðsynd í landa-
fræðinni og skilur hana svo sem Grænland liggi u o r ð u r af ís-
landi. Skáldið segir aðeins að Grænlands firna fjöll skíni enn norð-
ar en Island, með öðrum orðum að landið nái enn lengra norður.
Á því liggur áherzlan, en ekki hinu, hve langt það nær til suðurs.
»Vínlands siorð« er auðvitað sama sem Ameríka, og er það rótt að
Grænland liggi fyrir austan Ameríku.